Helstu fréttir
Styttist í næstu Opnanir
Það styttist í næstu opnanir en Laugardalsá opnar þann 15 júní og Skjálfandafljót opnar 18 Júní. Það er mikill spenningur fyrir næstu opnunum en töluvert hefur sést af laxi um allt land og þær tvær ár sem opnuðu á Þriðjudaginn hafa verið að gefa meira en meðalveiði sl ára. Við hjá lax-á erum mjög bjartsýn á vorveiðina miðað við það sem hefur sést og veiðst af laxi sem af er af þessu veiðitímabili.
Laugardalsá opnar 15 júní, eigum næst laust 17-19 júní og svo aftur 27-30 júní.
Skjálfandafljót opnar 18 Júní og eigum við næst laust 20-21-22-23-24 júní bæði í Barnafelli og A- Bakka efri. Ég spjallaði einmitt við Véstein á Vaði í Morgun og hann var allveg viss um að laxinn væri mættur.
frekari upplýsingar gefur www.agn.is og stefan@lax-a.is
