Helstu fréttir

DEE

26.2.2007 : Það komu 17 laxar á land í síðustu viku

Veiðin fer batnandi með hverjum degi á Lower Grathes and West Durris í Dee á skotlandi. Það eru aðeins 4 stangir á svæðinu og afli síðustu viku var 17 Lesa meira
 
Blanda_lodge_7

23.2.2007 : Viltu vinna skemmtilegt starf í sumar?

Við leitum að staðarhaldara í eftirfarandi veiðihús næsta sumar:

Veiðihúsið við Blöndu, tímab. 1.júní – 10.ágúst.
Veiðihúsið við Víðidalsá, tímab. 15.júní – 28.sept.
Veiðihúsið við Miðfjarðará, tímab. 15.júní – 27.sept.

Lesa meira

 
DSC00018

23.2.2007 : Hér eru restarnar af Svartá í A-Hún

Okkur hefur gengið mjög vel að selja veiðileyfin í Svartá í A- Hún enda hreint ótrúlega skemmtileg laxveiðiá, sem er krefjandi, tæknileg Lesa meira
 
fyrsti laxin 2006

23.2.2007 : Opnunum seinkað fyrir Norðan

Nú er það ljóst að Miðfjarðará, Víðidalsá og Laxá á Ásum munu opna mun seinna en þær hafa gert undanfarin ár.

Miðfjarðará opnar 21 júní í stað 15 júní eða 6

Lesa meira

 
Jack White með 22 punda

21.2.2007 : Losnuðu óvænt 2 stangir 12-14 júní í Blöndu

Nú er Blanda nánast orðin uppseld enda ein af bestu laxveiðiám landsins og ein fárra laxveiðiáa sem gefa virkilega Lesa meira
 
BLANDA04-19

20.2.2007 : Jakaburður í Blöndu

MIKLIR skruðningar bárust frá Blöndu í Húnaþingi vegna jakaburðar í gærkvöldi. Ruddi áin sig með miklu afli og telst þetta óvenjulegt á þessum tíma árs ekki Lesa meira
 
Copy_DSC00013

20.2.2007 : Forfallastangir í Miðfjarðará 2007

Það er að verða ansi þröngt hjá okkur í Miðfjarðará á komandi sumri en Lesa meira
 
langholt

16.2.2007 : 50% afsláttur á laxveiðileyfum á netinu - www.agn.is

Veiðisvæði vikunnar er fimmfalt núna og er þar að finna Ytri Rangá efri svæði, Laugardalsá og Langadalsá - og hægt að fá laxveiðileyfi niður í 2.900.- kr



Veiðisvæði vikunnar á www.agn.is er eingöngu birt einu sinni og þá eina viku í senn og er ekki boðið upp á sömu á eða vatn oftar en einu sinni
og gildir tilboðið einungis ef veiðileyfi eru keypt beint af vefnum www.agn.is .

 

Nú halda þeir á agn.is áfram að setja inn hjá sér veiðisvæði vikunnar eins og svo margir nýttu sér í fyrra.

Lesa meira

 

16.2.2007 : Árni í Argentínu

Ég kom til Buenos Aires núna 11.febrúar, þetta er tólfta árið mitt í Argentínu og ég er alltaf jafn spenntur... Lesa meira
 
d

13.2.2007 : Rússland á tilboði á www.agn.is o.m.fl

Nú geta veiðimenn boðið í laxveiði í Rússlandi á agn.is bæði í ána Kola Kitza og Ponoi því við erum byrjuð með enn eitt tilboðið í Heita Pottinum okkar á agn.is   ....

Eins er veiðisvæði vikunnar fjórfalt núna á vefnum og laxveiðileyfi með veiðihúsi á 50% afslætti.

Eins má geta þess að þeir sem hafa verið að bíða eftir að kaupa silungsveiðileyfi í vorveiðina í Brúará þurfa ekki að bíða lengur því allir lausir dagar eru nú komnir inn á vefinn.

Kveðja..  www.Agn.is

Lesa meira

 
tungu1

13.2.2007 : 196 laxar veiddust í Tungufljóti sumarið 2006.

Laxveiðiperla að fæðast.....þetta veiðisvæði hefur verið í ræktun síðustu 3 ár þar sem seiðasleppingar hafa tekist með eindæmum vel og því spennandi að sjá hvernig tekst til í ár. Lesa meira
 
1

12.2.2007 : Besti tími í Blöndu var að losna – 4 stangir í lok júlí.

Fjórar stangir voru að losna í Blöndu á besta tíma, frá hádegi 25.júlí til hádegis 31.júlí en þetta er ein besta vika sumarsins. Þessar stangir eru á svæði 1 og 2 sem eru bestu svæðin í Blöndu. Þessar stangir eru með fullri þjónustu í nýju og glæsilegu veiðihúsi við Blöndu, ofarlega svæði 2. 

Nánari upplýsingar og bókanir í gegnum lax-a@laxa-.is og elfa@lax-a.is og í síma 557 6100

 

Lesa meira

 
DEE

12.2.2007 : Lausar vikur í Dee í Skotlandi - Lower Crathes / West Durris

Það eru tvö laus holl í Lower Crathes / West Durris í DEE í Skotlandi. 2 stangir í fyrstu vikunni í mars og 2 stangir í annarri vikunni í mars. Mars hefur verið besti mánuðurinn síðustu ár á Lower Crathes / West Durris svæðinu. Lesa meira
 
Vetur 2007 6

9.2.2007 : Frábært vetrartilboð í Eldvatn

Í febrúar og mars er Eldvatnið á tilboði, 50% afsláttur….ekki missa af því. Um síðustu helgi var frábært veður og þessar myndir sanna að ferð útúr bænum á veturna eru ekki síðri en á sumarferðir. Einstök náttúrufegurð sem nærir sálina..... Lesa meira
 
agnminniforweb

8.2.2007 : Veiðisvæði vikunnar tvöfalt þessa vikunna á www.agn.is !!

Nú er komið að því að birta á www.agn.is okkur dagana 26. júní - 1. júlí  þar sem við bjóðum 50% afslátt, dagana 3. – 8. júlí þar sem við bjóðum 30% afslátt og dagana 15. – 20. júlí þar sem við bjóðum 20% afslátt í laxveiði ásamt glæsilegu veiðihúsi í Hallá.

Einnig ætlum við.... Lesa meira

 
Langadalsa_01_HakanSteenlun

8.2.2007 : Langadalsá að verða uppseld 2007 á www.agn.is

Örfáir dagar eru lausir í Langadalsá og er hægt að sjá þá örfáu daga sem enn eru lausir á vefnum www.agn.is

Um er að ræða góðan kost til að þjappa saman fjölskyldu- og/eða vinahópum. Sú nýbreytni er að eingöngu er veitt á flugu allt tímabilið. Langadalsá er frábær fluguá.

Lesa meira

 
IMG_3568

8.2.2007 : Laxá í Dölum – aðeins 3 dagar óseldir í Dölunum

 Í  Laxá í Dölum frá hádegi 14.júlí til hádegis 17.júlí eru allt hollið laust eða 6 stangir.

 Bókanir og upplýsingar: Árni Baldursson  í síma 557 6100 eða arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
Hús í baksýn

7.2.2007 : Laxá á Ásum - Lausir dagar í sumar

Í þessari fallegu fluguveiðiá eru eftirtaldir dagar lausir:

8.júlí til 11.júlí – 2 stangir lausar

11.júlí til 13.júlí – 2 stangir lausar

27.júlí til 28.júlí – 2 stangir lausar

30.júlí til 2. ágúst – 2 stangir lausar

6.ágúst til 8.ágúst – 2 stangir lausar

15. til 20. ágúst – 2 stangir lausar

 

Bókanir og upplýsingar: Árni Baldursson í síma 557 6100 eða arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
492049-R1-01-23

7.2.2007 : Miðfjarðará – lausar stangir sumarið 2007

Það er mikið bókað fyrir sumarið en þessar stangir eru til:

21. júní til 27. júní - 4 stangir lausar.
30. júní til 6.  júlí - 2 stangir lausar.
6. júlí til 12. júlí - 4 stangir lausar.
15. júlí til 21. júlí  - 2 stangir lausar.
5.  ágúst til 8. ágúst - 1 stöng laus.
16. ágúst til 20. ágúst - 1 stöng laus.
23.ágúst til 29. ágúst - 4 stangir lausar.
16. september til 22. september - 3 stangir lausar.


Bókanir og upplýsingar: Árni Baldursson  í síma 557 6100 eða arnibald@lax-a.is

 

Lesa meira

 
Bill Anderson  og sonur  Ytri Rangá

5.2.2007 : Ytri Rangá á 50% afslætti í netsölu

Nú er hægt að kaupa veiðileyfi í Ytri Rangá eða aflahæstu veiðiá landsins á netinu á 50% afslætti. Einnig bjóðum við upp á 50% afslátt á Tannastaðatangann í netsölu á www.agn.is

Ath ! að afsláttur er eingöngu veittur ef veiðileyfi eru keypt á netinu. Skoði betur á veiðisvæði vikunnar á www.agn.is

Lesa meira
 

5.2.2007 : Catch a day or two

Make the most of your fishing trip! Extend your stay a few days either beforeit or after your fishing and take a memorable tour in a 4x4 luxury super truck. We offer a personalized tour with knowledgeable and experienced driver-guide to see the beautiful sights in Iceland either on “the way to” or “the way back” from your fishing lodge. There is plenty to see and explore, and we can plan a customized tour that will meet your needs and interest for a day or as many days as you like.

For further information please contact Elfa Dröfn Jónsdóttir, elfa@lax-a.is or lax-a@lax-a.is. Tel: +354 557-6100, Fax: +354 557-6108

Lesa meira
 
Holtavörðurheiði

5.2.2007 : Vetrareftirlit í veiðihús

Það var ekki vetrarlegt fyrir norðan í síðustu viku þegar ég heimsótti veiðihúsin í Víðidal og veiðihúsið við Blöndu í Langadal. Í veiðihúsinu í Víðidal eru fyrirhugaðar breytingar og voru teikningar skoðaðar og farið yfir málið með landeigendum.  Yndislegt að komast í veiðihúsið og eftirvænting vegna komandi sumars lét á sér kræla........ Lesa meira
 
DEE

3.2.2007 : Dagur 2 í Dee

Á föstudaginn var kaldara en á opnunardaginn. Hitinn var um 6° stig, sólskin og smá vindur…og aðstæður ágætar. Göngur af nýgengnum fiski og á opnunardaginn veiddust að minnsta kosti 27 nýgengnir laxar, og þá eru ekki öll svæði talin með en fréttir áttu eftir að berast frá öllum svæðum. Á föstudeginum lönduðum við 2 löxum á Lower Crathces/West Durres.  Lesa meira
 
DEE

2.2.2007 : Opnunin í Dee

Það var yndislegt veður hér í Skotlandi við ána Dee á fyrsta degi febrúarmánaðar en það er einnig opnunardagurinn í ánni. Veðrið var milt, sólskin,10 stiga hiti og skilyrðin í ánni fullkomin.....eiginlega of fullkomin, vatnið var 44 stig á Farenheit og lax ferðast hratt upp ána og staldraði varla við á lægri veiðistöðum Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arnor_isfjord_95cm1

31.8.2010 : Nokkrum stórum landað í Langadalsá

Við vorum að fá bréf frá Arnóri Ísfjörð stórveiðimanni sem hafði verið við veiðar í Landadalsá og gengið vonum framar. Þetta hafði hann að segja... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Langadalsa_2008_(8)

20.8.2010 : Langadalsá að taka við sér eftir þurrka - Talsvert af laxi í ánni

Það var kampakátur veiðimaður hinum megin á símalínunni hjá mér í morgun þegar ég var að ath með gang mála vestur í djúpi. Hann hafði verið ásamt félögum í 2 daga við veiðar og gengið svona líka ljómandi vel. Alls lönduðu þeir 22 löxum og misstu þónokkra, 10 af þessum löxum voru 10 pund eða stærri!! Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
IMGP1505

19.8.2010 : Bjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar

Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Ranga Ytri151

19.8.2010 : Haust Tilboð Hótel Rangá!!

Superior (standard) eins manns kr. 13.900.- Superior (standard) tveggja manna kr. 8.900.- á mann (kr. 17.800.- fyrir tvo) Morgunverðarhlaðborð er innfalið Kvöldverður (half board - 3 rétta) kr. 6.500.- á mann Hádegis-/kvöldverðir (full board) kr. 8.900.- á mann Lesa meira
 
Makrill

29.7.2010 : Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl

Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

29.7.2010 : Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Dadyr

28.7.2010 : Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?

Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tung601

28.7.2010 : Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum

Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna.  Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi.  Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar.  Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Selur

28.7.2010 : Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 9

8.7.2010 : Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

8.7.2010 : Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax

Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. Um er að ræða fiskeldisstöðina Viking Fjord en laxarnir sluppu úr kvíum sínum þegar verið var að leggja rör við hlið þeirra. Svo óheppilega vildi til að við þá vinnu rifnuðu netin í kvíunum og laxahjörðin slapp út í fjörðinn sem þær eru staðsettar í..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Hreindýr

15.6.2010 : Slegist um Hreindýr á Alþingi - Nýtt námskeið fyrir leiðsögumenn

Svandís Svavarsdóttir umhverfis ráðherra segir það vilja sinn að haldið verði námskeið fyrir hreindýraleiðsögumenn vorið 2011. Þá verða liðin tíu ár frá síðasta námskeiði. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði ráðherra um námskeiðshaldið á Alþingi í dag. Námskeiðið er haldið á vegum Umhverfisstofnunar sem frá 2001 hefur ekki talið þörf fyrir það..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Falki

15.6.2010 : Gallar á reglugerð? Of algengt að menn skjóti Fálka og Erni

Ríflega fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hér á landi hafa verið skotnir samkvæmt rannsókn Náttúrufræðistofnunar. Ernir og fálkar eru á válista og algjörlega friðaðir, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940. Stofnunin hefur rannsakað hræ friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum. Löggjöf um varðveislu og uppstoppun friðaðra fugla og verslun með þá sé gölluð og því erfitt að koma böndum á þessa ólöglegu iðju..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

14.6.2010 : Sviptingar á milli landshluta á Rjúpnastofninum

Rjúpnastofninn stækkar bæði og minnkar, eftir því hvar á landinu er talið. Samkvæmt talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpnastofninum má skipta landinu upp í tvo hluta. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er aukning í stofninum frá fyrra ári um 29% að meðaltali í samandregnum tölum.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skotid_a_skarf

14.6.2010 : Fjölgun Dílaskarfs – Vísbending um gott ástand átu

Dílaskörfum hér á landi hefur fjölgað samkvæmt nýlokinni árlegri talningu. Þegar reglubundnar talningar hófust árið 1994 var stofninn á niðurleið, en frá 1995 hefur honum fjölgað að meðaltali um nálægt 4% á hverju ári og eru hreiðrin nú alls 5250.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
joi_namibia

9.6.2010 : Í Afríku með Lax-á -Voru á Gull gripaveiðum á Rauðusöndum s.l. vor

Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni. Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

9.6.2010 : Júní veiðin byrjar af krafti í Litluá fyrir norðan

Veiðin í júní byrjar af krafti í Litluá. Steingrímur Friðriksson sem hefur verið iðinn veiðimaður í Litluá var í vikunni tvo dagparta við veiðar í ánni og fékk hann 10 fiska hvorn daginn. Setti hann í góða bleikjugöngu við klöppina á svæði 4 og tók þar nokkrar fallegar bleikjur í röð og þar af fjórar um 62 cm langar. Sagan í Litluá segir að júnímánuður er yfirleitt mjög góður og mikið um sjóbirting. Hér á árum áður þegar veiði hófst ekki fyrr en í byrjun júní, þá var ætíð mjög mikil veiði á þessum tíma.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Heklubyggd

7.6.2010 : Nýtt veiðihús hjá Lax-á

Lax-á hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en húsið er um 25km frá Hellu og 110km frá Reykjavík. Húsið er hægt að nota til dæmis með veiði í Galtalæk eða Ytri Rangá efra svæði,  en húsið fylgir ekki með veiðileyfum. Það þarf að panta það sér.

Lesa meira
 
2005,_largest_salmon_of_the_season_103_cm_web

4.6.2010 : Blanda 10. til 12. júlí

Ágætu veiðimenn, í tilefni Sjómannadagsins viljum við bjóða tvær stangir í Blöndu svæði 1 10. til 12. júlí (hád - hád) Lesa meira
 
Gudrun 4

26.5.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Spurning hvort þetta var heppni..?

Það hefur lítið farið fyrir veiðikonum hér hjá mér í spjallinu undanfarið. þær eru eflaust jafn margar og karlpeningurinn sem stunda veiðar og Guðrún S. Ólafsdóttir er ein af þeim. Hún er hörkuveiðimaður, bæði í stangveiði og skotveiði. Hér að neðan kemur hún inná maríulaxinn, Hreindýraveiðar og snilldar eldamennsku en einnig commentar hún á hvort kvennahollinn skilji eftir sig sömu sögurnar og karlahollinn..spennandi lesning.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarf 16 - 203 Kópavogur | s: 557 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar