Helstu fréttir
Nýjar veiðibúðir í Grænland vel á veg komnar
Nú þegar eru nokkrir gámar á leið til Grænlands frá Íslandi og aðrir fjórir á leiðinni frá Eistlandi til Quaqartoq í Grænlandi. Allt er þetta eftir áætlun en stefnt er á að veiðibúðirnar verði tilbúnar 18. júlí. Þetta verða alvöru búðir sem saman standa af 16 húsum, af þeim eru eitt baðhús með heitu og köldu vatni, salernisaðstaða og sturtur og mataraðstaða undir þaki. Veiðibúðirnar verða staðsettar í villtri náttúru Grænlands og á besta stað fyrir bæði hreindýra og bleikjuveiði. Hér verður hægt að upplifa stórkostlega náttúru Grænlands og um leið njóta þess að vera með helstu þægindi í kringum sig.
.jpg)
Þetta er eitt stærsta verkefni sem Lax-á hefur tekið að sér og leggjum við mikla vinnu í að þetta fari á sem besta veg. En eigum við laus pláss í hreindýra og silungsveiðiferðir. Frekari upplýsingar er að finna á vef Lax-á eða senda tölvupóst á harpa@lax-a.is eða spall@lax-a.is.
