Helstu fréttir
Veislan heldur áfram í Stóru Laxá I&II
Stóra Laxá svæði I&II heldur áfram að skila góðum aflatölum. Svæðið er nú komið yfir 300 laxa og einungis ein vika búin af september. Síðustu tveir daga skiluðu um 60 löxum á svæðinu og þar af var einn 102 cm.
Lítið er að frétta af svæði III en það hefur ekki verið mikið stundað í vikunni. Við fréttum að Kálfhagahylur sé fullur af laxi en hann er rétt fyrir neðan fyrsta veiðistað á svæði III. Þetta þýðir vonandi að laxinn sé að ganga í meira mæli upp á efri svæðin í Stóru Laxá og veiðin þar fari að líkjast veislunni á svæði I&II.
Af svæði IV er að frétta að tvær stangir fengu fjóra laxa á tveim vöktum og þar af einn sem var á milli 18 og 20 pund. Meðfylgjandi myndir eru af veiðimönnum sem voru við veiðar á svæði IV í vikunni. johann@lax-a.is
