Helstu fréttir

IMGP1604

31.8.2012 : Flott veiði í Sjkjálfandafljóti

Maður heyri bara nokkuð góðar fréttir úr Skjálfandafljóti þessa dagana en menn sem skruppu á Austurbakka efri einn seinni part fengu 3 laxa, menn sem voru á Austurbakka neðri seinnipartinn í gær stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Marcin_Niemiec_Arbaejarfoss

30.8.2012 : Ytri Rangá smellur í 3000 laxa í dag

Fínn gangur er í Ytri Rangá þessa dagana en fyrsti dagurinn með blönduðu agni er nú liðinn og komu alls 161 lax á land fyrstu tvær vaktirnar. Það er búið að vera svolítið hvast og kalt og verður spennandi að sjá hvað næstu vaktir gera í tölum. Ytri Rangá smellur í 3000 laxa í stefan@lax-a.is Lesa meira
 
1&2mynd2

30.8.2012 : Ánum Blæðir út...

Nokkrar staðreyndir um netaveiðar og stangaveiðar í Ölfusá og Hvítá frá árinu 1973 til 2011. Á þessum árum hafa rúmir 20 netaveiðibændur veitt í net 206.707 Laxa. Það gerir meira en 620 tonn af villtum laxi. Á sama tíma hafa verið veiddir 71.373 laxar á stöng.


Það eru um 260 aðilar í veiðifélagi Árnesinga að mér skilst. Auðlindin skiptist þannig: um rúmir 20 netaveiðibændur hafa tekið um 75 % af öllum veiddum laxi á þessu tímabili. 240 aðrir landeigendur skipta með sér restinni af auðlindinni eða um 25%. Laxinn á heimkynni sín í uppám Árnessýslu og er á leið sinni á hrygningarstöðvarnar þegar megnið af göngunum er tekið í net. Hvernig má það vera að skiptingunni á þessari verðmætu auðlind er hagað svona, ætti þetta ekki akkúrat að vera á hinn veginn, að þaðan sem laxinn er uppruninn þar ætti hann að verða að verðmætum. Deildir innan Veiðifélags Árnesinga og leigutakar i uppám Árnesýslu setja kvóta á veidda laxa og er skylda að sleppa öllum laxi sem mælist lengri en 70 cm sem og eru veiðimenn beðnir um að þyrma sem mestu af smærri laxinum líka.

Veiðifélag Árnesinga sækir sitt rekstrarfé til landeiganda með þeim hætti að félagið tekur til sín 10 daga á veiðitímabilinu sem landeigendur/leigutakar kaupa svo af þeim tilbaka. Það fé sem fæst frá landeigendum/leigutökum leggst beint í sjóði VÁ. Netabændur kaupa ekki sína daga tilbaka, áin rennur fyrir landi þeirra og netin eru uppi á meðan. Rekstri félagsins er alfarið haldið uppi af stangveiðibændum. Framlag netabænda, að taka netin upp í 10 daga um miðjan ágúst, gagnast engum. Laxagöngur eru að miklu leyti búnar á þessum tíma og félagið fær ekkert í sjóði sína frá þeim. Það sætir mikilli furðu að netaveiðibændur sem veiða 75% af heildarveiðinni leggi engan pening til félagsins. Til að netaupptaka í 10 daga hefði áhrif þyrfti að taka netin upp á göngutíma laxins sem er frá seinnipart júní til fyrstu viku í Ágúst að öllu jöfnu.

Lesa meira
 
sk1

30.8.2012 : Kornskurður hafinn í Gunnarshollti

Kornskurður er hafinn í Gunnarshollti og er búist við góðri uppskeru, eftir óvenju góða tíð í sumar er kornið fullþroska mjög snemma sem þýðir að það líti allt úr fyrir að gæsaveiðin í Gunnarhollti Lesa meira
 
Blanda 4 - septemberlax

29.8.2012 : Blanda að fara af yfirfalli?

Blanda fór á yfirfalli þann 10 ágúst síðastliðin og hefur áin verið talsvert lituð og bólgin síðan þá. Undanfarið hefur rennslið minnkað töluvert og liturinn batnað, það bendir einnig ýmislegt annað til þess að áin geti farið af yfirfalli á næstunni.

Lesa meira

 
mariulax_svarta(2)

28.8.2012 : Svarta í A-Hún

Svartá í A-Hún hefur verið með rólegasta móti í sumar, eins og svo margar aðrar ár, en hefur þó aðeins verið að gefa að undanförnu. Frá sunnudagseftirmiðdegi og fram til hádegis í dag komu 8 laxar á land og misstu menn aðra 2, mest líf var í Ármótum, Brúnarhyl og Rafstreng. Þessi veiði þykir nokkuð góð miðað við að kuldakast var fyrir norðan um helgina.

Lesa meira

 
VeidihusLangadalHeildarmynd

23.8.2012 : Árnar í Djúpinu

Rólegt hefur verið yfir veiðinni í ánum við Ísafjarðarardjúp, Laugardalsá er með um 140 laxa, Langadalsá með um 120 laxa og Hvannadalsá með um 80 laxa samkvæmt síðustu fréttum. Einhverra hluta vegna hafa veiðitölur þaðan ekki ratað inn á borð til Landssambands Veiðifélaga sem birta vikulega veiðitölur á vef sínum eins og þekkt er.

Lesa meira

 
Stora-Laxa-1

22.8.2012 : Stóra laxá sv 1&2

Það er búið að vera kropp veiði að undanförnu á svæði 1&2 í Stóru laxá en við heyrðum í mönnum sem voru að koma úr þriggja daga holli með 6 laxa, en það eru þónokkrir legnir laxar um svæðið sem eru ekki stefan@lax-a.is Lesa meira
 
IMGP1589

21.8.2012 : Gott útlit með Skjálfandafljót

Það er búið að vera erfitt síðustu tvær vikurnar í Skjálfandafljóti en hitinn og rigningarnar hafa litað skjálfandafljót fullmikið. áin byrjaði að hreinsa sig í gær og var nikkuð gott útlit, þangað til í morgun var hún allveg grútskítug aftur. Það lítur vel út næstu viku en það er spáð kólnandi stefan@lax-a.is Lesa meira
 
ER Aug 2005 e

21.8.2012 : Eystri Rangá kominn yfir 2050 laxa

Eystri Rangá er kominn yfir 2000 laxa markið en síðasta vika er búin að vera svolítið erfið vegna leysinga, hún er búin að vera flesta morgna að undanförnu á mörkunum að vera veiðanleg en menn kroppa samt stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Bill Anderson  aflinn- Ytri Rangá

21.8.2012 : Ytri Rangá kominn í 2500 laxa

Góður gangur er í Ytri Rangá en áin small í 2500 laxa í morgun en með þessu áframhaldi má ætla að Ytri Rangá gæti endað í 5000 löxum en Ytri Rangá hefur oftar en ekki tvöfaldað veiðitöluna frá og með stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Gulli-EfrabolLangadalsa15juli2011

20.8.2012 : Breyttur veiðitími í öllum ám

Við viljum minna veiðimenn á að nú er breyttur veiðitími í öllum okkar ám. Nú er veitt frá 7:00 til 13:00 og síðdegisvaktin er frá 15:00 til 21:00.

Lesa meira
 
8Agust2012

20.8.2012 : Myndir af nýju veiðibúðunum á Grænlandi

Nýju veiðibúðirnar í Grænlandi hafa verið gangsettar og fyrstu kúnnanir búnir að gista. Enn á eftir að klára nokkur smáatriði en veiðimenn sem hafa gist eru ánægðir með útkomuna. Hreindýraveiðimenn hafa allir fengið góða hreindýratarfa og bleikjan er afar væn. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá veiðibúðunum og veiðiferðum. Lesa meira
 
2

16.8.2012 : Myndband: Urriðar í Galtalæk

Casper Siven leiðsögumaður var við Galtalæk í vikunni og tók upp myndband af lifríkinu í ánni. Galtalækur er þekktur fyrir stóra urriða en á myndbandinu sjást nokkrir góðir fiskar en vel sést að það er nóg af lífi í þessari skemmtilegu urriðaá.

Lesa meira
 
2009 Manuel_Ploesser_04

14.8.2012 : Ytri Rangá að nálgast 2200 laxa

Flott veiði er enn í Ytri Rangá og braut áin 2.000 laxa múrinn síðasta laugardag og er núna að komast í 2200 laxa. Ytri er fyrsta áin til að ná 2000 löxum þetta sumarið. Ekki eru margar ár sem eru líklegar til að enda með yfir 2.000 laxa veiði í sumar.

Eystri Rangá mun að sjálfsögðu einnig komast yfir þann múr en þar gekk veiðin hægt um helgina eftir að áin litaðist í rigningunum. Það má þó reikna með að líf verði í tuskunum þegar áin hreinsar sig.

Lesa meira

 
thordursigurdsson_medina02

9.8.2012 : Rangársysturnar verma toppsætinn

Þær Rangársystur sitja lang efstar á listanum hjá angling.is en að undanförnu hafa þær systur deilt toppsætinu á milli vikna og hefur aldrey munað nema nokkrum löxum. Báðar rangárnar munu stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Alvarez001

8.8.2012 : Blanda

Ágætis útlit er í Blöndu næstu daga en það lítur ekki út fyrir að Blanda fari á yfirfall fyrr en einhverntíman í næstu viku. Við eigum lausar stangir á morgun, fös, lau, sun á mán stefan@lax-a.is Lesa meira
 
P1200075

7.8.2012 : 98 laxar úr Eystri Rangá

Við heyrðum frá okkar mönnum í Eystri Rangá í dag en gærdagurinn var sá besti hingað til í ánni en alls komu 98 laxar á land. Um mark um veiðina sem er í ánni gaf svæði sex 36 laxa á einni vakt, en fyrir þá sem ekki þekkja eru það sex tímar.

Lesa meira
 
hroi_10

7.8.2012 : Hróarslækur

Hróarslækurinn hrökk loksins í gang. Hann lét bíða eftir sér þetta sumarið en það kom heldur betur hvellur um helgina. Síðustu tveir dagar hafa gáfu 24 laxa. Við eigum lausar stangir næstu daga og eru stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Tung610

2.8.2012 : Víða kropp

Svo virðist sem líf bærist í Tungufljóti í Biskupstungum en undandfarna 3 daga hafa laxar verið að koma á land þrátt fyrir mjög litla ástundun.

Svæði 3 í Stóru Laxá hefur einnig verið að gefa að undanförnu, komnir 4 laxar á síðustu 2 dögum úr Heljarþrem og Járnhyl (eða rétt ofan hans). En Katlarnir hafa líka gefið laxa í júlí.

Svæði 4 í Stóru Laxá hefur einnig gefið góð skot, þar komu 6 laxar á land síðustu helgi á 2 stangir. Það holl hafði þann háttinn á að labba niður alla ána og var árangurinn nokkuð góður.

Lesa meira

 
023

1.8.2012 : Þrælgóð veiði í Eystri

Gærdagurinn var mjög góður í Eystri Rangá, alls komu 80 laxar upp og voru komnir a.m.k. 50 laxar í morgun og átti þá eftir að bóka af nokkrum svæðum. Það stefnir í harða keppni á milli þeirra systra Ytri og Eystri.

Eins og gjarnt er þá er veiðist misjanflega mikið á hverju svæði, en öll svæði eru þó að gefa laxa.

Lesa meira

 
Vididalsa_21-23_juni_018[1]

1.8.2012 : Víðidalsá Silungasvæði laust 5.ágúst

Við erum með tvær stangir í endursölu sunnudaginn 5.ágúst næstkomandi á silungasvæði Víðidalsár. Á svæðinu er veitt frá morgni til kvölds. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við skrifstofu Lax-á í síma 531-6100 eða farið inná söluvef okkar www.agn.is. Lesa meira
 
2008 opnun stebbi meðan á

1.8.2012 : 86 laxar í Ytri Rangá

Ytri Ranga gaf 86 laxa á land í gær en það er besti dagur sumarsins hingað til. Ytri hefur verið að fara úr 60 löxum á dag fyrir helgi og farið stigvaxandi síðan um helgina. Nú er bara að vona að veiðin haldi áfram að rísa og við sjáum fyrsta 100 laxa daginn fljótlega.

Lesa meira
 
IMGP1571

1.8.2012 : Líflegt í Barnafelli, Skjálfandafljót

Við heyrðum í veiðimönnum sem voru við veiðar í Barnafelli í gærkvöldi og var greinilega allt að gerast, Lax stökkvandi allstaðar á Barnafellsbreiðu og líka á pallinum fyrir neðan og stefan@lax-a.is Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

bigfish

31.5.2013 : Heimsins stærsti lax

Þann 17. Maí, 1985 landaði Les Anderson frá Soldotna laxi sem sló öll skráð heimsmet en hann var 97 pund og veiddur í Kenai ánni í Alaska. Lesa meira
 
Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar