Helstu fréttir

_MG_1649

Afmælistilboð - dagur 3

7.5.2012

Krossá í Bitrufirði

Krossá er lítil 2 stanga á laxveiðiá sem gefur að jafnaði í kringum 100 laxa á sumri, en best hefur hún gefið 160 laxa sumarið 2010. Veiðisvæðið er 8km a lengd með 22 merktum veiðistöðum. Áin er blátær og hægt að sjá laxinn í mörgum hyljum og er nauðsynlegt að fara varlega að veiðistöðum þar sem laxinn er styggur í þessu litla tæra vatni.

Ágætis veiðihús fylgir Krossá sem er með 2 svefnherbergjum og tveimur svefnloftum auk þess að gasgrill er á staðnum og öll helstu eldhúsáhöld ásamt ískáp, eldhúshellum ofl.

_MG_1637

Í Krossá er leyfilegtað veiða með flugu og maðk frá 1. júli til 20. júlí og er hámarkskvóti 2 laxar per stöng per dag, eftir það má eingöngu veiða og sleppa noti menn flugu. Eftir 20. júlí er eingöngu leyfilegt að veiða með flugu og daglegur kvóti áfram 2 laxar á dag. Einnig eru veiðimenn beðnir um að sleppa öllum stórlaxi.

Tímabilin sem eru á tilboði í Krossá ná frá 30.júní til 15.júlí og aftur 15.-21. september.

 

Hólsá - Vesturbakki

Eftir að Eystri og Ytri Rangá renna saman kallast þær Hólsá þar sem þær renna sameiginlega til sjávar. Eins og gefur að skilja gengur gríðarlegur fjöldi laxa um svæðið, enda Rangárnar trónað á toppi lista yfir flesta veidda laxa á undanförnum árum. Veiðin í Hólsá getur því verið ævintýraleg þegar menn hitta á stóru göngurnar.

Fjórar stangir veiða svæðið og eru þær seldar í tveimur 2ja stanga pökkum. Ágætt hús fylgir með veiðileyfum. Í húsinu eru fjögur 2ja manna svefnherbergi og deila stangirnar með sér húsinu.

2009 Block 07

Tímabilin sem eru á tilboði í Hólsá ná frá 24.júní-3.júlí og 10.-20. september.

 

Áhugasamir geta skoðað lausa daga hér á söluvef okkar Agn.is en sem fyrr má einnig hafa samband við skrifstofu Lax-á í s: 531-6100 til að nýta sér þessi tilboð.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar