Helstu fréttir
Júníveiði á svæði 1 í Blöndu
Mikil eftirspurn hefur verið eftir veiðileyfum á svæði 1 í sumar, enda ekki skrýtið eftir ótrúlega veiði undanfarin 2 ár. Júlímánuður er nú orðin svo gott sem fullbókaður en eitthvað er laust af stöngum í júní, þó minna en oft áður. Það kemur ekki mjög á óvart þar sem 75% aflans í júní er 2ja ára lax og framan af mánuðinum er það hlutfall um 100%.

Fallegur 2ja ára lax í opnunarholli 2010
Við minnum á að lægra fæðis- og gistigjald er í gildi í júní og veiðihúsið Hólahvarf svíkur engan.
Upplýsingar um lausa daga og verð má nálgast með því að senda póst á spall@lax-á.is
