Helstu fréttir
Lausar stangir í júní
Það er óhætt að segja að laxveiðin hefjist afbragðsvel, þær fáu ár sem opnaðar hafa verið hafa gefið frábæra veiði og laxar sjást víða um land – sumsstaðar allt að mánuði fyrr en vanalega. Það er útlit fyrir að júní verði óvenju góður veiðimánuður.
Þeir laxar sem komið hafa á land eru jafnframt mjög vel haldnir, þykkir og síðir. Það gefur vísbendingar um hagstæð skilyrði á fæðuslóð laxa í hafi sem ætti aftur að skila sterkum árgangi í sumar.
Við eigum eitthvað af lausum dögum í júní (sjá nánar hér að neðan) sem óhætt er að mæla með.
Blanda 2: frá 20 júní og fram til mánaðarmóta, verð á dagstöngina aðeins 14.800 kr
Hallá: frá 23 júní til mánaðarmóta, verð á dagstöngina 10.800 til 12.800 kr.
Laugardalsá: einn dagur, 26-27 júní, verð á dagstöngina: 44.800
Hólsá – vesturbakki: 25 – 28 júní, verð á dagstöngina: 14.800
Áhugasömum er bent á að senda póst á spall@lax-a.is til að tryggja sér daga.
Kv
Stefán Páll
