Stóra Lax-á kominn í sölu - Góðar viðtökur
Eins og alþjóð veit þá er Lax-á nýr leigutaki Stóru Lax-á í Hreppum. Viðtökur hafa verið mjög góðar og almenn ánægja með nýtt fyrirkomulag á veiðunum. Við erum að selja daga hér á skrifstofunni en von bráðar má sjá framboðið inn á söluvef okkar www.agn.is . Veiðin í fyrra var þokkaleg og greinilega rísandi, er það von okkar að með nýju fyrirkomulagi verði hún það áfram og að veiðin dreyfist meira yfir sumarið..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraLaugardalsá í djúpinu - Fyrsta stórstreymi 16.júní
Laugardalsá er ein af þessum veiðiperlum landsins sem fer snemma af stað en hún opnar um miðjan Júní. Í ár hittir fyrsti stóri straumurinn á 16. júní sem hentar vel í djúpinu. Undirritaður hefur gert sér ferð vestur á þessum tíma í þónokkur ár og verður þar enginn breyting á nú. Ástæðan er einföld, maður dettur alltaf á góða veiði í nýgengnum fisk. Einnig er huggulegt að njóta sín í rómuðu veiðihúsinu, horfa á sólsetrið útá palli og njóta náttúru fegurðarinnar sem er einstök í þessum landshluta..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraHallá á Skagaströnd - Skemmtileg 2 stanga á með notalegu húsi
Hallá er lítil og viðkvæm dragá um 16 kílómetra löng en veiðisvæðið sjálft er hátt í 10 kílómetrar. Neðri hluti ánnar fellur að hluta til í gljúfri en fyrir ofan veiðihúsið hægist á ánni og hagur fluguveiðimanna vænkast þar til muna, hartnær 7 kílómetra fram dalinn. Við erum að bóka hana núna fyrir næsta sumar og því um að gera að setja sig í samband við okkur hér á skrifstofunni og bóka daga..Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meiraLangadalsá
Blanda sv1
Svartá í A-Hún
Stóra Laxá
Gjafabréf Lax-á
Við viljum minna á gjafabréfin okkar vinsælu nú þegar líða fer að jólum. Eins og undanfarin ár fylgja glaðningur með hverju bréfi, derhúfur, flugur og flugubox og silungsveiðileyfi eru meðal þess sem fylgja.
Lesa meiraLangar þig útúr bænum í vetur?
Hvað er betra á löngum vetri en að komast úr skarkalanum í borginni og eiga góðar stundir í góðra vina hópi?
Vesturbakki Hólsár
Vesturbakki Hólsár hefur verið ákaflega vinsæll hjá okkur undanfarin ár, enda stutt að fara frá höfuðborgarsvæðinu og þarna veiðast á milli 500 og 600 laxar ár hvert. Í sumar var sett niður veiðihús fyrir þetta svæði og mæltist það vel fyrir hjá veiðimönnum.
Lesa meiraLaugardalsá, lausar stangir á góðum tíma
Laugardalsá hefur löngum verið ein af okkar bestu ám í sínum stærðarflokki, 2ja - 3ja stanga á. Sumarið 2010 veiddust um 550 laxar í ánni og sumarið 2009 var ekki mikið lakara með rúma 500 laxa. Við eigum nokkur holl laus á mjög góðum tíma, uppúr miðjum júlí og í byrjun ágúst.
Lesa meiraHugleiðingar um seiðasleppingar og fiskirækt
Ráðstefna um seiðasleppingar í ár og vötn sem haldin er í tengslum við afmæli Landssambands Stangaveiðifélaga er nú um helgina, undirrituðum datt í hug að setja niður nokkrar hugleiðingar vegna þessa. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni þegar fjallað er á faglegan hátt um seiðasleppingar og fiskirækt almennt – menn hafa oft látið tilfinningar hlaupa með sig í gönur þegar kemur að þessum málaflokki.
Lesa meira