Eru búnir að fá rúmlega 50 fiska á 1 og ½ degi svæði 3 í Grenlæk
Fréttir uppfærðar á aðalsíðu Lax-á vikulega
Nú er sólin loks farin að hækka á lofti, aðalveiðitíminn að nálgast og veiðimenn farnir að iða í skinninu eftir að komast á árbakkana. Við höfum ákveðið að bjóða upp á Argentínu/Kúbu/Mexikó kynningu með slidemyndasýningu í veiðihúsunum okkar í sumar fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér nýjar slóðir í fluguveiði.
Lesa meiraFrábært tilboð á Ponoi / Acha – Kólaskaganum.
Það losnuðu 2 stangir í bátaferðinni okkar niður Acha / Ponoi ánna á Kólaskaganum, vikan er 11 – 18 Júní. Mikil laxveiði er á þessum tíma , þetta er ein af allra bestu vikum sumarsins. Við bjóðum nú þessa ferð á á sérstöku verði eða aðeins kr: 195.000.- allt innifalið í Rússlandi , fæði , gisting , leiðsögn ,og þyrlur. Flogið er Keflavík – Helsinki – Murmansk – Keflavík,
allar uppl. gefur Árni Baldursson í síma 892 7146 eða arnibald@lax-a.is
Lesa meira
Laxinn er kominn í Blöndu
Vignir Björnsson árnefndarmaður í Blöndu fór að kíkja í morgun og sá tvo nýgengna laxa í holuni sem er næsti staður ofan við Dammin í Blöndu 1.
Vignir sagði að Laxarnir væru um 15 pundin og var farið að kítla í lófana eins og fleyrum veiðimönnum..
Það verður heldurbetur spennandi að sjá hvað margir laxar veiðast fyrstu dagana en opnuninn er þann 5 júní.
eigum eina stöng lausa 9-11 júní.
Frekari upplýsingar stefan@lax-a.is
Varzuga veiðifréttir , 338 laxar á 2 dögum!
Mikill hamagangur var tvo fyrstu veiðidagana í ánni Varzuga á Kólaskaganum , 124 laxar veiddust fyrsta veiðidaginn og seinnidaginn komu 214 laxar á land, ótrúleg veiði og það í erfiðum aðstæðum þar sem vatnið er mjög mikið á Varzuga um þessar mundir. Öll veiðin er á miðsvæði Varzuga , það er allt of mikið vatn fyrir neðri svæðin og lítil veiði þar. Árni.
Lax-á vikur í Kúbu 2006 - RISA tarponar
20 stiga hiti á Kólaskaganum.
Ég hringdi í einn af leiðsögumönnunum okkar í Kola ánni í gær og bað hann að keira upp að Kola ánni og skoða aðstæður. Fréttirnar frá honum eru að ísinn er alveg farinn af ánni , í gær var hitabylgja og 20 stiga hiti , því er mikil snjóbráð og mikið vatn í ánum á Kólaskaganum. Kola áin opnar á Laugardaginn og verður spennandi að fylgjast með fyrstu dögunum. Á síðasta ári var fyrsta vikan í veiðinni mjög róleg , en allt fór af stað í viku tvö. / Árni.
Sést til Laxa í Laxá í Kjós.
Það sást til níu laxa á nokkum stöðum neðan Laxfoss í Laxá í Kjós í gær. þetta er nokkuð hefðbundið og nú ætti á hverri stundu að sjást til laxa í Norðurá sem opnar eftir örfá daga eða 1 Júní. Blanda opnar 5 Júní , við búumst við að fretta af löxum þar á næstu dögum.
45 Sjóbirtingar á einum degi!
Ásgeir og Gunnar skruppu í Grenilæk svæði 3 um helgina. Á einum degi veiddu þeir hvorki meira né minna en 45 Sjóbirtinga á 2 stangir. Þetta var ágætur fiskur sögðu þeir félagar , frá 3 pundum upp í stærst 9 pund ( öllum sleppt ) . Nú er búið að gera átak í að merkja veiðisvæðið , merkja veiðistaði , slóða ofl. Einnig erum við að að leggja síðustu hönd á veiðikort af Grenilæk svæði 3. Nú þegar þessar upplýsingar liggja fyrir ætti að vera betra fyrir veiðimenn að kynnast svæðinu. Allar upplýsingar um Grenilæk sv. 3 veitir Stefán Sigurðsson í síma 557 6100 eða stefan@lax-a.is
16 - 19/7 - Lausar stangir í Selá
Það losnuðu óvænt 4 stangir í Selá í Vopnafirði í 3 daga 16 - 19 Júlí hádegi til hádegis, þetta er mjög góður tími í þessari eftirsóttu laxveiðiá. Allar frekari uppl. gefur Stefán Sigurðsson á skrifstofu Lax-á í síma 557 6100 eða tölfupóstur stefan@lax-a.is
Ponoi - 2 stangir lausar 11-18 Júní.
2 stangir lausar í Acha - Ponoi - Bátaferð.
Nú eru 2 stangir eftir í bátaferðinni okkar niður Acha / Ponoi ánna í Rússlandi. Vikan er 11 - 18 Júní, besti tími og frábær veiði.
Verðið er kr: 37.000.- pr. dag pr. stöng , fyrir 7 dagana kr: 259.000.- allt innif. i Rússlandi, Helicopter, fæði og gisting (tjald) og leiðsögumenn. Uppl. gefur Árni Baldursson hjá Lax-á 5576100 arnibald@lax-a.is
Stórlaxar í Canada.
-HAUSTVEIÐI – RISALAXAR!
Við eigum lausar 4 stangir í topp viku 19-24 September , September er besti mánuðurinn á Grand.
Rio Grande - Ævintýrið í Suðrinu
Toon Ken, Rio Grande 2006 Við erum þegar farin að taka niður bókanir fyrir næsta ár í "Ánni Stóru" í suðrinu sæla! Lax-á vikurnar eru allar á besta tíma í ánni: Lesa meira
Kola / Kitza opnar 27 Maí.
Nú er laxveiði vertíðin að hefjast á Kola skaganum í Rússlandi. Varzuga og Ponoi opna báðar í næstu viku og stórlaxa árnar Kola og Kitza fylgja í kjölfarið og opna 27 Maí. Kola / Kitza árnar eru með hæstu meðalþyngd laxa af öllum ám á Kolaskaganum , þar eru 20 - 40 punda laxar daglegt brauð.
30 pundari úr DEE - Forest Birse.
Stórlax veiddist í ánni DEE í síðustu viku á svæði Lax-á, laxinn var 30 pund og veiddist í frægum stór laxa hyl Lummels. Þess má geta að stærsti lax ársins í Skotlandi í fyrrasumar veiddist einnig í Lummels sá lax var hvorki meira né minna en 30 pund.
Síðustu stangirnar í Miðfjarðará
Restin af veiðileyfum í Miðfjarðará á agn.isNú geta áhugasamir veiðimenn sem ætla sér í Miðfjarðará í sumar nálgast veiðileyfin á veiðivefnum www.agn.is því hér eru öll þau veiðileyfi sem eftir eru í miðfjarðará fyrir komandi veiðitímabil.
Lesa meira
