Helstu fréttir

PICT1338

31.7.2006 : Alvöru húkk

Það er mikið af skrautlegum sögum sem að maður heyrir af hinum og þessum veiðimönnum, það eru ótrúlegustu hlutirsem að gerast og til dæmis lenti þessi í því að húkka sjálfan sig all rækilega. Lesa meira
 
DSC01185

31.7.2006 : Mikil uppsveifla í Ytri Rangá

Ytri Rangá er að gera mjög góða hluti þessa dagana og er veiðinn alltaf að aukast, í gær til dæmis komu 53 laxar í heildina og í morgun fyrir hádegi komu 46 á land, það er mikil gleði meðal veiðimanna enda ekki annað hægt en að vera kátur þegar það gengur svona vel, það eru stórar göngur búnar að vera koma í ánna síðustu daga og Lesa meira
 
Picture_642

31.7.2006 : Vænar bleikjur í Brunná

Hópur vaskra veiðimanna frá Akureyri var við veiðar í Brunná í Öxarfirði fyrr í mánuðinum og voru þeir í sjöunda himni, enda veiðin góð og fiskarnir pattaralegir. Valdemar Friðgeirsson var einn veiðimannanna og hann sagði bleikjurnar sem hópurinn veiddi sérlega skemmtilegar. „Við fengum mikið af þriggja og fjögurra punda bleikjum sem voru vel yfir 50 sentímetrar að lengd. Við náðum einnig nokkuð af urriða og hann var..... Lesa meira
 
Tjarnarbrekka_3

31.7.2006 : Mistök í talningu

Það var talinn vitlaust fjöldi veiddra laxa í Víðidalsáþegar veiðitölur voru birtar í síðustu viku, fjöldi veiddra laxa er 275 en ekki 403, biðjumst við velvirðingar á þessu. Lesa meira
 
DSC00075

31.7.2006 : Glæsileg byrjun í Tungufljóti

Tungufljót í Biskupstungum opnaði í gær formlega og er þetta þetta fyrsta árið sem við reynum veiði eftir tilraunasleppingar á laxaseiðum. Í gær mættu fyrstu veiðimennirnir og fengu 3 laxa 14 pund o Lesa meira
 
Arni.

31.7.2006 : Lausar stangir á næstunni

Laugardalsá: - Ytri Rangá: - Eystri Rangá: - Miðfjarðará: -  Víðidalsá: - Laxá á Ásum: - Brynjudalsá: - (fáanlegt á www.agn.is)

 

Einnig eru margir kostir sem hægt er að skoða á www.agn.is og svo minnum við á efri svæði Ytri Rangár eins og Guttlfossbreiðu o.fl. sem opnar nú 1. ágúst

Lesa meira
 

30.7.2006 : Fengu sex laxa í Reykjadalsá í Borarfirði

Menn sem voru að veiðum í Reykjadalsá í Borgarfirði dagana 18.-20. júlí fengu sex laxa. Fiskarnir vógu allir 5-6 pund. Það er ánægju efni að laxarnir séu farnir að gefa sig þar enda um stórskemmtilega á að ræða. Lesa meira
 
WRANGA04_60

30.7.2006 : Af Korpu og Leirvogsá.

Af Korpu er það að frétta að á land eru komnir 106 laxar 30 sjóbirtingar. Fínir veiðidagar voru fyrir helgi en hægst hefur á í blíðviðrinu. Fimm laxar fengust í gær sem er ekki slæmt á tvær stangir. Lesa meira
 
DSC01185

29.7.2006 : Veiðileyfaframboð í Ágúst

Nokkuð góður gangur er í Laxveiðinni þessa stundina virðist sem áframhildið sé að lofa góðu. Nú erum við nánast uppseld alla næstu daga en við eigum bæði frábæra daga í Miðfjarðará um miðjan ágúst og einnig í Ytri Rangá.

Lesa meira

 
100_0417

29.7.2006 : Flottar göngur í Ytri Rangá

Það voru rosalegar göngur í gegnum teljarann við Ægisíðufoss í nótt og fyrranótt en tæplega 400 laxar brunuðu í gegnum svæðið og upp teljarann, Nú eru 1300 laxar komnir upp fyrir Ægisíðufoss. Laxinn Lesa meira
 
ROLL2049

28.7.2006 : Efri svæðin í Ytri Rangá

Nú þann 1 Ágúst munu efri laxasvæðin í Ytri Rangá opna en þau eru Guttlfossbreiða sem nær frá Árbæjarfossi upp að Gutlfosstjörn, Bjallalækur sem nær frá geldingarlækjarós upp að Höfðalæk Lesa meira
 
Hellisfoss_5_web

27.7.2006 : Hvannadalsá

Það er góður gangur í Hvannadalsá þessa dagana, töluvert er að laxi sem er að ganga. Það voru tveir Írar að ljúka 3 daga Lesa meira
 
Langadalsa_03_HakanSteenlun

27.7.2006 : Systurnar í Ísafjarðardjúpi

Nú hefur verið mikil veðurblíða í Ísafjarðardjúpinu, veiðimenn hafa verið í góðu yfirlæti í sól og heiðskýrum himni, veiðin hefur verið þokkaleg og er Laugardalsáin með 116 veidda laxa og síðasta 3 daga holl fékk 15 laxa en sagði að sólin hefði verið ansi mikil Lesa meira
 
100_0433

27.7.2006 : Frábær vika í Ytri Rangá

Nú liggja fyrir veiðitölur úr ánum okkar fyrir síðustu viku og eru þær misgóðar breytingarnar sem hafa orðið, en allra bestu tölurnar hafði Ytri Rangá og Hólsá saman en þar veiddust alls 503 laxar á einni viku og er nú með heildartöluna 944, næst á Lesa meira
 
Hafralonsa3September-2002 026

27.7.2006 : Árbót

Laxá í Aðaldal er búin að vera ágæt það sem af er af tímabilinu og eru menn frekar bjartsýnir með Laxánna en hún er nú orðin að fluguveiðiá og hefur það færst í aukana að menn sleppi stórlöxunum Lesa meira
 
ER Aug 2005 e

27.7.2006 : Eystri Rangá

Það gengur allveg ágætlega í Eystri Rangá og að verða reitingur á flestum svæðum í ánni. Samt er svæði 1 öðrum fremur síðustu daga og hefur hátt helmingur dagsaflans verið að fást þar. Síðustu dagar hafa verið Lesa meira
 
Copy_DSC00022

25.7.2006 : Miðfjarðará

þokkalegur gangur er í Miðfjarðará þessa stundina, það eru að veiðast ca 15-25 laxar á dag svo veiðimenn eru bara kátir. leiðsögumennirnir segja að aðstæður séu ekki allveg búnar að Lesa meira
 
Hilmar-5

24.7.2006 : Fín veiði í Langadalsá

Veiðimenn í Langadalsá sem eru búnir að vera þar núna í 3 daga sögðu að það væru öll svæði inni, það er fiskur að ganga en smálaxinn er frekar rýr en inn á milli eru góðir fiskar, þeir eru komnir með 25 laxa eftir Lesa meira
 
A_beauty_from_West_Ranga

24.7.2006 : Mokveiði í Hólsá

Síðustu dagar í Hólsá hafa verið hreint ótrúlegir en það veiddust 115 laxar á laugardag og sunnudag, á aðeins 4 stangir Lesa meira
 
4736

24.7.2006 : Frábær veiði í Hólsá

Nú hefur vesturbakkinn á Hólsá verið að gefa á milli 20 – 30 laxa á dag og virðist ekkert lát vera þar á. Menn eru búnir að gera frábæra veiði þar undanfarið.

Hér að neðan eru myndir sem við fengum sendar af dagsafla hjá veiðimönnum sem voru þar að veiða um daginn.

Lesa meira

 
ROLL1040

24.7.2006 : Góð veiði í Ytri Rangá um helgina

Nú iðar allt af lífi í Ytri Rangá og er mikið af fisk að ganga. Það veiddist vel um helgina, það komu 42 á föstudaginn, 42 á laugardaginn og 30 á sunnudaginn, og eru komnir tæplega 900 laxar í gegnum teljarann í Ægisíðufossi, nú er Ytri áin að sýna góða takta og er ekki von á neinu öðru en góðu framhaldi.

Það voru að forfallast 3 stangir 3 - 5 ágúst

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá steinar@lax-a.is

Lesa meira

 
DSC00075

21.7.2006 : Laxinn mættur í Tungufljótið

Nú eru laxar byrjaður að stökkva í Tungufljóti og verður gaman að sjá hjvernig gengur með nýja laxveiðisvæðið þar upp frá.

Við eigum von á að það veiðist um 3 – 4 hundruð laxar þar í sumar miðað við að sleppt var í það 34 þúsund seiðum í fyrra....

Lesa meira
 
BLANDA04-09

21.7.2006 : 27 laxar í Blöndu á fyrri vaktinni í dag og Laxá á Ásum komin á skrið

Vel gengur í Blöndu núna og eru miklar göngur á hverri nóttu. Í morgun komu 27 laxar á land í Blöndu. Í Laxá á Ásum komu 30 laxar á land á 2 stengur í 3 daga holli sem var að enda núna. Lesa meira
 
Myndadiskur-2004-146

21.7.2006 : Silungasvæðið í Svartá

Maður nokkur hringdi á skrifstofu Lax-á og tilkynnti það að silungasvæðið í Svartá væri frábært því áin væri full af fiski.

Hann fór í gær og fékk 8 fallegar bleikjur og missti þó nokkuð. Stærðin var á bilinu 1,5 pund – 4 pund og sagði hann að þetta væri skemmtilegar bleikjur og fallegar.

Lesa meira

 
Fjolskyldumynd

20.7.2006 : Laugardalsá komin á flott skrið

veiðimenn sem voru að klára tveggja daga holl í Laugardalsá fengu bong og blíðu og mjög fína veiði, þeir lönduðu 13 löxum í heildina og hollið á undan þeim gaf 26 laxa. Það er fullt af fisk út um alla á og bullandi Lesa meira
 
DSC00026

20.7.2006 : Selá í Vopnafirði

Nú er veiðin komin á stað í einni af mestu laxveiðiperlum Íslands og er heildartalan í ánni kominn upp í 390 veidda laxa. Lesa meira
 
fyrsti laxin 2006

20.7.2006 : Laxá á Ásum

Okkur bárust fregnir af veiðmönnum sem eru að veiða í Laxá á Ásum og hefur veiðin hjá þeim gengið mjög vel, þeir lönduðu 18 löxum á einum og hálfum degi á aðeins Lesa meira
 
DSC00054

20.7.2006 : Ferjukotseyrar

Ferjukotseyrar er veiðisvæði á vesturbakka Hvítár í Borgarfirði um 85km frá RVK. Nú er þetta svæði sem nær frá brú upp að veiðimörkum Struma og gefur þessi staður oft vel þegar fiskur er að ganga, þessi staður er oftast uppseldur á vorin því þarna er um að ræða mjög ódýr veiðileiðileyfi, við heyrðum frá veiðimönnum sem voru þarna  Lesa meira
 
1

20.7.2006 : Góður morgun í Blöndu

Það var hin fínasta veiði í Blöndu núna í morgun og voru veiðimenn mjög ánægðir með útkomuna, það veiddust alls 21 lax og eins og oft kemur fyrir misstu þeir nokkra líka. Veiðin í Blöndu Lesa meira
 
londun

19.7.2006 : Lausar stangir í Miðfjarðará á silungasvæðinu

Vegna forfalla er hægt að fá stangirnar 3 í tvo daga á afslætti á silungasvæðið í Miðfjarðará dagana 25. & 26. júlí.

Upplýsingar gefur Stulli í síma 694 – 6311

Lesa meira
 
DSC01119

19.7.2006 : Veiðitölur úr Rangánum 18. júlí

Ytri Rangá er með 340 veidda laxa, Eystri áin er heldur seinni af stað og er með 130 veidda laxa og þar af komu 8 eftir hádegi í dag. Hólsáin er að fara framm úr öllum vonum og komu 27 laxar þaðan á land í dag.

Lesa meira

 
405173A

18.7.2006 : 22 Punda lax veiddist í kvöld í Blöndu á svæði 2 !!!

Nú um klukkan sjö í kvöld veiddi Bandaríkjamaður að nafni Jack White hvorki meira né minna en 22 punda lax í Svarthyl í Blöndu á svæði 2
og er þetta er án efa þyngsti lax sumarsins.

Laxinn veiddist á flugu eða nánar tiltekið á Sunshine Hitch túpu Nr. 14 og tók viðureignin.....

Lesa meira

 
13-6-2002-8044

18.7.2006 : Lausar stangir á næstunni

Hér eru síðustu lausu stangirnar í júlí frá Lax-á.

Það hefur borið svolítið á forföllum hjá okkur þetta sumarið og er það bara öðrum í hag þar sem hægt er að fá holl. Daga , eða hálfa daga ( stubba )..

Lesa meira

 
DSC00400

18.7.2006 : Norðurá í Skagafirði á 50% afslætti næstu vikuna á www.agn.is

Nú er Norðurá í Skagafirði á 50% afslætti hjá okkur næstu vikuna .

Í Norðurá í Skagafirði eru leyfðar 6 stangir og veiðisvæðið í Norðurá í Skagafirði nær frá ós við Héraðsvötn að brú á þjóðvegi 1 við Heiðarsporð.

 

Athugið að afsláttur gildir eingöngu ef veiðileyfi eru keypt á vefnum www.agn.is   

Lesa meira

 
Halla_05_HakanSteenlund_200

18.7.2006 : Þó nokkuð af fiski í Hallá

Við fengum skemmtilegar myndir frá feðgum sem voru að veiða í Hallá núna fyrir stuttu og gerðu þeir fína veið þar. Þeir fengu 10 fiska á tveim dögum í Hallá og þ.a.m. einn 11 punda lax.

Þeir sögðu að laxar væru að ganga inn núna í Hallá á hverjum degi.

 

Hér að neðan eru myndir sem þeir feðgar sendu okkur.

Lesa meira

 
Halla4

18.7.2006 : 24 laxar úr Hallánni

Hann Alli á Blönduósi hringdi og það eru komnir 24 Laxar og 4 urriðar úr Hallánni. Hann leit einning niður í Kjalarlandsfoss og þar sem lágu 8 stykki.

Lesa meira

 
DSC00039

17.7.2006 : Tvær stangir losnuðu óvænt í Straumunum á Prime Time

Vegna forfalla losnuðu tvær stangir í Sraumunum dagana 24. – 25. júlí eða á Prime Time svokölluðum.

Straumarnir hafa verið eitt vinsælasta veiðisvæðið hjá Lax-á enda er um stór skemmtilegt veiðisvæði að ræða þ.s. fylgir auðvitað veiðihús.

 

Vel hefur veiðst í Starumunum síðustu ár, og er engin ástæða til að ætla að það verði breyting þar á í ár.

 

Áhugasamir sendi póst á agust@fuglnefiskur.is

Lesa meira
 
Vididalsa_8-10_sept_05_011_17_pund

17.7.2006 : Hafralónsá í Öxarfirði

Nú voru okkur að berast fréttir frá Hafralónsá og eru þær nokkuð fínar. þar eru komnir 60 laxar total á land og þar af fengust 12 í síðasta holli.

steinar@lax-a.is

Lesa meira

 
DSC01587

17.7.2006 : 23 laxar fyrir hádegi í Hólsá

Það voru rosalegar göngur í morgun á Vesturbakka Hólsá en þeir sem voru að veiða fengu 23 Laxa fyrir hádegi í morgun, svo núna seinnipartin ætti gangan Lesa meira
 
BLANDA04-07

17.7.2006 : Blanda sv. 3

Sæll Stefán.
Sendi þér hérna smá "report" upp á grín.
Fórum í Blöndu 3 um helgina og gistum í gamla kofanum á Móbergi. Það var allt í góðu þegar búið að var að "rútta" aðeins til húsgögnum.
Ferðin var frábær og lentum strax í fiski. Náði 13 punda á rauða litla Frances keilu strax á föstudagskvöldið  (st. 310) og tókum svo tvo 8 punda á flugu og maðk strax á laugardagsmorgunn (st. 295)  og svo 5 pundari í kjölfarið á maðk (st. 310)
Svo kom 9 punda upp úr Skurðinum (st. 610)  á flugu eftir hlé á laugardaginn og svo einn putti 4-5 pund á laugardagskvöldið á maðk (st. 440).  Við feðgar fengum 6 laxa á okkar stöng og misstum einn, en það kom enginn lax á hina stöngina því miður.  Það kom þó ekki að sök því þeir komust í einn dag niður á 1. sv. (keyptu sér bara dýrara leyfi til að komast í fisk) og náðu 7 löxum á tveimur vöktum.  

Þökkum kærlega fyrir okkur, og hér með legg ég inn pöntun fyrir sömu helgi, 13.-15. júlí 2007 báðar (allar) stangirnar. Lesa meira
 

17.7.2006 : Blanda í góðum gír

Það er búið að vera frábær veiði að undanförnu í Blöndu og hollið sem var að hætta þann 15 júlí var með 88 laxa, sem er bara frábær veiði á Lesa meira
 
acha_24_1

17.7.2006 : Veiðifréttir frá Ponoi.

Steffen Juhl er kominn til Svíþjóðar frá Rússlandi , hann kemur til Íslands eftir nokkra daga. Steffen hringdi í okkur í gærkvöldi með veiðifréttir frá síðustu viku frá Ponoi. Mjög mikil veiði og töluvert af stórlaxi í aflanum, frá 15 og upp í yfir 20 pund. Hæsta stöngin landaði 73 löxum á vikunni!! Allur aflinn tekinn á flotlínu , besta flugan Hitch Tuba og Bomber. Arni arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
tanz17

15.7.2006 : Við Fórum Til veiða Til Tanzaníu / Afríku.

Við fórum í frábæra skot veiðiferð til Tanzaníu í Afríku. Við vorum í 10 daga í veiði frá 1 Júlí til 10 Júlí og var hver dagur uppfullur af spennandi og skemmtilegum augnablikum. Smellið á LESA MEIRA til að sjá myndirnar. Arni arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 1

15.7.2006 : Topp klassa veiði í næstu viku !

Það hafa forfallast hjá okkur stangir í þremur hágæða laxveiðiám í næstu viku.

Við erum að tala um:

Blanda sv 1 og 2. 18 - 20 júlí ( ein stöng)

Laxá á Dölum 18 - 21 júlí (stöng laus)

Ytri Rangá 16 - 18 júlí (ein söng laus)

frekari pplýsingar gefur Steinar, steinar@lax-a.is

Lesa meira

 
Laugardalsa1

15.7.2006 : Mokveiði í Laugardalsá!!!

Síðasta þriggja daga holll í Laugardalsá endaði svo sannarlega vel og fóru veiðimenn heim með 18 veidda laxa og allmarga missta, nú er áin komin í heildina upp í 50 laxa og virðist sem að veiðin sé hafin af alvöru núna.

Lesa meira

 
File0005

14.7.2006 : Frétt frá Staðará á Snæfellsnesi

Við heyrðum frá veiðimanni sem var að veiðum í Staðará og hann fékk 4 laxa á fjórum klukkutímum og fylgdi það sögunni að nóg væri af lax á svæðinu. Það þýðir að öllum líkindum að laxinn sé mættur í vatnasvæði lýsu á snæfellsnesinu.

Við eigum eithvað af lausum stöngum í lýsuna í júlí.

Frekari upplýsingar gefur steinar, steinar@lax-a.is eða í síma 5576100

Lesa meira

 
DSC00016

14.7.2006 : Miðfjarðará

Það er svona þokkalegur gangur í Miðfjarðará þessa stundina en ekki jafn mikill kraftur og var í fyrra. Það komu 9 laxar á land í gær og heildartalan er að nálgast 140 laxa. Veiðimenn sem voru að veiða í gær lentu i miklu Lesa meira
 
DSC00106

14.7.2006 : Ytri Rangá

Það er brjálað veður þessa stundina í Ytri Rangá en menn eru samt að fá hann í vonda veðrinu. veiðin er svona aðeins að lifna og fengust 15 laxar í gær.

Nú eru komnir 170 laxar í gegnum teljarann

Lesa meira

 
Good_day_for_fishing_-_web

14.7.2006 : Nú er tímabært að bóka veiðina í Kúbu fyrir tímabilið 2007

Hér fyrir neðan eru lausar vikur á prime time fyrir Tarpon veiðar á Kúbu 2007.

Jardines de La Reina - Báturinn Halcon

3-9 Mars

12-18 maí

19-25 maí

16-22 júní

Isla de la Juventud - báturinn Perola

24-31 mars

31 mars - 7 apríl

19-26 maí

26 maí - 2 júní

Hafið samband við Árna Baldursson fyrir frekari upplýsingar í síma 5576100 eða í gsm sem er 8927146 arnibald@lax-a.is

Lesa meira

 
DSC00726

13.7.2006 : Veiðifréttir frá Kola ánni.

Heill og sæll kæri félagi !
Nú erum við komnir til baka eftir ævintýralega ferð og veiðviku í KOLA.
All gekk þetta mjög vel, og við höfum sjaldan átt eins góðar stundir
í veiði saman, eins og þessa. Algjört ævintýri og upplifun.
Allur viðgjörningur var eins og best verður á kosið og fólkið allt mjög
vingjarnlegt og vildi allt fyrir okkur gera á sem bestan hátt. Maturinn
var vel við hæfi, og súpa dagsins (í hádeginu) var alltaf tilhlökkunarefni.
Gædarnir okkar þ.e. Gena hjá Shackelton og Sasha hjá mér, voru
til fyrirmyndar og viljugir svo af bar. Helst var að Sasha talaði mjög
takmarkaða ensku, en okkur tókst vel að skilja hvern annan.
Fyrstu dagana var verðrið heitt og mikil sól en tvo síðustu dagana
rigndi látlaust og áin hækkaðu um vel rúman meter !
Við fengum samtals 23 laxa í það heila, - missum ótal risabolta og
aðra smærri. Fékk sjálfur 3 stóra og þar af einn yfir 15 kg (yfir 30 pund).
Alla mína laxa fékk ég á "hitch" - litla svarta collie dog túpu.  Sama var
að segja um Shackleton, hann veiddi alla sína á sömu túpu.
Heimferðin okkar gekk að óskum, þrátt fyrir 1 tíma töf á brottför
frá Murmansk.  Við höfðum 10 mín. til að ná vélinni frá Helsinki
til Stokkhólms, en það rétt small !  Framhaldið var eintóm slökun
og Shackleton hélt áframt til Baltimore sama dag, en ég var
kominn til landsins rúmlega kl. 3 um eftirmiðdaginn.  
Að endingu vil ég senda þér og þínum okkar allra bestu kveðjur og
innilegar þakkir fyrir þitt höfðinglega boð.  Við erum að sjálfsögðu
ólmir í að koma aftur og veiða í KOLA.
Með vinsemd og virðingu !  Troels + Shackleton

Lesa meira

 
Kola

13.7.2006 : Veiðifréttir frá Kola ánni - Pierre Affre

Fyrsta vikan okkar var allveg frábær og seinni vikan byrjaði mjög vel. Áin vár frekar vatnslítil þegar við komum, það voru 16c° og allir veiddu mjög vel í junction, serious, pump og monica pool... Firsta daginn fékk Gerard Leca 17n kg lax og Rampin 9 kg lax... Franska hollið (4) fengu 117 laxa alla vikuna, Dick og Troels fengu mjög flotta fiska líka og Troels fékk einn sem vóg 32 pund. Það var rigning og stormur mánudag og þriðjudag og áin óx um einn meter aðfaranótt miðvikudags og hitinn lækkaði niður í 13c°. Áinn lækkaði svo aftur á sunnudeginum og þá veiddisat mjög vel á öllum svæðunum, á þriðjudeginum fékk ég 12 fiska yfir daginn. Svona í heildina litið eftir 9 daga veiði fékk ég 68 fiska og 21 þeirra var yfir 5 kíló og sá stærsti var 11,6 kg. Pierre Affre

arnibald@lax-a.is  

Lesa meira

 
DSCN2927

13.7.2006 : Haustveiðin í Umba - síðustu lausa stangirnar.

Það hefur verið mjög góð veiði í öllum ánum okkar við Kola peninsula skagan í Rússlandi í ár, og nú hlakkar okkur mikið til að byrja með hausveiðina í Umba ánni 26 ágúst næstkomandi, hér fyrir neðan eru síðustu lausu dagarnir sem við eigum:

26 ágúst - 2 sept - 4 stangir lausar

2 sept - 9 sept - 2 stangir lausar

9 sept - 16 sept - 2 stangir lausar

16 sept - 23 sept - 2 stangir lausar

23 sept - 30 sept - full bókað

30 sept - 7 okt - 4 stangir lausar

hafið samband við Árna Baldursson í síma 5576100 eða 8927146

arnibald@lax-a.is

Lesa meira

 
RIMG0009

12.7.2006 : Mokveiði í blöndu!!!

Það var glatt á hjalla hjá veiðimönnum við Blöndu í morgun, það mokaðist á land laxinn. Alls veiddust 23 laxar á einni vakt og þykir það nokkuð víst að núna er Blanda kominn á fullt skrið og farin að sýna þær hliðar á sér sem hún er best þekkt fyrir.

Lesa meira

 
Langadalsa_01_HakanSteenlun

12.7.2006 : Voru að forfallast stangir á prime time í Langadalsá

Vegna forfalla var að losna tveggja daga holl hjá okkur í Langadalsá, dagana 11 - 13 ágúst og eru þetta 3 stangir seldar saman. Þetta er án efa ein besta veiði landsins á þessum tíma og gildir það núna að bregðast skjótt við því færri fá en vilja.

Lesa meira

 
Stekkjarfoss_6_web

12.7.2006 : Systurnar í Ísafjarðardjúpinu

Það eru þrjár ár á okkar vegum í Ísafjarðardjúpinu og eru það Langadalsá, Hvannadalsá og Laugardalsá, veiðin hefur farið frekar hægt af stað en er nú öll að glæðast, okkur voru var að berast fregnir af veiðinni þar og er hún á þann veg að laugardalsáin skarar þar fram úr og er með alls 40 veidda laxa í 2 stangir og svo eru Lesa meira
 
W._Younger_1

12.7.2006 : Lausir dagar

Jæja kæru veiðimenn

Nú er veiðin kominn á fullt skrið og hafa margar ár verið að gera það feykigott, það er mest allt selt hjá okkur fyrir utan einstaka dag.

Við erum búinn að taka saman eithvað af lausum dögum hjá okkur á næstunni sem að við erum tilbúin að bjóða á góðu verði.

Lesa meira

 
Hilmar-5

11.7.2006 : Mikið af lax í Langadalsá

Veiðimaður einn sem var að koma úr Langadalsá í Ísafjarðardjúpi á dögunum sagði okkur að það væri allt að byrja að glæðast þar á bæ og mikið af fisk er að ganga og hefur hann dreift sér vel um alla á, Nú er stórflóð og mun það eflaust skila enþá meira af fisk í ánna, þessi umtalaði0 veiðimaður var mjög sáttur með túrinn sinn en hann Lesa meira
 
ROLL2049

11.7.2006 : Ytri Rangá og Hólsá

Veiðin í Rangánum eins og áður hefur komið fram fór heldur snemma af stað í ár og er húnn enn á góðu róli, mikla athygli hefur vakið að mikið af fisk er að veiðast í neðri hluta Ytri árinnar sem heitir Hólsá og er þar verið að ræða um vesturbakkan, sem dæmi má nefna að í morgun komu þar upp 4 laxar og hefur verið að veiðast lax þar á hverjum degi núna í dágóðan tíma Lesa meira
 
IMG_3320

11.7.2006 : Fjör í Hallá

Hann Jóhannes fór að veiða á sunnudaginn í ásamt syni sínum í Hallá og fékk þar 4 laxa í beit og voru þeir 6 pund, 12 pund, 5 pund og 4 pund.

Jóhannes fór síðan aftur í gær og fékk aðra 3 laxa þá og á seinni vaktina eftir í dag. Laxarnir sem hann fékk í gær voru 2 stk 4 pund og einn 5 punda .

 

Jóhannes segir að það séu göngur af laxi núna á hverjum degi í Hallá.

 

Lesa meira

 
DSC00083

10.7.2006 : Fullt af fisk í Ferjukotseyrum

Það hafði samband við mig mður sem var að veiðum í Ferjukotseyrum nú á dögunum og sagði hann að staðurinn væri pakkaður af fisk, þeir voru að sýna sig mjög reglulega og enduðu þeir á því að landa 3 og missa 2 á 4 klukkutímum. Lesa meira
 
Miko_Vainio_blanda1

8.7.2006 : Blanda

Nú er smálaxinn byrjaður að láta sjá sig í Blöndu og þeir sem voru að hætta í hádeginu í dag voru með 33 laxa eftir 2 daga veiði sem er er bara flott veiði. fyrsta gangan af smálaxi sást í gærkveldi og náðu félagarnir sem Lesa meira
 
Tjarnarbrekka_3

8.7.2006 : Víðidalsá

Veiðin er að glæðast í Víðidalsá og veiddust 15 laxar í gær, það ber svolítið á nýjum fiski sem er að koma inn og nú er það bara spurning hvenar við Lesa meira
 
A_beauty_from_West_Ranga

8.7.2006 : Rangárnar

Það er flott að gerast í Rangánum og hafa síðustu daga verið að gefa total Ytri Og Eystri Rangá ca 20-35 Laxa á dag, Núna eru göngur og hefur t Lesa meira
 
Copy_DSC00028

8.7.2006 : Miðfjarðará

Það er rigning og rok fyrir norðan þessa stundina en það er að koma inn Lax, Í gærmorgun veiddust 7 laxar fyrir hádegi Lesa meira
 
DSC00120

6.7.2006 : Hólsá að gefa vel frá opnun

Hólsáin er neðsti anginn af ytri Rangá og hefur verið seld sér í þó nokkur ár, hólsáin er veidd bæði frá austurbakkanum og vesturbakkanum og höfum við hér á lax-á vesturbakkan til sölu, vesturbakkin er með fjórar stangir og hefur gefið 17 laxa núna Lesa meira
 
fyrsti laxin 2006

6.7.2006 : Veiðin að glæðast í Laxá á Ásum

Nú hefur veiðin í Laxá á Ásum farið hægt af stað en er að glæðast núna um þessar mundir nýr fiskur er farin að sjást víða um ánna og er farið að birta yfir veiðinni. Lesa meira
 
Copy_DSC00057

5.7.2006 : straumarnir að komast í gang

Nú undanfarin misseri hefur veiðin í straumunum verið með minna móti en nú er útlit fyrir breyttri tíð og hafa nú alls veiðst 17 laxar og mikið síðustu daga, aðstæður til Lesa meira
 
DSC01895

4.7.2006 : Eystri Rangá

Veiðin er að skreiðast af stað í Eystri Rangá og heyrðum af veiðimanni í morgun á Rangárvaði sem fékk 4 stólaxa, Það virðist vera töluvert af stórlaxi á rangárvaði þessa dagana og hefur veiðst töluvert af stórlaxi Lesa meira
 
DSC00037

4.7.2006 : Miðfjarðará og Víðidalsá að renna í gang!

Miðfjarðaráin er öll að byrja að lifna við og hefur verið að gefa þokkalega síðustu daga og hefur verið mikið af tveggja ára fisk að koma á land, í gær komu 4 laxar á land fyrir hádegi og 6 eftir hádegi, það komu svo 3 í morgun. Lesa meira
 
Myndadiskur-2004-065

4.7.2006 : Stórlaxar í blöndu

Nú var að enda holl í blöndu sem hafði verið þar að veiðum í 2 daga og enduðu þeir með 19 veidda laxa og 16 af þeim voru stórir tveggja ára laxar en aðeins 3 eins árs, tveggja ára laxinn virðist vera í meirihluta Lesa meira
 
A_beauty_from_West_Ranga

3.7.2006 : 50% afsláttur í Ytri og Eystri Rangá

Það er töluvert um lausar stangir í Ytri og Eystri Rangá 4, 5,6 og 7 júlí í því tilefni ætlum við að bjóða mönnum uppá 50% afslátt af veiðileyfum þessa daga, Hægt er að kaupa Morgni til kvölds Lesa meira
 
Blanda_lodge_1

3.7.2006 : Mikil ánægja með veiðihúsið við Blöndu

Við fengum skemmtilegt bréf frá viðskiptavini okkar sem var að koma úr Blöndu.

Sæl Vala

Var að koma úr Blöndu í síðustu viku og langaði til að óska ykkur til
hamingju með glæsilegt

Lesa meira

 
ER Aug 2005 q

3.7.2006 : Veiðin að glæðast fyrir norðan

Nú er að lifna fyrir norðan og voru 4 laxar í morgun í Miðfjarðará, 10 Laxar í morgun í Blöndu, 4 laxar í gærkveldi í Laxá á Ásum, 3 laxar Lesa meira
 
Arni.

3.7.2006 : Laust í Laugardalsá 6. – 9. júlí á afslætti

Laust í Laugardalsá 6. – 9. júlí og hægt að fá stangir á afslætti. Lesa meira
 
Midfjardara_033

1.7.2006 : 8.3 kg Maríulax í Miðfjarðará

Skemmtilegt atvik átti sér stað í Miðfjarðará í vikuni þegar þeir feðgar Bjarni Kristjánsson og 9 ára sonur hans Bjarni Fannar Bjarnasson fóru til veiða.

Þeir feðgar voru að veiða í hollinu 27-30 júní og hafði veiðin verið frekar róleg svona einn og einn að veiðast. Þegar fór að líða

Lesa meira

 
DSC00085

1.7.2006 : Gengur vel í Ytri Rangá

Nú eru ca 50 laxar komnir á land í Ytri Rangá og hefur veiðst Lax á öllum svæðum, Þetta er mikið gleðiefni að veiðin skuli byrja svona snemma í Ran Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arnor_isfjord_95cm1

31.8.2010 : Nokkrum stórum landað í Langadalsá

Við vorum að fá bréf frá Arnóri Ísfjörð stórveiðimanni sem hafði verið við veiðar í Landadalsá og gengið vonum framar. Þetta hafði hann að segja... emil@lax-a.is

Lesa meira
 
Langadalsa_2008_(8)

20.8.2010 : Langadalsá að taka við sér eftir þurrka - Talsvert af laxi í ánni

Það var kampakátur veiðimaður hinum megin á símalínunni hjá mér í morgun þegar ég var að ath með gang mála vestur í djúpi. Hann hafði verið ásamt félögum í 2 daga við veiðar og gengið svona líka ljómandi vel. Alls lönduðu þeir 22 löxum og misstu þónokkra, 10 af þessum löxum voru 10 pund eða stærri!! Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
IMGP1505

19.8.2010 : Bjart yfir bleikjueldi almennt - Mikill markaður til staðar

Fyrsta slátrun hjá nýju bleikjueldis fyrirtæki á Tálknafirði er hafin. Fimmtíu til áttatíu tonnum af fiski verður slátrað nú en stækkun eldisins er í bígerð. Það er fyrirtækið Bæjarvík sem stendur að bleikjueldinu. Eldið byggir á gömlum grunni, í kerjunum hefur áður verið eldi sem ekki stóð undir sér.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Ranga Ytri151

19.8.2010 : Haust Tilboð Hótel Rangá!!

Superior (standard) eins manns kr. 13.900.- Superior (standard) tveggja manna kr. 8.900.- á mann (kr. 17.800.- fyrir tvo) Morgunverðarhlaðborð er innfalið Kvöldverður (half board - 3 rétta) kr. 6.500.- á mann Hádegis-/kvöldverðir (full board) kr. 8.900.- á mann Lesa meira
 
Makrill

29.7.2010 : Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl

Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

29.7.2010 : Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Dadyr

28.7.2010 : Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?

Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tung601

28.7.2010 : Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum

Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna.  Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi.  Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar.  Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Selur

28.7.2010 : Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 9

8.7.2010 : Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

8.7.2010 : Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax

Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. Um er að ræða fiskeldisstöðina Viking Fjord en laxarnir sluppu úr kvíum sínum þegar verið var að leggja rör við hlið þeirra. Svo óheppilega vildi til að við þá vinnu rifnuðu netin í kvíunum og laxahjörðin slapp út í fjörðinn sem þær eru staðsettar í..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Hreindýr

15.6.2010 : Slegist um Hreindýr á Alþingi - Nýtt námskeið fyrir leiðsögumenn

Svandís Svavarsdóttir umhverfis ráðherra segir það vilja sinn að haldið verði námskeið fyrir hreindýraleiðsögumenn vorið 2011. Þá verða liðin tíu ár frá síðasta námskeiði. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði ráðherra um námskeiðshaldið á Alþingi í dag. Námskeiðið er haldið á vegum Umhverfisstofnunar sem frá 2001 hefur ekki talið þörf fyrir það..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Falki

15.6.2010 : Gallar á reglugerð? Of algengt að menn skjóti Fálka og Erni

Ríflega fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hér á landi hafa verið skotnir samkvæmt rannsókn Náttúrufræðistofnunar. Ernir og fálkar eru á válista og algjörlega friðaðir, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940. Stofnunin hefur rannsakað hræ friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum. Löggjöf um varðveislu og uppstoppun friðaðra fugla og verslun með þá sé gölluð og því erfitt að koma böndum á þessa ólöglegu iðju..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

14.6.2010 : Sviptingar á milli landshluta á Rjúpnastofninum

Rjúpnastofninn stækkar bæði og minnkar, eftir því hvar á landinu er talið. Samkvæmt talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpnastofninum má skipta landinu upp í tvo hluta. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er aukning í stofninum frá fyrra ári um 29% að meðaltali í samandregnum tölum.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skotid_a_skarf

14.6.2010 : Fjölgun Dílaskarfs – Vísbending um gott ástand átu

Dílaskörfum hér á landi hefur fjölgað samkvæmt nýlokinni árlegri talningu. Þegar reglubundnar talningar hófust árið 1994 var stofninn á niðurleið, en frá 1995 hefur honum fjölgað að meðaltali um nálægt 4% á hverju ári og eru hreiðrin nú alls 5250.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
joi_namibia

9.6.2010 : Í Afríku með Lax-á -Voru á Gull gripaveiðum á Rauðusöndum s.l. vor

Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni. Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

9.6.2010 : Júní veiðin byrjar af krafti í Litluá fyrir norðan

Veiðin í júní byrjar af krafti í Litluá. Steingrímur Friðriksson sem hefur verið iðinn veiðimaður í Litluá var í vikunni tvo dagparta við veiðar í ánni og fékk hann 10 fiska hvorn daginn. Setti hann í góða bleikjugöngu við klöppina á svæði 4 og tók þar nokkrar fallegar bleikjur í röð og þar af fjórar um 62 cm langar. Sagan í Litluá segir að júnímánuður er yfirleitt mjög góður og mikið um sjóbirting. Hér á árum áður þegar veiði hófst ekki fyrr en í byrjun júní, þá var ætíð mjög mikil veiði á þessum tíma.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Heklubyggd

7.6.2010 : Nýtt veiðihús hjá Lax-á

Lax-á hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en húsið er um 25km frá Hellu og 110km frá Reykjavík. Húsið er hægt að nota til dæmis með veiði í Galtalæk eða Ytri Rangá efra svæði,  en húsið fylgir ekki með veiðileyfum. Það þarf að panta það sér.

Lesa meira
 
2005,_largest_salmon_of_the_season_103_cm_web

4.6.2010 : Blanda 10. til 12. júlí

Ágætu veiðimenn, í tilefni Sjómannadagsins viljum við bjóða tvær stangir í Blöndu svæði 1 10. til 12. júlí (hád - hád) Lesa meira
 
Gudrun 4

26.5.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Spurning hvort þetta var heppni..?

Það hefur lítið farið fyrir veiðikonum hér hjá mér í spjallinu undanfarið. þær eru eflaust jafn margar og karlpeningurinn sem stunda veiðar og Guðrún S. Ólafsdóttir er ein af þeim. Hún er hörkuveiðimaður, bæði í stangveiði og skotveiði. Hér að neðan kemur hún inná maríulaxinn, Hreindýraveiðar og snilldar eldamennsku en einnig commentar hún á hvort kvennahollinn skilji eftir sig sömu sögurnar og karlahollinn..spennandi lesning.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarf 16 - 203 Kópavogur | s: 557 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar