Helstu fréttir
Krossá í Bitrufirði - Lausir dagar í kringum stórstreymi
Krossá í Bitrufirði er lítil 2ja stanga laxveiðiá sem gefur að jafnaði í kringum 100 laxa á sumri. 
Veiðisvæðið er um 8 kílómetrar að lengd, með 22 merktum veiðistöðum, nánara frá Svartfossi niður að Neðri Brú. Ágætis veiðihús fylgir krossá sem er með 2 svefnherbergjum og tveimur svefnloftum svo það er nóg pláss í húsinu. Gasgrill er á staðnum og öll helstu eldhúsáhöld ásamt ískáp, eldhúshellum ofl.

Í Krossá er leyfilegt að veiða með flugu og maðk og er hámarkskvóti 3 laxar per stöng per dag, eftir það má eingöngu veiða og sleppa noti menn flugu. Krossá er blá tær og hægt að sjá laxinn í mörgum hyljum, en fara verður varlega, laxinn er styggur í þessu litla tæra vatni.

Veiðihúsið er rúmgott og notalegt.

Öll helstu eldhúsáhöld eru á staðnum.
Staðsetning: Bitrufjörður, Mitt á milli Staðarskála og Hólmavíkur, um 250 km frá Reykjavík. Hólmavík er í um 40. mín akstursfjarlægð.
Veiðisvæði: Geysifallegt og nær frá Svartfossi niður að Neðri Brú en þar gætir sjávarfalla.
Stangarfjöldi: 2 stangir í senn, Seldir eru 2 eða 3 dagar saman.
Tímabil: 30. júní til 20. september.
Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (30. jún. – 15. ág.) 7–13 og 15–21 (15. ág. – 20. sept.)
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur.
Veiðitæki: Einhenda, lína 5-8.
Veiði 2007: 76 laxar
Veiði 2008: 82 laxar
Veiði 2009: 99 laxar
Veiði 2010: 162 laxar
Bestu flugur: Gárutúbur, Frances, Microtúbur og Collie Dog.
Staðhættir og aðgengi: Nokkuð gott aðgengi, bílfært að flestum stöðum
Veiðihús: Veiðihúsið er rúmgott og snyrtilegt með svefnpláss fyrir 9 manns á tveimur svefnloftum og tveimur herbergjum með efri og neðri koju hvort. Í kringum veiðihúsi er fín verönd og í húsinu er gasgrill og frystikista. Gott kort er af veiðisvæðinu í húsinu en veiðistaðir eru 22 talsins. Hafa þarf með sér sæng/svefnpoka, handklæði, tuskur og viskastykki. Í húsinu næst ekki gsm samband.
Leiðarlýsing í veiðihúsið: Ekið er frá Reykjavík að Borganesi og þaðan yfir Holtavörðuheiði og að Staðarskála. Við Staðarskála er valin leiðin til Ísafjarðar/Hólmavíkur. (Vegur 68, var áður númer 61 og er merktur þannig á eldri kortum). Frá Staðarskála er um 50km akstur vestur í Bitrufjörð en þessi leið er að mestu malbikuð, en farið er framhjá Borðeyri og Hrútafjörður ekinn til enda og þá er komið í Bitrufjörð. Ekið er inn Bitrufjörð þar til komið er að skilti vinstra megin við veginn sem á stendur Krossárdalur, vegur nr 641. Veiðihúsið er um 5 km frá vegi 68 en Krossárdalurinn er ekinn sem leið liggur, yfir brú og framhjá bænum Gröf. Þá er næsti bær á hægri hönd Árdalur og þar beint á móti stendur veiðihúsið( hvítt með grænu þaki) við ána.
Umgegnisreglur: Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.
Veiðikort: Er í veiðihúsinu.
Veiðibók: Er í veiðihúsinu.
Allar frekari upplýsingar nálgast á skrifstofu Lax-á í síma 531-6100
eða beint hjá..
531-6108
