Helstu fréttir

skjalvandafljot5

30.3.2012 : Flottar myndur úr Skjálfandafljóti

Við fengum um daginn senda flottar myndir úr skjálfandafljóti, en félagskapur sem kallar sig Bíttuá helvítið þitt sendu okkur þessar skemmtulegu myndir, Hér má glöggt sjá hvað það er flott við Skjálfandafljót. stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
Cuba1001

29.3.2012 : Cuba 21-28 Apríl

Það eru lausar 2 stangir med okkur I ferðinni til Cuba Paredon. þessi vika a að vera su besta. , einnig er hægt að veiða Bonefish og Permit. Vid getum skaffad allar veiðigræjur , Þannig að þu arnibald@lax-a.is Lesa meira
 
IMGP0566

29.3.2012 : Veiðihús til leigu yfir páskana

Nú styttist í páskana og fyrir þá sem vilja fara út úr bænum höfum við nokkra bústaði sem er að leigja yfir páskahelgina. Þar má nefna tvo sumarbústaði á Suðurlandi sem standa í Heklubyggð nálægt Heklu og við Tannastaðatanga stutt frá Selfossi ásamt veiðihúsinu við Langadalsá við Ísafjarðardjúp en þar er svefnpláss fyrir 16 manns. stefan@lax-a.is Lesa meira
 
5

28.3.2012 : Veiðin alveg að hefjast

Nú er alveg að renna upp sá tími að stangveiðitímabilið hefjist aftur og opna fyrst árnar þann 1 apríl. Hjá okkur opnar Galtalækurinn og silungasvæðið í Tungufljóti, Tannastaðatangi í Sogi og síðan opnar Blanda þann 15 apríl. Brúará fyrir landi Spóastaða er sem áður í sölu hjá agninu.

Lesa meira
 
goeggel.2011

28.3.2012 : Víðidalsá

Ágætis gangur er búin að vera í sölunni í Víðidalsá að undanförnu og fer framboðinu ört fækkandi. Við eigum lausar stangir í hollinu 7-9 júlí, 11-13 stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Laug2

27.3.2012 : Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi

Við eigum ennþá allveg þrusu flott holl á besta tíma í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi en hollin 8-10 júlí, 13-16 júlí og 31-3 ágúst eru enn á lausu.. Eins og flestir vita er Laugardalsá frekar snemmsunmarsá stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Blanda 4 - septemberlax

27.3.2012 : Veiðisvæði Vikunar er Blanda sv 4

Blanda svæði 4 er lítil bergvatnssá sem á fátt sameiginlegt með sjálfri Blöndu annað en að renna í gamla árfarvegi hennar. Þangað til Blanda fer á yfirfall þá rennur hluti Blöndu í gamla árfarveiginum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
hroi_10

26.3.2012 : Mjög góðir dagar í Hróanum

Við eigum nokkra afbragðsgóða daga lausa í Hróarslæk í sumar, helst ber þar að nefna hollið 31.7 – 03.8 en mánaðarmótin júlí/ágúst hafa jafnan gefið best í Hróanum. Eins og við sögðum frá í síðustu viku þá verður skipt um veiðihús við Hróarslæk og mun húsið að Selalæk þjóna sem veiðihús héðan í frá, en verið að er að mubla það upp þessa dagana.

Lesa meira

 
P1012083

23.3.2012 : Vorveiði í Blöndu

Eins og á undanförnum árum verður boðið upp á vorveiði í Blöndu frá 15 apríl til 15 maí. Veiðisvæðið nær yfir svæði 2, 3 og 4 – en svæði 1 er undanskilið eins og verið hefur.

Ekki er í boði hús með veiðinni – en fjölmargir gistimöguleikar eru allmargir á svæðinu, þ.m.t. veiðihúsið við Svartá.

Lesa meira

 
Skjalfandafljot4

20.3.2012 : Veiðisvæði vikunar Skjálfandafljót

Veiðisvæði vikunar á www.agn.is er Skjálfandafljót og er tilboðsverð á völdum vikum á hverju svæði fyrir sig. Skjálfandafljót er mjög spennandi kostur fyrir þá sem vilja hafa aðeins fyrir hlutunum. stefan@lax-a.is Lesa meira
 
hroi_5

20.3.2012 : Nýtt veiðihús í Hróarslæk

Nú er orið ljóst að breyting verður á veiðihúsamálum í Hróarslæk fyrir næsta sumar. Veiðihúsið sem hefur þjónað Hróanum undanfarin var selt einkaaðila og tókust ekki samningar um leigu fyrir sumarið.

Í stað þess verður gamli bærinn á Selalæk nýttur sem veiðihús fyrir Hróann. Selalækur er neðarlega við ánna, nálægt ósnum, og er því á góðum stað. Í húsinu eru 4 svefnherbergi og svefnpláss fyrir 10 manns.

Lesa meira

 

19.3.2012 : Vorveiði: Silungasvæði Tungufljóts

Silungasvæði Tungufljóts opnar núna 1. apríl en um er að ræða stórt og krefjandi svæði. Þekktustu veiðistaðir á svæðinu eru ármót Laugá og Almenningsár og ármót Beiná og Almenningsár, en þær eru litlar hliðarár sem renna í Almenningsá sem rennur svo í Tungufljótið. Svo er það Tungufljótið sjálft en flestir veiða ármót Tungufljóts og Almenningsáar og niður úr. Eins og áður segir eru þetta þekktustu veiðistaðirnir en svæðið er stórt og getur fiskur leynst víða. Því er þörf á að fara vel yfir ána þegar veitt er.

Lesa meira
 
Greenland

15.3.2012 : Pakkaferðir í Hreindýra- og sjóbleikjuveiði á Grænlandi

Eftir góðar viðtökur við fyrstu pakkaferðunum til Grænlands í lok júlí höfum við ákveðið að bjóða uppá fleiri ferðir seinnipart ágúst, þá 3 nátta ferð frá 18 til 21. ágúst og svo 4 nátta ferð frá 21-25. ágúst. Innifalið í ferðunum er flug fram og til baka, skot- og stangveiðileyfi, gisting í nýjum veiðibúðum Lax-á, bátsferðir frá flugvelli og til baka auk bátsferða á veiðislóðir, leiðsögumenn alla ferðina, umsýsla flutnings skotvopna, umsýsla vegna kjötinnflutnings auk 20 kg af bestu vöðvum af hreindýri, vottað, stimplað og fryst.

Lesa meira
 
IMG00033-20110401-1401

13.3.2012 : Vorveiði í Galtalæk

Galtalækur opnar 1. apríl næstkomandi og er tilvalinn fyrir óþolinmóða veiðimenn að skreppa í en áin er staðsett rúmum klukkutíma frá frá Reykjavík. Stórir urriðar hafa veiðst í Galtalæk en þar sem áin er lítil og viðkvæm getur verið erfitt að fá þá til að taka því mælum við með að fara rólega þegar nálgast á ána. Möguleiki er á gistingu í Heklubyggð sem er í 15-20 mínútu fjarlægð frá áni. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu Lax-á í síma 531-6100 eða á söluvef okkar agn.is.

Lesa meira
 

7.3.2012 : Riffil- og Grænlandsdagar í Ellingsen

Næsta laugardag, 10. Mars, verða Riffildagar haldnir í Ellingsen en Lax-á mun kynna hreindýraveiði í Grænlandi og nýtt gæsasvæði sitt í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Verslunin opnar kl 10:00 til 16:00 og verða starfsmenn Lax-á við allan daginn og svara spurningum áhugasamra veiðimanna. Sjáumst á laugardaginn.

Lesa meira
 
April 1st 2011

7.3.2012 : Vorveiðisvæði Lax-á

Eins og svo margir veiðimenn eru við hjá Lax-á spennt fyrir komandi veiðitímabili sem byrjar nú 1.apríl. Lax-á býður uppá nokkur svæði sem opna á vormánuðum en það eru Galtalækur, silungasvæði Tungufljóts, Brúará og Tannastaðatangi í Soginu. Vorveiðin í Blöndu (öll áin fyrir utan svæði.1) opnar svo 15. apríl.

Lesa meira
 
L1020202

7.3.2012 : Svartá í A-Hún

Svartá í Austur Húnavatnssýslu er ein allra skemmtilegasta fluguveiðiá sem fyrirfinnst. Hratt rennsli er í ánni uppi á dal en hægist á henni þegar neðar dregur. Fjölbreytni veiðistaða er mikil, gljúfur með tilheyrandi flúðum og iðum, hratt rennandi steinabreiður og lygnir hyljir eru þarna nánast hlið við hlið. Talsverður stígandi hefur verið í veiðinni í Svartá undanfarin ár þó síðasta sumar hafi verið í meðallagi. Ekki skemmir að veiðihúsið hefur verið endurnýjað að talsverðu leyti, eldhúsið var tekið í gegn í fyrra og baðherbergið fær sömu yfirhalningu núna í vor

Lesa meira
 
SAM_0943

6.3.2012 : Bleikjan í Grænlandi

Við höfum birt allnokkrar fréttir af hreindýraveiðinni í Grænlandi og fengið góðar viðtökur. En Grænland býður upp á meira en bara hreindýrin, bleikjuveiðin þar er þekkt um allan heim.

Við fengum sendar myndir af bleikjuslóðum á suðvesturströndinni, þar sem við verðum með starfsemi okkar. Það er ekki laust við að hjartað hafi tekið kipp af spenningi við að sjá þessar myndir

Lesa meira

 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

2.3.2012 : Stórstreymisdagar í Rangánum

Eigum lausar stangir á góðum veiðitíma í júlí, nánar tiltekið 5.-6. júlí í Eystri og Ytri Rangá. Í byrjun mánaðarins er lax byrjaður að ganga í meira magni en 5. júlí er stórstreymisdagur og því frábær tími til að nýta sér laxagönguna. Tilvalið að skreppa í tvo daga rétt áður en veiðihúsið opnar og fá veiðileyfi á góðum prís með mjög góðri laxavon. Frekari upplýsingar eru að finna á skrifstofu Lax-á eða á johann@lax-a.is

Lesa meira
 
laug1

1.3.2012 : Gott holl í Laugardalsá

Það var að losna holl frá 13 til 16 júlí í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Áin er þekkt fyrir að lax gengur fyrr í ánna en almennar laxveiðiár og því er um besta tíma að ræða í ánni. Þrjár stangir eru seldar saman og fylgir hús með stöngunum. Veiðihúsið er rúmgott 7 manna hús með 3 herbergjum og í einu þeirra eru 3 rúm en í hinum tveimur eru tvö rúm í hvoru. Blástursofn, eldavél og öll helstu eldhúsáhöld, verönd með grilli. Aðgerðaraðstaða er í sérhúsi og fín aðstaða þar.

Lesa meira
 
_MG_1638

1.3.2012 : Krossá í Bitru

Krossá í Bitru var í ágætu meðallagi síðasta sumar, lokatalan stóð nálægt 80 löxum sem er vel viðunandi miðað við árferðið. Sumarið 2010 endaði hún í um 180 löxum og ljóst að hún á nokkuð inni miðað við síðasta sumar.

Veiðihúsið er látlaust og snyrtilegt, með 2 svefnherbergjum, og kyrrðin mikil í dalnum. Fram eftir júlímánuði má veiða á maðk og flugu en eftir 20 júlí er eingöngu fluga, kvóti á dagstöngina eru 2 laxar.

Lesa meira

 
Gulli-EfrabolLangadalsa15juli2011

1.3.2012 : Langadalsá og Hvannadalsá

Færst hefur í vöxt á undanförnum árum að Langadalsá og Hvannadalsá séu bókaðar saman fyrir stærri hópa. Hægt er að koma allt að 8 stöngum í báðar árnar og húsið við Langadalsá getur hýst 16 manns.

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar