Svartá
Þó svo að töluverð ásókn hafi verið í Svartá í A-Húnavatnssýslu fyrir sumarið í sumar eru enn nokkrir bitastæðir dagar eftir. Áin hefur verið í uppsveiflu á undanförnum árum, eins og reyndar aðara ár við Húnaflóann, og hefur veiðin verið fantagóð. Ekki eru þær margar árnar sem státa af jafn háu hlutfalli af stórlaxi og Svartá, síðasta sumar var annar hver lax stórlax.
Lesa meiraLaus vika á Forest Birse í Dee
Hallá við Skagaströnd
Óhætt er að segja að Hallá hafi tekið nokkrum stakkaskiptum á liðnum árum, frá því að vera friðuð vegan fiskleysis um aldamótin og upp í að skila hátt í 200 löxum á 2 stangir.
Lesa meira
Júníveiði á svæði 1 í Blöndu
Mikil eftirspurn hefur verið eftir veiðileyfum á svæði 1 í sumar, enda ekki skrýtið eftir ótrúlega veiði undanfarin 2 ár. Júlímánuður er nú orðin svo gott sem fullbókaður en eitthvað er laust af stöngum í júní, þó minna en oft áður. Það kemur ekki mjög á óvart þar sem 75% aflans í júní er 2ja ára lax og framan af mánuðinum er það hlutfall um 100%.
Tungufljót í Biskupstungum
Skemmtilegt myndband úr Gaulu í Noregi
Veiðitímabilið alveg að bresta á
Krossá í Bitru
Krossá í Bitrufirði kom okkur ánægjulega á óvart síðasta sumar þega hún skilaði um 170 löxum á land – þó töluvert hafi vantað uppá fulla ástundun. Júlíveiði hefur oft verið góð í ánni, enda gengur Bitrufjörður inn úr Húnaflóa og það hefur sýnt sig að laxveiðiár í kringum Húnaflóa eru oft sterkastar snemmsumars.
Lesa meiraHeidi/Bjallalækur 2011
Stórlaxar í Víðidalsá
Veiðileiðsögn á svæði 2 í Blöndu
Fjölmargir hafa haft samband við skrifstofu Lax-á undanfarna mánuði og innt eftir veiðistaðalýsingum á miðsvæðin í Blöndu (svæði 2 og 3) - til er veiðilýsing í bókinni Blanda og Svartá eftir Gísla Pálsson (2000, bókaútgáfan á Hofi). Sú lýsing er hinsvegar barn síns tíma og ekki nægilega tæmandi. Til að reyna að bæta úr þessu hafa undirritaðir sest niður og fest á blað nokkuð tæmandi lýsingu á því hvernig þieir sjálfir haga veiðum á miðsvæðum Blöndu. Veiðimennirnir eru Þorsteinn Hafþórsson og Stefán Ágústsson og byrjað verður á veiðileiðsögn og ráðleggingum á svæði 2.
Lesa meiraSeptemberholl í Svartá - 2 stangir
Vegna afbókunar eru 2 stangir lausar í hollinu 8 - 10 september í Svartá í A-Hún. Venjulega eru allar 4 stangirnar bókaðar saman - en í þessu tilfelli gerum við undantekningu. Þó verða menn að deila húsi með öðrum, en í veiðihúsinu eru 5 svefnherbergi og ætti þvi ekki að væsa um menn.
Lesa meira
Hróarslækur
Fréttir af veiðisvæðum Lax-á
Nú styttist óðum í komandi veiðisumar og margir byrjaðir að hnýta helstu vopn komanda sumars, hér fyrir neðan eru svona helstu fréttir af þeim veiðisvæðum lax-á hefur uppá að bjóða á komanda sumri stefan@lax-a.is
Það er stutt í 1 Apríl
Skemmtileg tölfræði úr Brynjudalsá - Þú færð leyfið á www.agn.is
Veiðin í Brynjudalsá var framúrskarandi síðasta sumar, alls voru 247 laxar bókaðir upp úr ánni á 2 stangir. Hér að neðan má sjá hvenig veiðin skiptist eftir vikum sumarið 2010. Eins og sjá má var veiðin nokkuð jöfn yfir stærstan hluta sumars en meðalveiði á viku frá 11. júlí - 21. ágúst er þrjátíu laxar. Ekki slæm veiði þar á ferðinni á ekki nema tvær stangir..! Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira