Helstu fréttir
Gott holl í Laugardalsá
Það var að losna holl frá 13 til 16 júlí í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Áin er þekkt fyrir að lax gengur fyrr í ánna en almennar laxveiðiár og því er um besta tíma að ræða í ánni. Þrjár stangir eru seldar saman og fylgir hús með stöngunum. Veiðihúsið er rúmgott 7 manna hús með 3 herbergjum og í einu þeirra eru 3 rúm en í hinum tveimur eru tvö rúm í hvoru. Blástursofn, eldavél og öll helstu eldhúsáhöld, verönd með grilli. Aðgerðaraðstaða er í sérhúsi og fín aðstaða þar.
Frekari upplýsingar má finna á skrifstofu Lax-á eða á johann@lax-a.is
