Helstu fréttir
Afmælistilboð dagsins - Eystri Rangá
Ekki þarf langorða kynningu á Eystri Rangá fyrir áhugafólk um stangveiði, enda hefur hún verið önnur af aflahæstu laxveiðiám landsins í hartnær áratug.
Eystri Rangá er tiltölulega vatnsmikil á og á margan hátt frábrugðin öðrum ám í sama stærðarflokki. Ekki er miklir fossar eða brot á laxasvæðinu en þeim mun meira af góðum breiðum og álum.
Gríðarleg veiði hefur verið í Eystri á undanförnum árum, allt frá 4300 löxum og upp í 7500 laxa og áin vinsæl hjá veiðimönnum eftir því.
Mest veiðist á flugu í Eystri en spónnin kemur þar á eftir og maðkurinn rekur lestina, en allt löglegt agn er leyfilegt í ánni allt sumarið.
Bestu flugur eru snældan, sunray, bismo, rauð frances svo fáeinar séu nefndar. Gamli svarti Tobyinn er öflugasti spónninn en einnig geta ýmsir þyrluspónar gefið vel.
Dagarnir sem eru hér á tilboði eru 4 til 10 júlí og er ekki veiðihúsaskylda á þessum tíma, veiðimenn geta að sjálfsögðu fengið hádegismat í veiðihúsi – en þá verða menn að láta vita með fyrirvara.
Þessi vika sem er á afmælistilboði hefur gefið 70 og upp í 200 laxa undanfarin ár – ekki skemmir að stórstreymt er í þessari viku í sumar og því líkur á mjög góðri veiði.
Hægt er að nálgast þetta afmælistilboð á www.agn.is en einnig má hafa samband við skirfstofu Lax-á í s: 531-6100
Tilboðið gildir frá hédegi í dag til klukkan 13:00 á morgun.
