Helstu fréttir

IMGP0529

Blöndufréttir júní 2010

25.5.2011

Ég var að fletta í gegnum Blöndufréttir í júní í fyrra og má segja að það hafi kveikt á veiðineistanum, en hér fyrir neðan ætla ég að smella nokkrum fréttum frá því í fyrrasumar úr Blöndu.

5.6.2010

Laxveiðin í Blöndu hófst með pomp og prakt í morgun. Eins og undanfarin ár voru Stefán Sigurðsson og Tóti Tönn með í för og því ekki að spyrja að því að veiðin sé góð enda hörkuveiðimenn þar á ferð. Þeir sáu laxa í gærkvöldi skríða inn í damminn og hljóðið var gott í þeim þegar ég kíkti á þá í gær. En að veiðinni í morgun.. Það eru komnir 12 laxar á land, allir á bilinu 10-14 pund, sannkölluð Risaopnun og í raun frábært framhald af metsumrinu í fyrra, við munu fylgjast vel með og láta lesendur vita um leið og eitthvað meira gerist..

5.6.2010

Blanda opnaði heldur betur með látum í morgun. Eftir fyrstu vakt voru 16 stórlaxar komnir á land, ýmist á flugu eða maðk. Fyrsti laxinn kom á land um 5 mínútur yfir 07:00 – líklega er það þá fyrsti lax þessa tímabils á landinu. Mun meira af laxi er á svæðinu en oft áður, og misstu þeir sem þarna eru við veiðar a.m.k. 5 í viðbót við þessa 16. A.m.k. einn þeirra sem sleit sig lausan var í kringum 20 pundin.

5.6.2010

Í lok opnunardags endaði Blanda með 22 laxa á land og allnokkra sem slitu eða losnaði úr. Sá stærsti var 90 cm langur.

2010_-_06_-_05_Blanda_opnun_080

6.6.2010

Ballið virðist ætla að halda áfram í Blöndu því í morgun komu upp 8 laxar, allir vænir, og því komir 30 laxar á fyrstu 3 vöktunum. Það þarf ekki að orðlengja um það hversu ánægðir veiðimenn eru þarna norðan heiða og líklegt má telja að í næsta holli verði einnig glaðir veiðimenn - því þetta er allt nýgenginn fiskur og ekkert lát er á ferskum löxum.

7.6.2010

Gleðilegan mokveiði-mánudag! Menn eru glaðir og bjartsýnin ræður ríkjum hér á bæ núna eftir líklega lang bestu opnunarhelgi Blöndu frá upphafi en komnir eru rúmlega 40 laxar!!! Rúmlega tíu mínútum eftir opnun veiddist sá fyrsti og boðaði það ekkert nema gott enda var alveg kjörið veður til veiða. Besta veiðin til þessa hefur verið í Damminum og Breiðan að norðan hefur verið að gefa vel af sér.

opnun 2010.3

9.6.2010

Veiðin í Blöndu byrjaði allveg frábærlega og má segja að þetta hafi verið metopnun, góður gangur er enn í Blöndu en sl sólahringur gaf eina 10 stórlaxa, 3 í gærkvöldi og 7 í morgun, að sögn Helga Guðbrandsonar leiðsögumanns við Blöndu er allveg greinilegt að laxinn er að ganga og allir fiskar grálúsugir.

14.6.2010

Heilir og sælir kæru veiðimenn en nýjustu fréttir úr Blöndunni herma að heildartalan er orðin 85 laxar og er þá 100 laxa múrinn að nálgast óðfluga. Seinnivakt gærkvöldsins var einkar tilkomumikil en komu þá 12 vænir á land. Það mætti halda að það þyrfti að setja keðjur í hjólin því þessir risafiskar hafa verið að slíta línur hægri vinstri en menn hafa töluvert verið að missa þá. Það sýnir sig nú einna best á því að minnsta kosti einn veiðimaður setti í einn risa sem gerði sér nú lítið fyrir og sleit 40 punda línu!

2010_-_06_-_05_Blanda_opnun_073

18.6.2010

Mokið heldur áfram í Blöndu en samkvæmt nýjustu fréttum gaf síðasta holl af sér 30 laxa. Einnig fylgir sögunni að mennirnir hafi verið rólyndismenn miklir og allir mjög afslappaðir á bakkanum. Við erum komin langt yfir 100 laxa mörkin og er fjöldi laxa veiddur nú að slaga upp í hvorki meira né minna en 150 laxar!

22.6.2010

Veiðin gengur allveg frábærlega í Blöndu en nú er Blanda að verða kominn í 250 laxa en Blanda opnaði 5 júni sem þýðir að meðalveiði per dag er uppá ca 15 laxa þessa daga sem Blanda er búin að vera opin. Þess má geta að af þessum 250 löxum er innan við 10 laxar sem má kalla smálaxa. Síðasti sólahringur gaf 25 laxa og í morgun byjuðu menn að sjá fyrstu smálaxana

opnun 2008 Lax_1_og_2_-_Jon_Torsteinn_og_Egill_Gudjohnsen

22.6.2010

Samkvæmt nýjustu fréttum var Þorsteinn Hafþórsson, einn af leiðsögumönnum okkar í Blöndu rétt í þessu að kíkja á teljarann í laxastiganum við Ennisflúðir. Samkvæmt honum hafa 160 laxar þegar gengið í gegnum teljarann og upp á efri svæðin. Reynslan sýnir að hluti laxa fer þó flúðirnar fremur en að fara stigann, rannsóknir hafa sýnt að rúmlega 20% af stofninum fara upp flúðirnar. Laxinn sem fer flúðirnar er nánast undantekningalaust 2ja ára lax, það eru því mjög góðar líkur á því að fjöldi laxa á efri svæðunum sé talsvert meiri en 160. Það má því búast við því að líf fari að færast í tuskurnar á svæðum 2, 3 og 4 í Blöndu á allra næstu dögum!

25.6.2010

Veiðimenn sem voru við veiðar á svæði 4 í Blöndu lönduðu 5 löxum á einum degi. Þar af voru fjórir 80 cm langir. Greinilega eru stórlaxinn er mættur þarna uppeftir, eins og vanalega, og má búast við fjörugu sumri.

29.6.2010

Blanda heldur áfram á fullri siglingu þessa dagana. Svæði 1 er nú komið í 350 laxa, en síðustu viku voru menn eingöngu að veiða á flugu. Við heyrðum í veiðimönnum sem voru með 2 stangir seinni vaktina í gær og löndu 37 löxum, þeir sögðust hafa tekið því rólega eftir klukkan 8:30. Einnig er vert að minnast á að 1 árs laxinn virðist vera að stimpla sig inn og ganga nú fleiri tugir laxa í gegnum laxastigann á hverjum degi. Menn gætu farið að lenda í mjög góðri veiði á svæðum 2 og 3. Eins má gera ráð fyrir því að Svartárlaxinn sé farinn að ganga upp í ármótin og ofar.

 

Bestu kv stefan@lax-a.is

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar