Helstu fréttir
Laxinn mættur í Blöndu
Við hjá Lax-á fengum skemmtilegan póst í gær frá Höskuldi B Erlingsyni Lögreglumanni og leiðsögumanni í Blöndu og svona hljómar hann.
Ég fór sumsé í gær og aftur í morgun og kíkti í Damminn og Holuna. Fínasta veður og vatn með besta móti í Blöndu. Ég tyllti mér á brúnina fyrir ofan Damminn og sat þar nokkra stund. Þá bylti sér fallegur 2 ára lax í miðjum damminum. Silfurbjartur og fallegur og á að giska 12-14 pund. Annað sá ég ekki en ég neita því ekki að hjartað tók kipp. Svo í morgun þá ákvað ég að kíkja aftur og gá hvort að ég yrði var við eitthvað líf. Og viti menn 2 laxar lágu neðst á klöppinni fyrir ofan flúðirnar í Damminum. Nýskriðnir upp flúðirnar og hafa rennst sér upp á klöppina. Skömmu síðar þá renndu þeir sér fram af klöppinni og hurfu niður í Damminn. Fallegir 2 ára laxar, mjög svipaðir að stærð þetta ca.12-14 pundin. Ég eyddi dágóðum tíma við Holuna en varð ekkert var þar.
Blanda er nánast uppseld í júní og Júlí, hér eru restarnar af lausum dögum.
9-10 júní 1 stöng
12-13 júní 1 stöng
13-14 júní 2 stangir
30-2 júlí 2 stangir í tvo daga.
29-31 júlí.
Frekari upplýsingar gefur stefan@lax-a.is
Bestu kveðjur
Höskuldur
