Helstu fréttir

Stora-Laxa-20

30.12.2010 : Áramótaannláll Lax-á

Nú þegar árið 2010 að renna sitt skeið á enda er ekki úr vegi að líta yfir farin veg. Árið 2010 var um margt tíðindamikið ár fyrir Lax-á og enda talsverð umbrot á árinu. Eldgosið á Fimmvörðuhálsi vakti athygli erlendra viðskiptavina okkar – enda birtum við reglulega myndir af gosstaðnum. Ekki var þetta litla túristagos til neinna trafala eða fælandi á nokkurn hátt. Öðru máli gilti um gosið í Eyjafjallajökli sem hófst þann 14 apríl og stóð í 9 daga með tilheyrandi öskufalli og jökulhlaupum. Þetta gos hafði töluverð áhrif á eftirspurn erlendis frá og fór því mikilvægt sölutímabil forgörðum hjá okkur eins og hjá flestum öðrum í ferðaþjónustu. Lesa meira
 
Sydri_Bru

28.12.2010 : Syðri Brú í Soginu - Fjölskylduvæn laxveiði

Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins og ein þekktasta laxveiðiáin. Sogið á upptök sín í Þingvallavatni og rennur þaðan um Úlfljótsvatn og síðan í Álftavatn skammt neðan við Þrastarskóg. Mikill uppgangur hefur verið í laxveiði í Soginu á undanförnum árum og hefur svæði Syðri Brúar ekki síst átt stóran þátt í því, svæðið var til að mynda með bestu hlutfall veiddra laxa per stöng í ánni í síðasta sumar..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rauduskridur_og_Sveinssker

28.12.2010 : Stóra Lax-á sv 3 er komið í vefsölu á www.agn.is

Nýtt veiðisvæði er komið í vefsölu Agnsins, en um er að ræða svæði III í Stóru Lax-á. Eins og flestir vita gerði Lax-á samning til sex ára um leigu á veiðirétti í Stóru Laxá og verður leyfi í ánni því í veiðileyfa flóru www.agn.is á næstu árum. Svæði III, sem nú er komið í vefsöluna, er veitt með 2 stöngum og nær frá Sveinsskeri að Undirgangi, að báðum veiðistöðum meðtöldum. Veitt er á 2 stangir frá 7 júlí - 30 september. Allar nánari upplýsingar má nálgast inn á www.agn.is Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Aug 2005 q

27.12.2010 : Eystri Rangá 2011

Það er allveg töluvert síðan salan í Eystri Rangá byrjaði hjá okkur og má segja að hún hafi bara farið vel af stað. Eystri Rangá endaði með 6280 veidda laxa sumarið 2010 og varð náði hún toppsætinu stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Matti01_jol

23.12.2010 : Gleðileg Jól

Kæru Viðskiptavinir og Landsmenn allir

Starfsfólk Lax-á óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og þakkar fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Vonandi verður allt fullt af lax og silung á nýja árinu stefan@lax-a.is

Lesa meira

 
9-12-2002-6324

22.12.2010 : Opnunartími yfir hátíðirnar

Opnunartímar Skrifstofu okkar á milli jóla og nýárs eru svo hljóðandi, stefan@lax-a.is Lesa meira
 

22.12.2010 : Stóra laxá sv 3

Stóra laxá sv 3 er komið í vefsölu www.agn.is . Eins og flestir vita gerði Lax-á samning til sex ára um leigu á veiðirétti í Stóru Laxá og verða leyfin seld samhliða á www.agn.is og Lax-á. stefan@lax-a.is

Lesa meira

 

20.12.2010 : Gjafabréf

Góð sala er á gjafabréfunum okkar fyrir jólin og ef menn ætla sér að ná gjafabréf í pakkana er vissara að fara huga fyrir því. Opnunartíminn stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC00019

15.12.2010 : Stóra Laxá sv 1&2

Vel hefur gengið að selja í Stóru Laxá það sem af er af sölutímabilinu og er td nánast allur ágúst og September uppseldur á sv 1&2 uppseldur. Eigum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
B411

13.12.2010 : Svæði 4 í Blöndu

Svæði 4 í Blöndu er líklega vinsælasta veiðisvæði okkar í júlímánuði ár hvert ef marka má eftirspurnina. Nú er svo komið að við eigum einungis fyrstu daga júlí lausa á þessu fallega svæði, ásamt örfáum dögum í júni. Þetta skal þó engan undra því veiðin hefur verið frábær undanfarin ár, rúmlega 420 laxar 2009 og rétt um 400 síðastliðið sumar. Lesa meira
 
arnor_isfjord_95cm2

10.12.2010 : Langadalsá

Langadalsá er sennilega ein af vinsælli 4 stanga ám sem lax-a getur boðið uppá og hefur að venjulega allir dagar sellst upp upp á ári hverju. Frábært veiðihús með 8 svefnherbergjum og engöngu stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Stora_Laxa_4937

9.12.2010 : Júlídagar í Svartá

Veiði í Svartá var með allra besta móti síðastliðið sumar og fóru menn almennt mjög sáttir heim úr ánni. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hve vel veiðin dreifðist yfir tímabilið, til að mynda veiddust 200 laxar í júlí í ánni. Lesa meira
 
Flottur Hvannadalsá

9.12.2010 : Hvannadalsá komin á www.agn.is

Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi var með allra besta móti síðastliðið sumar. Alls veiddust rúmlega 460 laxar í ánni sem er mesta skráða veiði þar frá upphafi. Svæðið er komið í vefsölu og geta áhugasamir kynnt stefan@lax-a.is Lesa meira
 
gjafabref_takki

9.12.2010 : Jólagjöfin í ár

Við viljum minna á gjafabréfin okkar vinsælu, nú þegar líða fer að jólum. Eins og undanfarin ár fylgja glaðningur með hverju bréfi, derhúfur, flugur og flugubox og silungsveiðileyfi eru meðal stefan@lax-a.is Lesa meira
 
IJsland_2008-1_088

8.12.2010 : Ótrúleg júníveiði 2010

Vel hefur gengið að selja í Blöndu það sem af er á þessu sölutímabili og er júlí sama sem uppseldur og vel gengið á júní. Það eru hreint ótrúlegar veiðitölur úr Blöndu í júní veiðinni sumarið 2010 stefan@lax-a.is Lesa meira
 
100_0131

8.12.2010 : Svartá í A-Hún

Svartá er sennilega með skemmtilegri fluguveiðiám landsinns en hún sameinar bæði hratt vatn sem gerir hana mjög tæknilega og krefjandi en einnig hefur hún mjög marga veiðistaði stefan@lax-a.is Lesa meira
 

3.12.2010 : Krossá í Bitrufirði - Lausir dagar í kringum stórstreymi

Krossá í Bitrufirði er lítil 2ja stanga laxveiðiá sem gefur að jafnaði í kringum 100 laxa, Veiðisvæðið er um 8 kílómetrar að lengd, með 22 merktum veiðistöðum, nánara frá Svartfossi niður að Neðri Brú. Ágætis veiðihús fylgir krossá sem er með 2 svefnherbergjum og tveimur svefnloftum svo það er nóg pláss í húsinu. Gasgrill er á staðnum og öll helstu eldhúsáhöld ásamt ískáp, eldhúshellum ofl. Við eigum lausa daga í kringum stórstreymisdaga í sumar, því er um að gera að setja sig í samband okkur hér á skrifstofunni og bóka daga..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

2.12.2010 : Syðri Brú

Töluvert hefur verið að seljast af leyfunum í Syðri Brú að undanförnu en núna 2011 mun fylgja ágætis veiðihús með veiðisvæðinu sem getur hýst allt að 5 manns.

Það er aðeins 1 stöng á Syðri Brú svo stefan@lax-a.is

Lesa meira

 

1.12.2010 : Jólagjöfin í ár 2010

Nú styttist í jólin og eflaust margir byrjaðir að spá í jólagjöfum. Samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar á Bifröst er jólagjöfin í ár Jákvæð uplifun.

Fyrir veiðimannin er fátt jákvæðara en að komast til veiða. Við viljum því minna á vinsælu gjafabréfin okkar ....

Lesa meira
 
Hvanna5

1.12.2010 : Hvannadalsá

Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi var með allra besta móti síðastliðið sumar. Alls veiddust rúmlega 460 laxar í ánni sem er mesta skráða veiði þar frá upphafi. Sú breyting verður á fyrir sumarið 2011 að einungis verður heimilt að veiða á flugu í ánni.

Lesa meira

 
Kalfhagahylur

26.11.2010 : Stóra Lax-á kominn í sölu - Góðar viðtökur

Eins og alþjóð veit þá er Lax-á nýr leigutaki Stóru Lax-á í Hreppum. Viðtökur hafa verið mjög góðar og almenn ánægja með nýtt fyrirkomulag á veiðunum. Við erum að selja daga hér á skrifstofunni en von bráðar má sjá framboðið inn á söluvef okkar www.agn.is . Veiðin í fyrra var þokkaleg og greinilega rísandi, er það von okkar að með nýju fyrirkomulagi verði hún það áfram og að veiðin dreyfist meira yfir sumarið..Axelo axelo@lax-a.is  

Lesa meira
 
Laug3

26.11.2010 : Laugardalsá í djúpinu - Fyrsta stórstreymi 16.júní

Laugardalsá er ein af þessum veiðiperlum landsins sem fer snemma af stað en hún opnar um miðjan Júní. Í ár hittir fyrsti stóri straumurinn á 16. júní sem hentar vel í djúpinu. Undirritaður hefur gert sér ferð vestur á þessum tíma í þónokkur ár og verður þar enginn breyting á nú. Ástæðan er einföld, maður dettur alltaf á góða veiði í nýgengnum fisk. Einnig er huggulegt að njóta sín í rómuðu veiðihúsinu, horfa á sólsetrið útá palli og njóta náttúru fegurðarinnar sem er einstök í þessum landshluta..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Halla4

26.11.2010 : Hallá á Skagaströnd - Skemmtileg 2 stanga á með notalegu húsi

Hallá er lítil og viðkvæm dragá um 16 kílómetra löng en veiðisvæðið sjálft er hátt í 10 kílómetrar. Neðri hluti ánnar fellur að hluta til í gljúfri en fyrir ofan veiðihúsið hægist á ánni og hagur fluguveiðimanna vænkast þar til muna, hartnær 7 kílómetra fram dalinn. Við erum að bóka hana núna fyrir næsta sumar og því um að gera að setja sig í samband við okkur hér á skrifstofunni og bóka daga..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Langadalsa_2008_(1)

25.11.2010 : Langadalsá

Langadalsá hefur verið ákaflega vinsæl hjá okkur undanfarin ár enda góð veiði og ekki skemmir nýja veiðihúsið. Við eigum nokkra daga lausa seinnipartinn í júlí og aftur í september. Lesa meira
 
Harpa_6

23.11.2010 : Blanda sv1

Við erum byrjuð að selja á sv 1 í Blöndu fyrir sumarið 2011, en Blanda er sennilega ein besta snemmsumars laxveiðiáin okkar á Islandi. Gríðalega stórt hlutfall stórlaxi er í ánni en sumerið 2010 var um 50% stefan@lax-a.is Lesa meira
 
100_0136

23.11.2010 : Svartá í A-Hún

Vel gengur að seljá í Svartá í A-Hún, en nú er svo komið að lungað af júlí og Ágúst eru uppselt, einnig hefur gengið mjög vel á septemberdagana en eins og menn vita hefur Svartá verið ansi góð sl 2 ár og teljum við að Svartá stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Arfellsrennur-_nedst

17.11.2010 : Stóra Laxá

Það gleður okkur að tilkynna að Lax-á hefur tekið á leigu Stóru Laxá í Hreppum. Eins og veiðimönnum er vel kunnugt um þá er Stóra Laxá ein mesta náttúruperla landsins og við erum stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessa nýjung. Lesa meira
 
22580045

12.11.2010 : Gjafabréf Lax-á

Við viljum minna á gjafabréfin okkar vinsælu nú þegar líða fer að jólum. Eins og undanfarin ár fylgja glaðningur með hverju bréfi, derhúfur, flugur og flugubox og silungsveiðileyfi eru meðal þess sem fylgja.

Lesa meira
 
Vetrarmynd sól og snjór

11.11.2010 : Langar þig útúr bænum í vetur?

Hvað er betra á löngum vetri en að komast úr skarkalanum í borginni og eiga góðar stundir í góðra vina hópi?

Lesa meira

 
2009 Block08

11.11.2010 : Vesturbakki Hólsár

Vesturbakki Hólsár hefur verið ákaflega vinsæll hjá okkur undanfarin ár, enda stutt að fara frá höfuðborgarsvæðinu og þarna veiðast á milli 500 og 600 laxar ár hvert. Í sumar var sett niður veiðihús fyrir þetta svæði og mæltist það vel fyrir hjá veiðimönnum.

Lesa meira
 
Laug7

8.11.2010 : Laugardalsá, lausar stangir á góðum tíma

Laugardalsá hefur löngum verið ein af okkar bestu ám í sínum stærðarflokki, 2ja - 3ja stanga á. Sumarið 2010 veiddust um 550 laxar í ánni og sumarið 2009 var ekki mikið lakara með rúma 500 laxa. Við eigum nokkur holl laus á mjög góðum tíma, uppúr miðjum júlí og í byrjun ágúst.

Lesa meira
 
Mads og Mads 3

4.11.2010 : Hugleiðingar um seiðasleppingar og fiskirækt

Ráðstefna um seiðasleppingar í ár og vötn sem haldin er í tengslum við afmæli Landssambands Stangaveiðifélaga er nú um helgina, undirrituðum datt í hug að setja niður nokkrar hugleiðingar vegna þessa. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni þegar fjallað er á faglegan hátt um seiðasleppingar og fiskirækt almennt – menn hafa oft látið tilfinningar hlaupa með sig í gönur þegar kemur að þessum málaflokki.

Lesa meira
 
ingifre

27.10.2010 : Blanda 4

Við erum farin að taka niður pantanir fyrir næsta sumar og er svo komið að sum veiðisvæði eru nánast orðin fullseld. Eitt þeirra er svæði 4 í Blöndu, þar er framboðið farið að þynnast verulega. Það sætir þó engri furðu þar sem þetta svæði hefur verið feykilega vinsælt frá því Lax-á tók það á leigu og undanfarin ár hafa færri komist að en vilja. Lesa meira
 
DSC01119

27.10.2010 : Síðustu dagarnir í Ytri Rangá, Tilboð 60% afsláttur.

Nú eru einungis 4 dagar eftir af veiðitímabilinu í Ytri Ranga og eru margar stangir lausar síðustu dagana. Af því tilefni höfum við ákveðið að Bjóða 60% afslátt stefan@lax-a.is Lesa meira
 
2009 Paul Block 01

25.10.2010 : Lausar stangir í Ytri Rangá

Það er mjög mikið af lausum stöngum þessa dagana í Ytri Rangá og þess vegna mjög góð kaup í vikunni því þá er bara skipt inná bestu svæðin og hin svæðin notuð sem frísvæði. Endilega hafið samband stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Rjúpa

25.10.2010 : Aðeins 3 dagar í Rjúpu

Nú eru aðeins 3 dagar þangað til að fyrstu Rjúpnadagarnir hefjist og er undiritaður orðin frekar spenntur. Leyft verður að veiða á föstudögum, laugardögum og sunnudögum frá 29 okt stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC00358

25.10.2010 : Vegna frétta af Brúará

Eitthvað hefur borið á fréttaflutningi af seiðasleppingum í Brúará og má – ef vilji er til – leggja þann skilning í málið að ætlunin sé að sleppingar verði af svipuðu kalíberi og í stærri hafbeitarám. Engar slíkar áætlanir eru uppi, heldur er laxinn eingögnu hugsaður sem meðafli með bleikju í Brúará. Lesa meira
 
Hilmar_Ragnarsson2010_4

21.10.2010 : 50% Stórlaxahlutfall í Víðidalsá

Veiðin í Víðidalsá sumarið 2010 var allveg ágæt og virðist sem hlutfall stórlaxa sé komið í eðlilegt form eftir áralanga bið. En hlutfall stórlaxa sumarið 2010 var 49.5% eða nánara 622 stórlaxar stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Tung600

19.10.2010 : Tungufljótið lokar á morgun

Miðsvæði Tungufljóts lokar á morgun eins og kunnugt er og eru lausar allar stangirnar. Þokkaleg veiði hefur verið þar að undanförnu og flestir veiðimenn farið sáttir heim. Tungufljótið er komið uppfyrir 900 laxa og telst það bærilegur árangur - þó oft hafið veiðst meira þar.

Lesa meira
 
100_0136

14.10.2010 : Veiðin í Svartá í sumar

Svartá í A-Húnavatnssýslu var sérstaklega skemmtileg í sumar, á land komu 562 laxa og var stórlaxahlutfallið í heild 50% - það eru fáar ár sem státa af betra hlutfalli. Strax í byrjun júli voru að koma á land allt upp í 13 laxar á dag, fyrstu 10 dagana í júlí komu á land um 60 laxar. í lok júlí voru rúmlega 180 laxar komnir á land - ekki amalegt fyrir síðsumarsá eins og Svartá. Ágúst var heldur ekki af verri endanum, um 270 laxar á land og 115 laxar í september.

Lesa meira
 
Tungufljot20071

13.10.2010 : Miðsvæðið í Tungufljóti

Á miðsvæðinu í Tungufljóti hefur verið þokkaleg veiði undanfarið, menn (og konur) hafa verið að taka á bilinu 1 - 3 laxa á dagsstöngina. Eins og fyrr er mesta lífið fyrir neðan ármótin við Einholtslæk og er töluvert af laxi þar. Rúmlega 260 laxar hafa gengið upp stigann og dóla þeir margir hverjir fyrir neðan títtnefndan Einholtslæk.

Lesa meira
 
P9280023

12.10.2010 : Frábær veiðiferð til Skotlands

Við fengum mjög skemmtilegan tölvupóst frá hinum landskunna veiðimanni og Ljósmyndara Rafn Hafnfjörð en hann og sonur hans Jóhann skruppu til skotlands fyrir nokkrum vikum og gerðu frábæra veiði stefan@lax-a.is Lesa meira
 
2009 Manuel_Ploesser_05

12.10.2010 : Enn er veiði í Ytri Rangá

Enn veiðist í Ytri Rangá þó ljóst sé að engin met verði slegin þetta árið. Í gær komu 28 laxar á land og gáfu öll svæði lax nema eitt. Flugan hefur verið sterkari en maðkur og spúnn undanfarið og gildir að veiða hægt og djúpt. Það er þó með þetta eins og annað í veiðinni, oft gefur best að reyna e-ð allt annað en hinir. Lesa meira
 

8.10.2010 : Uppskeruhátíð Stangaveiðimanna 2010

Það er okkur sönn ánægja að hjálpa til við að auglýsa Uppskeruhátíð Stangaveiðimanna 2010. Hátíðin er sett á fót af nokkrum hressum veiðimönnum sem töldu (réttilega) að þörf væri á samkomu sem þessari. En nóg komið af blaðri - hér er auglýsingin:

Lesa meira
 
lax

6.10.2010 : Er það Hvannadalsá 2011?

Fyrir þá sem ekki þekkja til Hvannadalsáar eru hér frábærar upplýsingar sem gott er að hafa fyrir næsta ár þegar farið er að veiða í þessari frábæru á. Það eru þrjár þekktar laxveiðiár í Djúpi vestra; Laugardalsá, Langadalsá og Hvannadalsá. Laugardalsá er sunnanvert við djúpið og hefur lengst af verið fengsælust. Langadalsá rennur niður samnefndan dal innst í djúpinu og hefur laxveiði í henni aukist til mikilla muna á síðustu árum en sumarið 2006 veiddust 332 laxar í Langadalsá. Hvannadalsá rennur um samnenfndan dal og til sjávar á Langadalsströnd innst í Ísafjarðardjúpi... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
DSC01209

6.10.2010 : Tvær forfallastangir í Ytri á Lau

Sælir kæru veiðimenn. Við vorum að heyra af tveim forfallastöngum í Ytri Rangá næstkomandi Laugardag. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við spall@lax-a.is

Lesa meira

 
IMG_3145

30.9.2010 : Nýjar göngur og lausir dagar í Ytri Rangá

Við heyrðum frá Rúnari og félögum í Prentmet í dag. Þeir kumpánar skelltu sér í veiði í gær og þrátt fyrir mikið rok og rigningu lönduðu þeir hvorki meira né minna en 9 löxum á tveim stöngum. Einnig misstu þeir all nokkra því mætti segja að gærdagurinn hafi verið viðburðaríkur dagur...     emil@lax-a.is Lesa meira
 
100_0131

29.9.2010 : Lokatölur Svartá o.fl.

Nú þegar flestar ár okkar eru að loka eða hafa núþegar lokað erum við að fá nýjar lokatölur reglulega. Í dag heyrðum við að 552 laxar hafa komið upp úr Svartá sem er mun betra en t.d. í fyrra sem gaf 428 laxa sem 124 löxum færri en í ár. Elstu skrásettu veiðitölur þaðan eru frá 1974 og hefur aðeins eitt ár verið betra en þetta ár en það var 1998 þar sem komu rúmlega 600 laxar á land... emil@lax-a.is   Lesa meira
 
IMG_9523

28.9.2010 : Ennþá tækifæri til að komast í veiði

Kæru veiðimenn, Nú þegar vertíðin er nánast að lokum komin er tímabært að skoða hvaða ár eru enn opnar. Í sumum ám okkar höfum við verið að upplifa metveiði þetta ár þrátt fyrir þurrka og snemmbært yfirfall... emil@lax-a.is
Lesa meira
 
Hvanna3

27.9.2010 : Lokatölur að vestan

Kæru veiðimenn, við vorum að fá fregnir af lokatölum úr Langadalsá og Hvannadalsá tveim af fjórum ám okkar á vestfjörðum. Lokadagarnir voru um síðustu helgi. Í Langadalsá voru 256 löxum landað en í Hvannadalsá voru 465 löxum landað... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
P7100719

27.9.2010 : Forfallastangir í Ytri Rangá

Athugið kæru veiðimenn. Það eru 2 forfallastangir í Ytri Rangá 5.október og 1 stöng 1.október. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við emil@lax-a.is Lesa meira
 
WRANGA04_50

27.9.2010 : Fréttir úr Ytri Rangá

Samkvæmt Matta veiðiverði í Ytri Rangá hafa verið að koma sirka 40 laxar á dag síðust daga og er þar Djúpósinn byrjaður að koma sterkur inn með 200 löxum landað. Veiðar í Stallsmýrarfljóti, flúðunum, Ægisíðufossi og Tjarnarbreiðunni hafa einnig verið að koma vel út. Við viljum svo minna á að nú er selt í Ytri til 31.október.

Lesa meira

 
Hvannad_08_(31)

23.9.2010 : Breytingar í Hvannadalsá 2011

Frá og með sumrinu 2011 mun eingöngu fluguveiði verða leyfð í Hvannadalsá og skyllt að sleppa stórlaxi. Þetta er Mikil breyting því undanfarin ár hefur maðk og fluguveiði verið leyfð í ánni frá uppahafi til enda. Mikið ræktunarstar stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01708

22.9.2010 : Breyttur veiðitími og nýjar göngur í Ytri

Það hefur komið í ljós að misvísandi upplýsingar séu á heimasíðu okkar varðandi veiðitíma Ytri Rangáar. Til þess að koma þessu öllu á hreint byrjar veiðin kl 08:00 og lýkur 20:00... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
jakob edinger

22.9.2010 : Síðustu forvöð að komast í Ytri í ár

Kæru veiðimenn. Enn eru örfá leyfi laus í Ytri Rangá en það eru 3 stangir þá 29. og 30.september. Það er búið að vera fín veiði í Ytri nú í ár og má taka fram að tveim dögum eftir maðka opnun komu 516 laxar á land! ...emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Eric_Salvans

20.9.2010 : 2 Forfallastangir í Ytri Rangá

Sælir veiðimenn hér höfum við nú lausar tvær stangir í Ytri Rangá (hálfur/hálfur) 23-24 september... emil@lax-a.is  

Lesa meira
 
steini_haff_co_krossa_3

17.9.2010 : Skemmtileg veiðiferð í Krossá

Nokkrir góðvinir okkar hjá Lax-á fóru að veiða fyrir vestan um daginn í Hvannadalsá og Krossá. Þessir góðu drengir voru svo vænir að senda okkur línu og nokkrar skemmtilegar myndir af ferðinni og lét árangurinn ekki á sér standa, enda reynsluboltar miklir þar á ferð... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

15.9.2010 : Rjúpnaveiðitímabilið að hefjast

Nú fer að styttast í Rjúpuna en samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun má veiða frá 29. október til 5. desember 2010: veiðar eru ekki heimilaðar mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
100_0136

15.9.2010 : Forfallastangir í Svartá

2 stangir voru að losna í Svartá 20-22 sept (hálfur/hálfur) . Þarf að deila húsi með hinum tveim stöngunum.. emil@lax-a.is Lesa meira
 
Eric_Salvans

15.9.2010 : ATH forfallastöng í Ytri Rangá!

Það var að losna ein stöng í Ytri Rangá (heill dagur) þann 29 september. Fyrstur kemur, fyrstur fær! ... emil@lax-a.is

Lesa meira

 
Krossa_fiskar_2010_eggertsson

15.9.2010 : Fín veiði áfram í Krossá

Við vorum að fá fregnir frá góðvini okkar honum Sigga Marra. Hann sagði að talan í litlu náttúruperlunni okkar Krossá er komin upp í 150 laxa...

Lesa meira
 
L1020202

14.9.2010 : Svartá í A-Hún

Svartá í Austur-Húnavatnssýslu er á góðu flugi þessa dagana, og enn er nýr fiskur að ganga. Veiðimenn eru að fá þetta 1 til 3 laxa á stöngina á dag og stórlaxahlutfallið hefur verið yfir 50% lengst af sumars. Lesa meira
 
bru

13.9.2010 : Tungufljót Miðsvæði

Við fengum fréttir í morgun af veiðimönnum sem voru að veiða á Miðsvæðinu í Tungufljóti og fengu eina 8 laxa í gær en á sl viku hafa um 80 laxa stefan@lax-a.is Lesa meira
 
04 Photos from Maja

13.9.2010 : Ytri Rangá

Ágætis gangur er í Ytri Rangá þessa dagana en daglega eru koma um 50-60 laxar pr dag og er áin kominn í ca 5200 laxa. Enn veiðast lúsugir Laxar en menn fengu eina 2 lúsuga í morgun niður á Borg. stefan@lax-a.is Lesa meira
 

10.9.2010 : Opnunartími skrifstofu

Frá og með deginum í dag mun opnunartíminn á skrifstofunni breytast í vetrar opnunar tíma nánara stefan@lax-a.is Lesa meira
 
rafn_2010

9.9.2010 : Einn glæsilegur úr Víðidalsá.

Við vorum að fá sent bréf frá honum Rafni Hafnfjörð stórveiðimanni sem var við veiðar í Víðidalsá 05 -08 sept þar segir hann:... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Krossa_fiskar_2010_eggertsson

8.9.2010 : Krossá full af fiski!

Við vorum að fá sent bréf frá honum Árna Eggertsyni stórveiðimanni sem var við veiðar í Krossá um daginn. Þar segir hann "Áttum góða daga í Krossá, settum í sex fiska, lönduðum 4 og hirtum 3. Urðum vör við fisk í nr 13, 18, 21 og 22. Úr ánni voru komnir 123 laxar. Sendi þér mynd af veiðistað nr 21, og nú er bara að telja... emil@lax-a.is  

Lesa meira
 
ER Nils 4

7.9.2010 : Samantekt og veiðitölur

Hér er smá samantekt af tölum úr okkar ám. Eins og flestir ættu að vita þá er búið að vera frábært veiðisumar þrátt fyrir leiðinda þurrka núna um mitt tímabil. En þegar sólin fer smátt og smátt að hverfa, hitinn að lækka og rigningin að koma þá kemur líf í árnar... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Heklubyggd

6.9.2010 : Laust í Heklubyggð næstu helgi

Ef planið er að kíkja út á land í sveitasæluna þá erum við hjá Lax-á að bjóða glæsilegan bústað í Heklubyggð til leigu en hann var að losna núna næstu helgi. Þetta er 6 manna glænýr fallega innréttaður bústaður örskammt frá efri svæðum Ytri Rangáar... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Eric_Salvans

31.8.2010 : Lausar stangir í Ytri Rangá! (uppfært 02.09.10.)

Nú fara að verða síðustu forvöð að krækja sér í veiði í þessari frábæru á en það voru að losna tvö holl í annars nánast uppseldri á. Athygli skal vakin á því að... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Thorleifur_pallson1

31.8.2010 : ATH veiðimenn

Við erum byrjuð að bóka veiðar fyrir næsta ár þannig að ef þú fórst í ferð í ár sem þú vilt endurtaka eða þinn dagur var uppseldur í ár þá endilega hafðu samband við stefan@lax-a.is og nældu þér í glæsilega veiði á undan öllum hinum. Lesa meira
 
2009 Manuel_Ploesser_05

31.8.2010 : Ytri Rangá

Fyrsti maðkur og spúnn byrjaði í Ytri Rangá seinnipartinn 29 ágúst og komu um 200 laxar á land fyrstu vaktina. Núna tvemur vöktum seinna eru rúmlega 400 laxar komnir á land og aflin blandaður af legnum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
IJsland_2008-1_088

30.8.2010 : Blanda komin af yfirfalli

Á laugardaginn fór Blanda af yfirfalli og er því minna lituð nú en hún hefur verið í ágústmánuði. Sérstaklega eru þetta góðar fréttir fyrir þá sem eiga veiðileyfi á svæði 4, sem er ekki einungis besta síðsumars svæðið í Blöndu - heldur jafnframt hið skemmtilegasta að margra mati.

Lesa meira
 
ER Nils 1

26.8.2010 : Eystri Rangá kominn á toppinn

Mokveiði hefur verið að undanförnu í Eystri Rangá og er hún kominn á toppinn á listanum inná www.angling.is með eina 3995 veidda laxa og í öðru sæti er systir hennar Ytri Rangá stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Krossá ofan við brú

26.8.2010 : Krossá í Bitrufirði

Veiðin í Krossá í Bitrufirði hefur lifnað heldur betur eftir að það fór að rigna og kólna en núna eru komnir um 100 laxar á land. við eigum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
OLYMPUS DIGITAL CAMERA

25.8.2010 : Lausar stangir í Víðidalsá 27-28 ág.

Við eigum 2 stangir lausar í Víðidalsá 27-28 ágúst einn dagur. En þetta eru síðustu stangirnar sem við eigum lausar í sumar í víðidalsá. Lesa meira
 
DSC00063

25.8.2010 : Stærsti lax sumarsins ?

Hann var eins og fallegt, feitt konulæri," segir Geir Gunnarsson, forstjóri Honda-umboðsins, sem í gær veiddi stærsta lax sumarins, 110 sentimetra langan og 51 sentimetra að ummáli... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Laugardalsa4

24.8.2010 : Erfitt að toppa þetta

Frábært bréf frá Arnóri Ísfjörð sem var við veiðar í Laugardalsánni um daginn. 27 laxa holl takk fyrir. Greinilegt er að með rigninunni kom þessi sprenging en eins og flestir vita hefur verið viðvarandi þurrkur fyrir vestann í sumar... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Thorleifur_pallson1

24.8.2010 : Töluvert er af vænum fiski í Langadalsá

Við fengum myndir og bréf sent frá honum Þorleifi Páls sem var við veiðar í Langadalsá um daginn... emil@lax-a.is

Lesa meira

 
P1200075

24.8.2010 : Mikil veiði í Eystri rangá

Núna síðustu daga hefur verið rosalega góð veiði í Eystri Rangá, en síðustu dagar hafa verið að gefa um 150 laxa pr dag. Aflin er blandaður af nýjum laxi og legnum laxi og má geta þess að rólegari stefan@lax-a.is Lesa meira
 
2009 Block 03

19.8.2010 : Ytri Rangá

Ágætis gangur er í Ytri Rangá þessa dagana en að jafnaði eru dagarnir að gefa 60-80 laxa pr dag. Bestu svæðin núna eru sv1, sv4, sv6, sv7 og svæði 10 en það opnaði ekki fyrr en þann stefan@lax-a.is Lesa meira
 
Hilmar_Ragnarsson2010_4

18.8.2010 : Víðidalsá

Við vorum að fá fregnir frá Hilmari Ragnarssyni sem var við leiðsögn í Víðidalsánni frá níunda í þrettánda ágúst. Hann sagði að hann hefði aldrei séð ánna.. emil@lax-a.is Lesa meira
 
ROLL1040

14.8.2010 : Allt að lifna við í Heiði-Bjallalæk

Göngur eru komnar upp á efri svæði Ytri Rangáar, nánar tiltekið í Heiði Bjallalæk. Undirritaður fór í gærkvöldi..

Lesa meira
 
Tungufljot 7

13.8.2010 : Loksins, rigning!

Nú þegar vætan loksins litið dagsins ljós (þannig séð) eru árnar að lifna við á ný og nýjar göngur að koma. Við heyrðum í honum Snorra nokkrum Ólafssyni, veiðimanni og veiðiverði í dag og kvaðst hann hafa séð þó nokkra laxa vera ganga upp stigann í fossinum Faxa í Tungufljótinu í morgun... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Hvanna3

11.8.2010 : Sólskins-kveðjur úr djúpinu

Nýjustu fréttir að vestan úr djúpinu herma að varla hafi fallið regn síðan seint í júní. Það eru ekki nógu góðar fréttir fyrir árnar þar en heyrt var í honum Kristjáni Steindórssyni bónda á Kirkjubóli í Langadal hljóðið í gær... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
thordursigurdsson_medina02

9.8.2010 : Flott veiði á aðeins klukkutíma!

fyrrakvöld fékk Kristina Medina að veiða í fyrsta skipti í Ytri Rangá. Hún hefur komið í nokkur ár með eiginmanni sínum og iðulega setið á bakkanum og horft á hann veiða... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
L1020182

7.8.2010 : Mikið fjör í Svartá

Við vorum að heyra í veiðimönnum í Svartá núna áðan, en þar er líf og fjör. Umræddir veiðimenn eru með 2 stangir í ánni og eru komnir með á milli 15 og 20 laxa á land á 3 vöktum. Þeir segja að líf sé á flestum stöðum en ármótin eru enn sterkust.

Lesa meira
 
Bjossi 1

6.8.2010 : Fréttir af Hólsá og föt í óskilum

Flott veiði var á vesturbakka hólsá nú um daginn en vorum við að fá upplýsingar um að þann 28.júlí síðast liðinn veiddust sirka 30 laxar og fram að 30 komu 37 í land... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
01082010370

4.8.2010 : Feðgarnir fengu 20 laxa á 2 dögum

Bréf frá Höskuldi leiðsögumanni um nýlega veiði í Ásunum... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
lax_009

3.8.2010 : Forfallastangir í Víðidalsá

Það voru rétt í þessu að forfallast 2 stangir í hollinu 13-16 ágúst í Víðidalsá. Víðidalsá er búin að vera á góðu róli í sumar og allveg ótrúlegt magn af stórlaxi þetta árið. Þetta er síðasta hollið sem við eigum á lausu stefan@lax-a.is Lesa meira
 
jakob edinger

3.8.2010 : 15 punda hængur úr flúðunum

Síðast liðið laugardagkvöld veiddist fallegur 15 punda hængur í Rangárflúðunum. Veiðimaðurinn var Jakob Edinger frá Austurríki. Nú er veiðin í rangánum í kringum 100 laxa per dag.. emil@lax-a.is

Lesa meira
 

31.7.2010 : Verslunarmannahelgin

Nú er komin verslunarmannahelgin og æsingur kominn í menn en við viljum benda fólki sem leggur af stað í dag að fara varlega í umferðinni og helst fara sem fyrst á stað til að forðast umferðarteppu. Helstu hátíðirnar verða í Vestmannaeyjum, Akureyri, Akrenesi, Dalvík, Siglufirði og Reykjavík. Opið verður laugardaginn 31.júlí en lokað á mánudag... emil@lax-a.is

 

Góða helgi og góða skemmtun!

Lesa meira

 
L1020202

30.7.2010 : Svartá á mjög góðu róli

Svartá í A-Hún er ein af perlunum fyrir norðan og hefur gengið vel þar eins og annarsstaðar. Hún er komin yfir 160 laxa, sem er þrefaldur afli miðað við sama tíma í fyrra. Lesa meira
 
OLYMPUS DIGITAL CAMERA

29.7.2010 : 106 cm lax í Ármótum Víðidalsáar

Glæsilegur 106 cm eða samkvæmt mælikvarða Veiðimálastofnunar, 11,8Kg lax veiddist í dag kl 09:00 í Víðidalsá í Ármótum...

Lesa meira
 
IMG_3443

29.7.2010 : Haust tilboð Hótel Rangá

Lúxus hótelið Hótel Rangá er að bjóða upp á hausttilboð fyrir heppna veiðimenn sem gildir sunnudaga- til fimmtudaga og byrjar 1.september og gengur fram í október... 

Lesa meira
 
Laug9

29.7.2010 : Flott veiðin í Laugardalsá

Miklir þurrkar hafa verið á öllu landinu síðustu daga en þrátt fyrir þetta heita sumar eru enn að koma 40-50 laxa holl í Laugardalsá... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
cartoon-sun

29.7.2010 : Öðruvísi veiðimyndband

Algjört æði hefur gripið stuðningsmenn meistaraflokks Stjörnunar undanfarna daga en það frækna fótbolta lið hefur komið sér upp þeirri sérstöðu að fagna á fyndinn hátt þegar þeir skora mark... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
4

29.7.2010 : Yfirborð Blöndulóns hækkar hratt

Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun er hætta á að Blanda fari á yfirfall seint í næstu viku. Öll miðlunarlón Landsvirkjunar eru að fyllast, sólbráð á jöklum íslands eru með allra mesta móti í sumar eftir öll hlýindin að undanförnu . Gerist þetta 2 - 4 vikum fyrr en spár Landsvirkjunar sögðu til um. Lesa meira
 
Hvannad_08

28.7.2010 : Djúpið í fullu fjöri þrátt fyrir þurrka

Við heyrðum í veiðimönnum sem hafa verið í Hvanna- og Langadalsám síðustu daga og samkvæmt þeim hefur veiðin verið góð. Fréttist af 23 laxa holli nú um helgina í Hvannadalsá og vikuna áður þá í kringum.. emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Arni.

28.7.2010 : Laugardalsá

Góður gangur er enn í Laugardalsá þrátt fyrir skort á vatni í flestum ám fyrir vestan. Alls eru komnir 357 laxar á land og stefnir laugardalsá vel í að ná veiðitölu siðasta árs en þá veiddust samtals stefan@lax-a.is Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar