Vatnasvæði Hvitár og Ölfusár í Árnessýslu Netaveiði – hugleiðingar
Okkar ágæta Veiðimálastofnun hefur hin síðari ár gefið út mjög sterk tilmæli til allra stangveiðimanna á Íslandi að hlífa stórlaxinum og nú árið 2011 undir engum kringumstæðum skuli hann verða drepinn, öllum stórlaxi skal vera sleppt, og er það vel. Í framhaldinu velti ég því mikið fyrir mér hvers vegna gengdarlaus netaveiði á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár skuli vera undanskilin. Veiðimenn um allt land keppast við að sleppa laxi og sérstaklega stórlaxi. Það hefur orðið algjör hugarfarsbreyting hjá stangveiðimönnum, þökk sé Veiðimálastofnum og fleiri aðilum sem hafa keppst við að friða stórlaxinn undanfarinn áratug. Smellið á lesa meira til að sjá grein.
Lax mættur í Brúará
Fyrstu laxarnir eru komnir á land í Brúará. Við heyrðum í Þorfinni á Spóastöðum og tilkynnti hann okkur að tveir laxar hefðu komið á land rétt fyrir neðan fossinn á miðvikudag og einn í dag. Það er góðs viti að laxinn sé að mæta í Brúará en í fyrravor var um 10.000 seiðum sleppt í ánna og er von af heimtum úr þeim núna í sumar.
Lesa meira
9kg lax úr Eystri Rangá í morgun
Eystri Rangá var í 59 löxum í gærdag og hefur náð að hreinsa sig síðan í byrjun vikunar. Í morgun var búið að skrá 25 laxa í bók og veiðimenn en eftir að skila sér niðri veiðihús. Það má einnig bæta við að 9kg lax veiddist í morgun og er það stærsti lax sumarsins hingað til í Eystri en við fáum því miður ekki mynd af drekanum fyrr en í kvöld eða á morgun.
Lesa meira98 cm dreki úr Laugardalsá
Við fengum skemmtilegan póst frá Hermanni G. Hermannssyni sem er við veiðar í Laugardalsá fyrir norðan...
98 cm dreki úr Laugardalnum ! Veiddist í Blámýrinni í gær. Hann var tekinn á Svarta micro frances nr 16. Reyndist vera hrygna og var henni sleppt eftir mælingu.
Lesa meira
Fallegar myndir úr veiðiferð í Ytri Rangá
80 laxa dagur í Ytri Rangá
Veiðidónar á ferð í Blöndu
Á morgunvaktinni á svæði 1 í Blöndu veiddist lax í Damminum með þennan ófögnuð kræktan í kviðinn. Ekki leikur vafi á því að veiðiþjófar hafa verið á ferðinni þarna í nótt sem leið og notað þetta agn. Veiðiverði hefur að sjálfsögðu verið gert viðvart og má búast við aukinni veiðivörslu í framhaldi af þessu.
Skemmtilegar myndir úr Víðidalsá
Forfallastangir í Laxá á Ásum
Líf í Tungufljóti
20 pundari úr Víðidalsá
Þrátt fyrir að veiðin sé nokkuð róleg enn sem komið er í Víðidalnum eru þar þó nokkrir drekar á sveimi. Þessi sem hér sést á mynd er 100 cm langur og tók hann Green Brahan no. 14 í Harðeyrarstreng.
Verslunarmannahelgin í Blöndu
Svæði 1 í Blöndu hefur nú skilað á land tæpum 1000 löxum í sumar á 4 stangir – að öðrum veiðisvæðum ólöstuðum má eflaust telja að þetta sé einfaldlega besta veiðisvæði landsins í dag.
Lesa meira
Fínar fréttir úr Stóru Laxá
Við heyrðum góðar fréttir úr Stóru Laxá sv. I og II. Í gær komu sjö laxar á land og veiðimenn misstu annað eins. Laxinn var að taka á öllu svæðinu. Eru þetta góðar fréttir fyrir Stóru Laxá sem hefur verið eins og svo margar aðrar ár seinni í gang en undanfarin ár.
Lesa meira
Rangárnar góðar
Rangárnar halda áfram að skila sínu. Ytri var í 60 löxum í gærdag og í morgun voru 32 komnir á land. Hávaðarok er skollið á svo ekki er búist við annarri eins tölu eftir hádegi. Laxinn er að veiðast frá svæðum eitt til sjö en það er reitingur á öðrum svæðum. Heildartalan í Ytri er nú kominn í tæpa 660 laxa. Af Eystri er einnig gott að frétta.
Lesa meira
Blandan komin yfir 1000 laxa
Staðan á Blöndulóni góð
Ágætt í Soginu
Við heyrðum í veiðimönnum sem voru við veiðar á veiðisvæðum okkar í Soginu um helgina. Erlendur Ólafsson var við veiðar við Tannastaðatanga á laugardag. Veðrið var slæmt á laugardaginn, mikill vindur og erfitt að kasta, en hann landaði tveim löxum um morguninn og einum öðrum laugardagskvöldið. Þrír laxar og óveiðandi meiripart dags er ágætis árangur. Í Syðri Brú fengu veiðimenn fimm laxa og voru þeir allir lúsugir.
Lesa meira
Stuð í Blöndu um helgina
Blanda var í miklu fjöri um helgina. Veiðimenn á svæði 1 voru að taka dagskvótann sem eru 12 laxar á allar 4 stangir í gær sunnudag og svipuð veiði var á laugardag. Voru veiðimenn byrjaðir að sleppa laxi á sunnudeginum. Af öðrum svæðum var smá reitingur á svæði fjögur var með 2-3 laxa á dag um helgin. Betur gekk á svæði þrjú, þar voru menn að setja í fisk í skurðinum og á veiðistaðnum Bæjarhóli. Misstu veiðimenn þar eitthvað af laxi en sjö löxum var landað.
Lesa meira
Góðar fréttir úr Langadalsá
Við fengum fínar fréttir úr Langadalsá í dag en hollið sem er við veiðar og hefur verið að í ánni síðustu fjóra daga eru komnir með 22 laxa. Flestir laxanna hafa komið af neðri svæðunum í ánni en lax er þó að finna á efri hlutanum þó megnið hafi komið fyrir neðan. Vatnið er gott og lúsugir laxar hafa verið að veiðast síðustu daga og hafa veiðimenn tekið nær alla laxanna á tvær flugur, Francis og Sunray shadow. Heildartalan er nú komin í 70 laxa sem er fínt miðað við rólega byrjun í ánum fyrir vestan.
Lesa meira
Svart og hvítt í Eystri um helgina
Það var mikið fjör á laugardaginn í Eystri Rangá en alls komu um 70 laxar á land. Laxinn var að taka um alla á en þó báru svæði eitt og sex uppúr. Svæði sjö og tvö voru einnig að hrökkva í gang. Það gerðist svo sunnudagsmorgun að það hellirigndi á svæðinu og áinn varð lituð og óveiðanleg mest allan sunnudag. Það bitnaði heldur betur á veiðinni en um 12 fiskar komu á land yfir daginn. Við heyrðum í Óla veiðiverði
Lesa meiraHelgin í Ytri Rangá
Helgin var ágæt í Ytri Rangá. Það var hvasst á laugardaginn og nær ómögulegt að kasta flugu en samt náðu veiðimenn að landa 22 löxum. Sunnudagurinn var mun betri, vindinn lægði og veiðimenn gátu kastað, en alls komu 53 laxar á land. Helstu svæðin sem voru að gefa yfir helgina eru þau sömu og undanfarið, en það eru svæði eitt, fjögur og sex. Það eru einnig góð tíðindi að fimm löxum var landað á Gullfossarbreiðu á svæði tíu en það er fyrir ofan Árbæjarfoss.
Lesa meira
Einstakar myndir af íslenska laxinum
Kvikmyndatökulið, með Rick Rosenthal í fararbroddi, hafa verið við tökur á Íslandi fyrir heimildarmyndina, Atlantic Salmon - lost at sea. Rick þessi hefur unnið tvívegis til Emmy verðlauna og var á dögunum tilnefndur til þriðju verðlaunanna fyrir myndatökur á efni fyrir National Geographic. Hópurinn hefur verið á víð og dreifð um landið og tekið upp efni á hinum ýmsu stöðum. Þar á meðal í Stóru Laxá, Tungufljóti, Ytri Rangá og nú við Blöndu í dag.
Lesa meira
Frábær dagur í Eystri og Ytri Rangá
Við sögðum frá því í gær að Ytri Rangá hafði endaði í 50 löxum á morgunvaktinni. Kvöldvaktin gaf 24 laxa og því 74 á land í gær og besti dagur sumarsins hingað til. Við heyrðum svo í Óla veiðiverði í Eystri og var gærdagurinn einnig sá aflamesti það sem af sumri. Þar komu 60 laxar á land og veiðin um alla á.
Lesa meira
Fréttir úr Langadalsá
Langadalsá lítur vel út þessa daganna. Heildartalan er komin rétt yfir 50 laxa og nýr fiskur að skila sér í ánna undanfarna daga samkvæmt Sigga veiðiverði. Veiðimenn eru að setja í flotta fiska í ánni og þó nokkrir yfir 80 cm komnir á land ásamt einum 90cm sem kom á land í Efrabólsfljótinu.
Lesa meira
Skemmtilegur dagur í Eystri Rangá
Gunnar Norðdahl sendi okkur línu eftir skemmtilegan dag í Eystri Rangá. Gefum Gunnari orðið...
Ég átti góðan dag í Eystri í gær. Setti í átta og landaði þremur.
Lesa meiraFrábær morgunvakt í Ytri Rangá
Ytri Rangá er heldur betur að taka við sér. Við sögðum frá því í gær að þriðjudagurinn hafi verið besti dagurinn í sumar hingað til með 48 laxa. Miðvikudagurinn var svipaður með 45 laxa og 30 af þeim á morgunvaktinni. En morgunvaktin í dag, fimmtudag, kom með enn eina sprengjuna, 50 laxar á land og tæpur helmingur í Ægisíðufossi seinnihluta vaktarinnar.
Lesa meira
Veðurblíða í Víðidalnum
Heildarveiðin í Víðidal er kominn í 150 laxa ef kvöldvaktin í gær og morguninn í dag er tekinn með. Er þetta talsvert minna en í fyrra en eins og oft hefur verið sagt í sumar er veiðin um tveimur vikum seinna í sumar en undanfarin ár. Við heyrðum í þeim niðri veiðihúsi eftir vaktina í morgun og var sól og blíða á svæðinu eins og er búið að vera núna í viku og ef eitthvað er fer hitinn hækkandi.
Lesa meira
Blanda í 826 laxa
Við vorum að fá heildartölur fyrir norðan úr Blöndu og Svartá. Blanda var kominn í 826 laxa þegar talið var í lok seinnivaktar í gær. Svæði eitt þar fremst svæða en reitingur á öðrum svæðum. Sem dæmi komu þrír laxar á svæði þrjú í gær og tveir á land á bæði tvö og fjögur.
Lesa meira
Kvikmyndatökulið að mynda íslenskar ár
Það eru skemmtilegar fréttir frá okkur hjá Lax-á en erlent kvikmyndatökulið er að mynda fræðslumynd um Atlantshafslaxinn í nokkrum af okkar bestu ám. Myndin mun heita Atlantic Salmon – Lost at sea og verður þetta mikil og góð landkynning fyrir Ísland en landið verður kynnt sem land vonarinnar þar sem góð stjórn, verndun laxveiða og meðhöndlun vatnasvæða er með allra besta móti hér á landi á meðan annarsstaðar í heiminum fer laxveiði minnkandi.
Lesa meiraSvartá í A Hún
Minni á að við eigum enn lausar stangir í hollinu 26-29 júlí í Svartá en fyrir nokkru forfallaðist það holl. Þetta eru frábærir dagar á besta tíma.. stefan@lax-a.is
Besti dagur sumarsins í Ytri Rangá
Ytri Rangá hrökk í gang í gær eftir nokkra rólega daga í ánni. Besti dagur sumarsins var í gær en áin skilaði 48 löxum á land og fóru nokkrir góðir í klakkisturnar. Svæðið sem stendur upp úr þessa daganna er svæði fjögur þar sem veiðistaðurinn Klöppin er að skila flestum löxum.
Lesa meira
Eystri Rangá í góðum gír
Eystri Rangá heldur áfram að gefa vel en 32 laxar komu á land í gærdag og nokkrir 5-6 kg fiskar. Ástandið á ánni er gott og var hún tandurtær í gær og er það annan daginn í röð. Það var smá litur í henni í morgun eftir rigningar í gærkvöldi en hún ætti að vera orðinn tær um hádegisbilið. Svæði eitt, fjögur og sex voru að gefa best í gær en einnig komu nokkrir laxar á níunni sem eru góð tíðindi.
Lesa meira
Forfalla stangir í Víðidalsá
Góður dagur í Brynjudalsá
Enn berast fínar fréttir úr Brynjudalsá en gærdagurinn gaf sex laxa. Mikill lax er í ánni og í gær sáust laxar í efsta þrepi laxastigans í efri fossinum og er hann því að öllum líkindum kominn upp fyrir efri fossinn.
Lesa meiraTungufljótið rólegt
Tungufljótið er ennþá rólegt en þó er smá reitingur. Það voru fjórar stangir í síðasta holli í ánni en þeir lönduðu sjö löxum og sjö bleikjum, alls fjórtan fiskar á tveim dögum. Bleikjunar voru vænar, sú stærsta sex pund. Allir fiskarnir nema einn lax kom úr Faxa en sá eini úr Hólmabreiðunni. Allt var þetta tekið á Snældu túpur.
Lesa meiraGóður dagur í Ytri Rangá
Það var fínn dagur í Ytri Rangá í gær en 30 löxum var landað. Helgin var í meðallagi en hún gaf 31 lax þar sem flestir komu á sunnudeginum, eða 23. Lax var að veiðast á nær öllum svæðum í gær en sterkustu staðirnir síðustu daga hafa verið Staurinn, Borg, Klöppin og Rángarflúðirnar. Heildartalan í Ytri er nú í rúmlega 280 löxum og fer eflaust yfir 300 í dag eða á morgun.
Lesa meiraBesti dagur sumarsins í Eystri Rangá
Besti dagur sumarsins var í gær í Eystri Rangá enda í fyrsta sinn í sumar sem áin er veiðanlega allan daginn. Morgunvaktin gaf 18 laxa og kvöldvaktin 26, alls 44 laxar á land. Helstu veiðistaðirnir í gær voru Bátsvað á svæði eitt og Rángavað á svæði sex en lax fékkst á næstum öllum svæðum. Heildartalan í Eystri er kominn yfir 200 laxa og verður gaman að fylgjast með veiðinni á næstu dögum.
Lesa meira
Fréttir úr Blöndu
Það var rólegt í Blöndu yfir helgina en glampandi sól var á veiðisvæðunum alla helgina. Svæði eitt var að gefa best en þar komu 50 laxar á land. Á öðrum svæðum var reitingur, frá tveim til fjórum löxum á dag. Við heyrðum í Vigni veiðiverði í morgun og fréttir frá morgunvaktinni voru svipaðar og um helgina, rólegt og mikil sól. Heildartalan í Blöndu er komin yfir 650 laxa og fer eflaust yfir 700 á næstu dögum.
Frábær kvöldvakt í Eystri Rangá
Eystri Rangá hrökk í gang í gærkvöldi eftir nokkra rólega daga í ánni. Eystri hefur verið afar lituð undanfarið en hún náði að hreinsa sig seinnipartinn í gær. Einungis tveir laxar komu á land á morgunvaktinni í gær en kvöldvaktin skilaði 20 löxum. Svæði sex gaf best í gær eða rúman helming en svæði eitt og fjögur voru einnig að skila sínu.
Lesa meiraRólegt yfir Hallánni - Lítið vatn og bjart veður
það var rólegt hljóðið í veiðimönnum sem voru búnir að standa vaktina við Halla nú um helgina. Lítið vatn er í ánni og svo virðist sem lítið af laxi sé gengið í ánna. Þeir náðu að landa 2 smálöxum, annar við Stóra Stein, hinn niðri í ós en þeir urðu varir við lax í Kjalarlandsfossum og svo ekkert meir. Höfðu þeir á orði að þetta væri lakasta laxgegnt sem þeir hefðu séð í ánni í ein 19 ár, sem virðist vera reyndin víðar þetta sumarið. Þrátt fyrir slakan túr hlakkar í þeim að koma aftur síðar í sumar enda áin ein sú skemmtilegasta hjá þeim félögum..Axelo axel@lax-a.is
Lesa meira
Fréttir úr Krossá í Bitru
Við heyrðum í Jóhannesi Bárðarssyni og fjölskyldu sem var við veiðar í Krossá í Bitru fyrir helgi. Veðrið var gott og frekar lítið vatn í ánni en tveir laxar náðust á land, níu og tíu pund. Sá fyrsti við veiðistaðinn Laxfoss og sá síðari í Símastreng. Heildartalan fyrir helgi var kominn í 13 laxa en Jóhannes sagði lax vera á nokkrum veiðistöðum í ánni en einnig var talsvert af laxi að loðna við ósinn á ánni og bíða eftir betra vatni til að ganga upp.
Lesa meiraEinn besti dagur sumarsins í Ytri
Ytri Rangá er í ágætis málum þessa daganna. 23 laxar komu á land í gær sem er með betri dögum sumarsins en 5 laxar voru komnir á land í morgun. Stefán sölustjóri hjá Laxá var við veiðar í gærkvöldi og sagði ánna líta vel út og sá nokkuð af laxi vera að ganga í. Hann setti í 16p hrygnu við Ægissíðufoss með norskan 20gr Keppler spún í kjaftinum en hrygnan endaði í klakkistu.
Lesa meira
Rólegt en skemmtilegt við Hvannadalsá í djúpinu
Ég sló á þráðinn vestur í djúp í morgun og ætlaði að fá fréttir af afla. Það var hún Sigrún sem svaraði mér og skellihló þegar ég spurði um veiðina við Hvannadalsá. Hún sat upp í bíl og fylgdist með veiðum en þau höfðu fundið nokkra laxa hér og þar og voru að reyna við þá." þetta er rólegt, þeir bara taka ekki, svo er veðrið bjart og frekar kuldalegt, norðan blástur, en þeir hljóta að fara að ganga bráðlega".. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Veiðin að fara í gang í Stóru laxá sv 1-2
Það voru góðar fréttir sem bárust af svæði 1-2 í Stóru lax-á í Hreppum seint í gærkveldi en veiðimaður sem þar var að landaði 3 grálúsugum smálöxum á um 20 mínútna kafla. Taldi hann sig hafa séð nokkuð af laxi straua upp eftir ánni en hann var við veiðar á neðri svæðunum.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Blanda komin í 569 laxa
Blanda er kominn í 569 laxa í sumar. Svæði 1 hefur verið að gefa best en svæði 4 hefur einnig gengið vel en þar er bara fluga leyfð. Fréttir úr ánni hafa verið góðar og ekki annað hægt en að vera bjartsýnn varðandi framhaldið. Fréttir frá morgunvaktinni á svæði eitt voru 15 laxar á land en ekki var búið að skrá önnur svæði.
Lesa meiraGott holl í Víðidalsá
AF Ytri og Eystri Rangá
Hollið 26-29 júlí Svartá
Fjör í Blöndu
Veiðisaga úr Hólsá
Fréttir frá Ytri Rangá
Mikill lax í Brynjudalsá
Fréttir úr Syðri Brú
Við heyrðum í Búa Gíslasyni veiðimanni sem var við veiðar í Syðri Brú í morgun ásamt veiðifélaga. Þeir félagarnir voru búnir að setja í tvo laxa um 6-7 pundið og báðir grálúsugir. Þeir sáu einnig nokkuð af laxi bylta sér á svæðinu. Þetta er vonandi merki um að meira líf sé að færast í veiðina en gaman verður að fylgjast með næstu daganna.
Lesa meira
Líf í Víðidalnum
Ánægjulegur veiðitúr í Hvannadalsá
Fréttir af Ytri Rangá
Veiði héðan og þaðan
Einhver merki eru um að veiði sé að glæðast víðast hvar. Í Rangánum hefur veiðin verið að aukast hægt og sígandi, um síðustu helgi voru menn að kroppa upp 2 – 5 laxa á dag en nú veiðast 13 – 17 á dag. Blanda er áfram á ágætu róli, en í vikulegar tölur á heimasíðu Landssambands veiðifélaga (www.angling.is) vantaði hinsvega tölur úr einu holli.
Lesa meiraFréttir úr Svartá
Eystri í góðu standi
Við heyrðum í Óla veiðiverði í Eystri Rangá og segir hann ánna í þokkalegum gangi þrátt fyrir að vera vatnsmikil og nokkuð köld. Í gær veiddust 11 laxar og daginn áður 17 stykki, stór meirihluti tveggja ára lax.
Ytri Rangá bætir við sig.
Alls veiddust 14 laxar í Ytri Rangá í gær og er það einum fleiri frá deginum áður. Þetta eru góð tíðindi því ekki nema tveir dagar síðan það komu einungis fimm laxar á land.
Að sögn veiðimanna á svæðinu var verið að setja í lax út um alla á en veiðimaður missti meðal annars lax við Árbæjarfoss á svæði 8. Í morgun var sett í átta laxa við Ægissíðufoss en einungis tveir komu á land.
Forfallaholl í Blöndu 4
Vegna forfalla losnaði holl á svæði 4 í Blöndu um mánaðarmótin júlí/ágúst. Varla þarf að taka fram hversu frábær veiðin getur verið á þessum tíma, dæmi eru um að menn veiði tugi laxa á dag – séu aðstæður góðar.
Var að losna holl í Langadalsá 12-14 júlí
Veiðin í Langadalsá hefur farið ágætlega af stað eins og lesa má af grein okkar hér fyrir neðan. Júlí veiðin hefur ávallt verið mönnum skemmtileg og gefið þá nokkra stórlaxana af sér. Við eigum til daganna 12-14 júlí, 4 st, en þeir duttu inn á borð til okkar í morgun. Veiðihúsið er annsi notalegt m/ gufu og heitum potti og 8 einstaklingsherbergjum, því er hér um góðan pakka að ræða. Áhugasömum er bent á sölumenn lax-á, Stefán eða Axel.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraYtri að glæðast
Alls komu 13 laxar upp í Ytri Rangá í gær og menn urðu varir við miklu meira líf en hefur verið undanfarið.
Það er ekki laust við að fyrsta vikan í júlí hafi valdið vonbrigðum, enda hefur all jafna verið ágætis veiði þessa daga á undanförnum árum. En eins og víðast hvar annars staðar hefur laxinn látið bíða eftir sér, vonandi horfir nú til betri vegar.
Langadalsá
Laxinn í Eystri Rangá
Óli yfirleiðsögumaður í Eystri var sprækur um hádegisbil þegar ég heyrði í honum. Veiðin þar gengur nokkuð vel en 13 laxar veiddust í gær og svo vissi hann af allavega fjórum sem komu í morgun. Allir laxarnir sem veiddust voru frekar stórir eða yfir 4kg, meira virðist vera af stórlaxi en smálaxi í ánni um þessar mundir.
Fréttir úr Hvannadalsá
Við heyrðum í veiðimönnum úr Hvannadalsá. Þeir segja mikið vatn vera í ánni og frekar kalt úti. Lítið gekk hjá þeim til að byrja með á sunnudag en fór svo strax að ganga betur á mánudag, þá fengu þeir tvo laxa í Djúpafossi, annar um 90cm en hinn í kringum 83cm. Í gær beit hann svo á í Árdalsafossi og Árdalsfljóti en þeir voru í kringum 83cm, á meðan slagurinn stóð yfir sáu þeir um 10-15 laxa renna sér inn í Árdalsfljót.
Fréttir að norðan
Vignir Björnsson, veiðivörður í Blöndu og Svartá, sendi okkur þessar myndir sem teknar eru á Svæði 2 í Blöndu annarsvegar og í Svartá hinsvegar. Sjá má maríulax úr ármótunum í Svartá og Eins má sjá veiðimann fást við lax við Auðólfsstaði á svæði 2 í Blöndu. Myndirnar voru teknar í gær.
Fyrsti fiskurinn fyrir austan
Krossá í Bitrufirði
Stórlaxinn í Víðidalnum
Líflegt á Svæði 3 í Blöndu
Opnunarhollið í Svartá
Tungufljót í Biskupstungum
Svartá í A hún
