Fréttasafn
Sviptingar á milli landshluta á Rjúpnastofninum
Rjúpnastofninn stækkar bæði og minnkar, eftir því hvar á landinu er talið. Samkvæmt talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpnastofninum má skipta landinu upp í tvo hluta. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er aukning í stofninum frá fyrra ári um 29% að meðaltali í samandregnum tölum. Aftur á móti er fækkun um 39% á Suður- og Vesturlandi en þar hefur verið fækkun síðustu fimm ár allt síðan fuglinn var friðaður 2004 og 2005 ef 2009 er undan skilið.
Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, segir ástæður fjölgunar rjúpunnar á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi skýrari en fækkunin á hinu svæðinu. Veiðitímabilið hefur verið stytt úr 68 dögum þegar mest var í 18 og sölubann sett á. Eina skýringin sem Ólafur hefur á fækkun fuglsins á Suður- og Vesturlandi er snjóleysi en hann sagði jafnframt að frekari skýringa væri að vænta síðla sumars eftir mælingar á varpárangri rjúpna.
Á Norðausturlandi þarf hinsvegar að fara aldarfjórðung aftur í tímann til að finna svipaðan fjölda af rjúpu. Ólafur vildi ekki tjá sig þegar hann var inntur eftir því hvort skipta ætti landsvæðinu upp í veiðisvæði sökum ósamræmis á stærð stofnsins milli landsvæða.
Frétt fengin af www.ruv.is
