Laxá á Ásum
Góður gangur í Blöndu
Fleiri sögur úr Blöndu og Víðidal
Þórður Sigurðsson leiðsögumaður sendi okkur eftirfarandi rapport af veiðum norðan heiða, en þar er hann að leiðsegja þjóðverja sem er í annarri heimsókn sinni til landsins. Við gefum Þórði orðið: Rolf er búinn að vera að veiða síðust daga í Blöndu og í dag byrjaði hann í Víðidal. Það er óhætt að segja að á ýmsu hafi gengið í Blöndu. Í gær setti hann í 12 laxa og landaði tveimur. Hann varð fyrir því „óláni“ að setja í eitt af Blöndutröllunum í gær sem rétti upp krókana hjá honum. Sá fiskur var vel yfir 10 kg. Þegar hann átti Damminn sunnan megin setti hann í stóran fisk sem straujaði niður flúðirnar og hafði af honum skothaus, running línu og 20 metra af undirlínu.
Lesa meiraLaugardalsá
Svæði 4 í Stóru
Við heyrðum í Frey Guðmundssyni sem er að opna svæði 4 í Stóru Laxá ásamt félögum sínum. Ekki hafði Freyr landað laxi ennþá en var vongóður um að það úr því rættist. Tveir laxar komu á land á fystu vakt, báðir um 10 pund og báðum sleppt aftur eins og reglur segja til um. Báðir tóku þeir frances túbur og báðum var landað í Skerinu. Auk þessara tveggja voru nokkrir fleiri í Skerinu og og víðar. Hvasst er á svæðinu og mikið vatn í ánni og nokkuð erfitt að skyggja ána.
Saga úr Blöndu
Eins og við sögðum frá fyrr í dag þá er Blanda 1 að detta í 200 laxa, það telst svosem ekki neitt júnímet en er í góðu meðallagi. Eins og fyrri daginn er talsvert um að stórir fiskar séu að rétta upp króka og láta sig hverfa. Kristinn Gunnarsson leiðsögumaður setti í einn slíkan um daginn og sá tók á Breiðunni og lét sig húrra niður að broti. Kiddi er nú eldri en tvævetur í þessu sporti og tók fast á laxinum og náði að koma honum af brotinu og upp á Breiðuna aftur. En Adam var ekki lengi í paradís því laxinn fékk nóg af þessari vitleysu og snéri til baka, rétti upp krókana á Kamazan þríkrækju númer 6 og lét sig hverfa.
Fréttir héðan og þaðan
Svæði 1 í Blöndu er að nálgast 200 laxana, voru komnir 191 á land í gær og e-ð bæst við síðan þá. Af svæði 3 er búið að skrá einhverja laxa en af svæðum 2 og 4 eru litlar fréttir. Líkast til hefur verið talsvert hark þar í kulda og leiðinda veðri.
Svartá og Laxá á Ásum opna núna 1 júlí og er búið að sjá laxa í þeim báðum, haldist veður skaplegt má því búast við ágætum opnunum þar.
Fín opnun í Víðidalsá
Eftir 2 vaktir eru a.m.k. 9 stórlaxar komnir á land í Víðidalsá og veiddist víðsvegar um ánna. Harðeyrarstrengur, Efri Garðar, Ármót og Laxapollur gáfu t.a.m. allir fiska og er víst talsvert af laxi í Laxapolli. Laxarnir sem komu á land voru allir á bilinu 80 – 85 cm að lengd og var öllum sleppt aftur enda sleppiskylda á stórlaxi í Víðidalnum.
Sést til laxa í Stóru Laxá
Freyr H. Guðmundsson skyggndi Klaufina á svæði 4 í Stóru Laxá núna í gær og sá a.m.k. tvo laxa sem báðir voru 2ja ára. Laxinn er því greinilega mættur í Stóru og má búast við skemmtilegri opnun þar á þriðjudaginn næsta.
Lesa meiraYtri endaði í 10 löxum
Ytri Rangá opnaði í gær og komu 10 laxar á land víðsvegar um ána. Ægissíðufoss (ásamt Klöpp) var að venju sterkur og einnig Djúpós en þrír laxar komu upp af Rngárflúðunum og við munum hreinlega ekki eftir því að svo margir laxar hafi veiðst fyrir ofan foss í opnun.
Fljúgandi start í Rangánum - Fallegir laxar á land
Veiðar hófust í Ytri Rangá í morgun og laxinn var svo sannarlega mættur. Lax-á á er með sína fulltrúa á svæðinu, þá Stefán Pál Ágústsson og Stefán Sigurðsson. Stefán Sig var nú rétt í þessu að landa 12 punda hrygnu úr Djúpósi en nafni hans Ágústsson var enn fisklaus. Alls voru komnir 6 laxar á land en það er ein besta byrjun í Ytri Rangá í mörg ár.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraVíðidalsá opnar á morgun 24 júní
Ytri Rangá opnar á morgun
Laxar farnir að sjást í Ásunum
Við heyrðum í heimamönnum norðan heiða sem höfðu farið og skyggnt Ásana af þjóðvegabrúnni og sáu ekki færri en 3 laxa liggja þar fyrir neðan. Það eru því líkur á að Ásarnir byrji snemma þetta árið, eins og þeir hafa reyndar gert undanfarin ár.
Lesa meiraLaxar sjást á suðurlandi
Við höfum haft fregnir af því að sést hafi til laxa í ám á suðurlandi um helgina. Í Tungufljóti sást til laxa velta sér í fossinum Faxa og eins sáust 7 – 8 laxar á speglinum við Laxhyl í gljúfrinu þar fyrir neðan. Í Ytri Rangá sást til laxa í Djúpósnum og á fleiri stöðum.
Lesa meiraLausar stangir í byrjun júlí
Það er nú einu sinni þannig að frá áramótum silast tíminn áfram hjá laxveiðimönnum, alveg fram í júní þegar fyrstu árnar opna. Síðan virðist veiðitímabilið fljúga áfram og áður en varir er tímabilið búið og biðin tekur við aftur. Nú er júnímánuður langt liðinn og tímabilið hér sunnanlands að hefjast og því upplagt að skoða hvað er laust hjá okkur fyrstu daga júlí.
Lesa meiraFyrsti laxinn komin á land í Laugardalsá
Víðidalsá sil opnaði í gær
Laugardalsá opnar í dag
Blanda virðist vera að detta í gang
Eftir opnun í Blöndu tók við tregveiði í einhvern tíma, menn kroppuðu upp einn og einn við erfiðar aðstæður. En núna virðast göngur vera að aukast ásamt því að tíðarfarið er að skána.
Fréttir úr Stóru Laxá
Húsin í Stóru Laxá voru í mismunandi ástandi þegar Lax-á tók við ánni nú í haust, segja má að húsið á svæði 1&2 og húsið við svæði 3 hafi verið í þokkalegu standi. Í þessum húsum hafa þó húsgöng verið endurnýjuð að einhverju leyti og hið sama má segja um ýmis áhöld í eldhúsum og eitt og annað smálegt. Aðaláherslan var lögð á húsið á svæði 4, enda var brýn þörf á úrbótum á því húsi.
Lesa meiraFréttir af Langadalsá í Djúpinu
Þorleifur Pálsson hjá Veiðifélagi Ísfirðinga sendi okkur eftirfarandi bréf með nokkurskonar dagbókarfærslum úr Langadalnum fyrir vestan:
Sælir verið þið laxveiðimenn. Dagbókarbrot úr Langadal og Hvannadal á síðustu helgi og rúmlega það. Fimmtudagur. Var ásamt félaga mínum Gunnlaugi kominn í Langadalinn upp úr hádegi á sl. fimmtudag. Fljótlega kom seiðasending frá Laxeyri í Borgarfyrir fyrir Langadalsá og Hvannadalsá.
Lesa meira
Opnunin endaði í 11 löxum
Opnunin í Blöndu endaði í 11 löxum, 10 þeirra voru á bilinu 10 - 14 pund en eitt örverpi var í hópnum. Auk þessara 11 settu menn í og misstu svipaðan fjölda við erfið skilyrði. Engu að síður eru menn sáttir við opnunina, enda einungis veitt á 4 stangir.
Lesa meira
Opnunin í Langadalsá
Langadalsá í Djúpi opnar 21 júní næstkomandi og er opnunarhollið (21-23 júní) laust, en segja má að laus holl í ánni í sumar séu teljandi á fingrum annarrar handar. Opnunardagarnir eru á tilboði á www.agn.is
Lesa meira
Forfallastöng í Blöndu
Allnokkurt flóð hljóp í Blöndu í gær og voru veiðimenn komnir í hús klukkan 19:00 í gærkvöldi og aflabrögð eftir því. Heildarafli úr Blöndu það sem af er mun vera í kring um 10 laxar á land og allnokkrir til viðbótar hafa sloppið. Þrátt fyrir erfið skilyrði (kulda og hvassviðri) er a.m.k. helmingur aflans tekinn á flugu - enda er einhver besta flugubreiða landsins á þessu svæði.
Lesa meira2 laxar á kvöldvaktinni í gær
Blanda endaði með 8 löxum lönduðum á opnunardeginum í gær. Á seinni vaktinni var 2 löxum landað og einnig misstu veiðimenn 2 til viðbótar, sem fyrr voru laxarnir á milli 10 og 14 pund. Af þessum 8 voru fjórir teknir á maðkinn og hinir fjórir á fluguna.
Lesa meira
6 laxar á fyrstu vaktinni í Blöndu
Fyrsta vaktin í Blöndu skilaði 6 löxum á land sem verður að teljast bærileg opnunarvakt. Laxarnir voru allir á bilinu 10 -14 pund, feitir og pattaralegir. Við munum að sjálfsögðu uppfæra fréttir eftir seinni vaktina í dag.
Veiði hafin í Blöndu!
Stefán Sigurðson, sem ásamt fleirum er við opnunina í Blöndu, tjáði okkur að klukkan 9:30 voru 3 laxar komnir á land þar nyrðra.
Sá fyrsti var komin á land klukkan 07:25 og var þar c.a. 12 punda hrygna. Hinir tveir sem veiðst hafa voru á svipuðu reki.
Ferjukotseyrar
Ferkotseyrarnarnar eru ódýr og áhugaverður kostur fyrir áhugamenn um laxveiði. Seint verður sagt að svæðið sé eitt af hinum aflameiri, en hinsvegar gengur gríðarlegt megn af laxi þar í gegn á hverju sumri.
Fyrir duglega veiðimenn sem kunna eitthvað til verka getur veiðivon verið nokkur, sérstaklega snemmsumars.
Enn sést til laxa í Blöndu
Steini Hafþórs, leiðsögumaður og veiðigúrú á Blönduósi kíkti í Damminn í Blöndu núna á hádeginu og sá að sjálfsögðu til laxa. Nokkrir voru í Damminum sjálfum, í Holunni þar fyrir ofan og einnig á Spítalanum svokallaða. Veiðimenn sem eiga leyfi í opnun og hollunum þar á eftir eru víst farnir að titra úr spenningi.
Lesa meira