Helstu fréttir

1&2mynd11

Drápið á Stórlaxinum í Ölfusá og Hvítá heldur áfram.

24.5.2012

Enn eitt árið hefur stjórn Veiðifélags Árnesinga ákveðið að gefa Veiðimálastofnun langt nef með því að láta sem vind um eyru þjóta ákvörðun/ákall frá árinu 2010 um að öllum stórlaxi á Íslandi skuli hlíft, þar sem talið er að stofninn sé í mikilli hættu. Stangaveiðimenn og veiðifélög um allt land hafa þjappað sig saman og farið að fyrirmælum Veiðimálastofnunar og sleppt öllum laxi sem er 2 ára, eða yfir 70cm. Veiðifélag Árnesinga hefur nú 3 ár í röð þverskallast að fara eftir þessum fyrirmælum og hefur nú verið ákveðið að enn og aftur skuli leggja net um gjörvalla Ölfusá og Hvíta til höfuðs stórlaxinum, sem stendur mjög höllum fæti á vatnasvæðinu, og er á leið sinni upp á hrygningarstöðvar sínar í uppám Árnessýslu. Þetta hljómar fáránlega en er staðreyndin samt. Það litla sem sleppur svo frammhjá netunum  munum við stangaveiðimenn af veikum mætti reyna að halda lifi í þeim fáu stórlöxum sem rata á flugur okkar og sleppa aftur í ánna til að viðhalda storlaxastofninum sem er í algjörri útrýmingarhættu - viðhalda stofninum til þess eins að netaveiðimenn geta þá dundað sér við að drepa restina um ókominn ár.  Það sjá náttúrlega allir hugsandi menn hvurslags rugl þetta er. Að sjálfsögðu eiga netaveiðimenn að fara að ákvörðun Veiðimálstofnunar eins og aðrir og ekki að leggja net sín fyrr en mest af storlaxinum er farinn hjá. Einfalt er það; seinkið netaveiðitímanum um 2 vikur, og þá hafa netaveiðimenn lagt eithvað á vogarskálarnar til friðunar og uppbyggingar á stórlaxinum á svæðinu.

Hérna að neðan er tilkynning frá Forstjóra Veiðimálstofnunar frá 2010.

Forstjóri Veiðimálastofnunar segir, að veiðifélög landsins verði að taka til hendinni og banna alfarið stórlaxadráp. Verulega skorti á hjá sumum þeirra, að hafa sett sér slíkar reglur.

Sigurður Guðjónsson, forstjóri, segir á vef Veiðumálastofnunar, að ekki sé heldur nóg að hafa reglur heldur þurfi að ganga eftir því að eftir þeim sé farið.

„Í netaveiði er hægt að seinka veiðinni uns stórlax er gengin hjá og velja smálaxamöskva. Í stangveiði á veiðimaður ekki að þurfa að hafa samviskubit ef hann fer eftir þeim reglum, sem gilda í hverju veiðivatn," segir Sigurður.

Hann segir að nú sé undantekningarlaust í náttúrulegum veiðiám lagt til að stórlax sé ekki drepinn. „En þessi ferill gengur hægt, allt of hægt fyrir stórlaxinn, því var gripið til þess að senda út ákall í byrjun sumars um verndun stórlaxins. Það ætti ekki að vera erfitt að hlífa stórlaxi nú þegar afburða góð veiði er alls staðar og nægan smálax að hafa vilji menn lax í soðið," segir Sigurður.

Árni Baldursson



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar