Helstu fréttir

HH3

31.5.2011 : Fá holl eftir í Djúpinu

Árnar okkar þrjár í Djúpinu hafa átt auknum vinsældum að fagna undanfarin ár – enda verið fantagóð veiði þar vestra. Þessar þrjár ár, Langadals- Laugardals- og Hvannadalsá, eru nú langt komnar með að vera uppbókaðar í sumar – eingöngu örfá holl eftir. Hér að neðan má sjá hvað laust er í þessum ám sumarið 2011:

Lesa meira
 
1

31.5.2011 : Laxinn mættur í Blöndu

Við hjá Lax-á fengum skemmtilegan póst í gær frá Höskuldi B Erlingsyni Lögreglumanni og leiðsögumanni í Blöndu og svona hljómar hann.Ég fór sumsé í gær og aftur í morgun og kíkti í Dammin stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
Tung610

27.5.2011 : Tungufljótið vinsælt

Nýlega birtum við skemmtilegar fréttir úr Tungufljóti, þar er nú kominn vísir að náttúrulegu klaki eins og alltaf var stefnt að. Eins birtum við tölur um meðalveiði á stöng í júlí og fyrrihluta ágúst, en hér kemur taflan fyrir seinnipart ágústmánaðar og september.

Lesa meira
 
hroi_10

26.5.2011 : Hróarslækur

Við höfum fengið allveg frábærar mótökur með Hróarslæk og hefur gengið allveg frábærlega vel að selja Hróarslæk í vetur. Núna er svo komið að Hróarslækur er nánast uppseldur stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Sindri_rolf_goeggel

26.5.2011 : Eystri Rangá í júlíbyrjun

Við eigum til nokkrar stangir á tímabilinu 4 til 10 júlí í Eystri Rangá, þær eru þó fáar og fer fækkandi. Veiðihúsaskylda hefst ekki fyrr en 10 júlí, en vitanlega geta menn fengið inni á þessum tíma ef þeir vilja.

Lesa meira
 
IMGP0529

25.5.2011 : Blöndufréttir júní 2010

Ég var að fletta í gegnum Blöndufréttir í júní í fyrra og má segja að það hafi kveikt á veiðineistanum, en hér fyrir neðan ætla ég að smella nokkrum fréttum frá því í fyrrasumar úr Blöndu. stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
Flatistrengur_og_Ofarustrengur

25.5.2011 : Svæði 4 í Stóru Laxá

Eins og komið hefur fram hjá okkur í vetur verða talsverðar breytingar á veiðifyrirkomulagi í Stóru Laxá í sumar. Eingöngu er leyft að veiða með flugu og á svæðum 1,2 og 3 má hirða einn smálax á dag en á svæði 4 er skylduslepping á öllum afla.

Það hefur löngum verið talið að í Stóru Laxá séu í raun tveir laxastofnar; annar er snemmgengnari og stórvaxnari, mætir til leiks í júní og fer beint upp á svæði 4 þar sem hrygningarstöðvar hans eru – hinn stofninn gengur upp í Stóru Laxá frá júlíbyrjun og fram á haust, oft mikil skot í september.

Lesa meira

 
IMG_3932

24.5.2011 : Rafn Hafnfjörð er látinn.

Okkar frábæri vinur og velgjörðarmaður í meira en 3 áratugi , Rafn Hafnfjörð er allur. Rafn var veiðimaður og listamaður af lifi og sál. Hann var þess gerður að mér datt bara ekki í hug að hann væri að fara eitt eða neitt.

Lesa meira
 
DSC00257[1]

24.5.2011 : Mögnuð skýrsla um Tungufljót

Það hefur verið yfirlýst markmið landeigenda og Lax-á að stuðla að náttúrulegu klaki í Tungufljóti í Biskupstungum frá því Lax-á hóf aðkomu að seiðasleppingum og fiskirækt í fljótinu árið 2003. Raunar nær saga fiskiræktartilrauna í Tungufljóti mun lengra aftur í tímann, allt aftur til ársins 1971 þegar veiðifélagið Faxi var stofnað utan um vatanasvæðið ofan við samnefndan foss. Nýverið var birt skýrsla um Fiskirannsóknir í Tungufljóti í Biskupstungum unnin af Magnúsi Jóhannssyni og Benóný Jónssyni hjá Veiðimálastofnun. Skýrslan er fróðleg yfirlestrar og skemmtileg þeim sem hafa áhuga á laxarækt og laxgengd almennt

Lesa meira
 
Thorleifur_pallson1

24.5.2011 : Lítur vel út með Langadalsá

Vatnstaðan lítur vel út fyrir vestan og er allveg óhemju snjór ennþá á steingrímsfjarðarheiði og allir polla og lækir fullir af vatni sem við vonum að dugi vel fram sumarið. Þetta stefan@lax-a.is Lesa meira
 
CIMG1393

24.5.2011 : Júníveiðin í Blöndu 1

Nú líður að byrjun laxveiðitímabilsins og menn löngu farnir að telja niður. Eins og ávallt er það Blanda 1 sem ríður á vaðið og ljósi frétta um laxgengd undanfarið er full ástæða til bjartsýni á opnunina. Annars var júnímánuður í Blöndu með besta móti í fyrra og komu rúmlega 460 laxar á land og langflestir þeirra stórlaxar.

Lesa meira
 
IMGP0529

23.5.2011 : Blanda

Það er orðin gríðalegur spenningur fyrir komandi laxveiðiári eins og menn vita opnar Blandan þann 5 júní og eru menn byrjaðir njósna fyrir norðan og fylgjast með hvort hann sé mættur í Blönduna, Þorsteinn Hafþórsson stefan@lax-a.is Lesa meira
 
img_2827

20.5.2011 : Eystri Rangá snemmveiði

Það eru enn nokkrar lausar stangir fyrstu vikuna okkar í Eystri Rangá áður en fæðiskyldan byrjar. Þetta er á tímabilinu 4-10 júlí en sú vika gaf eina 140 laxa og má segja að megnið af þeim laxi var stefan@lax-a.is Lesa meira
 
100_0437

19.5.2011 : Ytri Rangá Júní/Júlí

Þeim fer ört fækkandi fyrstu dögunum í Ytri Rangá, en það er mikill spenningur fyrir komandi vori. Það er sellt án fæði og gistiskyldu til 10 júlí og er sá tími nánast uppseldur.  Ef talið er upp það sem stefan@lax-a.is Lesa meira
 
3

18.5.2011 : Blanda Sv1

Mjög vel hefur gengið að selja Blöndu sv1 og fer dögunum mjög fækkandi sem eftir eru í júní og Júlí. Metveiði var í fyrrasumar og allveg óhemja var af stórlaxi eða rúmmlega 50% allra laxa stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Hrunakrokunr_2

18.5.2011 : Stóra laxá sv 4

Góður gangur er á veiðihúsinu upp á svæði 4 í Stóru laxá. Guðmundur Sigurbjörnsson húsasmiður stendur í stórræðum þessa dagana við að koma húsinu í stand fyrir komandi vertíð. Við kíktum við í gærkvöldi stefan@lax-a.is Lesa meira
 
IMGP1279

18.5.2011 : Veiðistaðalýsingarnar í Ytri og Eystri Rangá

Það var gaman og góð mæting um sl helgi á veiðistaðalýsingunum í Ytri og Eystri Rangá, alls mættu um 50 manns og var farið í 3 hollum. Hver ferð tók um 4 klst og var farið yfir alla hellstu stefan@lax-a.is Lesa meira
 

11.5.2011 : Síðustu forvöð að skrá sig

Nú fara að verða síðustu forvöð að skrá sig í veiðileiðsögnina í Ytri og Eystri Rangám um helgina. Áhugasömum er bent á að senda póst á spall@lax-a.is til skráningar.

Það er ekki oft sem veiðimönnum býðst ókeypis fylgd um árnar með þrautreyndum leiðsögumönnum, enda hafa allmargir skráð sig nú þegar. Þó er enn pláss fyrir nokkra í viðbót. Frekari upplýsingar má sjá í fréttum hér að neðan en eins má senda póst á ofangreint netfang.

Lesa meira

 
mai 2011 (3)

11.5.2011 : Framkvæmdir ganga vel í Ytri Rangá

Framkvæmdir ganga vel við nýja veiðhúsið í Ytri Rangá eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Verkið er á áætlun og gert ráð fyrir að húsið opni 10. júlí. Það verður að segjast eins og er að þessi framkvæmd hafi verið ákaflega þörf, elsti hluti gamla hússins var kominn verulega til ára sinna og plássið orðið of lítið.

Lesa meira
 
RIMG0002

10.5.2011 : Vorið komið og laxveiðin að hefjast

Vorið hefur verið lengi á leiðinni til okkar hér á Fróni en virðist nú loks vera komið. Mikil ofankoma var seinnipart vetrar sem leiðir af sér að vatnsbúskapur verður vonandi með besta móti í sumar. Við höfum heyrt frá heimamönnum í Djúpinu og í Húnavatnssýslum að vatnsforði á heiðum sé með mesta móti – allt mýrlendi á floti og góður forði í vötnum.

Lesa meira
 
halla7

6.5.2011 : Krossá í Bitru

Krossá í Bitrufirði reyndist ákaflega ánægjuleg viðbót við laxveiðiflóruna hjá okkur í fyrra, enda skilaði hún í kringum 200 löxum á land. Áin er að verða nokkuð þétt bókuð en ef vel er að gáð má enn finna lausa daga á góðum tíma í ánni. Ekki spillir að ánni fylgir ákaflega notalegt veiðihús og mikil friðsæld er í dalnum.

Lesa meira
 
Guides Ytri 2007

4.5.2011 : Veiðistaðalýsing í Rangánum

Við viljum vekja athygli á veiðistaðalýsingunni í Ytri og Eystri Rangá sem haldnar verða laugardaginn 14. maí (Ytri) og sunnudaginn 15. maí (Eystri). Margir hafa sýnt þessu áhuga enda mun vera farið yfir öll veiðisvæði ánna í fylgd með yfirleiðsögumanni og þrautreyndum veiðimönnum. Keyrt verður á milli svæða og veiðistaðir skoðaðir og mönnum kynnt hvernig best er að bera sig að á hverjum stað.

Lesa meira
 
Roggi_og_Luther,_juni_(14)

3.5.2011 : Opnanir Laxveiðiánna

Sumarið virðist loksins vera að bresta á. Hitatölur eru í kortinu næstu vikuna, gróður að taka við sér og aðstæður allar að verða mun skaplegri til veiða en verið hefur undanfarnar vikur. stefan@lax-a.is Lesa meira
 
BR

2.5.2011 : Brynjudalsá í júlí

Við eigum nokkuð af leyfum í Brynjudalsá í júlí í sumar, en þessi mánuður hefur verið mjög gjöfull undanfarin ár. Uppúr 20. júlí mátti t.d. allnokkrum sinnum sjá 10 laxa daga í ánni síðasta sumar

Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar