Helstu fréttir
Veiðisvæði vikunar Hvannadalsá
Í vefsöluni má finna nokkra daga á tilboðsverði i Hvannadalsá. Um er að ræða daga í upphafi veiðitímabilins, frá 21.-26. júní, á meðan enn er aðeins veitt á tvær stangir. Meðalveiði síðustu 5 ára í Hvannadalsá er 288 laxar og hefur veiði sveiflast nokkuð á tímabilinu, frá 100-450 löxum eftir árum. Ágætt veiðihús fylgir svæðinu.
Áhugasamir geta skoðað lausa daga hér.
Hvannadalsá er innst í Ísafjarðardjúpi rétt við Langadalsá um 350 km fjarlægð frá Reykjavík. Hólmavík í um 40 mín. akstursfjarlægð.
Hvannadalsá rennur í Ísafjarðardjúp samhliða Langadalsá og eiga þær sameiginlegt ósasvæði. Veiðisvæði Hvannadalsár er frekar stutt upp að Stekkjarfossi en áin er mun vatnsmeiri og straumþyngri í samanburði við systur sína í Langadal.
frekari upplýsingar á www.agn.is og stefan@lax-a.is
