Helstu fréttir
Gæsin er mætt
Gæsin er mætt til landsins og er öll suðurströnd landsins þakin af gæs, eða svona þar sem grænt er í túnum. Undirritaður var á ferðinni frá Kirkjubæjarklaustri í gær og má segja að það hafi verið gæs um allar sveitir. Óhemjumagn er af gæs í Gunnarsholti þessa dagana að éta upp leifarnar í kornökrunum frá því í fyrra og við skulum vona að það sé vísbending fyrir góðu gæsahausti.
