Helstu fréttir
Tungufljót
Tungufljót í Biskupstungum hefur verið góð viðbót við laxveiðiflóru landsmanna á undanförnum árum. Veiðin hefur jafnan verið góð, jafnvel frábær, en þó var síðasta sumar lélegt eins og svo víða annarsstaðar. Meðalveiði áranna 2008 til 2010 er 1580 laxar á aðeins 4 til 6 stangir, sem er með því allra besta sem gerist. Veiðistaðir eins og Faxi og Hólmabreiða að ógleymdum Laxhyl í gljúfrinu hafa raðað sér á lista með bestu veiðistöðum landsins frá árinu 2008.
Fallegur lax úr Faxa
Veiðihúsafyrirkomulag hefur verið á þann hátt á undanförnum árum að með hverjum 2 stöngum fylgir 1 sumarbústaður á bökkum fljótsins með svefnplássi fyrir 4. Í öllum bústöðunum er heitur pottur og ágætis eldunaraðstaða.
Veiðin getur verið misjöfn eftir tímabilum, oft er besta veiðin í lok ágúst og september, en einnig getur verið mikið líf í lok júlí.
Tungufljótið fer að detta í vefsölu á www.agn.is en þangað til má nálgast upplýsingar um verð og lausa daga með því að senda póst á spall@lax-a.is
