Veiðisvæði vikunar Austurbakki Efri í Skjáfandafljóti
Skjálfandafljót kom fyrst í sölu hjá okkur fyrir síðasta sumar. Þar er um að ræða frábæra veiði sem þó þarfnast enn nokkurrar kynningar á meðal veiðimanna.
Áður hafði lítill hópur veiðimanna á leigu og skipti með sér dögunum. Veiðileyfi höfðu því ekki farið á almennan markað í áraraðir fyrr en Lax-á samdi um veiðiréttinn á vor mánuðum 2012. stefan@lax-a.is
Blanda opnunn 2013
Hvannadalsá Veiðisvæði Vikunar
Ófáir hafa gert góða ferði í Hvanndalinn frá því landeigendur og Lax-á bundust saman höndum um að rækta hana upp. Veiðin toppaði sumarið 2010
Krossá
Krossá er lítil á svo hún hentar vel til að veiða með nettum græjum. Einhenda frá 5-8, flotlína, smáflugur og gárutúbsbragðið getur gefið vel. Áin er afar tær og þarf að fara varlega til að styggja
Dee
Ný síða um Grænlandsveiðar
Þessa dagana höfum við hjá Lax-á verið að setja upp nýja síðu tileinkaða Grænlandi á facebook. Bið alla að kíkja inná síðuna og skoða myndir ofl skemmtilegt og lika. hér er slóðin stefan@lax-a.is
Frábært holl í Blöndu 1
Við eigum dagana 28 til 30 júní lausa á svæði 1 í Blöndu, eins og flestir veiðimenn vita þá er Blandan mun fyrri til en aðar ár og er þetta mjög gott holl. Á þessum dagsetningurm hafa veiðst allt að 80 laxar á dag – á aðeins 4 stangir.
Tilboð í Blöndu 4
Við höfum ákveðið að bjóða nokkra frábæra daga á svæði 4 í Blöndu á sérkjörum á www.agn.is , í boði er tímabilið 7 – 13 júlí á 25% afslætti. Við hvetjum veiðimenn til að kynna sér þetta magnaða veiðisvæði – á undanförnum árum hafa mum færri komist að en vilja.
Laus holl á besta tíma
Ég var að renna í gegnum sölukerfið hjá okkur og rakst á nokkur mjög áhugaverð holl í ám sem eru án þjónustu á besta tíma. Endilega kíkið á þessar dagsetningar. stefan@lax-a.is
Lesa meira
Eystri Rangá
Laugardalsá
Endurbætur á Ásgarðshúsinu
Flokkur manna og kvenna hefur að undanförnu verið að stöfum í Ásgarðshúsinu á bökkum Sogsin. Kominn var tími á andlitslyftingu á húsinu og var vel í lagt í þetta skiptið. Húsið að var allt málað að innan í hólf og gólf, öll húsgögn endurnýjuð og herbergin parketlögð.
Skjálfandafljót
Styttist í nýtt veiðitímabil
Ekki er laust við að margan veiðmanninn sé farið að hlakka til næstu mánaðarmóta – enda opna fyrstu árnar 1 apríl og allmörg vötn líka. Það er ákveðinn sjarmi yfir vorveiði – allra veðra er von og fæstir gera sér vonir um mikinn afla. Þó veiðist oft vel á vorin, sérstaklega þegar hlýindi eru allnokkur og lífríkið farið að taka við sér.
Lesa meira
Brynjudalsá
Brynjan er með magnaðri laxveiðiám landsins þó hún láti ekki mikið yfir sér, meðalveiði síðustu 4 ára eru 270 laxar á 2 stangir. Enda á hún sér orðið nokkuð stóran hóp af fastagestum. Sumum finnst það galli að ekki sé eiginlegt veiðihús á meðan aðrir telja það kost, enda áin í aðeins 40 – 50 mín fjarlægt frá höfuðborgarsvæðinu. Komi veiðimenn lengra að má finna gistingu víðsvegar í Hvalfirðinum og er m.a.s. hægt að leigja hús á bakka Brynjudalsár. Brynjan hentar sérlega vel fyrir yngri veiðimenn, enda má nánast alltaf ganga að laxi vísum við annan af tveimur fossunum í ánni.
Lesa meira
Vinningshafarnir í Myndagetrauninni
Nú er búið að draga út vinningshafana í myndagetrauninni okkar en verðlaunin voru ekki beint af verri endanum. hér fyrir neðan eru vinningshafarnir. stefan@lax-a.is
Blanda í júní
Engum blöðum er um það að fletta að Blanda er aflahæsta laxveiðiá landsins í júní sé litið til afla á stöng. Allt upp í 500 laxar veiðast þar á 25 dögum – langmest á svæði 1 þar sem einungis eru 4 stangir. Ekki skemmir að meðalvigtin er afar há og varla sést smálax fyrr en uppúr 20 júní. Það er varla hægt að hugsa sér betri byrjun á laxveiðitímabilinu en að skella sér í stórlaxaveislu norðan heiða.
Grænland
Myndagetraun lax-á no 2
Stóra Laxá
Blöndulón i lágmarki
Hreindýraveiðin í Grænlandi
Styttist í Veiðisumarið
Kæru Veiðimenn
Nú styttist óðum í komandi veiðiár og margir komnir með fiðring. Við tókum okkur til í síðasta mánuði og settum af stað skemmtilegan myndaleik sem heldur betur sló í gegn og verðlaunin voru ekki af verri endanum stefan@lax-a.is
Stóra laxá
Stór hluti veiðinnar kemur á haustin, en óhætt er að fullyrða að engin laxveiðiá hérlendis hefur gefið eins magnaða haustveiði og stefan@lax-a.is
Veiðisvæði vikunnar - Ytri Rangá
Urriðasvæði Ytri Rangár
Urriðasvæðið í Ytri Rangá hefur nú bæst í vefsöluna á www.agn.is og geta áhugasamir skoðað laus leyfi á vefnum. Sérstaklega ánægjulegt er að kynna 50% verðlækkun á svæðinu á milli ára.
Hægt er að aka að ánni nokkuð víða á fólksbílum, þó alls ekki alls staðar. Víða þarf að ganga til að leita fanga á þessu óútreiknanlega veiðisvæði.
Veiðisvæði vikunnar á agn.is
Við vekjum athygli á að veiðisvæði vikunnar á www.agn.is er svæði 4 í Blöndu og í tilefni af því eru einhverjir dagar á tilboði.
Svæðið hefur verið eitt allra vinsælasta veiðisvæði okkar í mörg ár – enda bæði fallegt og skemmtilegt veiðisvæði og ekki hefur veiðin spillt ánægjunni.
Ánægður Vinningshafi
Svæði 1 í Blöndu
Svæði 1 í Blöndu er að verða þéttsetið í sumar, en við eigum lausa 2 daga í lok júní (28 – 30), en á þessum tíma fer smálaxinn að gera sig verulega gildandi til viðbótar við öflugar stórlaxagöngur.
Til hamingju Jón Ingi Sveinbjörnsson
Blanda sv1 komin í vefsöluna
Veiðisvæði Vikunar
Miðdalsá lækkar í verði
Hreindýraveiði á Grænlandi
Veiðiminjasafnið – Litli veiðikofi FLUGUNNAR við Hrunakrók í Stóru Laxá
Veiðifélag Stóru Laxár og Lax-a eru að gera upp litla veiðihúsið upp við Hrunakrók í Stóru Laxá, oft kennt við Guðmund í Miðdal.
Þetta litla veiðihús á sér stórmerkilega sögu, okkur langar til að safna saman munum og ljósmyndum frá síðustu arnibald@lax-a.is
Skemmtileg Videomyndbönd
Sportveidi tv
Myndirnar í myndagetrauninni
Tilboð á sv. 2 og 3 í Blöndu
Dee opnar
Langar þig 21-24 júlí í Ytri Rangá frítt
Blanda sv 1
Hróarslækur
Svartá í A hún
Skjálfandafljót 2013
Hallá á skagaströnd
Langadalsá
Styttist í fyrstu opnuninna
Jónsmessustraumur
Sem fyrr opna margar af minni ánum okkar upp úr 20 júní næsta sumar, má þar nefna Langadalsá, Hvannadalsá, Hallá, Miðdalsá, efri svæðin í Blöndu, Skjálfandafljót og Ferjukotseyrar svo einhver dæmi séu tekin. Flestir laxveiðimenn vita að brugðið getur til beggja vona með aflabrögð í júní en jafnframt má gera sér vonir um að meðalvigt aflans sé talsvert hærri en aðra mánuði.
Lesa meiraGleðifréttir úr Skjálfandafljóti
Stutt í veiðinna í Skotlandi
Sog - Ásgarður
Loksinns er Ásgarður í Soginu kominn í sölu hjá okkur en við erum mjög ánægð og stollt að vera búin að fá þetta stórfallega veiðisvæði í sölu hjá okkur.
Lítið mun breytast 2013 annað en veiðisvæðið skiptir um söluaðila. veiðireglur munu vera svotil óbreyttar á milli ára en leyfilegt agn stefan@lax-a.is
Brynjudalsá kominn í vefsöluna
Krossá í Bitrufirði
Krossá bættist við veiðiflóru okkar fyrir 3 árum síðan og hefur verið mjög vinsæl síðan. Verði á veiðileyfum er stillt í mjög í hóf en á móti kemur að góðrar umgengni er krafist við ána. Eftir 20 júlí er eingöngu leyfilegt að veiða á flugu og 2ja laxa kvóti er á stöng á dag allt tímabilið. stefan@lax-a.is
Langadalsá og Hvannadalsá
Eystri Rangá 2013
Gleðileg Jól
Kæru Viðskiptavinir og Landsmenn allir
Starfsfólk Lax-á óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og þakkar fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Vonandi verður veiðin frábær á nýja árinu og allir veiði sem mest á því nýja. stefan@lax-a.is
Opnunartími yfir hátíðirnar
Opnunartíminn á skrifstofu lax-á um hátiðirnar verða eftirfarand
24 Desember aðfangadagur lokað
25 desember jóladagur Lokað
26 desember annar í jólum Lokað
27 Desember opið 9-17
15% afsláttur af gjafabréfum fyrir jólin
Veiði í Grænlandi 2013
Nú er allt orðið tilbúið í Grænlandi og hlökkum við til að bjóða veiðimenn okkar velkomna í þá glæsilegu aðstöðu sem við erum búin að byggja upp þar í landi, á Suðvesturströnd Grænlands, nálægt Narsarsuaq. Við erum vægast sagt mjög ánægð með útkomuna og féll bæði veiðin og aðstaðan vel í kramið hjá þeim veiðimönnum sem fóru að veiða með okkur síðsumars í ár.
Miðdalsá í Steingrímsfirði
Miðdalsá bættist í veiðiflóru Lax-á fyrir síðasta sumar, en talsverðar framkvæmdir höfðu þá átt sér stað þar. Laxaseiðum hafði verið sleppt í ánna árið áður og veiðihús flutt á staðinn og standsett. Áin er áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja silungsveiði með laxavon og vilja jafnframt vera alveg útaf fyrir sig.
Lesa meira
Jólagjöf veiðimannsins - á tilboði
Gjafabréfin okkar hafa verið feykivinsæl á undanförnum árum, enda fátt skemmtilegra en að fá veiðiferð að gjöf.
Fram til jóla eru gjafabréfin á sérstökum 15% afslætti og fylgir merkt Lax-á derhúfa með hverju bréfi.
Gjafabréf að andvirði 10.000 kr. er á 8.500 kr.
Gjafabréf að andvirði 15.000 kr. er á 12.750 kr.
Gjjafabréf að andvirði 20.000 kr. er á 17.000 kr. o.s.frv.
Veiðin í Grænlandi
Ný glæsileg bók um Víðidalsá
Höfundarnir verða á staðnum, kynna bókina og árita.
Léttar veitingar í boði. Veiðimenn stefan@lax-a.is Lesa meira
Hallá 2013
Syðri Brú ber af í Soginu
Grænlandsspjall í Ellingsen
Í næstu viku mun ferðafrömuðurinn, veiðimaðurinn og hreindýrabóndinn Stefán Hrafn Magnússon vera á staðnum í Ellingsen og spjalla við áhugasama um veiðar og staðhætti í Grænlandi.
Stefán er mikill sagnabrunnur og segir skemmtilega frá og enginn ætti að vera svikinn af því að sitja á spjalli við hann.
Hróarslækur
Hróarslækur fór ekki varhluta af aflabresti sumarsins frekar en aðrar ár – þó er áin ein af örfáum ám landsins sem bætti sig á milli ára. Í sumar var lokatalan um 100 laxar, vissulega undir væntingum (miðað við sleppingar) en mikil bæting frá 2011.
Stóra Laxá í júlí
Öll svæði Stóru Laxár munu opna 1 júlí næsta sumar – en júlíveiðin var með ágætum síðasta sumar. Svæði 1 og 2 skilaði 100 löxum í júlí og svæði 4 fór e-ð yfir 30 laxa en minna á svæði 3.
Við eigum lausa daga á svæði 1 og 2 og svæði 4 eftir 3 júlí, opnanir á öllum svæðum eru seldar. Það ætti þó ekki að koma mikið að sök þar sem nálega öllum laxi er sleppt aftur í ánna að viðureign lokinni.
Svæði 4 í Blöndu
Efsta svæðið í Blöndu hefur verið gríðarvinsælt hjá veiðimönnum undanfarin ár, enda svæðið mjög fallegt og alla jafna mjög góð veiði. Þetta svæði er jafnan eitt af þeim fyrstu sem fullbókast á hvert.
Á bestu dögunum veiðast fleiri tugir laxa á einungis 3 stangir, mest á litlar flugur og hitch túbur.
Nóvembertilboð í Gæsina
Skotland Dee
Veiðihúsið í Víðidalsá
Mikil gæs í Gunnarshollti
Veiði 2013
Ytri Rangá lokar eftir morgundaginn.
Silungasvæiðið í Víðidalsá
Silungasvæðið í Víðidalsá hefur verið mjög vinsælt hjá veiðimönnum á undanförnum árum, enda óvíð hægt að komast í jafn góða bleikjuveiði og ekki spillir sú staðreynd að stórlaxinn í Víðidalsá fer þar allur í gegn. Eins hefur sjóbirtingurinn verið að sækja í sig veðrið og margir og stórir bolta birtingar komið á land síðastliðin haust.
Við erum farin að taka niður bókanir fyrir næsta sumar á þessu frábæra svæði, þeir sem vilja tryggja sína daga er bent á að senda póst á spall@lax-a.is eða hringja í síma 531-6100
Breytingar í Hvannadalsá
Ákveðið hefur verið að leyfa maðkveiði í Hvannadalsá sumarið 2013, frá opnun til loka. Maðkabanni, sem komið var á 2011, mæltist misvel fyrir og þótti mörgum veiðimanni eftirsjá af þessari fallegu á úr maðkveiðiflóru landsins.
Frábær gæsaveiði í Gunnarsholti
Undanfarna morgna hafa veiðimenn í Gunnarsholti allir verið að taka kvótann sinn og hefur verið mikið af gæs í ökrum. Byrjunin á þessu skemmtilega gæsaverkefni hefur verið vonum framar og hafa allar skyttur fengið góða veiði. Tíðarfarið er nú orðið mjög hagstætt fyrir gæsaskytterí og því ekki við öðru að búast en að veislan haldi áfram.
Við höfum ákveðið að bjóða veiðmönnum uppá að bóka stakt morgunflug í Gunnarsholti og sleppa fæði og gistingu
Ytri Rangá verður opin til 30 okt
Fræðslugangan urriðadans á Þingvöllum 2012 - n.k. laugardag (13. okt) kl 14:00
Næst komandi laugardag (13. október) verður hin árlega fræðsluganga Urriðadans á vegum Þjóðgarðsins á Þingvöllum og Laxfiska.
Gangan verður að vanda í umsjón Jóhannesar Sturlaugssonar hjá Laxfiskum og hefst klukkan14:00 á bílastæðinu þar sem Valhöll stóð.
Frábær silungsveiði í Víðidalnum
Fátt hefur verið um góðar fréttir úr Víðidalnum í sumar, ef frá eru taldir þessir stóru sem komu á land. Veiði er nú lokið a laxasvæðinu en silungasvæðið er enn opið.
Höskuldur Erlingson og Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson voru þar við veiðar í gær við þriðja mann og sendur okkur eftirfarandi línur og myndir:
Veiðilok í Stóru Laxá og friðun stórlaxins á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár
Veiðilok í Stóru Laxá voru 30 September og voru 673 laxar færðir til bókar, þar af voru 244 laxar sem voru yfir 70cm. Á meðal þeirra voru allnokkrir verulega stórir, um 100 cm langir. Um 85 % eða 572 löxum var sleppt aftur í ánna til hrygningar og uppbyggingu á þessari fallegu á til framtíðar.
Við viljum nota tækifærið og þakka öllum þeim frábæru veiðimönnum sem hafa sleppt sínum feng aftur í ánna. Þarna hafa þeir aldeilis lagt lóð sín á vogarskálarnar til uppbyggingar á laxastofnum Stóru Laxár til framtíðar og í raun laxastofnum Ölfusár og Hvítár þar sem allur þessi lax gengur náttúrlega í gegnum vatnakerfið.
Allir þessir veiðimenn hafa hér farið skýlaust að fyrirmælum Veiðimálastofnunar og sleppt öllum stórlaxi yfir 70cm og gert gott betur því nánast öllum veiddum laxi var sleppt í Stóru í sumar, stórkostlegur árangur hefur hér náðst...
ÁFram góð gæsaveiði í Gunnarsholti
Áfram heldur gæsaveiðin að vera góð í Gunnarsholti, nálega allir sem þangað hafa komið í haust hafa veitt upp í kvótann sinn (12 gæsir á byssu) og allir hafa verið ánægðir með aðbúnað og aðstöðu.
Um helgina voru nokkrir veiðimenn í Gunnarsholti, sem vitanlega veiddu allir kvótann og sendu okkur þessar myndir til birtingar.
Enn eitt gott ár í Stóru Laxá
Áfram bærileg veiði í Ytri Rangá
Enn er veiði í Ytri Rangá þrátt fyrir að haustið sé farið að gera vart við sig. Í gær komu 23 laxar á land og 34 í fyrradag. Þetta er svipað meðaltali síðustu ára en í október veiðast oft í kringum 500 laxar.
Veiðin hefur dreifst nokkuð vel á milli svæða nú í haust, bestu svæðin eru 1, 3, 4, 7 og 8 en svæði 2, 5 og 9 hafa verið lökust. Þetta er þó mjög breytilegt á milli daga.
Ytri Rangá kominn í 4000 laxa og fín veiði
Gæsveiði, Ellingsen og fullt af Tilboðum
Enn veiðist vel á svæði 3 í Stóru
Eftir hádegi í gær komu 11 laxar á land á svæði 3 í Stóru Laxá. Veislan virðist því ætla að halda áfram þar.
Við eigum lausa daga á svæðinu nú í vikunni og um helgina, nánari upplýsingar má finna á www.agn.is eða með því að senda póst á spall@lax-a.is
Gæsadagur í Ellingsen
Gæsveiðin byrjar vel í Gunnarshollti
16 laxar á einum degi á sv 3 í Stóru Laxá
Veiðimenn sem stefan@lax-a.is
Septemberveiði í Tungufljóti
Veiðimaður að nafni Eric Cullin var ásamt félögum sínum við veiðar í Tungufljóti í Biskupstungum um síðustu helgi. Alls voru þeir með 3 stangir og höfðu 8 laxa upp úr krafsinu á 2 dögum. Fljótið hefur að jafnaði verið mjög gjöfult í septmeber og því gæti veiðin orðið góð það sem eftir er.
Enn veiðist í Ytri Rangá
Samkvæmt Matta veiðiverði er enn þokkalegasta veiði í Ytri Rangá, í gær komu reyndar einungis 14 laxar á land – en bálhvasst var við ána og setti það stórt strik í reikninginn. Dagana þar á undan voru að koma á milli 35 og 40 laxar á land og alltaf e-ð af nýgengnum laxi með í aflanum.
Lesa meiraGóð helgi í Hallá
Við vorum að heyra af veiðimönnum sem voru í Hallá síðustu helgi og gerðu góðan túr. Alls voru þeir með 13 laxa á 2 dögum. Dræm veiði hefur verið í Hallá í sumar en vonir standa til að haustgöngur í ánni bjargi einhverju – eins og oft hefur gerst.
Lesa meiraBilun í símkerfi
Vegna rafmagnstruflana hefur orðið bilun í símkerfi Lax-á en unnið er að viðgerð. Vonandi varir þetta sambandsleysi ekki lengi en þangað til bendum við á að tölvupósturinn virkar hjá öllum starfsmönnum og það er alltaf heitt á könnunni.
Grænland
75% tollurinn - Netaveiði í Ölfusá og Hvítá
Á ekki stjórnsýslan að geta tekið á og komið skikki á ofveiðina í Ölfusá og Hvítá? Þar fara nokkrir netaveiðimenn og taka 75% toll af öllum veiddum laxi á vatnasvæðinu, svona bara rétt á meðan fiskurinn á leið um hjá þeim upp til heimkynna sinna í uppám Árnessýslu. Stjórnsýslan verður að kalla eftir ábyrgri nýtingaráætlun frá stjórn Veiðifélags Árnesinga, nýtingaráætlun þar sem settur er kvóti á hverja netalögn, hæfilegur kvóti sem tryggir það að nægur lax verði eftir á ánum til hrygningar. Við stangaveiðimenn tökum svo við og sýnum ábyrgð með því að sleppa öllum laxi sem er yfir 70cm og helst öllum hrygnum.
Lesa meira
Góð veiði í Stóru Laxá
Við fengum frengir af því að vel hafi veiðst í Stóru Laxá um helgina, enda rímar tímasetningin ágætlega við undanfarin ár. Að sögn komu 20 laxar á land í gær og var langflestum þeirra sleppt aftur – enda gera reglur ráð fyrir því að öllum stórlaxi sé sleppt og að einungis megi hirða 1 smálax á stöng á dag.
Lesa meira