Helstu fréttir
Vorveiðisvæði Lax-á
Eins og svo margir veiðimenn eru við hjá Lax-á spennt fyrir komandi veiðitímabili sem byrjar nú 1.apríl. Lax-á býður uppá nokkur svæði sem opna á vormánuðum en það eru Galtalækur, silungasvæði Tungufljóts, Brúará og Tannastaðatangi í Soginu. Vorveiðin í Blöndu (öll áin fyrir utan svæði.1) opnar svo 15. apríl.

Á Tannastöpðum fylgir gott veiðihús með potti og með Blöndu er gamla veiðihúsið við Móberg en ekki fylgir gisting með öðrum svæðum en það er lítið mál að leigja veiðimönnum bústaði á þeim svæðum.
.jpg)
Frekari upplýsingar má finna á agn.is eða á skrifstofu Lax-á í síma 531-6100
