Blanda 1 að loka
Nú fer að líða að því að svæði 1 í Blöndu loki, á mánudag er síðasta vaktin á þessu ári. Sem kunnugt er þá opnar svæði 1 talsvert á undan efri svæðunum og lokar því fyrr.
Góð veiði hefur verið í Blöndu það sem af er sumars, þrátt fyrir að yfirfallið hafi verið full snemma á ferðinni. Blanda nálgast óðum 2000 laxana og það vekur athygli að yfir 300 laxar hafa veiðst eftir yfirfall.
Tungufljótið að sýna sitt rétta andlit
78 laxar á sex dögum í Stóru Laxá
Síðusta sex dagar Stóru Laxá hafa verið sannkölluð veisla. Svæði 1&2 hafa skilað 78 löxum á land og hafa 160 laxar verið skráðir í bókina á því svæði. Af þessum 160 löxum hefur 130 verið sleppt. Áin er þekkt fyrir sínar haustgöngur og virðist sem þær byrji fyrr þetta tímabil en undanfarin ár.
Lesa meira
Fyrsti dagur í maðkahollinu í 188 löxum
Fyrsta maðkahollið byrjaði í Ytri Rangá eftir hádegi í gær en sú vakt gaf 108 laxa og endaði dagurinn í alls 155 löxum. Í morgun voru 80 laxar komnir á land svo það gera 188 laxar á fyrsta daginn í maðkahollinu. Eru þetta fínar tölur miðað við að fluguveiðihollin á undan voru að gefa að meðaltali 70 laxa á dag.
Lesa meiraLoksins, Loksins í Tungufljóti
Eftir frekar óvenjulega byrjun í Tungufljóti framan af sumri er líf að kvikna og það líka svona vel. Undir lok síðustu viku mátti greina að laxinn væri að ganga en erlendir veiðimenn settu í mikið af fiski, helgin var líka fín en svo í morgun kom sprengja en kl 08:30 voru komnir 10 laxar á þeim 2 stöngum sem við heyrðum af, mikið af fiski virðist hafa gengið og gaman verður að heyra töluna í hádeginu frá öllum stöngum.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Haustveislan byrjuð í Stóru Laxá
Við fengum fréttir af svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá núna um helgina. Frakkar sem þar eru að veiðum gerðu mjög góða veiði í gær – aflatölur nálægt 2 tugum. Mesta veiðin hefur verið í Fjósahvammi en þar fengu menn um tug laxa í gær.
Fréttir af Krossá í Bitru
Krossá í Bitru er kominn uppí 65 laxa í sumar en heildarveiði í áni síðastliðin ár er í kringum 90-100 laxar. Áin hefur verið frekar vatnslítil undanfarið en það hefur rignt síðastliðna daga. Það vantar ennþá aðeins uppá svo vatnsstaða teljist góð en haustrigningar sjá vonandi um það. En eru nýir laxar að ganga upp ána en lúsugur laxar veiddust síðastliðin sunnudag.
Lesa meiraYtri Rangá fyrsta maðkaholl
Það voru rétt í þessu að forfallast 2 stangir í fyrsta maðkahollinu í Ytri Rangá. Hið fræga holl byrjar kl 15.00 þann 29 ágúst og endar 1 sept.
Þetta er sennilega stefan@lax-a.is
Ágæt veiði í Hallá
Við heyrðuðm í veiðimanni sem var í Hallá í síðustu viku og gerði ágætis túr. Alls komu 11 laxar upp, allt upp í 12 pund, og veiddist bæði á neðri hlutanum og einnig uppi á dal.
Halláin getur verið mjög gjöful, ef rigningin frískar aðeins uppá hana, en að sama skapi getur hún verið erfið í litlu vatni – eins og algengt er með litlar ár. Einhver rigning er í kortunum um helgina og gæti því orðið fjör þarna fyrir norðan.
Af Eystri Rangá
Við heyrðum í Óla veiðiverði í Eystri Rangá. Áin hefur verið að gefa um 60 laxa á dag í vikunni og er ekki mikill munur á morgun og síðdegisvöktunum í aflatölum. Laxinn er vel dreifður milli svæða og er því ekkert eitt svæði sem er að standa upp úr í þessari viku.
Lesa meira
Efri svæðin í Blöndu gefa vel
Tveir veiðimenn voru á svæði 3 í Blöndu seinnipartinn í gær og höfðu 2 laxa upp úr krarfsinu, annar ver í kringum 7 pundin en hinn var 16 punda Blönduhængur eins og þeir gerast skemmtilegastir. Báðir komu upp úr Skurðsenda svokölluðum. Það hefe akki margir farið til veiða á svæði 3 eftir yfirfall en þeir sem hafa farið hafa allir fengið lax.
Góð veið í Ytri Ranga
Góð veiði í gær og í dag í Stóru laxá
Líf og fjör í Tungufljóti
Snorri veiðivörður hefur verið að fylgja veiðimanni í Tungufljótið í gær og í morgun í Tungufljótinu fallega. Í gær komu 5 laxar á eina stöng og voru komnir 2 á land á þessa sömu stöng á klukkutíma nú í morgun.
Fjölskylduferð á Tannastaðatangann
Hvannadalsá
Stórveiðimaðurinn Gústaf Gústafsson var að koma úr Hvannadalsánni og átti þar góðan dag. Landaði tveimur löxum og missti einn bolta, fyrir utan að sjá laxa á flestum stöðum. Sérstaklega var gaman að sjá að Gústaf var að fá nokkuð nýgengna fiska, m.a. einn lúsugan. Það var hreyfing á fiskinum á milli staða og því virðist vera lax á göngu þó komið sé fram á seinni hluta sumars.
Lesa meira
Rúmlega 1100 laxar komnir upp Árbæjarfoss
Mikill lax er genginn upp fyrir Árbæjarfoss og þó nokkur lax mun vera kominn alla leið upp á Heiði / Bjallalæk, sem er efsta svæðið í Ytri Rangá. Mikill metnaður var settur í seiðasleppingar á efri svæðunum með það að markmiði að fá meira af laxi til að ganga upp á efri svæðin. Til að mynda var bætt við tveimur nýjum sleppitjörnum sleppt á svæðið og var 25.000 seiðum sleppt í hverja tjörn fyrir sig.
Lesa meiraTungufljótið aðeins að lifna við
Svo virðist sem að líf sé að glæðast í Tungufljóti í Biskupstungum. Í gær komu 8 laxar á land á 4 stangir og skiptist þannig að allir veiðimenn fengu lax.
Fljótið hefur verið með rólegasta móti í sumar, en sterkasti tíminn hefur jafnan verið seinnihluti ágústmánaðar og september allur.
Fréttabréf Lax-á
Laxveiði síðustu ára hefur verið með allra besta móti og hefur einkennst af aflametum í nánast hverri einustu sprænu sem við eigum hér á landi. Sumarið í ár hefur aftur á móti verið afar frábrugðið fyrri árum. Það fór seint af stað eftir kalt vor og kuldakast í upphafi sumars. Laxinn lét einnig bíða eftir sér, þá sérstaklega eins árs laxinn sem hefur verið uppistaðan í aflatöflum síðustu ára. Veiðin hefur tekið við sér og Rangárnar hafa verið að sína sinn rétta lit undanfarið en þessa stundina er þriðji hver lax veiddur úr Rangánum tveim.
Lesa meira
Bréf frá sáttum veiðimanni
Við fengum póst frá Kristjáni Jónssyni stórveiðimanni sem skrapp á svæði 3 í Blöndu í gærkvöldi..
...var í Blöndu 3 seinnipartinn c.a.4,5 klst aflinn var 3 laxar 62,84,og 87cm
Lesa meira
Ytri Rangá í góðum gír
Fréttir úr Djúpunum
Langadalsá er kominn uppí 184 laxa. Við heyrðum í Sigga veiðiverði og voru veiðimenn sem kláruðu í morgun að setja í lúsuga laxa og var mikið af nýjum laxi undir neðstu brúnni. Af nágranna hennar Laugardalsá er það að frétta að hún er kominn uppí 165 laxa það sem af er sumri.
Lesa meiraEnn góð veiði í Blöndu
Gott í Víðidalnum í morgun
Eftir rólegt sumar á norðvesturlandinu kom gott skot í morgun í Víðidalsá en 16 laxar veiddust vaktinni og voru veiðimenn einnig að missa eitthvað af laxi. Mest hefur veiðst á neðstu svæðunum og þá helsta á gárutúbur og smáar flugur.
Lesa meira
Gott í Stóru Laxá
Við heyrðum í veiðimönnum sem voru í Stóru Laxá svæði I og II í morgun. Þeir settu í 16 laxa og náðu 11 af þeim á land. Allt fékkst þetta á micro flugur og sögðu þeir nóg af laxi vera í áni. Fyrir þetta heyrðu við af níu löxum á sama svæði um helgina og sáu þeir veiðimenn lax ganga upp á efri svæði. Þetta eru góðar fréttir frá Stóru Laxá en hún er þekkt fyrir góða veiði seinnipart sumars.
Lesa meira
Lausir dagar í komandi viku
Við eigum svolítið af mjög góðum lausum stöngum frá og með sunnudeginum 14 ágúst og inní komandi viku, Þar má nefna stefan@lax-a.is
Mikið af laxi í Blöndu
Lausar stangir í Laxá í Ásum
Við eigum lausar forfallastangir í Laxá í Ásum í næstu viku. Ásarnir hafa verið að gefa 5-6 laxa á dag og heildartalan komin í 282 laxa á miðvikudag. Við heyrðum í Jóni Aðalsteini veiðiverði og sagði hann líf í áni og nýr fiskur að láta sjá sig á neðstu svæðin en laxin væri annars nokkuð dreifður í áni.
Lesa meira
Góður gangur í Rangánum
Það veiddust 132 laxar í Eystri Rangá í gærdag. Af þeim veiddust um 44 á morgunvaktinni og 88 á kvöldvaktinni. Áin hefur haldið sér vel undanfarna daga og vonanandi að það haldi áfram. Ytri Rangá gaf 81 lax, 40 laxa um morguninn og 41 á seinnivaktinni. Rangárnar halda því áfram að gefa vel og verður gaman að sjá hvernig helgin gangi.
Lesa meiraLausar stangir næstu daga
Góð veiði í Brynjudalsá
Frábær veiði hefur verið í Brynjudalsá undanfarið. Það voru Spánverjar við veiðar í fimm daga í áni og fengu þeir 43 laxa. Sögðu þeir gríðarlega mikinn fisk vera í ánni. Þeir lönduðu tíu löxum síðasta daginn en það ánægjulegasta við tíðindin er að átta laxar af þessum tíu veiddust inn á dal, ofan fossa á flugusvæðinu.
Lesa meira
100 laxa dagur í Ytri Rangá
300 laxa helgi í Eystri Rangá
Eystri Rangá heldur áfram að skila góðri veiði. Eins og við sögðum frá fyrir helgi var veiðin á fimmtudeginum 142 laxar og var það met dagur í áni hingað til í sumar. Veiðin var í sama fari á föstudeginum hann gaf 140 laxa á land. Á laugardag litaðist áin og veiðin datt niður í 50 laxa yfir daginn en á sunnudeginum tók hún við sér aftur og skilaði 100 löxum.
Lesa meira
142 laxa dagur í Eystri Rangá
Eystri Rangá hefur verið í frábærum gír síðastliðna daga. Á mánudag gaf áin 130 laxa en aðrir dagar um 60-90 laxa sem verður að teljast mjög fín veiði. Veiðimenn sem voru við ána í gærdag lönduðu síðan 142 löxum og dagurinn í dag virðist ekki ætla að gefa neitt eftir því rúmlega 70 laxar voru komnir á land eftir morgunvaktina.
Lesa meira
Fréttir úr Syðri Brú
Við heyrðum í Sigurði Vilhjálmssyni stórveiðimanni en hann var við veiðar í Syðri Brú í einn dag 2. Ágúst. Sigurður setti í 9 laxa og landaði 8 af þeim, þar af var einn 87cm en honum var sleppt aftur. Allir laxarnir komu af Landaklöppinni og komu meðal annars á Sunray shadow, Collie dog og Kröflufluguna Skrögg.
Lesa meira
Fréttir úr Laugardals- og Langadalsá
Við vorum að fá fréttir af ánum okkar á Vestfjörðum. Síðasta vika í Langadalsá skilaði 40 löxum og heildartalan er nú komin í 110 laxa en áin endaði í 256 löxum í fyrra sumar. Áin lítur vel út og að sögn Sigga Marra veiðivarðar en nýr fiskur er að ganga í ána og sá hann laxa undir brú fyrir ofan veiðihús sem þýðir að laxinn er að færa sig á efri svæðin. Laugardalsá
Lesa meira
Lausar stangir í Rangánum
Ytri og Eystri eru komnar vel af stað og er byrjað að veiðast mjög vel, Þessa dagana eru að koma á milli 60-90 laxar á dag úr hvorri á sem er bara nokkuð gott.
Það sem er laust er eftirfarandi stefan@lax-a.is
Blanda gefur enn vel
Þrátt fyrir að lónið uppi á hálendi sé að fyllast er fantagóð veiði á svæðum eitt, tvö og þrjú í Blöndu. Við heyrðum af 2 veiðimönnum sem tóku 14 laxa á 2 dögum á svæðum 2 og 3 og eins af öðrum veiðimönnum sem einnig veiddu 1 – 3 laxa á einni vakt á svæði 2. Svæði 1 gefur enn vel og svo virðist sem spúna- og maðkabann á Breiðunni gefist vel því fiskur er lagstur víðsvegar á henna og eru menn að taka laxa út um allt þar. Eins hafa veiðst allnokkrir á flugu í Damminum, en sá staður hentar ágætlega til fluguveiða – mun betur margir virðast telja.
Lesa meiraGott í Víðidalnum
Hollið sem hóf veiðar í Víðidalnum seinnipart þriðjudags hafði landað rétt yfir 30 löxum við enda dags í gær. Mest veiddist á neðstu svæðunum á gárutúbur en stór hlut aflans var lúsugur. Þetta eru góðar fréttir fyrir Víðidalsána þar sem en er nóg af laxi að ganga í ána. Það verður spennandi að fylgjast með komandi dögum en heildartalan í Viðidalnum er nú komin í 340 laxa.
Lesa meiraYtri Rangá yfir 1100 laxa
Ytri Rangá skreið yfir 1100 laxa í gær en alls veiddust 75 laxar yfir daginn. Helgin var fín í Ytri, á föstudag veiddust 63 laxar, laugardag 61 og á sunnudeginum og mánudag komu 62 laxar á land.
Lesa meiraGóð veiði í Blöndu – en yfirfallið vofir yfir
Nú fer að renna upp sá tími að Blöndulón fyllist og yfirfallið renni niður svæði 4 með tilheyrandi látum og erfiðleikum. Líkur eru á að þetta gerist um eða eftir helgina.
Það er alltaf jafn leiðinlegt að tilkynna þetta því oftast nær er veiðin að nálgast hámark á svæðum 2, 3 og 4 þó oft hafi dregið aðeins úr henni á svæði 1. Nú er staðan þannig að enn veiðist vel á svæði 1 og eru veiðimenn þar enn að fylla dagkvótann. Eins heyrðum við í veiðimanni sem veiddi í rúman klukkutíma á svæði 2 í gær og náði 3 löxum á land og missti a.m.k. 2 til viðbótar – þannig að það er ágætt líf þar.
