Helstu fréttir
Hallá á Skagaströnd - Skemmtileg 2 stanga á með notalegu húsi
Hallá er lítil og viðkvæm dragá um 16 kílómetra löng en veiðisvæðið sjálft er hátt í 10 kílómetrar. Áin var friðuð til sumarsins 2006.
Neðri hluti ánnar fellur að hluta til í gljúfri en fyrir ofan veiðihúsið hægist á ánni og hagur fluguveiðimanna vænkast þar til muna, hartnær 7 kílómetra fram dalinn.
Friðun virðist hafi aukið laxagöngur og hafa menn séð breytingu í þá veru undanfarin haust.

Auðvelt er að ganga nærri Hallá, það er því nauðsynlegt að fara varlega. Lax-á, í samráði við landeigendur, hefur ákveðið að svæðið frá veiðihúsinu og fram dalinn verði eingöngu veitt með flugu.
Eftir sem áður verður maðkveiði leyfð frá veiðihúsi niður að sjó, tæplega 3 km leið. Stutt er í alla þjónustu t.a.m. golfvelli og sund.
Staðsetning: Hallá er í um 280 km fjarlægð frá Reykjavík eða um 10 mínútna akstur frá Blönduósi rétt utan við Skagaströnd! Stutt er í alla þjónustu t.a.m golfvelli og sund.
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur upp að veiðihúsi, eingöngu fluga fyrir ofan veiðihús.

Veiðihús: Innifalið í verði, stendur á hægri hönd sunnan við brúna ef keyrt er í áttina
að Skagaströnd með útsýni yfir neðri hluta veiðisvæðisins og flóann. Tvö herbergi með svefnpláss fyrir tvo í hvoru (koja), svo er ein aukadýna og svefnsófi í stofu fyrir tvo. Rúmgott í stofu og eldhúsi. Þarna er heitur pottur og útisturta (engin innisturta). Gasgrill og útvarp.
Það sem þarf að taka með: Það þarf að taka með sængur eða svefnpoka, handklæði og sápur, tuskur og viskastykki.
Veiðisvæði: Neðri hluti, u.þ.b. 10 km.
Stangarfjöldi: 2 stangir, seljast saman.
Tímabil: 21. júní – 22. september.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (20. jún. – 20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 20. sept.)
Veiðitæki: Einhenda 9-10” og flotlína.
Stangarfjöldi: 2 stangir seldar saman.
Bestu flugur: Gárutúbur, rauður og svartur Frances. Stundum hafa eir túbur komið að góðu gagni.
Staðhættir og aðgengi: Mjög gott, fólksbílafært.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Þröstur Líndal.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Veiðibók: Er í veiðihúsinu.
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
Frábær fjallasýn
Lax á!
Fín aðstaða í veiðihúsinu
Allar frekari upplýsingar gefur..
Axel Óskarsson // axelo@lax-a.is // 531-6108
