Helstu fréttir

28.12.2011 : Silungasvæðið í Víðidalsá

Á silungasvæðinu í Víðidalsá er einhver allra besta bleikjuveiði landsins og eru vinsældirnar eftir því. Flestir dagar tímabilsins eru bókaðir af velunnurum svæðisins með miklum fyrirvara og eru því ekki margir dagar lausir þegar fram á sumarið er komið.

Lesa meira

 
ER Aug 2005 q

27.12.2011 : Eystri Rangá 2012

Eystri Rangá er kominn á fullt í sölu fyrir 2012, veiðin sl sumar var í betra lagi eða 4387 laxar. Sem dugði í annað sætið yfir aflahæðstu ár sumarsinns. Eystri Rangá er búin að vera Lesa meira
 
Halla4

27.12.2011 : Hallá á skaga

Þessi 2ja stanga á hefur verið vinsæl hjá okkur undanfarin ár enda mörg dæmi þess að menn hafi lent í fantagóðri veiði. Á síðari hluta síðustu aldar var gengið mjög nærri stofninum í ánni, svo nærri að hún stefan@lax-a.is Lesa meira
 

22.12.2011 : Dregið á morgun

Við minnum á að á morgun verða dregnir út vinningar í Gjafabréfaleik Lax-á og www.agn.is

Meðal vinninga eru veiðileyfi í Ytri Rangá (12 júlí) og Eystri Rangá (4 júlí), veiði í Galtalæk og ársáskrift að Sportveiðiblaðinu.

Allir sem keypt hafa gjafabréf frá tímabilinu 15.11 til morgundagsins eru með í pottinum.

Við munum síðan hafa samband við vinningshafa eftir hádegið á morgun – þannig að það er um að gera að hafa kveikt á símanum.

Lesa meira

 
alvarez002

20.12.2011 : Vorveiði í Blöndu

Eins og flestir veiðimenn vita þá opnar Blanda einna fyrst allra laxveiðiáa þann 5. júní ár hvert. Misjafnt er milli ára hvernig veiðist í opnun en oftar en ekki koma upp 8 – 12 laxar á 4 stangir. Að meðaltali hafa þessir 25 dagar í júní skilað 190 löxum á land sem gera 2 laxa á dagstöngina. Vissulega eru þetta aðeins meðaltöl og tölfræði og laxveiðar fara ekkert sérstaklega vel saman – þetta gefur þó vísbendingu um hverju menn geta átt von á. Ekki spillir að 60 – 80% af þessum afla er stórlax og fáir laxar geta keppt við Blöndulaxinn þegar kemur að afli og hraða. Lesa meira
 
KrossáJohannesB2011

16.12.2011 : Krossá í Bitru

Næsta sumar verður þriðja sumarið sem Krossá verður á okkar snærum og óhætt að segja að reynslan sé nokkuð góð það sem af er. Í sumar sem leið skilaði áin 76 löxum á sínar tvær stangir en í fyrra voru þeir eitthvað yfir 160.

Áin er lítil og nett og á það til að verða full lítil í mestu þurrkasumrum en hún getur gefið þeim sem fara varlega að henni feykigóða veiði.

Lesa meira

 
Arni.

15.12.2011 : Laugardalsá við Ísafjarðardjúp

Laugardalsá er við Ísafjarðardjúp er ein allra besta á landsins, sérstaklega snemmsumars. Oft hefur hún skilað 180 – 300 löxum í júlí á 3 stangir, ekki geta margar ár státað af slíkri veiði. Oft hefur ágústmánuður einnig verið góður en áin lokar 1 september ár hvert.

Lesa meira

 
Copy_of_Untitled-6

13.12.2011 : Brynjan

Við vekjum athygli á því að Brynjudalsá er komin í vefsölu á www.agn .is og því hægt að bóka daga fyrir næsta sumar

Brynjan hefur verið algerlega mögnuð undanfarin ár, 250 (2010) – 325 (2009) og 300 (2011) laxar á land á tvær stangir. Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk í ánni, en ekkert veiðihús fylgir með leyfum – enda eru leyfi seld frá morgni til kvölds.

Lesa meira

 

9.12.2011 : Fréttabréf Lax-á

Kæru veiðimenn

Undirbúningur er nú í fullum gangi fyrir næsta sumar og hefur salan farið vel af stað. Margar af okkar vinsælustu ám eru nú þegar orðnar vel bókaðar og má þar nefna Blöndu, Stóru Laxá, Langadalsá, Eystri Rangá og Ytri Rangá. Nóg er þó enn í boði en veiðimenn ættu að setja sig í samband við skriftofu Lax-á stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
Kalfhagahylur_2

9.12.2011 : Stóra Laxá

Svæði 4 í Stóru laxá hefur löngum verið talið sterkast snemmsumars, í lok júní og byrjun júlí. Í gegnum árin hefur snemmgengni stórlaxastofninn gengið í ána í júní og júlí og fljótt verið komin upp á efsta svæðið. Oft hafa fyrstu dagarnir veri ðáhugaverðir á svæði 4 í Stóru og gjarnan verið eftirsóttustu dagarnir á svæðinu.

Lesa meira
 
VeidihusLangadalHeildarmynd

9.12.2011 : Langadalsá - Einstök náttúrufegurð

Langadalsá er staðsett í botni Ísafjarðardjúps, um 350 km frá Reykjavík og 30 mín akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið nær yfir 18km með 37 merktum veiðistöðum en eingöngu er leyfilegt að veiða með flugu. Veiðin hefur verið á milli 250 og 350 laxar síðastliðin fimm ár en sumarið í fyrra gaf 263 laxa. Á veiðisvæðinu eru þrjár stangir seldar fyrripart sumars, eða til 12 júlí, en eftir það eru fjórar stangir eru seldar í ánni. Frábært veiðihús fylgir ánni...

Lesa meira
 
giljagaur[1]

7.12.2011 : Gjafabréf Lax-á í jólapakka veiðimannsins

Gjafabréfin frá Lax-á henta vel í pakka veiðimannsins. Öllum bréfum fylgir skemmtilegur glaðningur sem hægt er að láta fylgja í pakkann. Með 5.000,-kr bréfum fylgir t.a.m. derhúfa merkt Lax-á. Með 10.000,-kr bréfum bætast 2 laxaflugur í pakkann og í verðflokkum þar fyrir ofan fylgir einnig dagur í silungsveiði í Tungufljóti eða Ytri Rangá. Þessu til viðbótar fá fimm heppnir viðskiptavinir fría áskrift að Sportveiðiblaðinu í eitt ár. Allir sem keypt hafa gjafabréf á tímabilinu frá 15. nóvember til 21. desember verða í pottinum. Sportveiðiblaðið er eitt helsta og glæsilegasta málgagn stangveiðimanna og er gefið út þrisvar á ári.

Lesa meira
 
DSC00490

7.12.2011 : Sog - Tannastaðatangi

Sog – Tannastaðatangi er fornfrægur veiðistaður tæpum klukkutíma frá höfuðborginni og er tilvalið fyrir fjölskylduna. Svæðið er þekkt laxveiðisvæði og hefur verið að gefa í kringum 100 laxa síðustu ár en sumarið 2011 gaf það um 70 laxa á tvær stangir. Best er veiðin þegar líður á sumarið en þó er alltaf veiðivon og oft hægt að gera stórskemmtilega bleikjuveiði á vorin og framan af sumri. Lesa meira
 
Tung601

7.12.2011 : Tungufljót í Biskupstungum

Tungufljót í Biskupstungum var mjög skrýtið í sumar, heildarveiðin í fljótinu var ekki mjög merkileg en ástundun hefur einnig oft verið meiri. Oft var útlit fyrir að veiðin væri að lifna, dæmi eru um að 1 stöng hafi veitt 13 laxa á vakt í sumar, en veiðin dofnaði jafnharðan aftur. Ekki vitum við hvað þessu veldur, en talsvert af laxi gekk í stigann í október eftir að veiðum var hætt þannig að ekki er loku fyrir það skotið að laxinn hafi einfaldlega verið svona seinn fyrir í sumar. Í öllu falli höldum við ótrauð áfram með ræktunarstarfið í fljótinu, enda benda rannsóknir til að hluti afla komi úr náttúrulegu klaki sem átt hefur sér stað ofan Faxa. Það er ekki á vísan að róa í hafbeitarám fremur en öðrum ám, léleg veiði í sumar gefur engar vísbendingar um næsta sumar.

Lesa meira
 
Picture_068

6.12.2011 : Hallá á Skaga

Ekki var sumarið 2011 metsumar í Hallá, minna vatn hefur vart sést í ánni í manna minnum. Slangur var af fiski í ánni í sumar, en í litlu vatni getur verið mjög erfitt að fá hann til að taka. Undanfarin ár hefur veiðin sveiflast frá 60 löxum og upp í 180 laxa, seinni talan er mjög ásættanleg í tveggja stanga á en sú fyrri er alveg á mörkunum. Lesa meira
 
DSC00087

5.12.2011 : Vorveiði í Ytri Rangá

Það er skemmtilegt að fara í gegnum veiðiskýrslurnar úr Ytri Rangá sem Matthías veiðivörður ritaði upp, þar kemur glöggt fram hver veiðin var per dag í sumar og langar mig að sýna mönnum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
StoraLaxaIVgaur

1.12.2011 : Stóra Laxá í þýsku veiðiblaði

Grein um Stóru Laxá eftir þýska veiðimanninn Mawill Lüdenbach hefur verið birt í þýska veiðiblaðinu Scale Fly & Spin Fishing. Mawill og félagi hans Eric Cullin komu hér í heimsókn í byrjun september og veiddu í fjóra daga í Stór Laxá. Eins og fram kemur í greininni fengu félagarnir frábæra veiði en Mawill náði meðal annars að landa tíu löxum á sex tímum, eitthvað sem hann hefur aldrei náð. Hægt er að lesa greinina og blaðið hér.

Lesa meira
 
Leppaludi_1

30.11.2011 : Jóla-Gjafabréf Lax-á

Jólastemning ríkir hjá okkur í Lax-á og ætlum við í tilefni hátíðarinnar að halda Jóla-happadrætti í desember. Allir þeir sem kaupa Jóla-gjafabréf fara sjálfkrafa í pott sem dregið er um veglega vinninga á hverjum fimmtudegi í desember og á milli jóla og nýárs. Á fimmtudögum er dregið út árs áskrift að Sportveiðiblaðinu en milli jóla og nýárs verða dregnir út stærri og veglegri vinningar.

Lesa meira
 
04 Photos from Maja

30.11.2011 : Ytri í lok júní og byrjun júlí

Fyrstu vikurnar í Ytri Rangá hafa verið nokkuð vinsælar meðal veiðimanna á undanförnum árum, enda verð veiðleyfa hagstætt þessa daga, og veiðivon nokkuð góð. Engin fæðisskylda er til 10. Júlí og allt agn leyfilegt fram að þeim tíma. Veiðin hefur verið 0,5 til 2 laxar á stöngina að jafnaði undanfarin 4 ár, suma daga minna, aðra meira.

Lesa meira
 
goeggel.2011.jpg

28.11.2011 : Stórlaxaveiði

Við viljum vekja athygli á því að við eigum nokkra daga lausa í Víðidalsá í kringum mánaðarmótin júní/júlí. Þetta mun vera hinn rómaði stórlaxatími í Víðidalnum og nánast hver einasti sporður í ánni í yfirstærð. Húsgjald er lægra þessa daga en yfir hásumarið og það ætti því ekki að vera fyrirstaða. Lesa meira
 
sk1

22.11.2011 : Gæsaveiði 2012

Það er okkur hjá hjá Lax-á sönn ánægja að vera búin að undirita samning um allan gæsveiðirétt til næstu 5 ára í Gunnarsholti. Um er að ræða á hátt í 500 hektara af kornökrum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
storlaxar_kapa

17.11.2011 : Stórlaxar - Viðtalsbók eftir Þór Jónsson og Gunnar Bender

Stórlaxar er viðtalsbók þar sem sjö landsþekktir einstaklingar segja veiðisögur og ræða um lífið á árbakkanum. Margir þeirra eru þekktir fyrir allt annað en laxveiði og kemur það mörgum vafalaust á óvart að stangveiði sé þeirra aðaláhugamál utan vinnu. Aðrir lifa og hrærast í stangveiði.

Í bókinni eru 48 litsíður þar sem gefur að líta myndir af öllum stórlöxunum í sínu náttúrulega umhverfi, ef svo má að orði komast. Þar má einnig sjá ýmsa aðra góða menn og konur við veiðar. Kunnastir eru vafalaust Haraldur Noregskonungur og Eric Clapton tónlistarmaður.

Lesa meira
 
KrossaJohannesBmynd2

16.11.2011 : Krossá í Bitrufirði

Krossá í Bitrufirði endaði í 76 löxum sumarið 2011 en telst það ágætis veiði. Aflahæsta sumarið í Krossá var 2010 en þá endaði hún í 160 löxum. Krossá er lítil tveggja stanga laxveiðiá og spannar veiðisvæðið um 8 kílómetra með 22 merktum veiðistöðum en gott veiðihús fylgir stöngunum. Næsta sumar er leyfilegt að veiða með flugu og maðk frá 1. júlí til 20. júlí en eftir það er einungis fluga. Hámarkskvóti eru tveir laxar á stöng á dag og eru veiðimenn kvattir til að sleppa öllum stórlaxi. Lesa meira
 
Jolli_Dammur

16.11.2011 : Forfallastöng á svæði 1 í Blöndu

Ein stöng var að losna á besta tíma á svæði 1 í Blöndu næsta sumar. Um er að ræða dagana 8 – 13 júlí, en meðalveiði á þessum dögum hefur verið frá 8 og upp í 20 laxar á stöngina á dag undanfarin 3 ár.

Lesa meira

 
rettarfljot_4

15.11.2011 : Hvannadalsá

Hvannadalsá var töluvert undir væntingum í sumar, eins og svo margar aðrar ár, þó var gott hlutfall stórlaxa í ánni. Samkvæmt okkar bókum komu rétt rúmlega 100 laxar úr ánni í sumar sem er töluvert fall frá 465 löxum í fyrra. Hluti af skýringunni er eflaust sá að í sumar var einungis leyð fluguveiði í fyrsta skipti og reynslan sýnir okkur að fyrsta ár í fluguveiði skilar alltaf lægri heildartölu en vanalega. Lesa meira
 
Eystri20juli

15.11.2011 : Eystri Rangá 2012

Það er allveg töluvert síðan salan í Eystri Rangá byrjaði hjá okkur og má segja að hún hafi bara farið vel af stað. Eystri Rangá endaði með 4387 með veidda laxa sumarið 2011 og er þetta stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Laugardalsa_lodge1

14.11.2011 : Laugardalsá

Laugardalsá hefur löngum verið ein af okkar bestu ám í sínum stærðarflokki, 2ja - 3ja stanga á þó svo hún hafi droppað mikið niður sl sumar. Sumarið 2010 veiddust um 550 laxar í ánni og sumarið 2009 stefan@lax-a.is Lesa meira
 
arnor_isfjord_95cm2

11.11.2011 : Langadalsá

Langadalsá hefur verið ákaflega vinsæl hjá okkur undanfarin ár enda góð veiði og ekki skemmir nýja veiðihúsið. Við eigum nokkra daga lausa seinnipa stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Blanda_4_axelo_3

11.11.2011 : Miðsvæðin í Blöndu

Svæði 2 og 3 í Blöndu voru nokkuð góð í sumar, alls komu um 400 laxar á land. Að vísu eru allnokkrar stangir á svæðunum eða 9 stangir í allt – en fátítt var að það væru allar bókaðar.

Einnig verður að líta til þess að veiðin á sér nánast öll stað fyrir mánaðarmót júlí og ágúst, dagveiðin er því nokkuð góð á því tímabili, sérstaklega eftir 10 júlí.

Lesa meira

 
WR Thordur 6

8.11.2011 : Hraðahindrunum hent í Ytri Rangá

Hlutar úr hraðahindrunum sem stolið var á Hellu um helgina fundust strax í Ytri-Rangá. Tjón sveitarfélagsins vegna skemmdarverkanna hleypur á hundruðum þúsunda króna. Sveitarstjórn lítur málið mjög alvarlegum augum og hefur það verið kært til lögreglunnar. Íbúar á Hellu og aðrir sem telja sig hafa upplýsingar sem upplýst geta málið eru beðnir um að snúa sér til lögreglunnar á Hvolsvelli.

Lesa meira
 
v83

7.11.2011 : Víðidalsár uppgjör 2011

Veiði lauk í Víðidalsá þann 24 september og var lokatala úr ánni 747 laxar á land. Oft hafa sést hærri tölur úr þessari rómuðu stóralaxaá en hlutfall stórlaxa var sem fyrr afar hátt.

Ragnar Gunnlaugsson á Bakka hefur verið veiðivörður við Víðidalsá í mörg ár og hefur hann sent okkur bráðabirgðaskýrslu um veiðina í Víðidalsá og Fitjá fyrir sumarið 2011. Kunnum við honum að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir.

Lesa meira

 
Veidihus_IV

4.11.2011 : Veiðihús við Stóru Laxá sv.IV endurgert

Veiðihúsið í Stóru Laxá sv.IV var endurgert fyrir sumarið 2011 af landeigendum og í samvinnu við Lax-á. Allt var tekið í gegn og má segja að innbú veiðihúsins sé næstum algjörlega nýtt þ.e.a.s. svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofan voru tekinn í gegn. Veiðihúsið rúmar 9 veiðimenn í fimm svefnherbergjum og er heitur pottur og gasgrill á veröndinni. Öll tól og tæki má finna í eldhúsinu eins og örbylgjuofn, bakaraofn og ísskáp með frysti. Því er um nýtt veiðihús að ræða og fyrsta flokks hús fyrir alla sem vilja hafa smá lúxus þegar farið er til veiða.

Lesa meira
 
Ytriveidihus6

3.11.2011 : Glæsilegt nýtt veiðihús við Ytri Rangá

Landeigendur og Lax-á hafa tekið veiðihúsið við Ytri Rangá í gegn á árinu 2011. Allt var tekið útúr gamla veiðihúsinu og ný viðbygging bætt við þar sem nýr matsalur og nýtt eldhús var reist í með útsýni yfir Rangárflúðirnar úr matsalnum ásamt því að setustofur og bar voru endurhannaðar. Nýja veiðihúsið er því stórbætt og öll aðstaða fyrir veiðimenn er orðinn fyrsta flokks. Með breytingunum getum við tekið á móti stærri hópum og fyrirtækjum en svefnpláss er fyrir 40 manns. Við hjá Lax-á erum afar stolt hvernig tókst til og hlökkum til að bjóða veiðimönnum uppá glæsilegt veiðihús og góða þjónustu næsta sumar.

Lesa meira
 
1&2mynd2

2.11.2011 : Stóra Laxá í Hreppum

Stóra Laxá í Hreppum endaði í 795 löxum í sumar og er það metveiði í Stóru. Sumarið í ár byrjaði hægt og virtist aldrei ætla í gang eins og á mörgum öðrum ám þetta sumarið en hrökk í gang í lok ágúst með mikillri veiði og gekk þannig langt fram í september. Til að myndar voru nokkur tveggja daga holl sem náðu 100 laxa veiði á svæði I&II. Lesa meira
 
hroi_12

2.11.2011 : Hróarslækur

Engum blöðum er um það að fletta að Hróarslækur var lélegur í sumar og langt undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sér í lagi þar sem sleppingar í fyrra voru í fullu samræmi við fyrri sleppingar samkvæmt okkar heimildum.

En eitt lélegt ár þarf ekki að vera fyrirboði fyrir næstu ár og erum við því bjartsýn á næsta sumar. Síðastliðið vor var töluverðum fjölda gönguseiða sleppt í Hróa sem skila sér að mestu næsta sumar, sleppingar tókust vel og voru seiðin í hæsta gæðaflokki

Lesa meira

 
DonBlanda13.7.11

1.11.2011 : Blöndu uppgjör 2011

Blanda gamla hefur verið í fantaformi undanfarin tímabil, þrjú ár í röð hefur hún rofið 2000 laxa múrinn og sem fyrr er lunginn af veiðinni á svæði 1. Sumarið var um margt óvenjulegt fyrir norðan, Blanda rann mjög hrein fram að yfirfalli, nánast eins og bergvatnsá, og var óvenju lítið lituð eftir yfirfall – enda var ágústveiðin 340 laxar á svæði 1. Eins var minna um sveiflur á vatnsmagni í sumar en oft áður, en slíkt hefur mikil áhrif á hegðun laxins – sérstaklega á miðsvæðunum.

Lesa meira
 
Rjúpa

28.10.2011 : Fyrsti dagur í Rjúpu

Fyrsti dagur í Rjúpnaveiði er í dag eins og mörgum er kunnugt. Fréttir sem við fengum í dag voru af veiðimönnum fyrir norðan sem höfðu fengið 14 fugla um hádegisbilið. Aðrir veiðimenn höfðu náð níu fuglum en þeir voru að veiðum í Dölunum fyrir vestan og voru á leiðinni heim sáttir.

Lesa meira
 
urridafoss

26.10.2011 : Þjórsá og Urriðafoss

NASF - Verndarsjóður um laxastofna vill vekja athygli á háskólafyrirlestri sem haldinn verður í næstu viku, fimmtudaginn 3. nóvember, 2011 stefan@lax-a.is Lesa meira
 
ingifre

25.10.2011 : Holl í Blöndu 4 forfallast

Nokkrir dagar voru að losna á svæði 4 í Blöndu – vanalega er þetta það svæði sem bókast upp fyrst hjá okkur og engin undantekning er á því núna.

Hinsvegar þurfti eitt holl að afbóka daga sem þeir höfðu pantað á næsta ári, dagarnir sem um ræðir eru um miðbik júlí – sannarlega góðir dagar.

Lesa meira

 
salmon

20.10.2011 : Laxveiði til styrktar Fjölskylduhjálpar

Lax-á ætlar að leggja lóð á vogarskálarnar. Við höfum sett stangir sem við eigum lausar á morgun, 21. október í Ytri Rangá á tilboðsverð. Allar tekjur af sölu stanganna fyrir morgundaginn munu renna óskiptar til Fjölskylduhjálpar. Hægt er að nálgast stangir á www.agn.is

Lesa meira
 
CIMG6696

20.10.2011 : Víðidalsá

Laxveiðin gekk bærilega í Víðidalsá þegar á heildina er litið, þrátt fyrir afar hæga byrjun þetta árið. Eins og veiðimenn urðu varir við þá kom sumarið seint og laxinn einnig þetta árið.

Líkt og í svo mörgum öðrum ám þá var kuldi og fiskleysi var ekki beinlínis til að hífa upp aflatölur fyr stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
100_0437

11.10.2011 : Ennþá kroppast upp úr Ytri

Nú er engum blöðum um það að fletta að haustið er komið með tilheyrandi litadýrð og rúðuskafi. Menn eru þó enn að egna fyrir laxinum í Ytri Rangá og geta aflabrögð verið góð þrátt fyrir misgóð skilyrði. Í gær komu 9 laxar á land í Ytri Rangá, þrátt fyrir töluverðan kulda og dreifðust þeir nokkuð yfir ánna

Lesa meira
 
IMGP0566

10.10.2011 : Leiga á Lax-á veiðihúsum í vetur

Lax-á bíður uppá leigu á veiðihúsum í vetur. Þennan veturinn leigjum við út þrjú hús. Tvö hús á Norðurlandinu og eitt á Vestfjörðum. Húsin eru af ýmsum stærðum og má finna hús fyrir flest öll tilefni. Um er að ræða Veiðihúsið við Blöndu, Svartárhúsið og Veiðihúsið við Langadalsá. Lesa meira
 
Stora-Laxa-19

7.10.2011 : Veiðitölur úr Stóru Laxá

Nú eru loks öll kurl komin til grafar í Stóru Laxá í Hreppum, en ekki höfðu allir laxar skilað sér í bókina þegar áin lokaði. Nú hafa síðustu skráningar skilað sér í hús og lokatalan er 795 laxar samkvæmt okkar bókum– sem okkur skilst að sé met.

Lesa meira

 
ytriranga6.7.2007

4.10.2011 : Flugustöng týndist við Ytri Rangá

Á sunnudaginn síðasta varð veiðimaður fyrir því óláni að tapa glænýrri veiðistöng á bökkum Ytri Rangár. Um er að ræða 11 feta tvíhendu ásamt hjóli – líkast til var þetta Orvis stöng. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikið tjón þetta er enda vita flestir veiðimenn að slíkir gripir kosta sitt.

Lesa meira

 
2009 Manuel_Ploesser_04

3.10.2011 : 50 laxa dagur í Ytri í gær

Í gær komu upp 50 laxar úr Ytri Rangá, sem gera 2,5 laxa á stöngina að jafnaði. Haustveiðin hefur verið með ágætum í Ytri það sem af er og vonandi að svo haldist áfram.

Við eigum örfáar stangir lausar nú í vikunni og á sunnudaginn næsta.

Upplýsingar um verð og stangaframboð má finna á www.agn .is eða með því senda póst á spall@lax-a.is

Lesa meira

 
11

30.9.2011 : Vöðlujakki tekinn í misgripum

Grár Scierra vöðlujakki hefur verið tekinn í misgripum í Ytri Rangá að kvöldi 28 september. Eigandi hans skildi hann eftir um stund við kaffistofuna hjá vigtunaraðstöðunni og var hann horfinn þega hans var vitjað aftur.

Lesa meira

 
manuel

29.9.2011 : Lúsugir laxar í Ytri Rangá

Ytri Rangá er að gefa ágætlega miðað við árstíma en undanfarið hefur veiðin verið í 35 til 50 laxar þó að síðustu tveir dagar gáfu minna eða um 20 laxa. Mest hefur veiðst á maðk undanfarið en flugan er ekki langt á eftir. Lúsugir laxar hafa veiðst síðustu daga svo það er en lax að ganga í ánni. Verðið á veiðileyfum hefur lækkað talsvert núna á haustmánuðum en nokkuð er af lausum stöngum í október á góðu verði.

Lesa meira
 
100_0437

28.9.2011 : Forfallastöng í Ytri Rangá

Vegna forfalla losnaði stöng í Ytri Rangá á morgun 29. september. Veiðin hefur verið í 40-50 löxum í þessum mánuði. Upplýsingar er að finna á skrifstofu Lax-á og á vefsölunni agn.is.

Lesa meira
 
goeggel.2011.jpg

28.9.2011 : Klakveiði í Víðidalnum

Við heyrðum í einum sem var við klakveiðar í Víðidalnum nú eftir lokun hennar. Dregið var á í Harðeyrarstreng og upp kom hvert tröllið á fætur öðru. Þvílíkir drjólar – svo orðrétt sé haft eftir. Þrátt fyrir að oft hafi veiðst betur í Víðidalnum, þá var talsvert af laxi í ánni. Það gekk hinsvegar bölvanlega að fá hann til að taka Lesa meira
 
klakveidi3

26.9.2011 : Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá

Vel gekk í klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá um helgina en veiði lauk í báðum ám þann 24. september. Alls komu 263 laxar úr Langadalsá og sléttir 100 úr Hvannadalsánni í sumar. Í klakveiðinni í Hvannadalsá fengust 21 lax og á þessum veiðistöðum. Réttarfljót 2 laxar, Hellisfoss 10 laxar, Pallklettar 2 laxar og Stékkjarfljót 7 laxar, samtals 21 lax. Var skiptingin nokkuð jöfn í hænga og hrygnur en nokkrar mjög fallegar hrygnur fengust. Í Langadalsá Lesa meira
 
RIMG0024

21.9.2011 : Stórlaxar í Víðidalnum

Víðidalsá hefur gefið nokkra risanna undanfarið en veiðimennirnir Röggi og Lúthervoru í ánni fyrir skemmstu og fengu tvo 104 cm laxa og einn 102cm. Stærri laxarnir tveir fengust í Faxaholu og Faxabakka en sá minni fékkst í Silungabakka. Hér eru Lesa meira
 
A_beauty_from_West_Ranga

21.9.2011 : Stakar vaktir í Ytri um helgina

Við eigum 3 stangir lausar á seinni vaktinni í Ytri Rangá næsta laugardag. Veiðin er enn góð, 40 – 50 laxar á dag samkvæmt nýjustu tölum. Þetta eru einu stangirnar sem við eigum nú um helgina í Ytri Rangá, upplýsingar má nálgast með því að senda póst á spall@lax-a.is Lesa meira
 
Eric_Salvans

21.9.2011 : Af Ytri Rangá

Ytri Rangá virðist ætla að halda sig í 35-50 löxum á dag í september. Við heyrðum í Matta veiðiverði og hann sagði að nokkuð af nýjum laxi hafi verið í ánni í gær en dagurinn endaði í 36 löxum. Veiðin deginum áður endaði í 40 löxum en hávaðarok var allan daginn. Mest hefur veiðst á

Lesa meira
 
Blanda4-AG-SEP_2009-04

20.9.2011 : Blanda sv 4

Mjög góð veiði hefur verið síðustu daga á sv 4 í Blöndu en þegar fór að kólna, slotaði í Blöndulóni og hætti að renna yfirfall af lóninu í gegnum gamla árfarveginn sem er í dag svæði 4. Frá stefan@lax-a.is Lesa meira
 
IMG_3345

19.9.2011 : Veiðihúsi í Ytri Rangá lokað

Nú hefur veiðihúsinu við Ytri Rangá verið lokað fyrir veturinn og verða veiðleyfi seld frá morgni til kvölds það sem eftir er tímabils (út október).

Við vekjum athygli á því að daglegur veiðitími er sem hér segir:

20 – 30 september 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00

1 – 31 október 08:00 – 20:00

Lesa meira

 
HotelRanga3

19.9.2011 : Tilboð fyrir veiðimenn hjá Hótel Rangá

Hótel Rangá bíður veiðimönnum tilboð á gisting í september og október. Hótelið er fjögurra stjörnu og var nýlega nefnt eitt af 100 bestu hótelum í Evrópu af Sunday Times í Bretlandi. Það er staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar og því tilvalið fyrir veiðimenn sem eru við veiðar í Ytri eða Eystri Rangánum. Útsýni frá hótelinu er stórkostlegt, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri. Lesa meira
 
Vididalsa_21-23_juni_011

16.9.2011 : Víðidalsá

September hefur verið þokkalegur í Víðidalsá þó hann hafi ekki verið skugginn af sjálfum sér miðað við síðustu þrjú sumur. Kuldin síðustu helgi hjálpaði ekki til en áin hefur tekið við sér aftur. Heildartalan er nú kominn í 662 laxa og má búast við að hún fari yfir 700 laxa fyrir lok tímabilsins sem lýkur 24.september.

Lesa meira
 
Stora_Laxa_5015

16.9.2011 : Stóra Laxá frábær

Veiðimenn eru enn að gera frábæra hluti á svæði I&II í Stóru Laxá. Sogsmenn voru þar enn og aftur á ferðinni síðustu 2 daga, enda ekki hægt að fá nóg af veislunni sem hefur verið í gangi þarna í haust. Lönduðu þeir 49 löxum og nokkrir stórir í aflanum, þar á meðal einn 102 cm dreki. Er þetta annar fiskurinn sem þeir veiða í haust á svæðinu sem er yfir 100 cm.

Lesa meira
 
Stora-Laxa-13

15.9.2011 : Forfallaholl í Stóru Laxá um helgina

Vegna forfalla losnuðu allar 4 stangirnar á svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá núna um helgina (17 – 19 september). Ekki þarf að fjölyrða um veiðina þar að undanförnu, hún hefur einfaldlega verið frábær.

Lesa meira

 
Blahylur_3

15.9.2011 : Stóra Laxá sv 4

Við fengum fréttir fréttir úr Stóru laxá sv 4 í morgun en það er allveg töluvert af fiski þessa dagana en frekar lítið vatn sem er sennilegast að lagast þar sem það er spáð rigningu á suðurlandinu næstu daga stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Tung610

15.9.2011 : Tungufljót í Biskupstungum

Fljótið hefur verið nokkuð rólegt í sumar an þó hafa komið nokkur ágæt skot seinnipartinn í ágúst og eins nú í september. Kalt var í Biskupstungum síðustu helgi og talsvert rok, þetta bitnaði vitanlega á veiðinni eins og menn þekkja – þó sáu menn eitthvað til laxa.

Lesa meira

 
2009 Paul Block 01

13.9.2011 : Fín veiði í Ytri Rangá

Ytri Rangá heldur áfram að skila góðum veiðitölum en um 40-50 laxar hafa verið að veiðast síðastliðna daga í ánni. Telst það vera fín veiði miðað við árstíma en í morgun komu 24 laxar á land. Maðkaveiði var leyfð eftir 29. ágúst og fór veiðin í kringum 200 laxar á dag fyrstu daganna en hefur svo dottið niður. Í áni er nú allt leyfilegt, maðkur, spónn og fluga.

Lesa meira
 
WR Thordur 6

12.9.2011 : Fréttatilkynning vegna fráveitumála Rangárþings Ytra

Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku þá varð tæknilegt óhapp við losun á úrgangi frá Reykjagarði á Hellu, sem átti að fara til förgunar á Strönd.
Þessi mistök urðu þess valdandi að úrgangurinn fór í fráveitukerfi sveitarfélagsins og barst í Ytri Rangá, veiðimönnum til ama.
Þetta var slys og um einangrað tilvik að ræða.

Lesa meira
 
milansydribru

12.9.2011 : Fréttir af Syðri Brú

Við heyrðum í mönnum sem voru við veiðar í Syðri Brú um helgina, voru tvær vaktir. Settu þeir í þrjá laxa og lönduðu þeim öllum á gárutúbur, green but og collie dog. Voru tveir þeirra um 7kg og einn 2,5 kg. Lesa meira
 
Vetrarmynd sól og snjór

9.9.2011 : Vetraropnunartími skrifstofu

Vetraropnunartími er skollinn á hjá okkur á skrifstofu Lax-á. Nú er skrifstofan opinn frá 9-17 alla virka daga.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

9.9.2011 : Óhapp við Ytri Rangá

Eins og fram kom í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær varð óhapp hjá kjúklingabúinu Reykjagarði við Hellu í fyrradag þegar verið var að hreinsa úr fitugildru í verksmiðju fyrirtækisins. Flæddi þá uppúr veitukerfi verksmiðjunar með þeim afleiðingum að úrgangur fór í Ytri Rangá og litaði austurbakka árinnar í nokkra klukkutíma. Áin hreinsaði sig að mestu nokkuð fljótt og sést lítið sem ekkert í áni núna. Við hjá Lax-á hörmum að svona slys geti gerst og

Lesa meira
 
asar3

8.9.2011 : Fyrstu laxveiðiárnar að loka

Nú fara fyrstu laxveiði árnar ad loka hver á fætur annarri. Laxá á Ásum er rétt um það bil ad loka og sumarveiðin telur í kringum 400 laxa sem verður að teljast það lakasta sem ég man eftir a þeim bæ.

Lesa meira
 
sjonni_ragnars2

7.9.2011 : Veislan heldur áfram í Stóru Laxá I&II

Stóra Laxá svæði I&II heldur áfram að skila góðum aflatölum. Svæðið er nú komið yfir 300 laxa og einungis ein vika búin af september. Síðustu tveir daga skiluðu um 60 löxum á svæðinu og þar af var einn 102 cm.

Lesa meira
 
Blahylur

6.9.2011 : Góður dagur á svæði IV í Stóru

Við heyrðum í veiðimönnum sem voru að klára morgunvaktina á svæði IV í Stóru Laxá. Þeir eru nú búnir að vera 2 vaktir og komnir með 4 laxa á 2 stangir. 2 laxana voru í smærri kantinum, 5 – 6 pund en hinir voru í stærri kantinum. Sá stærri var talinn vera í kringum 18 – 20 pundin og sá minni var c.a. 12 punda hrygna. Eins og menn vita þá er eingöngu veitt og sleppt á svæði 4 og eru þessir laxar því enn í ánni.

Lesa meira

 

4.9.2011 : Mikil veiði í Stóru Laxá

Blahylur_3Það er aldeilis góður gangur í Stóru Laxá þessa dagana. Franskir og Sænskir veiðimenn hafa verið að veiðum síðustu daga. Mokveiði hefur verið niður á svæði eitt og tvö , sumir dagar yfir 30 laxar á 4 stangirnar , svæði eitt og tvö mun vera að nálgast 300 laxa. Mikklu rólegra er á svæði þrjú og fjögur, en síðustu daga hafa þó verið að reitast inn fiskar og farið að sjást fiskur hingað og þangað bæði á svæði þrjú og fjögur. 90 prosent af veiddum laxi hefur verið sleppt aftur í ánna.

Lesa meira

 
2009 Manuel_Ploesser_02

2.9.2011 : Góður eftirmiðdagur á Heiði – Bjallalæk

Tveir sem fóru á Heiði – Bjallalæk seinnipartinn í gær gerðu heldur betur góða veiði. Eftir vaktina voru þeir búnir að landa 3 löxum og 5 urriðum, laxarnir voru þessir hefðbundnu 5 – 7 punda Rangár Laxar en urriðarnir voru frá 3 og upp í 9 pund. Ekki amalegur meðafli það.

Lesa meira

 
Blanda_sv_2,_web_4

2.9.2011 : Mið-svæðin í Blöndu enn gjöful

Veiðimaður sem var við veiðar á svæði 2 í morgun var kominn með 1 lax úr Svarthyl og hafði einig misst annan við Geitaskarð, sá var nokkuð ánægður. Eins skrapp einn upp á svæði 3 í morgun og hafði 4 laxa upp úr krafsinu, 1 á flugu og hina á maðk.

Lesa meira

 
Hornid_vid_Hrunakrok

2.9.2011 : Áfram mjög góð veiði í Stóru

Um 30 laxar veiddust í gær í Stóru Laxá, á svæði 1&2. Lúsuga laxa mátti finna í blanda við þá sem hafa verið lengur í ferskvatninu. Það er ánægjulegt að husa til þess að a.m.k. 26 þessara laxa eru ennþá í ánni og bíða næstu veiðimanna.

Einhver veiði hefur einnig verið á svæði 3 en svæði 4 hefur verið rólegra. Þó sáu menn stóra laxagöngu ganga upp af svæði 3 og er því von á að eitthvað fari að gerast uppi í gljúfrum.

Lesa meira

 
ACR027

2.9.2011 : Skrifstofa Lax-á lokuð á morgun (laugardag)

Vegna starfsmannaferðar verður skrifstofa Lax-á lokuð á morgun, laugardag.

Við verðum að sjálfsögðu mætt til starfa aftur á mánudag klukkan 08:00 og minnu á að www.agn.is er alltaf opið.

Góða helgi.

Starfsfólk Lax-á

Lesa meira

 
Blanda_sv_2,_web_5

1.9.2011 : Blanda 2 leynir á sér

Við heyrðum í veiðimanni sem var við veiðar á svæði 2 í Blöndu og sá var nokkuð sáttur. Hann byrjaði klukkan 15:00 í dag og var kominn með 3 laxa á innan við 3 tímum. 2 löxum náði hann í Vaðstreng og einum á Auðólfsstöðum – hann á enn Svarthylinn inni.

Lesa meira

 
L1020202

1.9.2011 : Svartá öll að koma til

Síðasta holl í Svartá, sem lauk veiðum núna í dag, var með um 20 laxa á land. Stærstu laxarnir voru um 14 – 15 pund og einnig veiddist nokkuð af vænum urriða. Að sögn voru misvanir veiðimenn í hollinu og stóðu menn víst ekki stíft við veiðar.

Svartá hefur verið nokkuð undir pari í sumar, sem stingur í stúf við laxagengd í Blöndu, en síðsumars- og haustveiðin hefur oft verið mjög drjúg í þessari frábæru á.

Lesa meira

 
DonBlanda13.7.11

31.8.2011 : Blanda 1 að loka

Nú fer að líða að því að svæði 1 í Blöndu loki, á mánudag er síðasta vaktin á þessu ári. Sem kunnugt er þá opnar svæði 1 talsvert á undan efri svæðunum og lokar því fyrr.

Góð veiði hefur verið í Blöndu það sem af er sumars, þrátt fyrir að yfirfallið hafi verið full snemma á ferðinni. Blanda nálgast óðum 2000 laxana og það vekur athygli að yfir 300 laxar hafa veiðst eftir yfirfall.

Lesa meira

 
tungufljotlax

31.8.2011 : Tungufljótið að sýna sitt rétta andlit

Tungufljótið er loksins komið í gang eftir óvenju rólegt sumar í Biskupstungunum. Fyrstu þokkalegu göngurnar byrjuðu fyrir tveim vikum en fyrir það voru að slæðast upp einn og einn lax. Fljótið fór þá að gefa uppí tíu laxa í dag en það er eins og júlí veiði á góðu sumri. Síðasta helgi var ágæt, um 5-10 laxar á dag og allir staðir í áni að gefa, meðal annars kom 12 punda hrygna úr Gljúfrinu á sunnudag. En á þriðjudag fór þetta almennilega í gang. Lesa meira
 
Bergsnos

30.8.2011 : 78 laxar á sex dögum í Stóru Laxá

Síðusta sex dagar Stóru Laxá hafa verið sannkölluð veisla. Svæði 1&2 hafa skilað 78 löxum á land og hafa 160 laxar verið skráðir í bókina á því svæði. Af þessum 160 löxum hefur 130 verið sleppt. Áin er þekkt fyrir sínar haustgöngur og virðist sem þær byrji fyrr þetta tímabil en undanfarin ár.

Lesa meira
 
09.07.09_ytri

30.8.2011 : Fyrsti dagur í maðkahollinu í 188 löxum

Fyrsta maðkahollið byrjaði í Ytri Rangá eftir hádegi í gær en sú vakt gaf 108 laxa og endaði dagurinn í alls 155 löxum. Í morgun voru 80 laxar komnir á land svo það gera 188 laxar á fyrsta daginn í maðkahollinu. Eru þetta fínar tölur miðað við að fluguveiðihollin á undan voru að gefa að meðaltali 70 laxa á dag.

Lesa meira
 
DSC00075

30.8.2011 : Loksins, Loksins í Tungufljóti

Eftir frekar óvenjulega byrjun í Tungufljóti framan af sumri er líf að kvikna og það líka svona vel. Undir lok síðustu viku mátti greina að laxinn væri að ganga en erlendir veiðimenn settu í mikið af fiski, helgin var líka fín en svo í morgun kom sprengja en kl 08:30 voru komnir 10 laxar á  þeim 2 stöngum sem við heyrðum af, mikið af fiski virðist hafa gengið og gaman verður að heyra töluna í hádeginu frá öllum stöngum.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Stora-Laxa-19

29.8.2011 : Haustveislan byrjuð í Stóru Laxá

Við fengum fréttir af svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá núna um helgina. Frakkar sem þar eru að veiðum gerðu mjög góða veiði í gær – aflatölur nálægt 2 tugum. Mesta veiðin hefur verið í Fjósahvammi en þar fengu menn um tug laxa í gær.

Lesa meira

 
KrossaJohannesBmynd2

25.8.2011 : Fréttir af Krossá í Bitru

Krossá í Bitru er kominn uppí 65 laxa í sumar en heildarveiði í áni síðastliðin ár er í kringum 90-100 laxar. Áin hefur verið frekar vatnslítil undanfarið en það hefur rignt síðastliðna daga. Það vantar ennþá aðeins uppá svo vatnsstaða teljist góð en haustrigningar sjá vonandi um það. En eru nýir laxar að ganga upp ána en lúsugur laxar veiddust síðastliðin sunnudag.

Lesa meira
 
2009 Paul Block 01

25.8.2011 : Ytri Rangá fyrsta maðkaholl

Það voru rétt í þessu að forfallast 2 stangir í fyrsta maðkahollinu í Ytri Rangá. Hið fræga holl byrjar kl 15.00 þann 29 ágúst og endar 1 sept.

Þetta er sennilega stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
DSC00100

24.8.2011 : Ágæt veiði í Hallá

Við heyrðuðm í veiðimanni sem var í Hallá í síðustu viku og gerði ágætis túr. Alls komu 11 laxar upp, allt upp í 12 pund, og veiddist bæði á neðri hlutanum og einnig uppi á dal.

Halláin getur verið mjög gjöful, ef rigningin frískar aðeins uppá hana, en að sama skapi getur hún verið erfið í litlu vatni – eins og algengt er með litlar ár. Einhver rigning er í kortunum um helgina og gæti því orðið fjör þarna fyrir norðan.

Lesa meira

 
ER Aug 2005 i

24.8.2011 : Af Eystri Rangá

Við heyrðum í Óla veiðiverði í Eystri Rangá. Áin hefur verið að gefa um 60 laxa á dag í vikunni og er ekki mikill munur á morgun og síðdegisvöktunum í aflatölum. Laxinn er vel dreifður milli svæða og er því ekkert eitt svæði sem er að standa upp úr í þessari viku.

Lesa meira
 
Alvarez001

24.8.2011 : Efri svæðin í Blöndu gefa vel

Tveir veiðimenn voru á svæði 3 í Blöndu seinnipartinn í gær og höfðu 2 laxa upp úr krarfsinu, annar ver í kringum 7 pundin en hinn var 16 punda Blönduhængur eins og þeir gerast skemmtilegastir. Báðir komu upp úr Skurðsenda svokölluðum. Það hefe akki margir farið til veiða á svæði 3 eftir yfirfall en þeir sem hafa farið hafa allir fengið lax.

Lesa meira

 
WRANGA04_50

24.8.2011 : Góð veið í Ytri Ranga

Ytri Rangá er í góðu formi þessa daganna en dagsveiðin hefur verið í kringum 70 laxa þessa vikuna. Vaktin í morgun var með 45 laxa svo það má sterklega búast við því að áin gefi yfir 70 laxa í dag. Helstu svæðin sem hafa verið að gefa undanfarið eru eftirfarandi. Lesa meira
 
Stora-Laxa-19

24.8.2011 : Góð veiði í gær og í dag í Stóru laxá

Veiðmenn sem voru við veiðar á svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá eftir hádegi í gær lönduðu 9 löxum á einni vakt. Eins heyrðum við í veiðimanni sem var á svæði 3 í morgun og náði 2 löxum á rúmum klukkutíma. Lesa meira
 
Tung2

24.8.2011 : Líf og fjör í Tungufljóti

Snorri veiðivörður hefur verið að fylgja veiðimanni í Tungufljótið í gær og í morgun í Tungufljótinu fallega. Í gær komu 5 laxar á eina stöng og voru komnir 2 á land á þessa sömu stöng á klukkutíma nú í morgun.

Lesa meira

 
mariulax

23.8.2011 : Fjölskylduferð á Tannastaðatangann

Við fengum skemmtilegt bréf frá veiðimanninum Jóhanni Hermannssyni sem fór í fjölskylduveiði á Tannastaðatangann síðastliðin laugardag. Hér er bréfið sem hann sendi okkur... Lesa meira
 
Djupifoss_1

23.8.2011 : Hvannadalsá

Stórveiðimaðurinn Gústaf Gústafsson var að koma úr Hvannadalsánni og átti þar góðan dag. Landaði tveimur löxum og missti einn bolta, fyrir utan að sjá laxa á flestum stöðum. Sérstaklega var gaman að sjá að Gústaf var að fá nokkuð nýgengna fiska, m.a. einn lúsugan. Það var hreyfing á fiskinum á milli staða og því virðist vera lax á göngu þó komið sé fram á seinni hluta sumars.

Lesa meira
 
05

23.8.2011 : Rúmlega 1100 laxar komnir upp Árbæjarfoss

Mikill lax er genginn upp fyrir Árbæjarfoss og þó nokkur lax mun vera kominn alla leið upp á Heiði / Bjallalæk, sem er efsta svæðið í Ytri Rangá. Mikill metnaður var settur í seiðasleppingar á efri svæðunum með það að markmiði að fá meira af laxi til að ganga upp á efri svæðin. Til að mynda var bætt við tveimur nýjum sleppitjörnum sleppt á svæðið og var 25.000 seiðum sleppt í hverja tjörn fyrir sig.

Lesa meira
 
P6240056

20.8.2011 : Tungufljótið aðeins að lifna við

Svo virðist sem að líf sé að glæðast í Tungufljóti í Biskupstungum. Í gær komu 8 laxar á land á 4 stangir og skiptist þannig að allir veiðimenn fengu lax.

Fljótið hefur verið með rólegasta móti í sumar, en sterkasti tíminn hefur jafnan verið seinnihluti ágústmánaðar og september allur.

Lesa meira

 
P7100724

19.8.2011 : Fréttabréf Lax-á

Laxveiði síðustu ára hefur verið með allra besta móti og hefur einkennst af aflametum í nánast hverri einustu sprænu sem við eigum hér á landi. Sumarið í ár hefur aftur á móti verið afar frábrugðið fyrri árum. Það fór seint af stað eftir kalt vor og kuldakast í upphafi sumars. Laxinn lét einnig bíða eftir sér, þá sérstaklega eins árs laxinn sem hefur verið uppistaðan í aflatöflum síðustu ára. Veiðin hefur tekið við sér og Rangárnar hafa verið að sína sinn rétta lit undanfarið en þessa stundina er þriðji hver lax veiddur úr Rangánum tveim.

Lesa meira
 
Blanda2006_034

19.8.2011 : Bréf frá sáttum veiðimanni

Við fengum póst frá Kristjáni Jónssyni stórveiðimanni sem skrapp á svæði 3 í Blöndu í gærkvöldi..

...var í Blöndu 3 seinnipartinn c.a.4,5 klst aflinn var 3 laxar 62,84,og 87cm

Lesa meira
 
terrynab1

18.8.2011 : Ytri Rangá í góðum gír

Ytri Rangá heldur áfram að gefa vel. Morgunvaktin í gær gaf 48 laxa en aflatölur dagsins enduðu í 72 löxum. Svæði eitt, fjögur, sex og sjö eru öll að gefa vel en annars er að veiðast á öllum svæðum þó þessi standi uppúr. Sem fyrr eru Sunray shadow, Collie dog, Bizmo og Snældur að gefa vel en það er nú oft þannig að menn nota það sem stendur fyrir í veiðibókinni. Lesa meira
 
Arni.

17.8.2011 : Fréttir úr Djúpunum

Langadalsá er kominn uppí 184 laxa. Við heyrðum í Sigga veiðiverði og voru veiðimenn sem kláruðu í morgun að setja í lúsuga laxa og var mikið af nýjum laxi undir neðstu brúnni. Af nágranna hennar Laugardalsá er það að frétta að hún er kominn uppí 165 laxa það sem af er sumri.

Lesa meira
 
CIMG1396

16.8.2011 : Enn góð veiði í Blöndu

Veiðimaður sem var við veiðar kvöldvaktina í gær og morgunvaktina í morgun á svæði 1 í Blöndu var með 7 laxa á eina stöng. A.m.k. 2 þessara 7 voru á fluguna en hinir líklega á maðkinn. Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar