Tungufljót
Tungufljót í Biskupstungum hefur verið góð viðbót við laxveiðiflóru landsmanna á undanförnum árum. Veiðin hefur jafnan verið góð, jafnvel frábær, en þó var síðasta sumar lélegt eins og svo víða annarsstaðar. Meðalveiði áranna 2008 til 2010 er 1580 laxar á aðeins 4 til 6 stangir, sem er með því allra besta sem gerist. Veiðistaðir eins og Faxi og Hólmabreiða að ógleymdum Laxhyl í gljúfrinu hafa raðað sér á lista með bestu veiðistöðum landsins frá árinu 2008.
Krossá í Bitrufirði
Krossá bættist við veiðiflóru okkar fyrir 2 árum síðan og hefur verið mjög vinsæl síðan. Verði á veiðileyfum er stillt í mjög í hóf en á móti kemur að góðrar umgengni er krafist við ána. Eftir 20 júlí er eingöngu leyfilegt að veiða á flugu og 2ja laxa kvóti er á stöng á dag allt tímabilið.
Lesa meira
Brynjudalsá
Oft yfirsést mönnum Brynjudalsáin þegar rætt er um gjöfular laxveiðiár, enda leita menn stundum langt yfir skammt. Brynjan er einungis veidd með 2 stöngum og hefur nokkrum sinnum farið yfir 300 laxa á sumri. Framan af sumri er mesta veiðin við fossana tvo og niður að ós, en þegar líður á dreyfist laxinn vel upp á dal og þar er sérlega hentugt að nota fluguna.
Iðuklettur fallinn
Iðuklettar, hið mikla kennileiti á svæði þrjú í Stóru Laxá, hrundi í gær þegar áin ruddi sig en miklar leysingar hafa verið í ánni undanfarið. Það verður að segjast að mikil eftirsjá verður af þess náttúruundri sem allir sem hafa veitt á Iðu muna eftir. Sjá myndir.
Lesa meira
Miðdalsá í Steingrímsfirði
Tannastaðatangi - Sog
Tannastaðatangi, eða Tanginn eins og hann er oftast kallaður, hefur oft verið skemmtilegt veiðisvæði. Veiðin þar hefur stundum farið upp fyrir 200 laxa en er oft í kringum 100 laxa, sem telst ágætt fyrir 2ja stanga svæði. Selurinn hefur átt það til að sýna sig á Tanganum, eins og víðar í Soginu, en heimamenn hafa verið duglegir að ráða niðurlögum þessara óboðnu gesta.
Lesa meira
Hallá á Skaga
Hallá á Skaga hefur löngum verið sveiflukennd veiðiá, brugðið var á það ráð í kringum aldamótin síðustu að hætta veiði alfarið um tíma til að freista þess að ná upp laxastofninum í ánni. Eftir að veiði hófst aftur hefur hún verið vaxandi, veiðin hefur farið allt upp í 180 laxa á sumri.
Lesa meiraHvannadals- og Langadalsá
Það hefur færst í aukanna að veiðimenn hérna heim vilji nýta sér góða staðsetningu Hvannadals- og Langadalsár en það eru einungis 10 mínutna akstur á milli þeirra. Stærri hópar hafa verið að óska eftir að leigja allar stangir í báðum ám og nýta sér þá frábæra aðstöðu sem veiðihúsið í Langadal bíður uppá en alls eru 16 rúm í gistiskálanum auk sér húsi þar sem eldhúsaðstað, borðstofa og setustofa er en einnig er sána og heitur pottur á pallinum. Ef báðar árnar eru teknar eru 5-7 stangir í boði.
Lesa meira
Breytingar á veiðifyrirkomulagi í Hvannadalsá
Syðri Brú
Farið er að þrengjast um daga í Syðri Brú í Soginu enda um að ræða góða veiði og frábært veiðihús. Raunar hafa nokkrir veiðimenn haft orð á því að húsið eiginlega of gott, það varla að menn hafi sig úr því og niður að á.
Fimm ára veiðibann á svartfugl
Á vef Umhverfisráðuneytisins kemur fram að starfshópur, skipaður af Svandísi Svavarsdóttir umhverfisráðherra um verndun og endurreisn svartfuglsstofna, leggi til að friða fimm tegundir sjófugla af svartfuglsætt. Þetta á við allar veiðar og nýtingu næstu fimm árin, þ.m.t. um eggjatínslu. Þessar fimm tegundir svartfugla eru álka, langvía, stuttnefja, lundi og teista. Í skýrslunni leggur starfshópurinn áherslu á að hér við land sé einn stofn af hverri þessara tegunda þannig að staðbundin áhrif og breytingar hafa áhrif á um allt land og á viðkomandi stofn hér við land.
Lesa meiraLeyndardómurinn um laxinn afhjúpaður
Sog Syðri Brú
Gleðilegt nýtt veiðiár
Starfsfólk Lax-á vill óska öllum viðskiptavinum gleðilegt nýtt ár og takk fyrir viðskiptin á liðnu ári. Sumarið 2011 var nokkuð gott veiðiár og allflestir fengu fína veiði. stefan@lax-a.is
Silungasvæðið í Víðidalsá
Á silungasvæðinu í Víðidalsá er einhver allra besta bleikjuveiði landsins og eru vinsældirnar eftir því. Flestir dagar tímabilsins eru bókaðir af velunnurum svæðisins með miklum fyrirvara og eru því ekki margir dagar lausir þegar fram á sumarið er komið.
Eystri Rangá 2012
Hallá á skaga
Dregið á morgun
Við minnum á að á morgun verða dregnir út vinningar í Gjafabréfaleik Lax-á og www.agn.is
Meðal vinninga eru veiðileyfi í Ytri Rangá (12 júlí) og Eystri Rangá (4 júlí), veiði í Galtalæk og ársáskrift að Sportveiðiblaðinu.
Allir sem keypt hafa gjafabréf frá tímabilinu 15.11 til morgundagsins eru með í pottinum.
Við munum síðan hafa samband við vinningshafa eftir hádegið á morgun – þannig að það er um að gera að hafa kveikt á símanum.
Vorveiði í Blöndu
Krossá í Bitru
Næsta sumar verður þriðja sumarið sem Krossá verður á okkar snærum og óhætt að segja að reynslan sé nokkuð góð það sem af er. Í sumar sem leið skilaði áin 76 löxum á sínar tvær stangir en í fyrra voru þeir eitthvað yfir 160.
Áin er lítil og nett og á það til að verða full lítil í mestu þurrkasumrum en hún getur gefið þeim sem fara varlega að henni feykigóða veiði.
Laugardalsá við Ísafjarðardjúp
Laugardalsá er við Ísafjarðardjúp er ein allra besta á landsins, sérstaklega snemmsumars. Oft hefur hún skilað 180 – 300 löxum í júlí á 3 stangir, ekki geta margar ár státað af slíkri veiði. Oft hefur ágústmánuður einnig verið góður en áin lokar 1 september ár hvert.
Brynjan
Við vekjum athygli á því að Brynjudalsá er komin í vefsölu á www.agn .is og því hægt að bóka daga fyrir næsta sumar
Brynjan hefur verið algerlega mögnuð undanfarin ár, 250 (2010) – 325 (2009) og 300 (2011) laxar á land á tvær stangir. Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk í ánni, en ekkert veiðihús fylgir með leyfum – enda eru leyfi seld frá morgni til kvölds.
Fréttabréf Lax-á
Kæru veiðimenn
Undirbúningur er nú í fullum gangi fyrir næsta sumar og hefur salan farið vel af stað. Margar af okkar vinsælustu ám eru nú þegar orðnar vel bókaðar og má þar nefna Blöndu, Stóru Laxá, Langadalsá, Eystri Rangá og Ytri Rangá. Nóg er þó enn í boði en veiðimenn ættu að setja sig í samband við skriftofu Lax-á stefan@lax-a.is
Stóra Laxá
Svæði 4 í Stóru laxá hefur löngum verið talið sterkast snemmsumars, í lok júní og byrjun júlí. Í gegnum árin hefur snemmgengni stórlaxastofninn gengið í ána í júní og júlí og fljótt verið komin upp á efsta svæðið. Oft hafa fyrstu dagarnir veri ðáhugaverðir á svæði 4 í Stóru og gjarnan verið eftirsóttustu dagarnir á svæðinu.
Lesa meiraLangadalsá - Einstök náttúrufegurð
Langadalsá er staðsett í botni Ísafjarðardjúps, um 350 km frá Reykjavík og 30 mín akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið nær yfir 18km með 37 merktum veiðistöðum en eingöngu er leyfilegt að veiða með flugu. Veiðin hefur verið á milli 250 og 350 laxar síðastliðin fimm ár en sumarið í fyrra gaf 263 laxa. Á veiðisvæðinu eru þrjár stangir seldar fyrripart sumars, eða til 12 júlí, en eftir það eru fjórar stangir eru seldar í ánni. Frábært veiðihús fylgir ánni...
Lesa meira
Gjafabréf Lax-á í jólapakka veiðimannsins
Gjafabréfin frá Lax-á henta vel í pakka veiðimannsins. Öllum bréfum fylgir skemmtilegur glaðningur sem hægt er að láta fylgja í pakkann. Með 5.000,-kr bréfum fylgir t.a.m. derhúfa merkt Lax-á. Með 10.000,-kr bréfum bætast 2 laxaflugur í pakkann og í verðflokkum þar fyrir ofan fylgir einnig dagur í silungsveiði í Tungufljóti eða Ytri Rangá. Þessu til viðbótar fá fimm heppnir viðskiptavinir fría áskrift að Sportveiðiblaðinu í eitt ár. Allir sem keypt hafa gjafabréf á tímabilinu frá 15. nóvember til 21. desember verða í pottinum. Sportveiðiblaðið er eitt helsta og glæsilegasta málgagn stangveiðimanna og er gefið út þrisvar á ári.
Lesa meira
Sog - Tannastaðatangi
Tungufljót í Biskupstungum
Tungufljót í Biskupstungum var mjög skrýtið í sumar, heildarveiðin í fljótinu var ekki mjög merkileg en ástundun hefur einnig oft verið meiri. Oft var útlit fyrir að veiðin væri að lifna, dæmi eru um að 1 stöng hafi veitt 13 laxa á vakt í sumar, en veiðin dofnaði jafnharðan aftur. Ekki vitum við hvað þessu veldur, en talsvert af laxi gekk í stigann í október eftir að veiðum var hætt þannig að ekki er loku fyrir það skotið að laxinn hafi einfaldlega verið svona seinn fyrir í sumar. Í öllu falli höldum við ótrauð áfram með ræktunarstarfið í fljótinu, enda benda rannsóknir til að hluti afla komi úr náttúrulegu klaki sem átt hefur sér stað ofan Faxa. Það er ekki á vísan að róa í hafbeitarám fremur en öðrum ám, léleg veiði í sumar gefur engar vísbendingar um næsta sumar.
Lesa meira
Hallá á Skaga
Vorveiði í Ytri Rangá
Stóra Laxá í þýsku veiðiblaði
Grein um Stóru Laxá eftir þýska veiðimanninn Mawill Lüdenbach hefur verið birt í þýska veiðiblaðinu Scale Fly & Spin Fishing. Mawill og félagi hans Eric Cullin komu hér í heimsókn í byrjun september og veiddu í fjóra daga í Stór Laxá. Eins og fram kemur í greininni fengu félagarnir frábæra veiði en Mawill náði meðal annars að landa tíu löxum á sex tímum, eitthvað sem hann hefur aldrei náð. Hægt er að lesa greinina og blaðið hér.
Lesa meira
Jóla-Gjafabréf Lax-á
Jólastemning ríkir hjá okkur í Lax-á og ætlum við í tilefni hátíðarinnar að halda Jóla-happadrætti í desember. Allir þeir sem kaupa Jóla-gjafabréf fara sjálfkrafa í pott sem dregið er um veglega vinninga á hverjum fimmtudegi í desember og á milli jóla og nýárs. Á fimmtudögum er dregið út árs áskrift að Sportveiðiblaðinu en milli jóla og nýárs verða dregnir út stærri og veglegri vinningar.
Lesa meiraYtri í lok júní og byrjun júlí
Fyrstu vikurnar í Ytri Rangá hafa verið nokkuð vinsælar meðal veiðimanna á undanförnum árum, enda verð veiðleyfa hagstætt þessa daga, og veiðivon nokkuð góð. Engin fæðisskylda er til 10. Júlí og allt agn leyfilegt fram að þeim tíma. Veiðin hefur verið 0,5 til 2 laxar á stöngina að jafnaði undanfarin 4 ár, suma daga minna, aðra meira.
Lesa meira
Stórlaxaveiði
Gæsaveiði 2012
Stórlaxar - Viðtalsbók eftir Þór Jónsson og Gunnar Bender
Stórlaxar er viðtalsbók þar sem sjö landsþekktir einstaklingar segja veiðisögur og ræða um lífið á árbakkanum. Margir þeirra eru þekktir fyrir allt annað en laxveiði og kemur það mörgum vafalaust á óvart að stangveiði sé þeirra aðaláhugamál utan vinnu. Aðrir lifa og hrærast í stangveiði.
Í bókinni eru 48 litsíður þar sem gefur að líta myndir af öllum stórlöxunum í sínu náttúrulega umhverfi, ef svo má að orði komast. Þar má einnig sjá ýmsa aðra góða menn og konur við veiðar. Kunnastir eru vafalaust Haraldur Noregskonungur og Eric Clapton tónlistarmaður.
Lesa meira
Krossá í Bitrufirði
Forfallastöng á svæði 1 í Blöndu
Ein stöng var að losna á besta tíma á svæði 1 í Blöndu næsta sumar. Um er að ræða dagana 8 – 13 júlí, en meðalveiði á þessum dögum hefur verið frá 8 og upp í 20 laxar á stöngina á dag undanfarin 3 ár.
Hvannadalsá
Eystri Rangá 2012
Laugardalsá
Langadalsá
Miðsvæðin í Blöndu
Svæði 2 og 3 í Blöndu voru nokkuð góð í sumar, alls komu um 400 laxar á land. Að vísu eru allnokkrar stangir á svæðunum eða 9 stangir í allt – en fátítt var að það væru allar bókaðar.
Einnig verður að líta til þess að veiðin á sér nánast öll stað fyrir mánaðarmót júlí og ágúst, dagveiðin er því nokkuð góð á því tímabili, sérstaklega eftir 10 júlí.
Hraðahindrunum hent í Ytri Rangá
Hlutar úr hraðahindrunum sem stolið var á Hellu um helgina fundust strax í Ytri-Rangá. Tjón sveitarfélagsins vegna skemmdarverkanna hleypur á hundruðum þúsunda króna. Sveitarstjórn lítur málið mjög alvarlegum augum og hefur það verið kært til lögreglunnar. Íbúar á Hellu og aðrir sem telja sig hafa upplýsingar sem upplýst geta málið eru beðnir um að snúa sér til lögreglunnar á Hvolsvelli.
Lesa meiraVíðidalsár uppgjör 2011
Veiði lauk í Víðidalsá þann 24 september og var lokatala úr ánni 747 laxar á land. Oft hafa sést hærri tölur úr þessari rómuðu stóralaxaá en hlutfall stórlaxa var sem fyrr afar hátt.
Ragnar Gunnlaugsson á Bakka hefur verið veiðivörður við Víðidalsá í mörg ár og hefur hann sent okkur bráðabirgðaskýrslu um veiðina í Víðidalsá og Fitjá fyrir sumarið 2011. Kunnum við honum að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir.
Veiðihús við Stóru Laxá sv.IV endurgert
Veiðihúsið í Stóru Laxá sv.IV var endurgert fyrir sumarið 2011 af landeigendum og í samvinnu við Lax-á. Allt var tekið í gegn og má segja að innbú veiðihúsins sé næstum algjörlega nýtt þ.e.a.s. svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofan voru tekinn í gegn. Veiðihúsið rúmar 9 veiðimenn í fimm svefnherbergjum og er heitur pottur og gasgrill á veröndinni. Öll tól og tæki má finna í eldhúsinu eins og örbylgjuofn, bakaraofn og ísskáp með frysti. Því er um nýtt veiðihús að ræða og fyrsta flokks hús fyrir alla sem vilja hafa smá lúxus þegar farið er til veiða.
Lesa meira
Glæsilegt nýtt veiðihús við Ytri Rangá
Landeigendur og Lax-á hafa tekið veiðihúsið við Ytri Rangá í gegn á árinu 2011. Allt var tekið útúr gamla veiðihúsinu og ný viðbygging bætt við þar sem nýr matsalur og nýtt eldhús var reist í með útsýni yfir Rangárflúðirnar úr matsalnum ásamt því að setustofur og bar voru endurhannaðar. Nýja veiðihúsið er því stórbætt og öll aðstaða fyrir veiðimenn er orðinn fyrsta flokks. Með breytingunum getum við tekið á móti stærri hópum og fyrirtækjum en svefnpláss er fyrir 40 manns. Við hjá Lax-á erum afar stolt hvernig tókst til og hlökkum til að bjóða veiðimönnum uppá glæsilegt veiðihús og góða þjónustu næsta sumar.
Lesa meira
Stóra Laxá í Hreppum
Hróarslækur
Engum blöðum er um það að fletta að Hróarslækur var lélegur í sumar og langt undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sér í lagi þar sem sleppingar í fyrra voru í fullu samræmi við fyrri sleppingar samkvæmt okkar heimildum.
En eitt lélegt ár þarf ekki að vera fyrirboði fyrir næstu ár og erum við því bjartsýn á næsta sumar. Síðastliðið vor var töluverðum fjölda gönguseiða sleppt í Hróa sem skila sér að mestu næsta sumar, sleppingar tókust vel og voru seiðin í hæsta gæðaflokki
Blöndu uppgjör 2011
Blanda gamla hefur verið í fantaformi undanfarin tímabil, þrjú ár í röð hefur hún rofið 2000 laxa múrinn og sem fyrr er lunginn af veiðinni á svæði 1. Sumarið var um margt óvenjulegt fyrir norðan, Blanda rann mjög hrein fram að yfirfalli, nánast eins og bergvatnsá, og var óvenju lítið lituð eftir yfirfall – enda var ágústveiðin 340 laxar á svæði 1. Eins var minna um sveiflur á vatnsmagni í sumar en oft áður, en slíkt hefur mikil áhrif á hegðun laxins – sérstaklega á miðsvæðunum.
Lesa meira
Fyrsti dagur í Rjúpu
Fyrsti dagur í Rjúpnaveiði er í dag eins og mörgum er kunnugt. Fréttir sem við fengum í dag voru af veiðimönnum fyrir norðan sem höfðu fengið 14 fugla um hádegisbilið. Aðrir veiðimenn höfðu náð níu fuglum en þeir voru að veiðum í Dölunum fyrir vestan og voru á leiðinni heim sáttir.
Lesa meira
Þjórsá og Urriðafoss
Holl í Blöndu 4 forfallast
Nokkrir dagar voru að losna á svæði 4 í Blöndu – vanalega er þetta það svæði sem bókast upp fyrst hjá okkur og engin undantekning er á því núna.
Hinsvegar þurfti eitt holl að afbóka daga sem þeir höfðu pantað á næsta ári, dagarnir sem um ræðir eru um miðbik júlí – sannarlega góðir dagar.
Laxveiði til styrktar Fjölskylduhjálpar
Lax-á ætlar að leggja lóð á vogarskálarnar. Við höfum sett stangir sem við eigum lausar á morgun, 21. október í Ytri Rangá á tilboðsverð. Allar tekjur af sölu stanganna fyrir morgundaginn munu renna óskiptar til Fjölskylduhjálpar. Hægt er að nálgast stangir á www.agn.is
Lesa meiraVíðidalsá
Líkt og í svo mörgum öðrum ám þá var kuldi og fiskleysi var ekki beinlínis til að hífa upp aflatölur fyr stefan@lax-a.is
Ennþá kroppast upp úr Ytri
Nú er engum blöðum um það að fletta að haustið er komið með tilheyrandi litadýrð og rúðuskafi. Menn eru þó enn að egna fyrir laxinum í Ytri Rangá og geta aflabrögð verið góð þrátt fyrir misgóð skilyrði. Í gær komu 9 laxar á land í Ytri Rangá, þrátt fyrir töluverðan kulda og dreifðust þeir nokkuð yfir ánna
Lesa meiraLeiga á Lax-á veiðihúsum í vetur
Veiðitölur úr Stóru Laxá
Nú eru loks öll kurl komin til grafar í Stóru Laxá í Hreppum, en ekki höfðu allir laxar skilað sér í bókina þegar áin lokaði. Nú hafa síðustu skráningar skilað sér í hús og lokatalan er 795 laxar samkvæmt okkar bókum– sem okkur skilst að sé met.
Flugustöng týndist við Ytri Rangá
Á sunnudaginn síðasta varð veiðimaður fyrir því óláni að tapa glænýrri veiðistöng á bökkum Ytri Rangár. Um er að ræða 11 feta tvíhendu ásamt hjóli – líkast til var þetta Orvis stöng. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikið tjón þetta er enda vita flestir veiðimenn að slíkir gripir kosta sitt.
50 laxa dagur í Ytri í gær
Í gær komu upp 50 laxar úr Ytri Rangá, sem gera 2,5 laxa á stöngina að jafnaði. Haustveiðin hefur verið með ágætum í Ytri það sem af er og vonandi að svo haldist áfram.
Við eigum örfáar stangir lausar nú í vikunni og á sunnudaginn næsta.
Upplýsingar um verð og stangaframboð má finna á www.agn .is eða með því senda póst á spall@lax-a.is
Vöðlujakki tekinn í misgripum
Grár Scierra vöðlujakki hefur verið tekinn í misgripum í Ytri Rangá að kvöldi 28 september. Eigandi hans skildi hann eftir um stund við kaffistofuna hjá vigtunaraðstöðunni og var hann horfinn þega hans var vitjað aftur.
Lúsugir laxar í Ytri Rangá
Ytri Rangá er að gefa ágætlega miðað við árstíma en undanfarið hefur veiðin verið í 35 til 50 laxar þó að síðustu tveir dagar gáfu minna eða um 20 laxa. Mest hefur veiðst á maðk undanfarið en flugan er ekki langt á eftir. Lúsugir laxar hafa veiðst síðustu daga svo það er en lax að ganga í ánni. Verðið á veiðileyfum hefur lækkað talsvert núna á haustmánuðum en nokkuð er af lausum stöngum í október á góðu verði.
Lesa meiraForfallastöng í Ytri Rangá
Vegna forfalla losnaði stöng í Ytri Rangá á morgun 29. september. Veiðin hefur verið í 40-50 löxum í þessum mánuði. Upplýsingar er að finna á skrifstofu Lax-á og á vefsölunni agn.is.
Lesa meira
Klakveiði í Víðidalnum
Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá
Stórlaxar í Víðidalnum
Stakar vaktir í Ytri um helgina
Af Ytri Rangá
Ytri Rangá virðist ætla að halda sig í 35-50 löxum á dag í september. Við heyrðum í Matta veiðiverði og hann sagði að nokkuð af nýjum laxi hafi verið í ánni í gær en dagurinn endaði í 36 löxum. Veiðin deginum áður endaði í 40 löxum en hávaðarok var allan daginn. Mest hefur veiðst á
Lesa meira
Blanda sv 4
Veiðihúsi í Ytri Rangá lokað
Nú hefur veiðihúsinu við Ytri Rangá verið lokað fyrir veturinn og verða veiðleyfi seld frá morgni til kvölds það sem eftir er tímabils (út október).
Við vekjum athygli á því að daglegur veiðitími er sem hér segir:
20 – 30 september 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00
1 – 31 október 08:00 – 20:00
Tilboð fyrir veiðimenn hjá Hótel Rangá
Víðidalsá
September hefur verið þokkalegur í Víðidalsá þó hann hafi ekki verið skugginn af sjálfum sér miðað við síðustu þrjú sumur. Kuldin síðustu helgi hjálpaði ekki til en áin hefur tekið við sér aftur. Heildartalan er nú kominn í 662 laxa og má búast við að hún fari yfir 700 laxa fyrir lok tímabilsins sem lýkur 24.september.
Lesa meira
Stóra Laxá frábær
Veiðimenn eru enn að gera frábæra hluti á svæði I&II í Stóru Laxá. Sogsmenn voru þar enn og aftur á ferðinni síðustu 2 daga, enda ekki hægt að fá nóg af veislunni sem hefur verið í gangi þarna í haust. Lönduðu þeir 49 löxum og nokkrir stórir í aflanum, þar á meðal einn 102 cm dreki. Er þetta annar fiskurinn sem þeir veiða í haust á svæðinu sem er yfir 100 cm.
Lesa meira
Forfallaholl í Stóru Laxá um helgina
Vegna forfalla losnuðu allar 4 stangirnar á svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá núna um helgina (17 – 19 september). Ekki þarf að fjölyrða um veiðina þar að undanförnu, hún hefur einfaldlega verið frábær.
Stóra Laxá sv 4
Tungufljót í Biskupstungum
Fljótið hefur verið nokkuð rólegt í sumar an þó hafa komið nokkur ágæt skot seinnipartinn í ágúst og eins nú í september. Kalt var í Biskupstungum síðustu helgi og talsvert rok, þetta bitnaði vitanlega á veiðinni eins og menn þekkja – þó sáu menn eitthvað til laxa.
Fín veiði í Ytri Rangá
Ytri Rangá heldur áfram að skila góðum veiðitölum en um 40-50 laxar hafa verið að veiðast síðastliðna daga í ánni. Telst það vera fín veiði miðað við árstíma en í morgun komu 24 laxar á land. Maðkaveiði var leyfð eftir 29. ágúst og fór veiðin í kringum 200 laxar á dag fyrstu daganna en hefur svo dottið niður. Í áni er nú allt leyfilegt, maðkur, spónn og fluga.
Lesa meira
Fréttatilkynning vegna fráveitumála Rangárþings Ytra
Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku þá varð tæknilegt óhapp við losun á úrgangi frá Reykjagarði á Hellu, sem átti að fara til förgunar á Strönd.
Þessi mistök urðu þess valdandi að úrgangurinn fór í fráveitukerfi sveitarfélagsins og barst í Ytri Rangá, veiðimönnum til ama. Þetta var slys og um einangrað tilvik að ræða.
Fréttir af Syðri Brú
Vetraropnunartími skrifstofu
Vetraropnunartími er skollinn á hjá okkur á skrifstofu Lax-á. Nú er skrifstofan opinn frá 9-17 alla virka daga.
Lesa meira
Óhapp við Ytri Rangá
Eins og fram kom í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær varð óhapp hjá kjúklingabúinu Reykjagarði við Hellu í fyrradag þegar verið var að hreinsa úr fitugildru í verksmiðju fyrirtækisins. Flæddi þá uppúr veitukerfi verksmiðjunar með þeim afleiðingum að úrgangur fór í Ytri Rangá og litaði austurbakka árinnar í nokkra klukkutíma. Áin hreinsaði sig að mestu nokkuð fljótt og sést lítið sem ekkert í áni núna. Við hjá Lax-á hörmum að svona slys geti gerst og
Lesa meira
Fyrstu laxveiðiárnar að loka
Nú fara fyrstu laxveiði árnar ad loka hver á fætur annarri. Laxá á Ásum er rétt um það bil ad loka og sumarveiðin telur í kringum 400 laxa sem verður að teljast það lakasta sem ég man eftir a þeim bæ.
Lesa meiraVeislan heldur áfram í Stóru Laxá I&II
Stóra Laxá svæði I&II heldur áfram að skila góðum aflatölum. Svæðið er nú komið yfir 300 laxa og einungis ein vika búin af september. Síðustu tveir daga skiluðu um 60 löxum á svæðinu og þar af var einn 102 cm.
Lesa meira
Góður dagur á svæði IV í Stóru
Við heyrðum í veiðimönnum sem voru að klára morgunvaktina á svæði IV í Stóru Laxá. Þeir eru nú búnir að vera 2 vaktir og komnir með 4 laxa á 2 stangir. 2 laxana voru í smærri kantinum, 5 – 6 pund en hinir voru í stærri kantinum. Sá stærri var talinn vera í kringum 18 – 20 pundin og sá minni var c.a. 12 punda hrygna. Eins og menn vita þá er eingöngu veitt og sleppt á svæði 4 og eru þessir laxar því enn í ánni.
Mikil veiði í Stóru Laxá
Það er aldeilis góður gangur í Stóru Laxá þessa dagana. Franskir og Sænskir veiðimenn hafa verið að veiðum síðustu daga. Mokveiði hefur verið niður á svæði eitt og tvö , sumir dagar yfir 30 laxar á 4 stangirnar , svæði eitt og tvö mun vera að nálgast 300 laxa. Mikklu rólegra er á svæði þrjú og fjögur, en síðustu daga hafa þó verið að reitast inn fiskar og farið að sjást fiskur hingað og þangað bæði á svæði þrjú og fjögur. 90 prosent af veiddum laxi hefur verið sleppt aftur í ánna.
Góður eftirmiðdagur á Heiði – Bjallalæk
Tveir sem fóru á Heiði – Bjallalæk seinnipartinn í gær gerðu heldur betur góða veiði. Eftir vaktina voru þeir búnir að landa 3 löxum og 5 urriðum, laxarnir voru þessir hefðbundnu 5 – 7 punda Rangár Laxar en urriðarnir voru frá 3 og upp í 9 pund. Ekki amalegur meðafli það.
Mið-svæðin í Blöndu enn gjöful
Veiðimaður sem var við veiðar á svæði 2 í morgun var kominn með 1 lax úr Svarthyl og hafði einig misst annan við Geitaskarð, sá var nokkuð ánægður. Eins skrapp einn upp á svæði 3 í morgun og hafði 4 laxa upp úr krafsinu, 1 á flugu og hina á maðk.
Áfram mjög góð veiði í Stóru
Um 30 laxar veiddust í gær í Stóru Laxá, á svæði 1&2. Lúsuga laxa mátti finna í blanda við þá sem hafa verið lengur í ferskvatninu. Það er ánægjulegt að husa til þess að a.m.k. 26 þessara laxa eru ennþá í ánni og bíða næstu veiðimanna.
Einhver veiði hefur einnig verið á svæði 3 en svæði 4 hefur verið rólegra. Þó sáu menn stóra laxagöngu ganga upp af svæði 3 og er því von á að eitthvað fari að gerast uppi í gljúfrum.
Skrifstofa Lax-á lokuð á morgun (laugardag)
Vegna starfsmannaferðar verður skrifstofa Lax-á lokuð á morgun, laugardag.
Við verðum að sjálfsögðu mætt til starfa aftur á mánudag klukkan 08:00 og minnu á að www.agn.is er alltaf opið.
Góða helgi.
Starfsfólk Lax-á
Blanda 2 leynir á sér
Við heyrðum í veiðimanni sem var við veiðar á svæði 2 í Blöndu og sá var nokkuð sáttur. Hann byrjaði klukkan 15:00 í dag og var kominn með 3 laxa á innan við 3 tímum. 2 löxum náði hann í Vaðstreng og einum á Auðólfsstöðum – hann á enn Svarthylinn inni.
Svartá öll að koma til
Síðasta holl í Svartá, sem lauk veiðum núna í dag, var með um 20 laxa á land. Stærstu laxarnir voru um 14 – 15 pund og einnig veiddist nokkuð af vænum urriða. Að sögn voru misvanir veiðimenn í hollinu og stóðu menn víst ekki stíft við veiðar.
Svartá hefur verið nokkuð undir pari í sumar, sem stingur í stúf við laxagengd í Blöndu, en síðsumars- og haustveiðin hefur oft verið mjög drjúg í þessari frábæru á.
Blanda 1 að loka
Nú fer að líða að því að svæði 1 í Blöndu loki, á mánudag er síðasta vaktin á þessu ári. Sem kunnugt er þá opnar svæði 1 talsvert á undan efri svæðunum og lokar því fyrr.
Góð veiði hefur verið í Blöndu það sem af er sumars, þrátt fyrir að yfirfallið hafi verið full snemma á ferðinni. Blanda nálgast óðum 2000 laxana og það vekur athygli að yfir 300 laxar hafa veiðst eftir yfirfall.
Tungufljótið að sýna sitt rétta andlit
78 laxar á sex dögum í Stóru Laxá
Síðusta sex dagar Stóru Laxá hafa verið sannkölluð veisla. Svæði 1&2 hafa skilað 78 löxum á land og hafa 160 laxar verið skráðir í bókina á því svæði. Af þessum 160 löxum hefur 130 verið sleppt. Áin er þekkt fyrir sínar haustgöngur og virðist sem þær byrji fyrr þetta tímabil en undanfarin ár.
Lesa meira
Fyrsti dagur í maðkahollinu í 188 löxum
Fyrsta maðkahollið byrjaði í Ytri Rangá eftir hádegi í gær en sú vakt gaf 108 laxa og endaði dagurinn í alls 155 löxum. Í morgun voru 80 laxar komnir á land svo það gera 188 laxar á fyrsta daginn í maðkahollinu. Eru þetta fínar tölur miðað við að fluguveiðihollin á undan voru að gefa að meðaltali 70 laxa á dag.
Lesa meiraLoksins, Loksins í Tungufljóti
Eftir frekar óvenjulega byrjun í Tungufljóti framan af sumri er líf að kvikna og það líka svona vel. Undir lok síðustu viku mátti greina að laxinn væri að ganga en erlendir veiðimenn settu í mikið af fiski, helgin var líka fín en svo í morgun kom sprengja en kl 08:30 voru komnir 10 laxar á þeim 2 stöngum sem við heyrðum af, mikið af fiski virðist hafa gengið og gaman verður að heyra töluna í hádeginu frá öllum stöngum.. Axelo axelo@lax-a.is
Lesa meira
Haustveislan byrjuð í Stóru Laxá
Við fengum fréttir af svæðum 1 og 2 í Stóru Laxá núna um helgina. Frakkar sem þar eru að veiðum gerðu mjög góða veiði í gær – aflatölur nálægt 2 tugum. Mesta veiðin hefur verið í Fjósahvammi en þar fengu menn um tug laxa í gær.
Fréttir af Krossá í Bitru
Krossá í Bitru er kominn uppí 65 laxa í sumar en heildarveiði í áni síðastliðin ár er í kringum 90-100 laxar. Áin hefur verið frekar vatnslítil undanfarið en það hefur rignt síðastliðna daga. Það vantar ennþá aðeins uppá svo vatnsstaða teljist góð en haustrigningar sjá vonandi um það. En eru nýir laxar að ganga upp ána en lúsugur laxar veiddust síðastliðin sunnudag.
Lesa meiraYtri Rangá fyrsta maðkaholl
Það voru rétt í þessu að forfallast 2 stangir í fyrsta maðkahollinu í Ytri Rangá. Hið fræga holl byrjar kl 15.00 þann 29 ágúst og endar 1 sept.
Þetta er sennilega stefan@lax-a.is
Ágæt veiði í Hallá
Við heyrðuðm í veiðimanni sem var í Hallá í síðustu viku og gerði ágætis túr. Alls komu 11 laxar upp, allt upp í 12 pund, og veiddist bæði á neðri hlutanum og einnig uppi á dal.
Halláin getur verið mjög gjöful, ef rigningin frískar aðeins uppá hana, en að sama skapi getur hún verið erfið í litlu vatni – eins og algengt er með litlar ár. Einhver rigning er í kortunum um helgina og gæti því orðið fjör þarna fyrir norðan.
