Vorveiðin í Dee að fara af stað - Við munum fylgjumst vel með
Á mánudaginn hefst Laxveiðitímabilið í Skotlandi af fullri alvöru. Stóru árnar opna hver af fætur annarri en hingað til hafa þær smærri verið að opna með heimamenn fremsta í fararbroddi. Veðrið verður í aðalhlutverki eins og fyrri ár í opnun en það er spáð roki og rigningu, hitastigi á bilinu 4°c – 7°c en búast má við því að mikill snjór muni falla í fjöllinn, sem ætti að vera gott fyrir vatnsmagnið í ánni í Febrúar. Við hér hjá Laxá fylgjumst að sjálfsögðu vel með því við erum með 3 svæði í Dee á okkar snærum og ég mun flytja ykkur nýjustu fréttir um leið og þær berast.. axelo@lax-a.is
Langar þig að veiða stóra sjóbirtinga? Rio Grande er málið
Eins og undanfarin ár mun Lax-á bjóða ferðir til Argentínu þar sem menn geta veitt risastóra sjóbirtinga. Meðal veiðin er um 17-27 fiskar á viku per stöng og er meðalþyngdin í kringum 15 pund. Það er hugsað vel um veiðimenn þarna suðurfrá og til að mynda eru veiðihúsin á heimsmælikvarða þegar kemur að þjónustu, þægindum, veitingum og fl. Tímabilið nær fram í lok Apríl og við eigum enn nokkra lausa daga í Mars. Settu þig í samband við okkur hér á skrifstofunni og við komum þér í kynni við þessa frábæru perlu.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Allt á fleygiferð í Argentínu og Lax-á er þar líka
Nú er tímabilið farið af stað í Argentínu og er fjöldinn allur af veiðimönnum að renna fyrir Sjóbirting. Rio Grande, Rio Gallegos og Rio Menendez eru þær ár þar sem allt er hreinlega á fleygiferð. Veiðin hefur verið góð í upphafi tímabils og segja kunnugir mikið af fiski genginn í ánna. Við erum búinn að uppfæra allar upplýsingar hér á heimasíðunni hjá okkur um Argentínu, ásamt nýjum myndum og ættu þær upplýsingar að kitla einhvern veiðimanninn.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Vatnasvæði vikunar á www.agn.is er Blanda sv1 og víðidalsá silungasvæði
Fyrstu Laxarnir komnir á land í Skotlandi
Veiðileyfasalan í góðum gangi
Síminn Kominn í Lag
Kæru viðskiptavinir, nú er síminn hjá okkur kominn í lag og menn geta hringt inn til okkar. stefan@lax-a.is
Síminn Bilaður
Heiti Potturinn á www.agn.is Blanda sv4
10 dagar í opnun á Dee - Ert þú búinn að bóka leyfi?
Nú eru aðeins 10 dagar þangað til að Skoska laxveiði drottningin Dee fer af stað. Það er alltaf gaman að fylgjast með fyrstu dögunum þar því oft er mikill hamagangur við bakkana hjá veiðimönnum. Hver kannast ekki við þá tilfinningu þegar vetrarhrollurinn fer úr manni og veiðihamurinn byrjar að vaxa á nýjan leik. Salan hefur gengið vonum framar og vinsældir á ánni miklar. Hér má sjá þá daga sem við eigum lausa á komandi tímabili.. axelo@lax-a.is
Vatnasvæði Lýsu komið í vefsölu
Kola áin í sumar – Þetta er tíminn til að fara
Við eigum mjög góða daga á lausu í Kola ánni í Júlí og Ágúst. Þessir dagar svona á miðju sumri eru mjög góðir og gefa af sér fyrir allann peninginn. Það er skemmtileg veiði á þessum tíma, gott veður og mörg frábær atvik sem skilja eftir sig ljúfar minningar. Það eru hrikalega flottir veiðistaðir í Kola ánni, tilvaldir fyrir íslenska veiðimenn, hitch, þurrflugur, Sunray, allt á við og sífelldar uppákomur. Besta veiðin á 1 stöng í fyrra gaf 82 laxa á viku.. alvöru veiði á alvöru tíma.. axelo@lax-a.is
Laugardalsá kominn í vefsölu
Góðar horfur í Blöndu
Hreindýrakvótinn 2009
Umhverfistofnun var að gefa út hreindýrakvótan fyrir 2009 en þá má veiða 1333 dýr á komandi veiðitímabili en veiðitímabilið hefst að venju 1 ágúst og endar 15 sept, vísu getur umhverfistofnun heimilað tarfaveiði frá 15 júlí. stefan@lax-a.is
Silungasvæðið í Víðidalsá komið í vefsölu
Tungufljót opnun í heita pottinum
Hallá kominn í vefsölu
Stangarfækkun í Eystri Rangá
Það styttist óðum í opnun Dee í Skotlandi
Það má með sanni segja að allt fari á fullt í hinni frægu laxveiðiá Dee í Skotlandi núna uppúr mánaðar mótunum en þá hefst laxveiði tímabilið þar með pompi og prakt. Sem áður fyrr bjóðum við upp á veiðisvæðin L.Crathes og W.Durris en þau hafa verið annsi vinsæl undanfarin ár. Við erum á fullu núna að uppfæra allar upplýsingar um Skotland hér á heimasíðunni og kynnum við hér að neðan fyrsta hluta þeirra breytinga, flottar myndir og fróðlegur lestur, fylgist með á næstunni.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Hvannadalsá kominn í vefsölu
Mikil sala á www.agn.is
Langadalsá Kominn á www.agn.is
Ytri Rangá
Óbreytt verð í Víðidalsá
Verðlækkun í Svartá
Óbreytt verð í Rangánum
Verðlækkun í Blöndu
Svartá í A hún
Við eigum ennþá frábær holl á besta tíma í Svartá næsta sumar en það eru hollin. 28-31 júlí, 12-15 ágúst og hollið 20-23 ágúst
Svartá er þekkt stefan@lax-a.is
Dee Skotland
Nýr starfsmaður á skrifstofu Lax-á
Það er okkur sönn ánægja hér á skrifstofunni að kynna til leiks nýjan starfsmann hér á skrifstofuna. Hann ætti að vera flestum veiðiáhugamönnum vel kunnur því hann átti og rak eina vinsælustu veiðibúð landsins um margra ára skeið ásamt því að vera ein mesta aflakló sem sögur fara af hér á landi.. axelo@lax-a.is
Lesa meira
Laxveiði í Noregi er sambærileg í verðum - kíktu á Noreg hér á síðunni
Hér er um að ræða frábæra á í svipuðum gæðaflokki og Gaula nema að það er aðeins minni veiði í heildartölum. Malselv áin býður upp á Stórlaxa að hætti heimamanna og svíkur engan þegar kemur að veiðinni, náttúrufegurð og þjónustu. Við vorum að endurbæta allar upplýsingar um Noreg hér á síðunni svo endilega taktu þér tíma og skoðaðu svæðin vel.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraTilboð til Rússlands – Varzina áin á góðu verði
Núna býður Lax-á uppá frábært verðtilboð á Laxveiði í Rússlandi. Hin dulmagnaða og stórskemmtilega á, Varzina er nú á tilboði hjá okkur næstu dagana. Allt að 3.000,- evru afsláttur. Dagarnir eru 6. Júní – 13. Júní. Allt innifalið (nema millilandaflugið), þ.e.a.s. Þyrluflugið, allt transfer innanlands, matur, leiðsögn og vika í veiði.. axelo@lax-a.is
Gaula áin í Noregi - Stórlaxaævintýri á hverjum degi
Nú er búið að endurnýja allar upplýsingar um Laxveiðisvæði Lax-á í Noregi hér á heimasíðunni hjá okkur. Það er ekki hægt að segja annað en að hér séu á ferðinni geggjuð veiðisvæði, mikið af stórlaxi og vænn smálax inn á milli. Hér að neðan má sjá allar upplýsingar um hina heimsfrægu á Gaula.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraVetrar veiðarnar í Ytri Rangá ekki á vegum Lax-á.
Rétt er að taka fram að þessar umtöluðu vetrar veiðar á nýársdag í Ytri Rangá eru ekki á vegum Lax-á. Veiði lauk í Ytri Rangá í Október og er öll veiði eftir þann tíma ólögleg. Rétt er að þetta komi skýrt fram eftir fréttir í Fréttablaðinu , og ritstjóri vefs " Stangaveiðifélags Reykjavíkur " Haraldur Eiríksson þótti tilefni að fara fram úr rúmi sínu um helgi til að skrifa ítarlega stór frétt um atburðinn mikla á www.svfr.is Árni Baldursson
Laxá býður upp á stórlaxaveiði 2009 í Noregi
Lax-á verður með ævintýralegar ferðir sem aldrei fyrr árið 2009 og nú kynnum við til sögunnar Noreg en við ætlum að bjóða uppá nokkra virkilega spennandi kosti þar árið 2009. Við erum að klára að setja upp svæðin hér á heimasíðunni hjá okkur og á næstu dögum munum við kynna þau til sögunnar. Hér að neðan má sjá fyrstu kynninguna en þetta er almennur fróðleikur um veiðisvæðin okkar. Við leggjum okkar af mörkum til að gera ferðina eftirminnilega og fulla af hinu óvænta sem væntalega eru 2ja stafa tölur í pundum.. axelo@lax-a.is
Lesa meiraYtri Rangár upprifjun
