Helstu fréttir
Opnunin í Svartá
Svartá í Austur Húnavatnssýslu opnar að morgni 1 júlí og búast má við því að sá silfraði verði mættur þá, enda laxinn snemmgengur á vatnasvæðinu. Þó svo að Svartá sé vanalega sterkust í ágúst þá er júlímánuður oft drjúgur. Opnunardaginn í fyrra veiddust 3 stórlaxar og árið þar á undan var svipað uppi á teningnum ef minnið svíkur okkur ekki. Algengast er að mesta lífið sé frá Brúnarhyl og niður í Ármótin sjálf.
Atli Bergmann með fallega 18 punda hrygnu úr Ármótum
Opnunardagurinn sjálfur er laus frá morgni til kvölds og fyrri vakt 2. júlí, alls 3 vaktir. Veiðimenn mega mæta í veiðihúsið að kvöldi 30. júní. Eldhúsið í Svartárhúsinu var algerlega tekið í gegn síðasta vor og húsgögn í setu- og borðstofu endurnýjuð. Fyrir næsta sumar fær svo baðherbergið í húsinu sömu meðferð og verður Svartárhúsið þá með því allra besta sem hægt er að finna.
