Helstu fréttir

30.6.2005 : Blanda kominn í Skrúðan

Hollið sem var að enda núna í Blöndu endaði með 53 laxa á 4 stangir í 2 daga.

Menn voru heldurbetur kátir í lok síðustu vaktar og sögðu að 80% af aflanum væri stórlax og tveir laxar 18-19 pund ,glæsilegir

Lesa meira

 

30.6.2005 : Laxá á Ásum

Nú er að kætast í ásunum, Lax sést víða og eru menn að fá hann frá Holltskvörn og niður fyrir brú.

Ég ræddi Við Ívar Pálsson og félaga sem eru á veiðum þessa stundina í Morgun og voru þeir búnir að fá 4 laxa

Lesa meira

 

30.6.2005 : Miðfjarðará

Búið er að bóka 47 laxa. 21 úr Vesturá, 20 úr Austurá, 6 úr Miðfjarðará en enn hefur enginn náðst úr Núpsá.

Í Vesturá eru flestir fiskarnir að koma úr Kistunum og Hlíðarfossi. Þeir eru á bilinu 3-6 kg og flestir 5 kg.

Í Austurá eru flestir fiskarnir

Lesa meira

 

29.6.2005 : 17 Laxar á land í Blöndu í morgun

Það er rífandi gangur á veiðinni í Blöndu þessa stundina og komu 17 rígvænir á land á morgunvaktinni. Lesa meira
 

29.6.2005 : Mokveiði í Blöndu

 

29.6.2005 : Mokveiði í Blöndu

Mokveiði er þessa stundina í blöndu 1 í morgun voru félagarnir búnir að fá 10 laxa fyrir kl 10 í morgun. Þess má geta að allt er þetta stórlax og sá stærsti er um 18 pundin.

2 stangir eru lausar frá hád í morgun á sv 1 í tvo daga.

 

kv Stefán

Lesa meira

 

28.6.2005 : Miðfjarðará

Gott í Miðfjarðará, hollið sem byrjaði í gær var komin með 7 laxa í hádeiginu dag.

Vegna forfalla Var að losna 1 stöng 30-3 júlí og ein stöng 3-6 júlí..

áhugasamir hafið samband við skrifstofuna og við gefum ykkur frekari upplýsingar.

Lesa meira

 

28.6.2005 : Laxinn Mættur í Rangárnar

Fyrstu Laxirnir sáust í morgun við Ægisíðufoss.

Guðmundur Atli Ásgeirsson leiðsögumaður er að guida þessa stundina í Ytri Rangá og sagði hann okkur að þeir væru búnir að sjá tvo laxa bylta sér við fossin.

Einnig heyrðum við í Félögunum í Laxá í Ásum.. og það var að koma lax inn í morgun.

voru þeir félagar búnir að fá einn í Dulsunum og sáu fleyri.

kv Stefán

Lesa meira
 
Kola

27.6.2005 : 15 kílóa tröll úr Kóla ánni í gær.

Úr Brúarhylnum í Kóla ánni var dreginn á land 15 kg lax í gær , fyrir nokkrum dögum kom 16kg lax einnig á land. Veiðin hefur glaðst mjög síðan í gær , veður hefur breist frá því að vera sólríkt og heitt síðustu vikur í að vera skýað og kólnað frá því í gær. Við eigum 2 last minute stangir lausar sem fara á góðu verði , vikan er frá 9-16/7. Ef að einhverjir hafa tíma til að skjótast í stórlaxaveiði þá þarf að hafa snör handök þar sem það tekur nokkra daga að fá visa áritun til Rússland. hafið samband við Árna hjá Lax-á 5576100 eða arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
File0005

26.6.2005 : Veiðidagur fjölskyldunnar í dag !!

Í tilefni að því að veiðidagur fjölskyldunnar er í dag þá ætlar agn.is og Lax-á að bjóða öllum sem áhuga hafa á því að veiða í Vatnasvæði Lýsu að veiða þar frítt í dag.

Lesa meira

 

23.6.2005 : Gott í Miðfirði

Nú erum við komin í 30 laxa sagði Hanna yfirþerna í Laxhvammi í Miðfirði.

Töluvert líf er að sjá og hafa menn verið að horfa á eftir göngum upp Miðfjarðará síðustu daga, Enginn smálax hefur sést ennþá og eru flestir laxarnir á bilinu 10-12 pund en sá stærsti er 9 kg eða 18 pund.

Má segja að veiðimenn séu nokkuð ánægðir með stórlaxana.

Lesa meira

 
RIMG0074

23.6.2005 : Lausar stangir.. gaman í Blöndu

Blanda sv1
Mokveiði hefur verið á svæði 1 í Blöndu hollið 18-20 júní var með 19 laxa og hollið 20-22 júní var með 26 laxar.
 
Blanda 1 er komin yfir 100 laxa múrin á 4 stangir á 17 dögum og veiðin er að aukast.. Minnsti Laxinn þessa stundina er aðeins 4 kg eða 8 pund og sá stærsti er 8.5 kg.
 
Eigum lausar 4 stangir á svæði 1 30 júní til 2 júlí. Þetta er ein áhugaverðasta veiði sem er á boðstólnum í dag. má geta þess að sama holl fékk 43 laxa í fyrra. verðið er 69.800 kr std og engin gistiskylda
 
 
Miðfjarðará

Lesa meira

 
Myndadiskur-2004-131

21.6.2005 : 11 vænir silungar úr opnuninni í silungasvæðinu í Svartá

Guðmundur nokkur fékk 11 væna silunga í silungasvæðinu í Svartá í gær og voru þeir á bilinu 3 – 5 pund. Lesa meira
 

20.6.2005 : Hann er mættur í Ytri Rangá

Guðmundur Atli leiðsögumaður Hjá Lax-á fór á stúfana í gær og kíkti á stigan í Ægisíðufossi og teljarinn var kominn 12 laxa. Ytri Rangá opnar 23 júní..

Fyrstu laxarnir veiddust 23 júní í fyrra

Lesa meira

 
32 PUNDARI

20.6.2005 : 36 pundari úr Kola ánni.

Í gærdag var 36 punda laxi landað úr Kola ánni , ég frékk þessar fréttir úr veiðihúsinu í morgunn , einnig var mér sagt að veiðin væri mjög góð þessa dagana. Mindin með greinininni er af 32 punda laxi sem veiddist í opnunarhollinu fyrir nokkrum dögum.

Lesa meira
 
Langadalsa_03_HakanSteenlun

20.6.2005 : Laxinn mættur í Langadalsá

Hermann Hermannsson leiðsögumaður hjá lax-á fór á stúfana í gær og skrapp ínn i langadal í Isafjarðardjúpi að Kíkja og taldi 7 laxa fyrir neðan neðri brúnna. Lesa meira
 
agnminniforweb

20.6.2005 : Afsláttarsprengja hjá agn.is

Nú erum við hjá agn.is komnir í veiðiskapið fyrir alvöru og ætlum við okkur að gefa 30 – 50% afslátt á frábær veiðisvæði eins og sjá má hér að neðan.

Í tilefni þess að það sé stórstreymt þann 22. júní ætlum við að gefa afslátt í eftirfarandi daga og svæði...

Lesa meira

 
Acha river

19.6.2005 : Fréttir frá Ponoi - Rússlandi.

Við vorum að koma nokkrir saman frá veiðum í Rússlandi vikuna 11-18 Júní , við veiddum Ponoi Acha / camp , og Acha ánna sem er þverá Ponoi. Við áttum ágæta veiðiviku , 10 stangir á Ponoi veiddu 350 laxa og 3 stangirnar sem veiddu Acha þverá Ponoi veiddu 100 laxa. Þetta var skemmtileg vika og frábært veður , hitinn fór upp í 25 stig á daginn , en kalt á nóttinni alveg niður í 2 - 5 gráður. Árni arnibald@lax-a.is

Lesa meira
 
Varzina50

19.6.2005 : 50 stórlaxar fyrstu vikuna úr Kola ánni.

Mind: Birgir Georgsson að berjast við nýgenginn Kola lax , veiðistaðurinn er Monica , fallegasti hylurinn í Kola og þótt víðar væri leitað.
Ég var að koma frá þriggja vikna veiði ferð í Rússlandi. Fyrsta vikan Kola ánni 3-10 Júní gaf 50 stórlaxa , meðalvikt yfir 20 pund, sá stærsti 32 pund. Veiðin fór seint af stað , fyrsta gangan kom ekki fyrr en um miðja vikuna , eða á Miðvikudeginum , eftir það var góð veiði. Ég hef frétt að það hafi verið mjög góð veiði seinni vikuna 10-17 Júní , en ég fæ nánari fréttir af því á morgunn. Árni   arnibald@lax-a.is
p.s það er 1 stöng laus í Kola ánni 2 - 9/7 og 2 stangir 9-16/7.

Lesa meira
 
DSC00016

16.6.2005 : 9 laxar komnir upp í Miðfirði ...

Nú á fyrsta degi í Miðfjarðará eru komnir 9 laxar og eru þeir allir á bilinu 12 – 18 pund.

Laxarnir hafa verið að koma jafnt á maðk og flugu og segja men að nóg sé af laxi í ánni.

Lesa meira

 
RIMG0074

16.6.2005 : Meira frá Miðfjarðará

Hér á myndinni er Tóti Tönn með 18 punda laxinn sem veiddist í Miðfjarðaránni í gærdag. Laxinn kom á Sunrise Shadow flugu og var mikill barningur að landa honum að sögn Tóta. Lesa meira
 
ssss

16.6.2005 : Miðfjarðará opnaði seinnipartinn í gær og komu 6 vænir laxar

Það komu 6 laxar seinnipartinn í gær og allir í Austurá..sá minnsti var 6 kg eða 12 pund og sá stærsti 9 kg eða 18 pund.. veiddur af sjálfum meistaranum Tóta tönn.. Þó nokkuð af laxi hefur sést í Miðfjarðará og munum við hér halda áfram að setja inn fréttir af gangi mála þar. Lesa meira
 
norduraskag

15.6.2005 : Frítt í 19 vötn á Veiðidegi fjölskyldunnar á sunnudaginn

Hinn árlegi "Veiðidagur fjölskyldunnar" verður haldinn á sunnudaginn og býðst fjölskyldum að veiða sér að kostnaðarlausu í alls 19 vötnum víðsvegar á landinu.

Að baki Veiðidegi fjölskyldunnar býr sú hugmynd að hvetja alla fjölskylduna til að halda til veiða og njóta þess eina dagstund að renna fyrir gómsætan vatnafisk í hinni stórbrotnu íslensku náttúru og kynnist um leið þessari skemmtilegu tómstundaiðju.

Það heyrist stundum sagt að stangaveiði sé ekki á allra færi sökum mikils kostnaðar, en það er alls ekki rétt. Athuganir hafa leitt í ljós því sem næst áttatíu þúsund Íslendingar stunda stangaveiði í einhverjum mæli sér til
Lesa meira
 
DSC00047

14.6.2005 : Losnaði óvænt stöng í opnuninni í Miðfjarðará

Hægt er að fá stöng í opnunarhollið í Miðfjarðará frá 15. – 18. júní. Nánari upplýsingar gefur Jón Þór Júlíusson í síma 898 2230 Lesa meira
 
lysa

13.6.2005 : Allt vaðandi í fiski á Vatnasvæði Lýsu

Tveir veiðimenn voru að veiði í Vatnasvæði Lýsu um helgina og tóku þeir 46 fiska, 38 bleikjur, 2 sjóbirtinga og 6 urriða og var fiskurinn á milli 2-3 pund.

Einnig fengum við fréttir af því að það sé allt morandi í fiski þessa stundina í vatnasvæði Lýsu svo það er tilvalið að kíkja þangað og Lesa meira

 
bl45

13.6.2005 : Feðgar gera það gott í Blöndu

Blanda er komin eitthvað yfir 30 laxa núna og hefur hún yfirleitt verið skemmtilegasta veiðiáin okkar íslendinga í júní.

Lesa meira

 

10.6.2005 : Laxinn mættur í Laxá á Ásum

Daníel Dagbjartsson leiðsögumaður hjá Lax-á fór á stúfana í gærkveldi að kíkja eftir Laxi í Laxá á Ásum og sá tvo væna undir Brúnni á þjóðveginum..

Það verður spennandi að fylgjast með fyrstu veiðimönnunum í Ásunum en hérna áður fyrr voru allveg ótrúlegar opnanir.

Lesa meira

 

10.6.2005 : Blöndulón hefur ekki verið minna í 5 ár

Það eru tæpir 4 metrar í yfirfall,og það eru góðar fréttir fyrir veiðimenn.

Á sama tíma í fyrra var staðan 1.5 m í yfirfall og rann Blandan yfir að hádegi 3 ágúst.

Árið 2000 var staðan svipuð og hún er núna í lóninu og þá fór Blandan á yfirfall í kringum 27 ágúst

Lesa meira

 

10.6.2005 : 32 Pundari komin upp

Kola áin í Rússlandi er að gefa vel af sér Ég heyrði í honum Árna Baldurs í gær og þá voru þeir búinir að veiða 4 þann morguninn og ekki litla get ég sagt ykkur. Minnsti var Lesa meira
 
HP6H8951

9.6.2005 : Tungufljót í Biskupstungum

Bændur í biskupstungum eru þessa stundina í önnum við að koma fyrir laxaseiðum í Tungufljót og er þetta 3 sleppingin síðan 2002. Undanfarin ár hafa verið tilraunasleppingar og verið sett á bilinu 5-15 þúsund seiði sem hafa skilað sér nokkuð vel í gildrur og hefur sá lax verið kreistur og notaður afram Lesa meira
 
Untitled-4

9.6.2005 : 3 bátar til sölu ásamt utanborðsmótor hjá Lax-á ehf

Hægt er að kaupa báta á góðu verði hjá Lax-á ehf sem eru nánast ónotaðir. Þessir bátar voru keyptir í fyrra og hafa verið í geymslu innandyra í vetur. Utanborðsmótor fylgir hverjum bát. Bátarnir eru 5,76 metrar á lengd.

 

Nánari upplýsingar um verð og fleira gefur Þorfinnur Kristjánsson í síma 898 4778.

Lesa meira

 
RIMG0017

8.6.2005 : Opnunarhollið endaði í 17 löxum.

Opnunarhollið endaði í 17 löxum sem er nokkuð gott en opnunarhollið 2004 endaði í 12 löxum. Flestir laxarnir voru á bilinu 10-14 pund en sá stærsti var um 17 pund. Lesa meira
 
DSC00052

7.6.2005 : Laxarnir orðnir 16 í Blöndu

Nú eru veiðimennirnir í Blöndu búnir að landa 16 löxum og hafa 3 þeirra komið á svarta snældu en hinir allir á maðk.

Taka má fram að svokallaðir þungaviktarmenn eru nú í Blöndu eins og má nefna helstan Tóta Tönn.

Lesa meira

 
PICT0048small7

6.6.2005 : Laxarnir orðnir 13 í Blöndu

Nú eru veiðimennirnir í Blöndu búnir að landa 13 löxum og hafa 3 þeirra komið á svarta snældu en hinir allir á maðk.

Breiðan svokallaða er að gefa flesta fiska sem gaman er að segja frá því yfirleitt hafa flestir fiskar í opnuninni verið að koma úr Damminum svokallaða.

Lesa meira

 
PICT0045small4

6.6.2005 : Opnun í Blöndu gengur frábærlega og 12 komnir á land frá 10 – 17 pund

Blanda opnaði í gær þann 5 júní og komu þá 10 laxar á land sem voru ekki af smærri endanum eða á bilinu 10 – 17 pund. Einnig hafa komið 2 laxar á land í morgun og er greinilega fiskur að ganga á fullu inn í Blöndu núna því flestir eða ekki allir laxarnir voru grálúsugir.

Lesa meira

 
12-11-2004-8033

3.6.2005 : Glæsilegir loftmyndadiskar af veiðisvæðum til sölu hjá Lax-á ehf og á agn.is

Myndirnar á þessum diskum sýna mjög vel hvernig áin er s.s. vatnsmagn, veiðistaðir og landslag. Þá gefa þessar myndir mönnum einstakt tækifæri til að stúdera vatnasvæðin. Loftmyndadiskarnir eru einstaklega skemmtilegur undirbúningur fyrir veiðiferðirnar. Lesa meira
 
lasth

2.6.2005 : Lasthope fyrirtækið til sölu

Við hjá Lax-á höfum ákveðið að selja Last Hope fyrirtækið sem framleiðir fluguhnýtingar efnin , sem eru úr Hrosshári ( Arctic Runner ) , Ísbjörn frá Grænlandi , Refur frá Íslandi , og Íslensk ull. Þetta er bráðskemmtilegt og spennandi fyrirtæki fyrir Lesa meira
 
Kola

2.6.2005 : Fréttir frá Kola og Kitza ánum í Rússlandi.

Á morgunn föstudag mun fyrsta veiðimanna gruppan lenda hér í Murmansk. Á laugardaginn birjum við að veiða í Kola – Kitza ánum okkar , þar er rosalega mikið Lesa meira
 

2.6.2005 : Laxinn er að safnast upp í Blöndu

Löxunum fer fjölgandi í Blöndu. Í fyrrakvöld sáust 5 laxar á svæði 1 svo það lítur út fyrir að löxunum fjölgi. Allir 5 laxarnir voru vænir og á milli 10-15 pund.

Mikið verður gaman á sunnudaginn.

Lesa meira
 

1.6.2005 : Gengur frábærlega í opnuninni í Staða- og Múlatorfu

Nú í dag opnaði Staða- og Múlatorfa og er óhætt að segja að það gangi glimrandi vel þar því veiðimennirnir sem eru þar staddir að veiða eru búnir að fá 45 – 50 fiska á bilinu 1 – 3 pund og rosalega gaman eins og þeir orðuðu það.

Vonum við að þeir muni hafa jafn gaman af seinnipartinn og haldi áfram að setja í spræka silunga.

Lesa meira

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 
2008 opnun allt í keng í Djúpós

27.8.2011 : Rusl á veiðsvæðum

Við hjá Lax-á viljum vinsamlega benda veiðimönnum á að ganga vel um veiðisvæði og veiðihús. Nokkuð hefur borist af því undanfarið að rusl sé skilið eftir við árbakka og að ekki sé þrifið eftir sig í veiðihúsum eftir að veiðitíma líkur. Dæmi eru um að veiðimenn skilji eftir sig bjórdósir, klósettpappír og taumenda við árbakka og er það mikill sóðaskapur.

Lesa meira
 
Sportveiðiblaðið

25.8.2011 : Nýtt eintak af Sportveiði blaðinu komið út

Nýtt eintak af Sportveiðiblaðinu var að koma út og hefur blaðið sjaldan verið jafn fullt af skemmtilegum greinum og nú. Í blaðinu má annars finna viðtal við Bo Hall, eða Björgvin Halldórsson um veiðidelluna, veiðistaðalýsing í Blöndu, viðtal við feðgana Sólmund Einarsson og Arne Sólmundsson svo að nokkuð sé nefnt.. Axelo        axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar