Helstu fréttir
Síðustu forvöð að skrá sig
Nú fara að verða síðustu forvöð að skrá sig í veiðileiðsögnina í Ytri og Eystri Rangám um helgina. Áhugasömum er bent á að senda póst á spall@lax-a.is til skráningar.
Það er ekki oft sem veiðimönnum býðst ókeypis fylgd um árnar með þrautreyndum leiðsögumönnum, enda hafa allmargir skráð sig nú þegar. Þó er enn pláss fyrir nokkra í viðbót. Frekari upplýsingar má sjá í fréttum hér að neðan en eins má senda póst á ofangreint netfang.
