Helstu fréttir
Opnun Tungufljóts
Þá er fyrstu vaktinni á aðalsvæði Tungufljóts (Faxasvæði) lokið og komnir a.m.k. 3 laxar á land. Að sögn voru ekki allir veiðimenn vanir og einn þessara þriggja er maríulax, mögulega fleiri. Við óskum veiðimanninum/konunni til hamingju með þann merka áfanga.
Sleppingar tókust með afbrigðum vel í fyrra í Tungufljóti og eigum við von á frábæru sumri í Biskupstungunum.
Við eigum lausar stangir í Tungfljóti á morgun og eru þær á tilboði á www.agn.is
Næstu stangir eru ekki lausar fyrr en eftir 10 júlí, en laust er á tilraunasvæðinu fyrir Faxasvæðið á næstu dögum. Upplýsingar um þær stangir má einnig finna á agninu.
