Helstu fréttir

hroi_5

Afmælistilboð Lax-a - Dagur 6.

10.5.2012

Lax-á heldur áfram afmælisgleðinni en í dag bjóðum við á tilboði áhugaverða daga í Hróarslæk og Miðdalsá í Steingrímsfirði. Tilboðin gilda í 25 stundir, frá klukkan 12:00 á hádegi í dag og fram til klukkan 13:00 á morgun. Tilboð gærdagsins, í Laugardalsá og Ferjukotseyrum er enn í gildi til kl 13:00 í dag.

Miðdalsá í Steingrímsfirði:

Er tveggja stanga á með góðri sjóbleikjuveiði auk þess að laxveiðivon er í ánni en 5000 laxaseiðum var sleppt vorið 2011 sem eiga að skila sér aftur í sumar.

Með stöngum tveimur fylgir tveggja herbergja veiðihús og hentar vel fyrir fjölskylduna. Í anni er leyfilegt að veiða með flugu og maðk.

Lítið er vitað um ána en ekkert hefur verið skráð í veiðibækur undanfarinn ár en ekker var veitt í henni sumarið 2011. Því er erfitt að fullyrða nokkuð um veiðitölur. Verður verði því stillt í hóf á meðan að verið er að kortleggja ána og koma skráningum í rétt horf.

agnmynd

Áhugasamir geta skoðað lausa daga á söluvef okkar agn.is

Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Lax-á í s: 531-6100.

Hróarslækur:

Hróarslækur rennur í Ytri Rangá skammt neðan Ægissíðufoss og er talsvert vatnsfall en þekkist undir nafninu Selalækur þar sem rennur í Ytri. Ósinn við Ytri Rangá fylgir veiðileyfum í Hróarslæk en þar hefur oft verið mjög góð veiði. Veiðimörk eru kyrfilega merkt og er eingöngu leyfilegt að veiða með flugu í ósnum. Fjórar stangir eru í ánni og fylgir húsið að Selalæk með leyfum sem veiðihús.

Hróarslækur er lindá og heldur því nokkuð jöfnu vatni allt sumarið, en vatnið er kalt, eins og í Ytri. Í læknum veiðast urriði, bleikja og lax, í mismiklum mæli þó. Undanfarin ár hefur laxveiði í læknum verið á uppleið, árleg veiði verið frá 250 löxum og upp í rúmlega 400 laxa. Síðasta sumar var þó undantekning en við búumst við góðu sumri þar sem sleppt var 35þ. laxaseiðium í lækinn fyrir komandi tímabil.

hroi_9

Áhugasamir geta skoðað lausa daga á söluvef okkar agn.is

Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Lax-á í s: 531-6100.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar