Flug til Grænlands á 85þ í sumar
Við hjá Lax-á getum útvegað skot-og stangveiðimönnum sem hafa áhuga á hreindýra- og silungsveiði á Grænlandi flug til Narsasuaq fyrir 85 þúsund krónur fram og til baka. Allar bókanir þurfa að fara í gegnum skrifstofu Lax-á. Frekari upplýsingar er að finna á skrifstofu Lax-á eða á johann@lax-a.is
Lesa meira
Hreindýrapakki með flugi til Grænlands í júlí
Hreindýraveiði á Grænlandi
Lax-á ehf og eigendur hreindýrahjarða hafa nú undirritað samning sín á milli um einkarétt á hreindýraveiði í nágrenni við Qaersuarssuk á suðvesturströnd Grænlands til 20 ára. Veiðisvæðið spannar um 400 ferkílómetra og um er að ræða einu hreindýrahjörðina í þessum landshluta. Veiðimenn á vegum Lax-á hafa heimild til að fella allt að 300 dýr árlega. Svæðið er mjög stórt og dreyfast dýrin niður á margar eyjar, dali og firði sem auðvelt er að nálgast og jafnframt tryggir það að ekki sé of mikið veiðiálag á hverjum hreindýrahóp fyrir sig. Mikið er af stórum og fallegum törfum enda er Grænland þekkt fyrir „trophy“ tarfa.
Lesa meira
Skjálfandafljót komið í sölu
Veiðitímabilið nálgast
Opnunin í Svartá
Svartá í Austur Húnavatnssýslu opnar að morgni 1 júlí og búast má við því að sá silfraði verði mættur þá, enda laxinn snemmgengur á vatnasvæðinu. Þó svo að Svartá sé vanalega sterkust í ágúst þá er júlímánuður oft drjúgur. Opnunardaginn í fyrra veiddust 3 stórlaxar og árið þar á undan var svipað uppi á teningnum ef minnið svíkur okkur ekki.
Lesa meiraMaðkaholl í Hvannadalsá
Sú breyting að leyfa maðkinn aftur í júlí í Hvannadalsá hefur mæst nokkuð vel fyrir og hafa júlídagarnir nánast selt upp í framhaldi af því.
Við eigum hollið 9 – 11 júlí á lausu og einni daga á tímabilinu 13 – 18 júlí, stórstreymið fellur á 5 og 21 júlí.
Stórstreymisdagar í júlí
Fyrri stórstreymisdagur í júlí er 5. júlí næsta sumar og eigum við nokkur holl víðsvegar um landið í kringum þennan straum.
Frábært holl laust í Langadalsá
Við eigum helgina 27 til 29 júlí lausa í Langadalsá á Vestfjörðum en 4 stangir eru seldar á þessum tíma. Eru þetta einu stangirnar sem eftir eru í júlí í Langadal. Langadalsáin hefur verið að skila á milli 250-350 löxum á hverju sumri en hæst fór hún 2004 í 444 laxa. Frábært veiðihús fylgir stöngunum en svefnaðstað er fyrir 16 manns í sér gistihúsi en eldhús og setustofa eru fráskilin gistirýminu.
Lesa meiraSkjálfandafljót
Tungufljót
Tungufljót í Biskupstungum hefur verið góð viðbót við laxveiðiflóru landsmanna á undanförnum árum. Veiðin hefur jafnan verið góð, jafnvel frábær, en þó var síðasta sumar lélegt eins og svo víða annarsstaðar. Meðalveiði áranna 2008 til 2010 er 1580 laxar á aðeins 4 til 6 stangir, sem er með því allra besta sem gerist. Veiðistaðir eins og Faxi og Hólmabreiða að ógleymdum Laxhyl í gljúfrinu hafa raðað sér á lista með bestu veiðistöðum landsins frá árinu 2008.
Krossá í Bitrufirði
Krossá bættist við veiðiflóru okkar fyrir 2 árum síðan og hefur verið mjög vinsæl síðan. Verði á veiðileyfum er stillt í mjög í hóf en á móti kemur að góðrar umgengni er krafist við ána. Eftir 20 júlí er eingöngu leyfilegt að veiða á flugu og 2ja laxa kvóti er á stöng á dag allt tímabilið.
Lesa meira
Brynjudalsá
Oft yfirsést mönnum Brynjudalsáin þegar rætt er um gjöfular laxveiðiár, enda leita menn stundum langt yfir skammt. Brynjan er einungis veidd með 2 stöngum og hefur nokkrum sinnum farið yfir 300 laxa á sumri. Framan af sumri er mesta veiðin við fossana tvo og niður að ós, en þegar líður á dreyfist laxinn vel upp á dal og þar er sérlega hentugt að nota fluguna.
