Helstu fréttir
Pakkaferðir í Hreindýra- og sjóbleikjuveiði á Grænlandi
Eftir góðar viðtökur við fyrstu pakkaferðunum til Grænlands í lok júlí höfum við ákveðið að bjóða uppá fleiri ferðir seinnipart ágúst, þá 3 nátta ferð frá 18 til 21. ágúst og svo 4 nátta ferð frá 21-25. ágúst. Innifalið í ferðunum er flug fram og til baka, skot- og stangveiðileyfi, gisting í nýjum veiðibúðum Lax-á, bátsferðir frá flugvelli og til baka auk bátsferða á veiðislóðir, leiðsögumenn alla ferðina, umsýsla flutnings skotvopna, umsýsla vegna kjötinnflutnings auk 20 kg af bestu vöðvum af hreindýri, vottað, stimplað og fryst.
Pakkaferðir á hreindýr er 290þ fyrir 3 nætur og 310þ fyrir 4 nætur.
Pakkaferðir fyrir sjóbleikju í 3 nætur eru á 210þ og 230þ fyrir 4 nætur.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Jóhann á skrifstofu Lax-á í síma 531-6100 eða í tölvupósti á johann@lax-a.is
