Helstu fréttir

IMG_6027

Fimm ára veiðibann á svartfugl

4.1.2012

Á vef Umhverfisráðuneytisins kemur fram að starfshópur, skipaður af Svandísi Svavarsdóttir umhverfisráðherra um verndun og endurreisn svartfuglsstofna, leggi til að friða fimm tegundir sjófugla af svartfuglsætt. Þetta á við allar veiðar og nýtingu næstu fimm árin, þ.m.t. um eggjatínslu. Þessar fimm tegundir svartfugla eru álka, langvía, stuttnefja, lundi og teista. Í skýrslunni leggur starfshópurinn áherslu á að hér við land sé einn stofn af hverri þessara tegunda þannig að staðbundin áhrif og breytingar hafa áhrif á um allt land og á viðkomandi stofn hér við land.

Er þetta byggt á mælingum sem sýna árlega fækkun álku um 20%, langvíu 7% á ári og stuttnefja um 24%. Viðverandi viðkomubrestur hefur verið á lundastofninum í nokkur ár eða 75% en algjört hrun var í varpi hans 2011, nema á Norðurlandi hjá um 20% af stofninum.

Helsta orsök fyrir hnignun þessara stofna að mati starfshópsins er fæðuskortur og leggur því hópurinn til að tímabundið bann við veiðum og nýtingu muni flýta fyrir endurreisn þeirra. Auk veiðibanns leggur hópurinn til að breyting verði gerð á veiðikortinu, m.a. þannig að veiðikort þyrfti til allrar nýtingu villtra fugla, m.a. eggjatínslu. Að bann við skotveiðum við fuglabjörg verði fært úr 500 metrum í 2000 metra fjarlægð frá björgunum. Einnig að endurbæta veiðiskýrslur svo ítarlegri upplýsingar fáist um eðli og umfang nýtingar og að taka upp samstarf við sjávarútvegs- og lanbúnaðarráðherra um að draga úr fugladauða við fiskveiðar.

Starfshópurinn var skipaður af fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar, Umhverfisstofnunar, Bændasamtaka Íslands, Skotveiðifélag Íslands og Fuglaverndar. Skotvís og Umhverfisstofnun skiluðu séráliti um friðun álku, langvíu og stuttnefju um takmörkun á veiði þeirra næstu fimm árin í stað algjörrar friðunar. Fulltrúi Bændasamtaka Íslands sagði sig frá tillögum starfshópsins.

Tekið af vef Umhverfisráðuneytisins.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar