Helstu fréttir

img_2905

31.8.2005 : Losnuðu stangir í Eystri og Ytri Rangá vegna forfalla

Hægt er að kaupa stangir beint af vefnum www.agn.is undir tenglinum veiðileyfi.

 

Eystri Rangá er nú komin töluvert á 4 þúsund laxa og er vægast sagt mokveiði þar þessa dagana.

 

Ytri Rangá er auðvitað í fullu fjöri einnig og er nú búið að leyfa maðk og spúna veiði þar og verður það svo til loka veiðitímabilsins

 

Smellið hér til þess að sjá lausa daga og berð þar sem hægt er að kaupa stangirnar beint af vefnum.

Lesa meira

 
HP_04

28.8.2005 : Río Menendez - Argentína

Río Menendez er hliðará hinnar frægur Río Grande. Lax-á getur nú boðið veiðimönnum að veiða Río Menendez á afar hagstæðu verði eða krónur 195.000 vikan. Innifalið er veiði í viku , fullt fæði og húsnæði á ný uppgerðum búgarði ROSITA , leiðsögn og ferðir til og frá flugvelli í Río Grande. Besti veiðitíminn er Desember , Januar , Februar og Mars. Allar nánari uppl. veitir Árni Baldursson í síma 5576100 eða arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
DSC00293

27.8.2005 : Vilt þú fara til Argentínu yfir Jólin?

Við erum með 12 spennandi veiðihús í Argentínu þar sem við bjóðum upp á frábæran mat og allan aðbúnað. Silungsveiði eins og hún gerist best , Urriði, Sjóbirtingur og Regnbogasilungur, einnig sá gullni tígur Dorado. Frábær tilboð núnan gangi fyrir þá sem vilja smella sér í heitt loftslag , frábæra veiði og það best í mat og gistingu. Hafið samband við Árna Baldursson í síma 5576100 eða sendið póst á arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
DSC00046

27.8.2005 : Spennandi silungsveiðar í Argentínu.

Tecka hefur yfir að ráða 175.000 hektara landsvæðis sem enn hefur ekki verið kannað til hlýtar. TECKA er í raun stórbúgarður þar sem fram fer mikill sauðfjár- og nautabúskapur.  Þar sem núverandi eigendur TECKA eru ástríðuveiðimenn - fóru menn á stúfana og könnuðu vötnin og árnar innan landareignarinnar og viti menn þar iðaði allt af lífi, regnbogasilungur, urrriði og lækjarurriði voru þar um allt og í skemmtilegri stærð 2-6 pund.   Í dag hefur höfðustöðvum Tecka verið breytt í LÚXUS veiðihús og að auki hefur verið byggt nýtt hús CARIDAD Lodge innar í landinu.  Mikið er lagt upp úr öllum þægindum í báðum veiðihúsunum og er hreint ótrúlegt að finna annan eins munað svona lengst inni í landi, já næstum óbyggðum.  

Lesa meira

 
halla3

26.8.2005 : Ágætt vatn og góð veiði í Hallá

Það er búið að vera ágætt vatn og góð veiði í Hallá undanfarna daga , um 70 laxar komnir á land. 15 laxar komu á land á einum degi fyrir fáeinum dögum og sást lax á nokkrum stöðum framm á dal , í einum hyl lágu um 50 laxar. Töluvert er að lausum veiðileyfum í Hallá nú í lok Ágúst og September á lágu verði. Árni arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
VatnasvLysu_02

26.8.2005 : Lýsa komin yfir 170 laxa

Nóg er um að vera í Vatnasvæði Lýsu þessa dagana því laxinn bunkast upp á bakkann hjá veiðimönnum þessa dagana.

Þann 23. ágúst komu 11 laxar á land í Lýsunni og er heildarfjöldi komin yfir 170 laxa og einnig má geta þess að mikið af fallegum silungi og birtingi er að veiðast þar núna.

Lesa meira

 
W._Younger_1

26.8.2005 : Eystri Rangá er búin að slá enn eitt metið

Nú er Eystri Rangá komin í yfir 3170 laxa sem er ótrúlegt.

Eystri rangá átti metár í fyrra þ.s. hún skilaði 3150 löxum í lok tímabilsins.

Nú er eingöngu 26. ágúst og nóg eftir og verður því gaman að fylgjast með Eystri ánni næstu daga því hún er að gefa fullt af laxi þessa dagana.

Lesa meira

 

25.8.2005 : Forfallaholl

Góðkunningi Lax-á hringdi í okkur í gær og þarf að losna við hollið 29-1 sept í Svartá í Svartárdal.

Ágætis veiði hefur veriðundanfarið og fæst hollið á fínu verði.

Frekari upplýsingar Gefur Gísli 6600166

 

kv stefán

Lesa meira
 

24.8.2005 : Góð Laxveiði Víða

Nú er Ytri Rangá kominn í 1700 laxa og verður opnað fyrir maðk og spún þann 26 ágúst, það verður spennandi að sjá hvað veiðist fyrstu vikuna en vikan gaf 700 Laxa í fyrra.

Eystri rangá er að gera það gott og er hún kominn vel yfir 3100 laxa verður að öllum líkindum toppáin

Lesa meira

 
IMG_2962

22.8.2005 : Eystri Rangá brýtur 3000 laxa múrinn

Nú er allt á fullu í Eystri Rangá og er ekkert sem bendir til þess að hún sé í rénun því laxinn hreinlega hellist inn þessa dagana og er hún nú komin í 3010 laxa.

Frábærlega gengur í Eystri Rangá og verður gaman að sjá hvernig Ytri rangá kemur út þegar maðkveiðitímabilið hefst í henni sem byrjar 26. ágúst.

Lesa meira
 
HVANADA04_07

22.8.2005 : Síðasta holl með 16 laxa í Hvannadalsá

Nóg er af laxi í Hvannadalsá og voru menn að koma þaðan í gær sem fengu 16 laxa og settu í mun fleiri að eigin sögn.

Eitthvað af lausum stöngum eru eftir í Hvannadalsá sem hægt er að nálgast beint af vefum www.agn.is  

Lesa meira
 
IMG_3242

22.8.2005 : Vel gengur í Gljúfurá í Húnaþingi

Vel hefur gengið undanfarið í Gljúfurá í Húnaþingi og má nefna að síðasta holl þar var með 10 laxa sem komu flestir á maðk. Að sögn veiðimann er mikill fiskur í ánni og mikið fjör.

Við eigum eftir eitt laust holl í í ágúst eða dagana 28.- 30. ágúst sem hægt er að kaupa á vefnum www.agn.is

Lesa meira

 
G_Nordal_og_Skuli04

20.8.2005 : Ríó Grande - Argentína - Ferðaplan.

Ferðatilhögun:

* Dagur 1.
Föstudagur: Lent í Buenos Aries (BA), bílstjóri frá Lax-á sér um akstur veiðimanna frá flugvelli á Hilton Hótel í BA þar sem gist er um nóttina.
* Dagur 2.
Laugardagur: Bílstjóri frá Lax-á sér um akstur frá Hilton til flugvallarins í BA fyrir beint flug niður til Rio Grande(RG). Áætlaður flugtími 2 1/2 tími.
Starfsmaður Lax-á tekur á móti veiðimönnum á flugvellinum í Rio Grande sér um akstur upp til San Julio þar sem Toon Ken veiðihúsið er staðsett.
* Dagar 3-8.
Veiði frá morgni til kvölds.
* Dagur 9.
Laugardagur: Morgunflug frá Rio Grande til Buenos Aries. Bílstjóri Lax-á tekur á móti veiðimönnum á flugvellinum í BA og keyrir á Hilton Hótel þar sem aftur er gist í eina nótt.
* Dagur 10.
Sunnudagur: Eftirmiðdagsflug frá Buenos Aries til London, Madrid, Frankfurt, Parísar, NY, eða Miami. Þaðan er svo flogið beint heim til Íslands.

Lesa meira

 
DSC00340

19.8.2005 : 13 - 19 Maí - Tarpon veiðar á Kúbu

Kúba Jardines de La Reina

Lax-á vikur 2006 eru:

  • 18-24 mars
  • 13-19 maí

Alls er veitt á 8 stangir.

Flogið er til Havana og gist eina nótt og þaðan áfram til Cayo Caco.

Lesa meira

 
LAX-A_ANGLING_CLUB

18.8.2005 : Nýjar veiðitölur frá 17. ágúst 2005

Hér eru nýjustu veiðitölur. Lesa meira
 

16.8.2005 : 1000 komnir í Miðfjarðará

Það er gaman í Miðfjarðará þessa stundina, það allveg haugrignir og rok. dagurinn gaf um 50 laxa,

1000 laxar komnir á land og mikið af laxi er í ánni okkar. nú er meira en mánuður eftir af tímabilinu og erum við nokkuð viss að það á eftir að bætast verulega við.

Lesa meira

 
IMG_3065

15.8.2005 : Eystri Ranga slær enn eitt metið

Vikan 8-14 ágúst gaf 435 laxa sem er met.

Áin stóð í 2729 löxum í kvöld sem er 1500 fiskum meira en á sama tíma í fyrra og 500 fiskum meira en 2001 en þá var afburða góð byrjun í ánni.

Ágætis göngur hafa verið í ána og stór hluti aflans lúsugur.

Lesa meira
 
1

11.8.2005 : 83 ára og enn í fullu fjöri

Einn af okkar gömlu góðu viðskiptavinum gerði góða veiði í Eystri Rangá fyrir

nokkrum dögum.

Einn daginn dró hann 9 á land úr Tóftarhyl og annað skiptið dró hann 9 á

land úr Tjarnarhyl.

 

Þess má geta að Bernard sem er 83 ára var með 39 laxa eftir 6 daga veiði í

Eystri Rangá.

Lesa meira

 
DSC00052

11.8.2005 : Nýjar veiðitölur

Hér birtast nokrar veiðitölur úr þeim ám sem við erum með upplýsingar um núna. Við munum bæta við listan jafn óðum og okkur berast tölur af fleiri veiðisvæðum. Lesa meira
 
mynd01

10.8.2005 : 14 laxar úr Vatnasvæði Lýsu í gær og 110 laxar komnir á land í heildina..

Frábærlega gengur í Vatnasvæði Lýsu þessa daga og er nánast því hægt að segja að það sé mokveiði.

Nóg er af laxi í Lýsunni og að sjálfsögðu fullt af vænum silungi.

 

Hægt er að kaupa veiðileyfi í Vatnasvæði Lýsu á www.agn.is.

Lesa meira

 
midfjardara

10.8.2005 : Skemmtileg saga frá veiðimanni úr Miðfjarðará

Það fór þá ekki svo að maður kæmi með öngulinn í rassinum heim – en litlu mátti muna.

Náði að hitcha einn upp úr Hlíðarfossi, reyndar minn fyrsta “hitch-fisk” og það var ekki leiðinlegt eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ekkert tröll en 7 pund dugðu mér og ánægður að hafa náð honum á land – eina lífið við fluguna á tveimur dögum! Sá reyndar ekki tökuna, flugan slengdist fyrir horn á klettaveggnum við fossinn og eftir að laxinn hafði neglt hana hélt ég að ég hefði krækt í vegginn og

Lesa meira
 
DSC00085

9.8.2005 : 2 stangir lausar í Ytri Rangá í dag seinni vaktina á gjafaverði

2 stangir losnuðu í Ytri Rangá í dag seinnipartinn veitt er frá 16.00 – 22.00 hægt er að fá þessar stangir ódýrt.

Upplýsingar gefur Ágúst í síma 557 6100 eða í agust@lax-a.is

Lesa meira

 
Montupet_Cuba

9.8.2005 : Við erum byrjuð að bóka Tarpon veiðarnar á Kúbu.

Lax-á , fer tvisvar til Kúbu , við verðum niður frá á topp tíma , í Mars og svo aftur í Maí. Allar frekari uppl. Árni 5576100 , 892 7146 , 852 7522. Lesa meira
 
W._Younger_1

9.8.2005 : Laus stöng í Eystri Rangá frá 10. – 12. ágúst

Hægt er að fá stöng í Eystri Rangá vegna forfalla. Mjög vel hefur gengið í Eystri Rangá undanfarið og er hún komin yfir 2300 veidda laxa það sem af er sumri.

Áhugasamir hafi samband við Ágúst hjá Lax-á í síma 557 6100 eða senda tölvupóst á agust@lax-a.is

Lesa meira

 
BLANDA04-19

8.8.2005 : Lausir dagar á næstunni hjá Lax-á ehf

Við hjá agn.is höfðum samband uppí Blönduvirkjun áðan og þeir sögðu okkur að það vanti 69cm uppá að lónið fyllist og það bætist 5-6cm í lónið á dag þannig að það má áætla að það fari á yfirfall um 20.ágúst. Lesa meira
 
DSC00082

8.8.2005 : Nokkrar lausar stangir í Ytri Rangá í vikunni

Hægt er að fá veiðileyfi í Ytri Rangá í frá og með morgundeginum og til sunnudags.

Ágætlega gengur nú í Ytri Rangá og eru að koma u.þ.b. 60 – 80 laxar á land á dag og er stígandi í þessu þessa dagana.

Áhugasamir hafið samband á skrifstofu Lax-á ehf í síma 557 6100

Lesa meira

 
25POUNDER_toonken

7.8.2005 : Við erum byrjuð að bóka Río Grande 2006

Toon Ken Lodge

4/2 to 11/2. Full Bókað

11/2 to 18/2.  Nokkrar stangir lausar

18/2 to 25/2.  Nokkrar stangir lausar

25/2 to 4/3.    Nokkrar stangir lausar

4/3 to 11/3.    Nokkrar stangir lausar

Kau Tapen

9/4 to 16/4.    Nokkrar stangir lausar

Vinsamlegast hafið samband við Árna  Baldursson eða Steffen Juhl fyrir frekari uppl.  arnibald@lax-a.is - office tel: +354 557 6100
steffen@lax-a.is  - office Tel: +354 557 6100

Lesa meira

 

6.8.2005 : Miðfjarðará

Það gengur vel í Miðfjarðará þessa stundina um 50 Laxar veiddust í gær og Nú eru 790 laxar komnir á land.

Mikið af laxi er í ánni þessa stundina og lax að ganga.

Kv stefán

Lesa meira
 
DSC00085

5.8.2005 : Ytri Rangá komin við 1000 laxa múrinn

Vel er farið að veiðast nú í Ytri Rangá og nálgast hún óðum 1000 laxa múrinn nema hún sé þegar búinn að ná honum þegar þetta er skrifað.

Ytri Rangá fór hægar af stað en Eystri áin en virðist hún núna vera komin í.. Lesa meira

 
Midfj_Austura_04_HakanSteen

5.8.2005 : Miðfjarðará komin yfir 700 laxa

Ágætlega er farið að veiðast í Miðfjarðará þó svo að það virðist sem hún ætli ekki að toppa síðasta ár sem var algjört metár í ánni, þó svo að það sé auðvitað of snemmt að fullyrða eitthvað um það.

Lesa meira

 
IMG_3459

5.8.2005 : Eystri Ranga brýtur 2000 laxa múrinn í gærkvöldi

Vel gengur í Eystri Rangá þessa dagana og eru að veiðast þar um 115 – 135 laxar á dag núna undanfarið. Og er áin komin yfir 2000 laxa.

Einnig má geta þess að júlímánuður nú í ár er einn sá besti sem menn muna eftir.

Lesa meira

 
uv2

4.8.2005 : Kastsýning með Loop kastkennaranum Klaus Frimor

Klaus Frimor verður á Klambratúni föstudaginn 5 ágúst kl 18.30 með útskýringu á skotlínunni bæði fyrir tvíhendu og einhendu og hvernig taumurinn getur gefið þér 10 – 15 metra lengra kast. Einnig sýnir hann hvernig menn geta kastað fyrir horn með einni hreyfingu. Lesa meira
 
VatnasvLysu_02

3.8.2005 : Bullandi veiði í Vatnasvæði Lýsu

Nú í gær komu 9 laxar á land og eru því komnir 78 laxar í það heila í sumar. Svo má geta þess að 50 sjóbirtingar eru komnir á land og um 300 staðbundnir silungar að auki.

Mjög skemmtilegt er á Vatnasvæði Lýsu og er svæðið tilvalið fyrir fjölskylduferðir.

Smellið hér til þess að lesa betur til um Vatnasvæði Lýsu þar sem hægt er að kaupa veiðileyfi beint af vefnum.

Lesa meira

 
18pund

2.8.2005 : 1084 laxar komnir úr Blöndu

Fín veiði er í Blöndu og má geta þess að 18 punda lax kom á land í morgun ásamt 15 öðrum vænum löxum.

Svæði I er töluvert netra en svæði II en miklar göngur eru nú í gegnum stigann á milli svæða og má gera ráð fyri að svæði II fari nú að lifna við fyrir alvöru. Lesa meira
 
img_3045

2.8.2005 : Veiðitölur úr ýmsum laxveiðiám

Hér eru tölur úr ýmsum laxveiðiám vítt og breytt um landið. Lesa meira
 
3769

2.8.2005 : Fréttatilkynning frá Veiðikortinu ehf. ATH að hægt er að fá kortin keypt í vefverslun á www.agn.is

Búið er að semja um aðild Þingvallavatns fyrir landi þjóðgarðsins að Veiðikortinu frá og með árinu 2006. Handhafar Veiðikortsins geta þó samkvæmt sérstöku samkomulagi Veiðikortsins ehf. við Þingvallanefnd veitt í Þingvallavatni frá og með 1. ágúst nk. án sérstaks endurgjalds.

Þingvallavatn er kærkomin viðbót við þau 20 vötn sem Veiðikortshafar geta nú þegar veitt í, en þess má geta að fyrir þá sem ekki eru búnir að tryggja sér Veiðikortið að það má nálgast það á flestum bensínstöðvum ESSO sem og í veiðivöruverslunum og víðar. 

Lesa meira

 
IMG_3065

2.8.2005 : Eystri Rangá stefnir í met

Eystri Rangá hafði gefið 1842 laxa í kvöld þaraf 110 laxa í dag sem var frekar "rólegur" þangað til stórar göngur komu inn seinni partinn.Júlí gaf 1732 laxa sem er met. Lesa meira
 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar