Helstu fréttir
Laugardalsá við Ísafjarðardjúp
Laugardalsá er við Ísafjarðardjúp er ein allra besta á landsins, sérstaklega snemmsumars. Oft hefur hún skilað 180 – 300 löxum í júlí á 3 stangir, ekki geta margar ár státað af slíkri veiði. Oft hefur ágústmánuður einnig verið góður en áin lokar 1 september ár hvert.

Vissulega koma ár þar sem veiðin er minni en hér er lýst, eins og í öllum ám, en á síðustu 7 árum hefur áin þrisvar farið yfir 500 laxa á sumri og tvisvar að auki verið í kringum 400 laxa. Það má því ljóst vera að áin er hreint út sagt mögnuð laxveiðiá.
Við eigum eitthvað af dögum í Laugardalnum, bæði í júlí og ágúst, áhugasamir geta sent póst á spall@lax-a.is til að nálgast frekari upplýsingar.
