Helstu fréttir
Góð vakt á sv. 2 í Blöndu
Við heyrðum í veiðimanni sem veiddi 1 vakt á svæði 2 í Blöndu, klukkan 9 í gærkvöldi var hann hættur veiðum og hafði þá landað 3 löxum og misst einn.
Tveir laxanna voru um 80 cm langir og sá þriðji smálax, allt voru þetta nýrunnir fiskar - þó ekki lúsugir. Allir tóku þeir þýsku Snælduna, veidda með sökkenda. Mikil aukning hefur verið á laxgengd í gegnum teljarann í stiganum við Ennisflúðir undanfarna daga og því kemur þetta okkur ekki á óvart.

Lykillinn að velgengni á svæði 2 virðist vera fólginn í því að fara sem víðast og prófa, það gerði sá sem var að veiðum í gær.
Veiðileyfi á svæði 2 eru á tilboði á www.agn.is og fullyrðum við að ekki sé hægt að finna leyfi með raunverulegri veiðivon á betra verði nokkursstaðar.
