Helstu fréttir
Langadalsá - Einstök náttúrufegurð
Langadalsá er staðsett í botni Ísafjarðardjúps, um 350 km frá Reykjavík og 30 mín akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið nær yfir 18km með 37 merktum veiðistöðum en eingöngu er leyfilegt að veiða með flugu. Veiðin hefur verið á milli 250 og 350 laxar síðastliðin fimm ár en sumarið í fyrra gaf 263 laxa. Á veiðisvæðinu eru þrjár stangir seldar fyrripart sumars, eða til 12 júlí, en eftir það eru fjórar stangir eru seldar í ánni. Frábært veiðihús fylgir ánni en svefnaðstað er fyrir 16 manns í sérhúsi en í hinu húsinu er eldhús, borðstofa og stofa. Grill, sána og heitur pottur er til staðar en Langadalsá er tilvalinn fyrir stærri hópa eða fjölskyldur sem vilja slappa af og veiða.

Fyrir frekari upplýsingar eða bókanir er hægt að hafa samband við skrifstofu í síma 531-6100 eða í tölvupósti á johann@lax-a.is
