Helstu fréttir

DSC00016

31.7.2005 : Akstur frá Akureyri til Reykjavíkur

Okkur vantar einhvern ábyrgan ökumann til að keyra jeppa frá Akureyri til Reykjavíkur, þriðjudaginn 2. ágúst. Sá hinn sami þyrfti líka að þrífa bílinn vel áður en honum er skilað sama dag á skrifstofu Lax-á, Akurhvarfi 16.

Frekari upplýsingar veitir Valgerður í síma 893 6180

Lesa meira
 

30.7.2005 : Mok í Eystri Rangá

Það er allgjör mokveiði í Eystri Rangá þessa dagana að Sögn Péturs Hlöðverssonar leiðsögumans í Eystri Rangá, Síðustu 5 dagar hafa gefið yfir 600 laxa..

Dagurinn í dag gaf 124 Laxa.. Nú er Eystri Rangá komin í 1541 lax..

kv stefán

Lesa meira

 
mynd01

26.7.2005 : Fullt af laxi í Lýsu

Frábærlega gengur á vatnasvæði Lýsu og er hver laxinn á fætur öðrum að veiðast þar nú þessa dagana. Þó nokkrir laxar voru komnir á land í morgun og kom m.a. 15 punda hængur þar á land í gær.

Hægt er að fá keypt veiðileyfi beint á vefnum www.agn.is undir tenglinum veiðileyfi.

Lesa meira

 
Trout_01_HkanSteenlund_200

26.7.2005 : Um 30 laxar konir á land á vesturbakkanum í Hólsá

Vel hefur gengið í Hólsá undanfarið og hefur veiðistaðurinn Straumey og Borg verið að gefa einna best. Auk þess hafa komið upp vænir urriðar á land undanfarið. Lesa meira
 
BR

26.7.2005 : 62 laxar komnir úr Brynjudalsá

Frábærlega gengur í Brynjudalsá og eru komnir 82 laxar á land og áin er blá af laxi eins og veiðimaður orðaði það sem var að veiða í gær.

Það virðist skiptast nokkuð jafnt á fluguna og maðkinn þar og er efri fossinn orðin fullur af laxi sem segir okkur að laxinn er komin út um alla á.

Lesa meira

 
Familia_i_potti

23.7.2005 : www.agn.is og Lax-á ehf í sumarskapi.

Nú í tilefni þess að sólin skín svo glatt og spáin frábær næstu viku ætlar www.agn.is og Lax-á ehf að gefa 50% afslátt í veiði í Eldvatni þar sem fólki gefst kostur á að kaupa 6 stangir og fá allt húsið með sem er í alla staði glæsilegt á 50% afslætti.

Smellið hér til þess að skoða daga og verð. Lesa meira
 
LAX-A_ANGLING_CLUB

22.7.2005 : Auglýst eftir starfskrafti

Við auglýsum eftir starfskrafti í veiðihúsið við Ytri Rangá frá ca. 10.ágúst – 16.september.

Starfssvið: Móttaka og umsjón með gestum, utanumhald og umsjón með starfsfólki, uppgjör sem og önnur störf eftir atvikum.

Áhugsamir sendi tölvupóst með upplýsingum um menntun og fyrri störf til Valgerðar á vala@lax-a.is

Lesa meira

 
DSC00012

22.7.2005 : Nýjar tölur úr laxveiðinni

Hér getið þið séð nýjar tölur úr laxveiðinni í sumar. Lesa meira
 
DSC00051

21.7.2005 : Lausar stangir í Grímsá yfir Verslunarmannahelgina á www.agn.is

Hægt er fá lausar stangir í Grímsá á veiðileyfasöluvefnum www.agn.is yfir Verslunarmannahelgina. Vel gengur nú í Grímsá eins og ávallt og hvetjum við þá sem ætla sér að tryggja sér stangir í einni glæsilegustu laxveiðiá landsins að hafa hraðan á því fyrstur kaupir fyrstur fær.

Smellið hér til þess að sjá verð og kaupa veiðileyfi.

Lesa meira

 
Alfta001

20.7.2005 : Veiðileyfi í Álftá komin inn á agn.is

Nú er hægt að kaupa Veiðileyfi í Álftá á Mýrum dagana 27. – 30. júlí á besta tíma á veiðileyfasöluvefnum www.agn.is undir tenglinum veiðileyfi. Lesa meira
 
BLANDA04-07

19.7.2005 : 73 laxar í Blöndu á 4 stangir í 2 daga

Allt er á fullu núna í blöndu og voru veiðimenn þar að klára tveggja daga holl í Blöndu með 4 stangir og lönduðu þeir hvorki meira né minna en 73 löxum og flestum stórum eins og flestir eru í Blöndu.

Lesa meira

 
vbrubig

19.7.2005 : Laxarnir eru mættir í Vatnasvæði Lýsu

Nú hafa veiðimenn verið að setja í töluvert af laxi í Vatnasvæði Lýsu.

Veiðin hefur verið góð síðustu daga og hafa veiðimenn verið að setja í þó nokkuð af laxi líka sem skemmir nú aldeilis ekki fyrir.

Lesa meira

 
IMG_3349-xxx

19.7.2005 : 16 pundari upp úr Hallá

Nú er fullt af fiski í Hallá og segja vanir menn að þeir muni ekki eftir öðru eins.

Einn sagði að áin væri blá af laxi hvort sem væri neðarlega í ánni eða uppi í dal.

Eitthvað af lausum stöngum eru eftir í Hallá og er hægt að nálgast veiðileyfi á vefnum www.agn.is

Lesa meira
 
img_2742

18.7.2005 : Lausir stakir dagar í Eystri Rangá á agn.is

Hægt er að kaupa stangir í Eystri Rangá á agn.is dagana 21. – 24. júlí allt stakir dagar frá morgni til kvölds.

Ekki er um að ræða fæði eða gistingu enda er veitt frá morgni til kvölds.

Sjá betur verð með því að smella hér

Lesa meira
 
RIMG0017

18.7.2005 : Fréttir frá Blöndu

Fín veiði er nú í Blöndu og eru 475 laxar komnir á land.

Nú í gær var veiðimaður nokkur að nafni Bruno búin að ná einum 16 punda á svæði eitt.

Núna í morgun voru 2 stangir búnar að ná 6 löxum og klukkan orðin níu.

Kv.  Ágúst - agust@lax-a.is

Lesa meira

 
img_3045

18.7.2005 : Lausir dagar frammundan.

Sælir Veiðimenn
Nú er allt að gerast í veiðinni.
lausir dagar frammundan.
Ytri Rangá
Nú veiðast 40-70 laxar á dag.
26-28 júlí 2 stangir 2 daga holl, 30-1 ágúst 3 stangir lausar, 2 daga holl. 4 stangir lausar 9-11 ágúst.
 
Ranga Eystri
Þessa dagana eru að veiðast á bilinu 60-80 laxar á dag,
21-24 júlí 1 stöng laus, 26-29 júlí 1 stöng

Lesa meira

 

15.7.2005 : Risagöngur í Rangánum

Það hafa 230 laxar farið í gegnum teljarann við ægisíðufoss síðasta sólahringin. Nú eru 480 laxar komnir upp fyrir Ægisíðufoss. Frábær veiði er þessa stundina bæði í Ytri og Eystri Rangá.

bestu kv

Lesa meira

 
Halla_01_HakanSteenlund_200

15.7.2005 : Hallá komin í gang

Veiðimenn í Hallá fengu 4 laxa og misstu einn í gær og sögðu þeir að töluverð ganga væri komin í Hallá.

Eitthvað af lausum dögum eru eftir í hallá þar sem seldar eru tvær stangir saman og fylgir glæsilegt veiðihús með.

Sjá betur undir tenglinum veiðileyfi á www.agn.is og skoðið verð og lausa daga.

Lesa meira

 
ymisl__099

13.7.2005 : Mokveiði á Arnarvatnsheiði

Vaskur hópur skrapp á arnavatnsheiði(norðanmeginn) um miðjan júni. Þar voru landaðir 180stk á tveim dögum.

Stærsti fiskurinn var 8 punda urriði og einnig var tekinn einn 6 punda og 4 punda bleikja.

Lesa meira

 

11.7.2005 : Nú er það Byrjað í Rangánum

Summary

Það er heldur betur líflegt í Rangánum, í gær veiddust 43 laxar í Eystri Rangá og nálægt 30 í Ytri Rangá.

Við heyrðum í Valgerði Einarsdóttur í Eystri Rangá og sagði okkur að laxinn væri vel dreyfður og líflegt á öllum veiðisvæðumsvæðum. Þess má geta að heildartalan er komin í 123 laxa sem er vel yfir meðaltali síðustu.

Það má segja að þetta lítur ofsalega vel út fyrir sumarið.

eigum lausar stangir næstu daga.

kv stefán

 

Lesa meira
 
Acha river

10.7.2005 : 2006 - 3 - 10 Júní , laus vika í Acha.

Það er 1 sex stanga vika laus í Acha ánni á Kola skaganum. Vikan er á best tíma eða 3 - 10 Júní , verðið er kr. 224.000 allt innifalið í Rússlandi, það er þyrluflug , bátar , leiðsögumenn , fæði , gisting ( í tjöldum ). Við fórum 3 veiðimenn núna í sumar og veiddum 100 laxa. Allar frekari uppl. hjá Árna arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
IMG_3707

8.7.2005 : Netafsláttur á agn.is á næstunni í Laxá í Dölum , Eystri og Ytri Rangá

Nú er hægt að fá 50% afslátt í Eystri Rangá og í Ytri Rangá og 30% afslátt í Laxá í Dölum.

Sjá betur með því að smella hér.

Lesa meira
 

8.7.2005 : Stuð í Miðfjarðará

Í gær veiddust 19 fiskar og og mikil hreyfing á fiskinum,sérstaklega í Vesturá. Meðal annars veiddist fiskur fra Lesa meira
 
IMG_2996

8.7.2005 : Eystri Rangá komin í gang

Í gær komu 15 laxar á land og sáu veiðimenn töluvert af laxi í ánni og virðist sem tveggja ára laxinn ætli að láta bíða eitthvað eftir sér því mest er um smálax að veiðast þar núna.

Flestir laxarnir eru með halalús sem segir okkur að þeir eru að ganga inn hver á eftir öðrum núna.

Lesa meira

 

7.7.2005 : Ytri Rangá

 
Myndadiskur_2004_099

7.7.2005 : Mokveiði í Straumunum

Vel gengur nú í Straumunum og hafa nú veiðst þar 95 laxar á aðeins 2 stangir.

Mikið af göngum er nú í Hvítá á leið sinni í Norðurá og virðist hann stoppa við í Straumunum veiðimönnum til mikillar ánægju.

Tvö holl eru eftir í Straumunum í ágúst og er hægt að kaupa þau beint á vefnum www.agn.is  

Lesa meira
 

6.7.2005 : Ytri Rangá

Í kvöld var teljarinn við Ægissíðufoss að skríða yfir 100. Talsverðar göngur hafa verið síðustu daga og er þetta mun betra en á síðasta ári sem var metár í ánni. Fjórir laxar veiddust í dag og veit það vonandi á gott framhald. Eitthvað er um lausar stangir næstu daga.

Þórður

 
Copy_of_Untitled-6

5.7.2005 : Fín veiði og miklar göngur í Brynjudalsá

Rögnvaldur nokkur fór í Brynjudalsá í gær og veiddi eingöngu eftir hádegið og landaði þar 3 löxum á bilinu 5 – 7 pund og fékk hann tvo við gömlu brúnna og einn í neðri fossi.

Rögnvaldur sagði að hann hafi séð mikla torfu ganga inn í ánna í flóðinu þar seinnipartinn í gær og sagði hann að þeir skiptu tugum.

Lesa meira

 
IMG_3246

4.7.2005 : Frábær opnun úr Gljúfurá í Húnaþingi

Veiðimennirnir sem opnuðu Gljúfurá í Húnaþingi lönduðu 6 fallegum löxum og 4 bleikjum.

Bleikjurnar voru um 2 pund hver en laxarnir voru ekki af smærri endanum. Einn 6 punda, tveir 8 punda, tveir 10 punda og einn 12 punda lax sem er glæsilegt. Lesa meira
 

4.7.2005 : Tröllfiskur úr Blöndu

Á kvöldvaktinni náðist ekta Blöndudrellir úr Breiðunni að sunnan, en hann mældist 103 cm langur hængur og samkvæmt töflu frá veiðimálastofnun eru slíkir fiskar að meðaltali 10.9 kg. Það vita þeir sem veitt hafa í Blöndu Lesa meira
 

2.7.2005 : Blanda 6-9 júlí

Blanda. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna afbókuðust 4 stangir 6-9 júlí í Blöndu.
Það sem stutt er í veiðina ætlum við hjá Lax-á að bjóða þær stangir á sérkjörum eða þú borgar tvo daga og færð þann þriðja frítt með.
Engin fæði og gistiskylda er á þessum dögum svo menn geta gist frítt i kofanum við Damminn.
Óhemjuveði er í Blöndu þessa stundina

Lesa meira

 

1.7.2005 : Ytri Rangá

Laxinn er farin að sjást í Ytri Rangá. Teljarinn við Ægisíðufoss er komin í 28 laxa.

Fyrsti laxinn veiddist í gær og hafa menn verið að setja í laxa en hafa ekki náð að landa þeim.

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Myndadiskur_2004_023

24.8.2011 : Þriðja hver rjúpa án unga

Þriðja hver rjúpa á Norðausturlandi er án unga og er greinilegt að færri fuglar verða á veiðislóðum í vetur. Fyrirkomulag á rjúpnaveiðinni í vetur hefur ekki verið ákveðið. Niðurstöður árlegrar rjúpnatalningar leiða í ljós að rjúpnastofninn á Norðausturlandi er mun minni en undanfarin ár..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
sk1

22.8.2011 : Gæsaveiðin fer rólega af stað

Skotveiðimenn um land allt fóru af stað á Laugardaginn en þá hófst Gæsaveiðin formlega. Misjafnt gengi var um land allt, allflestir voru þó á eftir Heiðargæsinni en skv veiðivísi var gengið misjafnt. Var það þó helst að frétta að ungfuglinn væri óvenjulega smár og lágt hlutfall af honum í hópunum..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

19.8.2011 : Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs

Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hefst laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Þegar um 90% af veiðiskýrslum eru komnar inn fyrir árið 2010 þá er skráð heildarveiði á grágæs um 46.000 fuglar og á heiðagæs um 17.000 fuglar. Til samanburðar má skoða árið 2009 þar sem veiðin var samkvæmt veiðiskýrslum tæpar 60.000 grágæsir og um 20.000 heiðagæsir.

Lesa meira
 
YtriAegissidufoss

18.8.2011 : Lausar stangir næstu daga

Við eigum spennandi stangir lausar næstu daga og í næstu viku. Veiðin hefur verið að taka við sér í flest öllum ám og Rangárnar að gefa þriðjahvern lax sem veiðist á landinu. Frábært tækifæri til að skreppa í laxveiði. johann@lax-a.is Lesa meira
 
DEE200712

5.8.2011 : Laxveiði í Skotlandi

Við eigum lausar stangir í haust í áni Dee nánar tiltekið á Lower Crathes svæðinu. Laxveiðin í Skotlandi nær hámarki á vorin og á haustin og er því um að ræða frábæran tíma í áni. Veiðin er í rólegra móti um mitt sumar en þrátt fyrir það eru á meðaltali 130 laxar að veiðast á viku í allri áni. Lesa meira
 
Halla_05_HakanSteenlund_200

3.8.2011 : Hross í kringum veiðisvæði Hallá

Veiðimaður sem var í Hallá um verslunarmannahelgina hafði samband við okkur og vildi koma því á framfæri að hestar væri við veiðisvæði í áni. Hestarnir sækjast í saltið á bílunum og geta valdið tjóni a lakki bifreiðarinnar. Gott er að hafa varann á þegar menn leggja bílum við veiðistaði og athuga hvort hross séu á svæðinu.

Lesa meira
 
Grahegri

18.7.2011 : Nýr Íslenskur fuglavísir - Tilvalinn fyrir veiðimenn

Íslenskur fuglavísir er líklega ein þeirra bóka sem íslenskum ferðalöngum finnst ómissandi í sumarfríið. Þessi vinsæla bók er nú komin út í endurbættri útgáfu. Í þessarri nýju útgáfu hafa um fjörutíu fuglategundir bæst við frá fyrri útgáfum og er þetta rit bæði á íslensku og ensku tungumáli..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar