Helstu fréttir

11

30.9.2011 : Vöðlujakki tekinn í misgripum

Grár Scierra vöðlujakki hefur verið tekinn í misgripum í Ytri Rangá að kvöldi 28 september. Eigandi hans skildi hann eftir um stund við kaffistofuna hjá vigtunaraðstöðunni og var hann horfinn þega hans var vitjað aftur.

Lesa meira

 
manuel

29.9.2011 : Lúsugir laxar í Ytri Rangá

Ytri Rangá er að gefa ágætlega miðað við árstíma en undanfarið hefur veiðin verið í 35 til 50 laxar þó að síðustu tveir dagar gáfu minna eða um 20 laxa. Mest hefur veiðst á maðk undanfarið en flugan er ekki langt á eftir. Lúsugir laxar hafa veiðst síðustu daga svo það er en lax að ganga í ánni. Verðið á veiðileyfum hefur lækkað talsvert núna á haustmánuðum en nokkuð er af lausum stöngum í október á góðu verði.

Lesa meira
 
100_0437

28.9.2011 : Forfallastöng í Ytri Rangá

Vegna forfalla losnaði stöng í Ytri Rangá á morgun 29. september. Veiðin hefur verið í 40-50 löxum í þessum mánuði. Upplýsingar er að finna á skrifstofu Lax-á og á vefsölunni agn.is.

Lesa meira
 
goeggel.2011.jpg

28.9.2011 : Klakveiði í Víðidalnum

Við heyrðum í einum sem var við klakveiðar í Víðidalnum nú eftir lokun hennar. Dregið var á í Harðeyrarstreng og upp kom hvert tröllið á fætur öðru. Þvílíkir drjólar – svo orðrétt sé haft eftir. Þrátt fyrir að oft hafi veiðst betur í Víðidalnum, þá var talsvert af laxi í ánni. Það gekk hinsvegar bölvanlega að fá hann til að taka Lesa meira
 
klakveidi3

26.9.2011 : Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá

Vel gekk í klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá um helgina en veiði lauk í báðum ám þann 24. september. Alls komu 263 laxar úr Langadalsá og sléttir 100 úr Hvannadalsánni í sumar. Í klakveiðinni í Hvannadalsá fengust 21 lax og á þessum veiðistöðum. Réttarfljót 2 laxar, Hellisfoss 10 laxar, Pallklettar 2 laxar og Stékkjarfljót 7 laxar, samtals 21 lax. Var skiptingin nokkuð jöfn í hænga og hrygnur en nokkrar mjög fallegar hrygnur fengust. Í Langadalsá Lesa meira
 
RIMG0024

21.9.2011 : Stórlaxar í Víðidalnum

Víðidalsá hefur gefið nokkra risanna undanfarið en veiðimennirnir Röggi og Lúthervoru í ánni fyrir skemmstu og fengu tvo 104 cm laxa og einn 102cm. Stærri laxarnir tveir fengust í Faxaholu og Faxabakka en sá minni fékkst í Silungabakka. Hér eru Lesa meira
 
A_beauty_from_West_Ranga

21.9.2011 : Stakar vaktir í Ytri um helgina

Við eigum 3 stangir lausar á seinni vaktinni í Ytri Rangá næsta laugardag. Veiðin er enn góð, 40 – 50 laxar á dag samkvæmt nýjustu tölum. Þetta eru einu stangirnar sem við eigum nú um helgina í Ytri Rangá, upplýsingar má nálgast með því að senda póst á spall@lax-a.is Lesa meira
 
Eric_Salvans

21.9.2011 : Af Ytri Rangá

Ytri Rangá virðist ætla að halda sig í 35-50 löxum á dag í september. Við heyrðum í Matta veiðiverði og hann sagði að nokkuð af nýjum laxi hafi verið í ánni í gær en dagurinn endaði í 36 löxum. Veiðin deginum áður endaði í 40 löxum en hávaðarok var allan daginn. Mest hefur veiðst á

Lesa meira
 
Blanda4-AG-SEP_2009-04

20.9.2011 : Blanda sv 4

Mjög góð veiði hefur verið síðustu daga á sv 4 í Blöndu en þegar fór að kólna, slotaði í Blöndulóni og hætti að renna yfirfall af lóninu í gegnum gamla árfarveginn sem er í dag svæði 4. Frá stefan@lax-a.is Lesa meira
 
IMG_3345

19.9.2011 : Veiðihúsi í Ytri Rangá lokað

Nú hefur veiðihúsinu við Ytri Rangá verið lokað fyrir veturinn og verða veiðleyfi seld frá morgni til kvölds það sem eftir er tímabils (út október).

Við vekjum athygli á því að daglegur veiðitími er sem hér segir:

20 – 30 september 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00

1 – 31 október 08:00 – 20:00

Lesa meira

 
HotelRanga3

19.9.2011 : Tilboð fyrir veiðimenn hjá Hótel Rangá

Hótel Rangá bíður veiðimönnum tilboð á gisting í september og október. Hótelið er fjögurra stjörnu og var nýlega nefnt eitt af 100 bestu hótelum í Evrópu af Sunday Times í Bretlandi. Það er staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar og því tilvalið fyrir veiðimenn sem eru við veiðar í Ytri eða Eystri Rangánum. Útsýni frá hótelinu er stórkostlegt, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri. Lesa meira
 
Vididalsa_21-23_juni_011

16.9.2011 : Víðidalsá

September hefur verið þokkalegur í Víðidalsá þó hann hafi ekki verið skugginn af sjálfum sér miðað við síðustu þrjú sumur. Kuldin síðustu helgi hjálpaði ekki til en áin hefur tekið við sér aftur. Heildartalan er nú kominn í 662 laxa og má búast við að hún fari yfir 700 laxa fyrir lok tímabilsins sem lýkur 24.september.

Lesa meira
 
Stora_Laxa_5015

16.9.2011 : Stóra Laxá frábær

Veiðimenn eru enn að gera frábæra hluti á svæði I&II í Stóru Laxá. Sogsmenn voru þar enn og aftur á ferðinni síðustu 2 daga, enda ekki hægt að fá nóg af veislunni sem hefur verið í gangi þarna í haust. Lönduðu þeir 49 löxum og nokkrir stórir í aflanum, þar á meðal einn 102 cm dreki. Er þetta annar fiskurinn sem þeir veiða í haust á svæðinu sem er yfir 100 cm.

Lesa meira
 
Stora-Laxa-13

15.9.2011 : Forfallaholl í Stóru Laxá um helgina

Vegna forfalla losnuðu allar 4 stangirnar á svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá núna um helgina (17 – 19 september). Ekki þarf að fjölyrða um veiðina þar að undanförnu, hún hefur einfaldlega verið frábær.

Lesa meira

 
Blahylur_3

15.9.2011 : Stóra Laxá sv 4

Við fengum fréttir fréttir úr Stóru laxá sv 4 í morgun en það er allveg töluvert af fiski þessa dagana en frekar lítið vatn sem er sennilegast að lagast þar sem það er spáð rigningu á suðurlandinu næstu daga stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Tung610

15.9.2011 : Tungufljót í Biskupstungum

Fljótið hefur verið nokkuð rólegt í sumar an þó hafa komið nokkur ágæt skot seinnipartinn í ágúst og eins nú í september. Kalt var í Biskupstungum síðustu helgi og talsvert rok, þetta bitnaði vitanlega á veiðinni eins og menn þekkja – þó sáu menn eitthvað til laxa.

Lesa meira

 
2009 Paul Block 01

13.9.2011 : Fín veiði í Ytri Rangá

Ytri Rangá heldur áfram að skila góðum veiðitölum en um 40-50 laxar hafa verið að veiðast síðastliðna daga í ánni. Telst það vera fín veiði miðað við árstíma en í morgun komu 24 laxar á land. Maðkaveiði var leyfð eftir 29. ágúst og fór veiðin í kringum 200 laxar á dag fyrstu daganna en hefur svo dottið niður. Í áni er nú allt leyfilegt, maðkur, spónn og fluga.

Lesa meira
 
WR Thordur 6

12.9.2011 : Fréttatilkynning vegna fráveitumála Rangárþings Ytra

Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku þá varð tæknilegt óhapp við losun á úrgangi frá Reykjagarði á Hellu, sem átti að fara til förgunar á Strönd.
Þessi mistök urðu þess valdandi að úrgangurinn fór í fráveitukerfi sveitarfélagsins og barst í Ytri Rangá, veiðimönnum til ama.
Þetta var slys og um einangrað tilvik að ræða.

Lesa meira
 
milansydribru

12.9.2011 : Fréttir af Syðri Brú

Við heyrðum í mönnum sem voru við veiðar í Syðri Brú um helgina, voru tvær vaktir. Settu þeir í þrjá laxa og lönduðu þeim öllum á gárutúbur, green but og collie dog. Voru tveir þeirra um 7kg og einn 2,5 kg. Lesa meira
 
Vetrarmynd sól og snjór

9.9.2011 : Vetraropnunartími skrifstofu

Vetraropnunartími er skollinn á hjá okkur á skrifstofu Lax-á. Nú er skrifstofan opinn frá 9-17 alla virka daga.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

9.9.2011 : Óhapp við Ytri Rangá

Eins og fram kom í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær varð óhapp hjá kjúklingabúinu Reykjagarði við Hellu í fyrradag þegar verið var að hreinsa úr fitugildru í verksmiðju fyrirtækisins. Flæddi þá uppúr veitukerfi verksmiðjunar með þeim afleiðingum að úrgangur fór í Ytri Rangá og litaði austurbakka árinnar í nokkra klukkutíma. Áin hreinsaði sig að mestu nokkuð fljótt og sést lítið sem ekkert í áni núna. Við hjá Lax-á hörmum að svona slys geti gerst og

Lesa meira
 
asar3

8.9.2011 : Fyrstu laxveiðiárnar að loka

Nú fara fyrstu laxveiði árnar ad loka hver á fætur annarri. Laxá á Ásum er rétt um það bil ad loka og sumarveiðin telur í kringum 400 laxa sem verður að teljast það lakasta sem ég man eftir a þeim bæ.

Lesa meira
 
sjonni_ragnars2

7.9.2011 : Veislan heldur áfram í Stóru Laxá I&II

Stóra Laxá svæði I&II heldur áfram að skila góðum aflatölum. Svæðið er nú komið yfir 300 laxa og einungis ein vika búin af september. Síðustu tveir daga skiluðu um 60 löxum á svæðinu og þar af var einn 102 cm.

Lesa meira
 
Blahylur

6.9.2011 : Góður dagur á svæði IV í Stóru

Við heyrðum í veiðimönnum sem voru að klára morgunvaktina á svæði IV í Stóru Laxá. Þeir eru nú búnir að vera 2 vaktir og komnir með 4 laxa á 2 stangir. 2 laxana voru í smærri kantinum, 5 – 6 pund en hinir voru í stærri kantinum. Sá stærri var talinn vera í kringum 18 – 20 pundin og sá minni var c.a. 12 punda hrygna. Eins og menn vita þá er eingöngu veitt og sleppt á svæði 4 og eru þessir laxar því enn í ánni.

Lesa meira

 

4.9.2011 : Mikil veiði í Stóru Laxá

Blahylur_3Það er aldeilis góður gangur í Stóru Laxá þessa dagana. Franskir og Sænskir veiðimenn hafa verið að veiðum síðustu daga. Mokveiði hefur verið niður á svæði eitt og tvö , sumir dagar yfir 30 laxar á 4 stangirnar , svæði eitt og tvö mun vera að nálgast 300 laxa. Mikklu rólegra er á svæði þrjú og fjögur, en síðustu daga hafa þó verið að reitast inn fiskar og farið að sjást fiskur hingað og þangað bæði á svæði þrjú og fjögur. 90 prosent af veiddum laxi hefur verið sleppt aftur í ánna.

Lesa meira

 
2009 Manuel_Ploesser_02

2.9.2011 : Góður eftirmiðdagur á Heiði – Bjallalæk

Tveir sem fóru á Heiði – Bjallalæk seinnipartinn í gær gerðu heldur betur góða veiði. Eftir vaktina voru þeir búnir að landa 3 löxum og 5 urriðum, laxarnir voru þessir hefðbundnu 5 – 7 punda Rangár Laxar en urriðarnir voru frá 3 og upp í 9 pund. Ekki amalegur meðafli það.

Lesa meira

 
Blanda_sv_2,_web_4

2.9.2011 : Mið-svæðin í Blöndu enn gjöful

Veiðimaður sem var við veiðar á svæði 2 í morgun var kominn með 1 lax úr Svarthyl og hafði einig misst annan við Geitaskarð, sá var nokkuð ánægður. Eins skrapp einn upp á svæði 3 í morgun og hafði 4 laxa upp úr krafsinu, 1 á flugu og hina á maðk.

Lesa meira

 
Hornid_vid_Hrunakrok

2.9.2011 : Áfram mjög góð veiði í Stóru

Um 30 laxar veiddust í gær í Stóru Laxá, á svæði 1&2. Lúsuga laxa mátti finna í blanda við þá sem hafa verið lengur í ferskvatninu. Það er ánægjulegt að husa til þess að a.m.k. 26 þessara laxa eru ennþá í ánni og bíða næstu veiðimanna.

Einhver veiði hefur einnig verið á svæði 3 en svæði 4 hefur verið rólegra. Þó sáu menn stóra laxagöngu ganga upp af svæði 3 og er því von á að eitthvað fari að gerast uppi í gljúfrum.

Lesa meira

 
ACR027

2.9.2011 : Skrifstofa Lax-á lokuð á morgun (laugardag)

Vegna starfsmannaferðar verður skrifstofa Lax-á lokuð á morgun, laugardag.

Við verðum að sjálfsögðu mætt til starfa aftur á mánudag klukkan 08:00 og minnu á að www.agn.is er alltaf opið.

Góða helgi.

Starfsfólk Lax-á

Lesa meira

 
Blanda_sv_2,_web_5

1.9.2011 : Blanda 2 leynir á sér

Við heyrðum í veiðimanni sem var við veiðar á svæði 2 í Blöndu og sá var nokkuð sáttur. Hann byrjaði klukkan 15:00 í dag og var kominn með 3 laxa á innan við 3 tímum. 2 löxum náði hann í Vaðstreng og einum á Auðólfsstöðum – hann á enn Svarthylinn inni.

Lesa meira

 
L1020202

1.9.2011 : Svartá öll að koma til

Síðasta holl í Svartá, sem lauk veiðum núna í dag, var með um 20 laxa á land. Stærstu laxarnir voru um 14 – 15 pund og einnig veiddist nokkuð af vænum urriða. Að sögn voru misvanir veiðimenn í hollinu og stóðu menn víst ekki stíft við veiðar.

Svartá hefur verið nokkuð undir pari í sumar, sem stingur í stúf við laxagengd í Blöndu, en síðsumars- og haustveiðin hefur oft verið mjög drjúg í þessari frábæru á.

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar