Helstu fréttir

Acha

29.2.2008 : ATH! Spey kast kennsla í Ponoi 5/7-12/7- 2008

Í sumar verður boðið upp frábæra nýjun í Rússlandsferðum, um er að ræða heila viku í Ponoi þar sem í för með verður frábær kastkennari að nafni Dana Sturn og ætlar að Lesa meira
 
andreas_witt_TK

28.2.2008 : 26 pundari á land í Villa maria – Rio Grande

Daninn Michael fór á kostum í gær við veiðstaðinn Petrero er hann landaði 26 punda sjóbirtingi við erfiðar aðstæður en mikið rok var í gær. Hann ásamt félögum sínum eru búnir að eiga frábæra viku með hverjum stórfiskinum á fætur öðrum, 21p, 25p, og nú 26punda ásamt helling af minni fiskum.

Lesa meira
 
492047-R1-27-9

27.2.2008 : Tvær stangir á besta tíma í Miðfjarðará

Miðfjarðará er ein fallegasta og fjölbreytasta laxveiðiá landsins. Veiðin seinustu ár hefur verið í kringum 1100-1500 laxar á ári, á tíu stangir. Lesa meira
 
Santi_Villa_Maria_1

27.2.2008 : Mjög góð veiði í Argentínu

Mjög góð veiði hefur verið undanfarið í Rio Grande. Gærdagurinn var að gefa vel af sér, heildarveiðin var 21 sjóbirtingur og sá stærsti var 21 pund. Menn eru að nota mismunandi aðferðir við veiðarnar og hefur þurrflugan verið sterk undanfarið Lesa meira
 
villa_maria3

26.2.2008 : Rio grande á fullri ferð

Það eru að gerast ótrúlegir hlutir í veiðinni við Rio Grande, núna náði Breskur veiðimaður að nafni James Gunning að gera þvílíka veiði í Villa Maria í gær, mánudag, alls náði hann að landa 10 glæsilegum sjóbirtingum, geri aðrir betur, og það allt saman á seinni vaktinni...!

Lesa meira
 
villa_maria_5_feb_08

25.2.2008 : Þvílík þrenna - 3 x 25 pund í Rio Grande

Veiðimenn við Rio Grande voru í sannkölluðu salsa stuði á sunnudaginn, bæði við ánna og í húsi. Þrír 25punda sjóbirtingar voru dregnir á land og ásamt því náðu þeir að landa 2 20punda. Lesa meira
 
villa_maria_6_feb_08

25.2.2008 : Mokveiði í nýju holli – Rio Grande

Á laugardaginn byrjaði nýtt holl veiðar í Villa Maria, Rio Grande. Eftir ferðalagið til Rio Grande hafa menn verið frekar æstir í veiðar því heildarveiðin var 27 fiskar, sá stærsti 16pund. Lesa meira
 
DSC00018

25.2.2008 : Svartá – kemur sífellt á óvart

Svartá er meðalstór bergvatnsá með 480 ferkm. vatnasvið. Meðalveiði er 293 laxar, minnst árið 1977, 46 laxar en mest 619 árið 1988, Síðustu sumur hafa verið að fást 250 til 550 laxar í ánni. Nýuppgert veiðhús þar sem tilvalið er að mýkja skrokkinn og ýkja veiðisögurnar.

Lesa meira

 
Laugardalsa1

25.2.2008 : Meðal betri laxveiðiáa á landinu – Laugardalsá

Sjóðandi heitt holl, 3 stangir, var að losna í þessari paradís dagana 7-10ágúst. Eins og með annað er það hið klassíska Murphy’s lögmál sem gildir, fyrstur kemur- fyrstur fær.  Ekki láta þessa á framhjá þér renna…óveidda!

Lesa meira

 
East_Ranga-_anders1

25.2.2008 : Tvær stangir í Eystri 29-31 ágúst

Eigum tvær stangir í Eystri Rangá í tvo daga 29-31 ágúst. Þetta er mjög skemmtilegur tími í Eystri og er veiðin oft ævintýraleg á þessum tíma. Á seinasta ári Lesa meira
 
dee_flugor_laxa1_small_medium[1]

22.2.2008 : Hvað er apa fluga(monkey fly)?

Allir eru að tala um þessar flugur núna og nýlega birti hið virta fluguveiðitímarit,   Trout & Salmon, mjög svo ítarlega grein þar sem farið var yfir efni og eiginleika flugunnar. Eitthvað töluðu menn um að hér væri á ferðinni arftaki hinnar íslensku Snældu en við sjáum hvað setur... Lesa meira
 
DSC00092

22.2.2008 : Frábær endir í Rio Grande segir Árni

Á hverjum degi erum við að landa 20 punda og plús, sem er hreint ótrúlegt og annað sem er, það eru þvílík tröll á sveimi, ég hef ekki séð svona áður segir Árni glaður í bragði. Lesa meira
 
IMG_3157

22.2.2008 : Eigum 3 stangir 15-17 júlí í Ytri

Við lumum á þremur stöngum 15-17 júlí í Ytri. Það er stórstreymt um miðjan mánuðinn og því ættu göngurnar að vera að byrja á fullum krafti á þessum tíma. Lesa meira
 
Rio_Grande_25_pundari_(2)

21.2.2008 : Rio Grande að slá í gegn – einu sinni enn

Það var ekki slæmt í þeim hljóðið þegar heyrðist í Árna, Bolla, Jóni og Gústa frá Rio Grande í morgun. Það hafði lægt vindinn og áin öll lifnað við, allir ákveðnir í að ná í þann stóra. Það heldur betur gerðist því allir lönduðu  þeir  20pundum og plús og sá stærsti var 25pund. Lesa meira
 
G_Nordal_m_storan

20.2.2008 : Árni og félagar í Argentínu

Það er ekki að spyrja að því þegar Árni og félagar eru annars vegar við veiðar. Í gær lönduðu þeir enn einum Sjóbirting yfir 20 pundin og heildarveiðin var 8 silfurbjartir og fallegir birtingar. Lesa meira
 
2008Rio Grande

19.2.2008 : Risafiskar í Rio Grande - Kóngurinn er mættur

Ég rétt náði af Árna í morgun og fékk hjá honum hreint ótrúlegar fréttir. Veiðin í gær í Rio Grande-Villa Maria var með ólíkindum góð, 3 fiskar fóru yfir 20 punda markið, 20p, 21p og 25 pundari...heildarveiði dagsins var 22 fiskar...geggjuð veiði.

Lesa meira
 
Picture_117

19.2.2008 : 22 punda mánudagur í Dee

Stórkostleg veiði var í gær á bökkum Dee. Mikið var um að veiðimenn settu í fiska og misstu þá eftir skemmtilega baráttu.  Heildarveiðin var 11 laxar og sá stærsti var 22lbs!! veiddur á svæði sem heitir M Blackhall.

Lesa meira
 
DSC00054

19.2.2008 : Seinustu lausu stangirnar í Rio Grande þetta árið

Þetta eru seinustu stangirnar hjá okkur veiðitímabilið 2008 í Rio Grande. Við eigum tvær stangir vikuna 22.-29. febrúar í Villa Maria, eina stöng í kombó Villa Maria-Toon Lesa meira
 
Dee Park 3

18.2.2008 : Frábær helgi í Dee

Það voru ánægðir veiðimenn á bökkum Dee um helgina þrátt fyrir að þurfa að brjóta klaka úr stangaraugunum við veiðar. Ánægjan var auðvitað vegna góðrar veiði. Heildarveiði helgarinnar va 11 fiskar, nokkuð í takt við síðustu viku, stærsti fiskurinn vó 11pund.  axelo@lax-a.is

 

 

Lesa meira
 
Santi_Villa_Maria_2

18.2.2008 : Sjóbirtingsveiði í Rio Grande

Árni Baldursson er við veiðar í Rio Grande, Toon Ken og Villa Maria og ætlar að koma með smá fréttir af gangi mála á hverjum degi. Hann byrjaði að veiða á laugardaginn og ætlum við að byrja fréttaflutninginn frá laugardeginum. Lesa meira
 
BLANDA04-07

15.2.2008 : Blanda sv. 1, 15-18 júní

Eigum frábært holl í Blöndu svæði 1 á frábærum tíma. Vegna forfalla eigum við fjórar stangur 15-18 júní lausar. Endilega hafið samband við arnar@lax-a.is til þess að fá Lesa meira
 
Tweed200726

15.2.2008 : Veiðimenn setja í 22 pundara í Dee

Fallbyssurnar fá varla að kólna á milli vakta í Skosku veiðiperlunni Dee. Þriðja daginn í röð(fimmtudag) veiðast fiskar yfir 20 pund, nú á svæði sem kallast Knappach. Á meðfylgjandi mynd má sjá veiðimann lýsa stærðarfisk sem hann missti eftir klst langa baráttu. 

axelo@lax-a.is

 

 

 

Lesa meira
 

14.2.2008 : Silungsveiði eins og hún gerist best - - með góðri laxavon

   

    Veiðisvæðið Árbót í Laxá í Aðaldal hefur um árabil stimplað sig inn hjá erlendum og íslenskum veiðimönnum sem eitt af bestu silungsveiðisvæðum landsins.  Þar er ofboðslega gaman að kasta flugu fyrir urriðann sem getur verið ansi harður í horn að taka.

    Góður möguleiki er á því við veiðar í Árbót að setja í vænan lax, en hann á það til að gefa sig nokkuð vel.  Það er afar sjarmerandi veiðihús við Árbót með 3- 2ja manna svefnherbergjum ásamt heitum potti úti á verönd og sjá menn alveg um sig sjálfir.

    Umhverfinu þarf vart að lýsa en þarna er mjög svo fjölskrúðugt fuglalíf sem gefur mjög ljúfann tón í eyra veiðimanna.

Við eigum til lausar stangir á góðum tíma í sumar, fyrstur kemur – fyrstur fær.

 

Lesa meira

 
dee209

14.2.2008 : Dee - miðvikudagur í fullu fjöri

    Það þarf ekki að hafa mörg orð um það, annan daginn í röð veiðist 23 pundari, núna kom hann á land við Kincardine, heildarveiði dagsins var 6 fiskar sem er í fínu jafnvægi við undanfarna daga.

axelo@lax-a.is

 

 

 

Lesa meira
 
Tay

14.2.2008 : Dee – 23 punda á land

   Það var aldeilis fjör á bökkum Dee á svæðunum hjá okkur hér í Lax-á seinnipart þriðjudags. 23 pundari, 18 pundari og 17 pundari,  allir silfurbjartir og grálúsugir, þvílík veiði þennan seinnipart.

axelo@lax-a.is

 

 

Lesa meira
 
Tweed

13.2.2008 : Stórlax í Dee- þriðjudag

 

Enn á ný veiðast stórir fiskar í hinni mögnuðu Dee, í gær landaði veiðimaður nokkur fallegum 17 pundara eftir langa og stranga baráttu. 

axelo@lax-a.is 

 

Lesa meira
 
Halla4

12.2.2008 : Laxveiði á besta tíma 20.-22. ágúst í Hallá

Ef þú vilt komast í laxveiði í Hallá á besta tíma þá eigum við lausar tvær stangir á tímabilinu 20.-22. ágúst. Hallá er stórskemmtileg lítil og nett á. Þarna má veiða á flugu Lesa meira
 
Dee Park 3

12.2.2008 : Veiðin í gær (mánudag) í DEE

Eftir að vatnið jókst til muna á föstudaginn vegna snjóbræðslu eru aðstæður núna að verða fullkomnar, vatnið er frábæri hæð og það spáir ekki rigningu næstu daga, þetta gæti ekki verið betra. Lesa meira
 
DEE

11.2.2008 : 42 pundari úr DEE í gær!!!!!!!!

Einhver varð verulega heppinn á miðvikudaginn í DEE neðri Blackhall. Það er sagt frá þessu á DEE heimasíðunni. Þeir verða ekki mikið stærri en þetta!!!, það eru greinilega Lesa meira
 
Blanda 2 mai ferð 3

8.2.2008 : Fullt um að vera á Agninu

Nú seinustu daga hefur verið sett mikið trukk í Agnið. Þessa viku og næstu verða sett inn glæsileg tilboð á hverjum degi. Nú þegar hafa verið sett inn 4 vorveiðitilboð, Lesa meira
 
2005,_largest_salmon_of_the_season_103_cm_web

7.2.2008 : Verður jafn góð byrjun á Íslandi og í Skotlandi?

Menn sem við tölum við í Skotlandi eru mjög ánægðir þessa dagana. Vorveiðin hefur farið óvenjuvel af stað á þeim svæðum sem eru á okkur vegum. Veiðin í neðri Crathes hefur verið frábær Lesa meira
 
Picture_090

6.2.2008 : Fín veiði þrátt fyrir kulda

Það er búið að vera fínn gangur í laxveiðiánni Dee á skotlandi þrátt fyrir að það sé búið að vera frekar kalt en á Mánudaginn Lesa meira
 
24 lbs from Toon Ken

5.2.2008 : Rio Grande nálgast topptíma

Argentína- Rio Grande nálgast nú topp tíma. Við eigum tvær stangir vikuna 22-29 febrúar, þetta er á miðjum besta tíma á Rio Grande Lesa meira
 
DEE200715

4.2.2008 : Flottur gangur í DEE

10 nýgengnir laxar náðust á land í dag í DEE, stærsti fiskurinn 27 pund frá neðri Blackhall, það var frábært dagur á neðri Crathes, Kare Lunduist og vinir náðu 4 Lesa meira
 
DEE

1.2.2008 : 27 pundara landað úr DEE

27 punda fiski var landað frá Lower Blackhall í morgun samkvæmt fishdee heimasíðunni Lesa meira
 
Dee Park 3

1.2.2008 : Skotland Dee

Dee opnaði í morgun en Lax-á leigir tvö veiðisvæði í Dee. Við fengum skilaboð strax kl 9.30 frá Káre Lundkvist sem er að veiða á Lower Crates og West durris um að fyrsti vorlaxin væri kominn Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arnor_isfjord_95cm1

31.8.2010 : Nokkrum stórum landað í Langadalsá

Við vorum að fá bréf frá Arnóri Ísfjörð stórveiðimanni sem hafði verið við veiðar í Landadalsá og gengið vonum framar. Þetta hafði hann að segja... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Langadalsa_2008_(8)

20.8.2010 : Langadalsá að taka við sér eftir þurrka - Talsvert af laxi í ánni

Það var kampakátur veiðimaður hinum megin á símalínunni hjá mér í morgun þegar ég var að ath með gang mála vestur í djúpi. Hann hafði verið ásamt félögum í 2 daga við veiðar og gengið svona líka ljómandi vel. Alls lönduðu þeir 22 löxum og misstu þónokkra, 10 af þessum löxum voru 10 pund eða stærri!! Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
IMGP1505

19.8.2010 : Bjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar

Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Ranga Ytri151

19.8.2010 : Haust Tilboð Hótel Rangá!!

Superior (standard) eins manns kr. 13.900.- Superior (standard) tveggja manna kr. 8.900.- á mann (kr. 17.800.- fyrir tvo) Morgunverðarhlaðborð er innfalið Kvöldverður (half board - 3 rétta) kr. 6.500.- á mann Hádegis-/kvöldverðir (full board) kr. 8.900.- á mann Lesa meira
 
Makrill

29.7.2010 : Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl

Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

29.7.2010 : Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Dadyr

28.7.2010 : Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?

Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tung601

28.7.2010 : Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum

Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna.  Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi.  Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar.  Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Selur

28.7.2010 : Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 9

8.7.2010 : Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

8.7.2010 : Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax

Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. Um er að ræða fiskeldisstöðina Viking Fjord en laxarnir sluppu úr kvíum sínum þegar verið var að leggja rör við hlið þeirra. Svo óheppilega vildi til að við þá vinnu rifnuðu netin í kvíunum og laxahjörðin slapp út í fjörðinn sem þær eru staðsettar í..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Hreindýr

15.6.2010 : Slegist um Hreindýr á Alþingi - Nýtt námskeið fyrir leiðsögumenn

Svandís Svavarsdóttir umhverfis ráðherra segir það vilja sinn að haldið verði námskeið fyrir hreindýraleiðsögumenn vorið 2011. Þá verða liðin tíu ár frá síðasta námskeiði. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði ráðherra um námskeiðshaldið á Alþingi í dag. Námskeiðið er haldið á vegum Umhverfisstofnunar sem frá 2001 hefur ekki talið þörf fyrir það..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Falki

15.6.2010 : Gallar á reglugerð? Of algengt að menn skjóti Fálka og Erni

Ríflega fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hér á landi hafa verið skotnir samkvæmt rannsókn Náttúrufræðistofnunar. Ernir og fálkar eru á válista og algjörlega friðaðir, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940. Stofnunin hefur rannsakað hræ friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum. Löggjöf um varðveislu og uppstoppun friðaðra fugla og verslun með þá sé gölluð og því erfitt að koma böndum á þessa ólöglegu iðju..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

14.6.2010 : Sviptingar á milli landshluta á Rjúpnastofninum

Rjúpnastofninn stækkar bæði og minnkar, eftir því hvar á landinu er talið. Samkvæmt talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpnastofninum má skipta landinu upp í tvo hluta. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er aukning í stofninum frá fyrra ári um 29% að meðaltali í samandregnum tölum.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skotid_a_skarf

14.6.2010 : Fjölgun Dílaskarfs – Vísbending um gott ástand átu

Dílaskörfum hér á landi hefur fjölgað samkvæmt nýlokinni árlegri talningu. Þegar reglubundnar talningar hófust árið 1994 var stofninn á niðurleið, en frá 1995 hefur honum fjölgað að meðaltali um nálægt 4% á hverju ári og eru hreiðrin nú alls 5250.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
joi_namibia

9.6.2010 : Í Afríku með Lax-á -Voru á Gull gripaveiðum á Rauðusöndum s.l. vor

Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni. Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

9.6.2010 : Júní veiðin byrjar af krafti í Litluá fyrir norðan

Veiðin í júní byrjar af krafti í Litluá. Steingrímur Friðriksson sem hefur verið iðinn veiðimaður í Litluá var í vikunni tvo dagparta við veiðar í ánni og fékk hann 10 fiska hvorn daginn. Setti hann í góða bleikjugöngu við klöppina á svæði 4 og tók þar nokkrar fallegar bleikjur í röð og þar af fjórar um 62 cm langar. Sagan í Litluá segir að júnímánuður er yfirleitt mjög góður og mikið um sjóbirting. Hér á árum áður þegar veiði hófst ekki fyrr en í byrjun júní, þá var ætíð mjög mikil veiði á þessum tíma.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Heklubyggd

7.6.2010 : Nýtt veiðihús hjá Lax-á

Lax-á hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en húsið er um 25km frá Hellu og 110km frá Reykjavík. Húsið er hægt að nota til dæmis með veiði í Galtalæk eða Ytri Rangá efra svæði,  en húsið fylgir ekki með veiðileyfum. Það þarf að panta það sér.

Lesa meira
 
2005,_largest_salmon_of_the_season_103_cm_web

4.6.2010 : Blanda 10. til 12. júlí

Ágætu veiðimenn, í tilefni Sjómannadagsins viljum við bjóða tvær stangir í Blöndu svæði 1 10. til 12. júlí (hád - hád) Lesa meira
 
Gudrun 4

26.5.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Spurning hvort þetta var heppni..?

Það hefur lítið farið fyrir veiðikonum hér hjá mér í spjallinu undanfarið. þær eru eflaust jafn margar og karlpeningurinn sem stunda veiðar og Guðrún S. Ólafsdóttir er ein af þeim. Hún er hörkuveiðimaður, bæði í stangveiði og skotveiði. Hér að neðan kemur hún inná maríulaxinn, Hreindýraveiðar og snilldar eldamennsku en einnig commentar hún á hvort kvennahollinn skilji eftir sig sömu sögurnar og karlahollinn..spennandi lesning.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarf 16 - 203 Kópavogur | s: 557 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar