Fréttasafn
Slegist um Hreindýr á Alþingi - Nýtt námskeið fyrir leiðsögumenn
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir það vilja sinn að haldið verði námskeið fyrir hreindýraleiðsögumenn vorið 2011. Þá verða liðin tíu ár frá síðasta námskeiði. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði ráðherra um námskeiðshaldið á Alþingi í dag. Námskeiðið er haldið á vegum Umhverfisstofnunar sem frá 2001 hefur ekki talið þörf fyrir það. Þingmaðurinn sagði um 80 hreindýraleiðsögumenn starfandi hér á landi og ljóst að þeir yngdust ekki. Því væri full þörf að halda nýtt námskeið.
